Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1995, Side 18
26
FÖSTUDAGUR 10. MARS 1995
Iþróttir
8-liða úrslit 1 körfuknattleiknum:
Sigurganga
ÍR stöðvuð
í Seljaskóla
- Skallagrímur skellti ÍR í framlengdum leik
Jón Kristján Sigurðsson skrifar:
Baráttu Skallagrímsmanna í leikn-
um gegn ÍR í gærkvöldi verður varla
lýst í orðum, hún var satt best að
segja engu lík á köflum. Skallagríms-
menn mættu fullir sjálfstrausts í
Seljaskólann í gærkvöldi, vígi ÍR-
inga sem fá lið hafa riðið feitum hesti
frá í eitt og hálft ár. Ósigraðir ÍR-
ingar á heimavelli í vetur í úrvals-
deildinni höfðu ekki margir trú á
Borgnesingum í þessum leik. Annað
kom á daginn. Leikurinn var lengst-
um í jafnvægi, ef undan er skilinn
upphafskaflinn í síðari hálfleik þar
sem ÍR-ingar virtust ætla að gera út
um leikinn. Nú má segja fullum fet-
um að pressan sé á ÍR-ingum fyrir
síðari leikinn í Borgamesi sem verð-
ur á sunnudaginn kemur. Borgnes-
ingar sigruðu, 84-86, eftir framlengd-
an leik.
ÍR-ingar skoraðu fyrstu 11 stigin í
síðari hálfleik en það sló ekki „Skall-
ana“ út af laginu. Smám saman réttu
Skallagrímsmenn úr kútnum og
komust upp að hiið ÍR með ægilegri
baráttu. Lokamínútur leiksins voru
dramatískar; Herbert Arnarsson
skoraöi þriggja stiga körfu þegar sjö
sekúndur voru eftir en Alexander
Ermolinskij jafnaði með sama hætti
á ævintýralegan hátt þegar leik-
tíminn var að íjara út. ÍR byijaði
framlenginguna betur en enn og aft-
ur komst Skallagrímur inn í leikinn
og tryggði sér glæstan sigur.
Herbert Arnarsson hélt ÍR-ingum á
floti með frábærri hittni. Aðrir náðu
sér ekki á strik og það reið bagga-
muninn. Það vantaði samt ekki mik-
ið upp á að Herbert ynni leikinn fyr-
ir ÍR á einstaklingsframtakinu. ÍR-
ingar verða að gera miklu betur í
Borgarnesi ef þeir ætla sér að verða
áfram í baráttunni.
Borgnesingar eiga skilið að fá 10
fyrir seigluna og baráttuna sem
fleytti þeim alla leið. Ermolinskij átti
stórkostlegan leik, örugglega einn
sinn besta fyrir félagið. Liðsheildin
fær einnig prik fyrir frammistöðuna
og sömuleiðis áhangendur liðsins
sem fjölmenntu og voru engum líkir.
„Þetta var ætlunarverk okkar. Við
ætluðum að leggja ÍR að velli hér og
það tókst. Það var þrennt sem skóp
þennan sigur: vörnin, Ermolinskji
og stuðningsmenn okkar sem era
þeir bestu í deildinni. Núna er press-
an á ÍR-ingum en með sama vamar-
leiknum forum við áfram,“ sagði
Sveinbjörn Sigurðsson við DV eftir
leikinn.
ÍR - Skallagrímur (37-34) (75-75) 84-86
2-2, 6-2, 10-16, 23-27, 32-31, (37-34). 48-34, 54-45, 61-53, 68-64, 70-68, 72-72,
75-72, 75-75. Framl. 83-78, 83-81, 84-86. ..
• Stig ÍR: Herbert Amarsson 31, Jón Örn Guðmundsson 17, John Rhodes
13, Halldór Kristmannsson 11, Eiríkur Önundarson 6, Björn Stephensen 2,
Eggert Garðarsson 2, Guöni Einarsson 2.
• Stig Skailagríms: Alexander Ermolinskij 33, Henning Henningsson 13,
Tómas Holton 12, Sigmar Egilsson 6, Sveinbjörn Sígurðsson 6, Arí Gunnars-
son 6, Grétar Guðlaugsson 6, Gunnar Þorsteinsson 4.
Fráköst: ÍR, vörn 25, sókn 15. Skallagrímur, vöm 22,
sókn 12.
3ja stiga körfur: ÍR 5, Skallagrimur 5.
Vitanýting: ÍR 19/15, Skallagrímur 26/17
Villur: {R 25, SkaUagrímur 20.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Heigi Bragason,
dæmdu vel.
Áhoriendur: Fuilt hús, 600 manns.
Maður leiksins: Alexander Ermolinskij, Skallagrími.
Alexander Ermolinskij og John Rhodes í einvígi um frákast í Seljaskólanum i gærkvöldi og má ekki á milli sjá
hvor hefur betur._______________ DV-myndJAK
Kef lavík á toppn-
um á réttum tíma
- vann Þórsara af miklu öryggi, 95-83
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Aðalatriðið var að minnka skor
Konráðs og halda Kristni vel niðri
og það tókst mjög vel. Þetta var með
betri leikjum okkar í vetur og það
er mjög jákvætt að ná því í úrshta-
keppninni. Við gerðum þá slaka með
góðum vamarleik. Leikurinn fyrir
norðan verður mjög erfiður og þar
verður barátta fram á síðustu mín-
útu,“ sagði Jón Kr. Gíslason, þjálfari
og leikmaöur Keflvíkinga, eftir ótrú-
lega léttan sigur á Þór, 95-83, í 8-liða
úrslitunum í Keflavík í gærkvöldi.
Þórsarar fóra hamfóram í 3ja stiga
skotunum til að byrja með og skor-
uðu úr 7 slíkum á fyrstu 10 mínútun-
um. Leikurinn breyttist þegar Böðv-
ar Kristjánsson kom inn á í liö Kefl-
víkinga og stal boltanum af Þórsur-
um hvað eftir annað með hraða sín-
um. Keflvíkingar snera leiknum sér
í hag og gerðu svo endanlega út um
hann með frábærum leikkafla í upp-
hafi síðari hálfleiks.
Keflvíkingar virðast vera á toppn-
um á réttum tíma og leikur þeirra
var stórkostlegur á köflum. Albert
Óskarsson sannaði enn einu sinni
hve góður vamarmaður hann er og
sóknarleikurinn var ekki síðri hjá
honum. Lenear Burns var sterkur
og þar hitti Sandy Anderson hjá Þór
ofjarl sinn að þessu sinni. Davíð Gris-
som er að komast í mikinn ham og
þáttur Böðvars í fyrri hálfleik var
dýrmætur. Annars var liðsheild
Keflavíkur góð.
Þórsarar þurfa að taka sig saman
í andlitinu ef þeir ætla ekki að verða
sér til skammar í næsta leik. Ein-
staklingsframtak þeirra dugar ekki
gegn sterku liði eins og Keflavík.
Allir lykilmenn liðsins léku langt
undir getu. Örvar Erlendsson var
skásti leikmaður Þórs og eins átti
Einar Valbergsson góðan leik í upp-
hafl þegar hann gerði 5 þriggja stiga
körfur.
„Við vorum mjög slakir. Á fyrstu
mínútunum héldum við okkur á floti
með ótrúlegri hittni og röðuðum 3ja
stiga skotunum niður en þaö gengur
aldrei heilan leik. Við voram ekki í
réttum takti; við komum kiukkutíma
of seint í leikinn og menn verða
spenntir við slíkar aðstæður. Þetta
hefur allt áhrif og svo léku Keflvík-
ingarnir vel. Við lékum einn slakasta
leik okkar í langan tíma og það þurfti
endilega að vera í úrslitakeppninni,"
sagði Hrannar Hólm, þjáifari Þórs.
Keflavík - Þór (58-50) 95-83
6-0, 9-3, 9-11, 17-14, 21-27, 29-27, 37-34, 45-34, 53-42, (58-50), 64-53, 75-53,
83-59, 87-74, 93-80, 95-83.
• Stig Keflavíkur: Albert Óskarsson 26, Davíð Grissom 22, Lenear Burns
16, Jón Kr. Gíslason 10, Böðvar Kristjánsson 7, Sigurður Ingimundarson 6,
Sverrir Þór Sverrisson 5, Einar Eínarsson 3,
• Stig Þórs: Kristinn Friðriksson 21, Sandy Anderson 16, Einar Valbergs-
son 15, Örvar Erlendsson 10, Konráð Óskarsson 9, Birgir Birgisson 6, Haf-
steinn Lúðvíksson 4, Björn Sveínsson 2.
Fráköst: Keflavik, 28 vörn, 14 sókn (Burns 14). Þór 21
vörn, 16 sókn (Anderson 14).
3ja stiga körfur: Keflavík 5, Þór 8.
Vítanýting: Keílavík 6/4, Þór 26/21.
Dóraarar: Kristján Möiler og Einar Þór Skarphéöins-
son, skiluöu sínu hlutverki meö stakri prýði.
Áhorfendur: Um 700.
Maður leiksins: Albert Óskarsson, Keflavík.
Böðvar Kristjánsson stóð sig vel
með Keflviklngum í gærkvöldi.
Ráðast úrslitin
um helgina?
Um helgina gæti ráðist hvaða
fjögur lið komast 1 undanúrsht
Islandsmótsins í körfuknattleik.
Skallagrímur fær tækifæri til
þess að klára dæmið á heimavelli
gegn ÍR á sunnudaginn en í hin-
um þremur leikjunum geta
heimaliðin jafnað metin. KR tek-
ur á móti Njarðvík á morgun og
Haukar fá Grindavík í heimsókn
en Þór og Keflavík leika á Akur-
eyri á sunnudaginn.