Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1995, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1995, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 1995 Fréttir Stiittarfréttir Lögreglunni i Reykjavík báruí frain til klukkan 14 í gær lilkymi ingar um 9 innbrot í fyrirtæk bíia og verslanir. Meðal annar var brotist inn í tölvuskóla o stolið þaðan töivubúnaði fyri hundruð þusunda króna. fisk vinnuslufyrirtæki og stolið þaöa: tölvu-, og símbúnaði og hálf tonni af laxi, hljómflutnigstækj um úr bílum og fieiru. -p anna sem létu Iffið í bílslysi Konan scm lést i bíisiysinu ofan við Hveradalsbrekku síödegis á sunnudag hét Hafdis Halldórs- dóttir frá Brekkum í Mýrdal, en til heimilis að Spóarima 13 á Sel- fossi. Hafdis var 29 ára. Sonur hennar, sem einnig beíð bana í slysinu, hét HaRdór Birkir Þorsteinsson, tæplega tveggja ára. Hafdís var vanfær, gengin rúma 8 mánuði með, og tókst ekki að bjarga fóstrinu. Riginmaður Hafdísar, sem ók bíinum þegar slysiö varö, gekkst undir aðgerö í fyrradag vegna kviðarhols- og höfuöáverka og liggúr á gjörgæsludeild Borgar- spítala. Aö sögn lækna er hann alvarlega siasaður og er haldið sofandi i öndunarvól. Hafdís Hall- Halldór Birfcir dórsdóttir, Þorsteinsson, fædd 18. sept- fæddurl8.apríl ember 1965. 1993. Strætisvagn ók yfir fót ungrar stúlku i Lækjargötu í gær. Strætisvagninn var að stöðvast þegar stúlkan rann und- ir hann með þeim afleiðingum að hann fór yfir fót hennar. Hún var flutt með sjúkrabíl á slysadeild en mun ekki vera jafn alvarlega slösuð og óttast var. DV-mynd GVA Sjálfstæðisflokkur: Vill áfram viðræður um auglýsingar Peningar frá Danmörku Kennarar hafa fengið fj árstuön- ing frá dönskum kollegum sínum upp á 33 milljónir króna. Skiiorðfyrirnauðgun Algengasti dómur fyrir nauög- un hér á landi er skilorösbundið fangelsi. Að sögn RÚV er refsing fyrir slík afbrot vægari en i ná- grannalöndum. Ufillverðbólga í kjöifar kjarasamninga hafa sérfræðingar Seðlabankans spáö áframhaldandi lítilli verðbólgu, aö meðaltali 2,3% næsta árið. Sinkiðnálgast Undirbúningsaðilar sinkverk- smiðju á Grundartanga vonast til að hráefiussamningar takist í næsta mánuði. Ef svo fer er helsti þröskuldurinn að baki, kom fram á Stöð 2. Krám lokað á miðnætti Borgaryfirvöld íhuga róttækar breytingar á opnunartima vín- veitingahÚ8a. Þannig yrði krám hugsanlega lokað á miönætti en möguleiki veittur til reksturs einkaklúbba fram á nótt, aö sögn Stöð 2. Hæsti vmningur í íslenskum getraunum tfi þessa, 15,6 mfiljón* ir, er enn ósóttur. Vinningurinn kom á tölvuvaisseðii sem keyptur var í söluturninum Gerplu um heigina. Dómsúrskurðfyrst Landbúnaðarráöherra telur óhjákvæmilegt að láta dómstóla skera úr um eignarhald mjólkur- samlagsins i Borgarnesi. Kjartan Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisfiokksins, hefur sent framkvæmdastjórum allra stjómmálaflokkanna bréf þar sem hann lýsir þeirri skoðun sinni að viðræðum um takmarkanir á aug- lýsingum í kosningabaráttunni sé ekki lokið og spyr hvort flokkamir hafi áhuga á því að halda viðræðun- um áfram og að reyna komast að samkomulagi. „Ég er aiveg sammála fram- kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins um að það sé alveg hægt að komast að samkomulagi ef vilji er fyrir hendi. Ég hef þegar tilkynnt honum að ég sé tilbúinn að ræða málin og halda áfram út frá þeim drögum sem fyrir voru,“ Einar Karl Haraldsson, framkvæmdastjóri Aiþýðubanda- lagsins. Einar Karl segir að viðræður milli stjómmálaflokkanna hafi legið niðri frá því Alþýðuflokkurinn kvað upp úr um þaö nýlega aö hann hefði ekki áhuga á að gera samkomulag um auglýsingar í stjómmálabaráttunni. Áhrifkennaraverkfaflsins: Niðurstaða fyrsta dómsins 1 máfl flugfarþega vegna reykinga á salemi: Laumureykingar í flugi þar sem hættan er mest - dómurinn gagnrýnir Flugleiðir fyrir að nota fltt næma reykskynjara Maður sem ákæröur var fyrir að hafa valdið almannahættu um borð í Flugleiðavél með því að hafa hent logandi sígarettustubb í rasladall salemis á síðasta ári hefur verið sýknaður af sakargiftum í Héraðs- dómi Reykjavíkur vegna skorts á sönnunum. Maðurinn var hins vegar sakfelldur fyrir að hafa brotið loft- ferðalög með því að reykja á salem- inu. í málinu, sem var það fyrsta sinnar tegimdar fyrir dómstól hér á landi, kom fram að reykskynjarar á salemum flugvéla era gjaman þann- ig aö þeir gefa nánast ekki frá sér viðvörunarmerki fyrr en reyk er blásið beint á þá úr lítilli fjarlægð. í niðm-stöðu gagnrýnir dómurinn flugfélagið fyrir að hafa ekki breytt reykskynjurum eftir atburðinn. Umrædd flugvél var á leið til Kaup- mannahafnar í apríl síðastliðnum þegar flugfreyjur urðu þess áskynja að reyk lagði frá rasladalli á salemi. Slökkvitæki var notað til að slökkva í dallinum. Granur beindist aö viö- komandi manni sem hafði verið inni á salemi stuttu áður. Lögreglan í Kaupmannahöfn hafði tal af honum þegar vélin var lent. Maðurinn var síðan ákærður hér á landi eför að heim kom. Hann viður- kenndi að hafa reykt á saleminu en kvaðst hafa hent sígarettustubbnum í salemið og síðan sturtað niður. Maðurinn sagðist viss um aö sá sem fór inn á salemið á undan honum hefði einnig reykt þar. Dómurinn taldi „langlíklegast“ að ákæröi hefði kastað sígarettunni log- andi í rusladallinn en þar sem hann neitaði því alfarið og sannanir lágu ekki fyrir var hann látinn njóta vaf- ans. Gagnrýnt var aö engum sönnun- argögnum úr flugvélinni var haldið til haga, s.s. sígarettustubb. í dóminum kemur fram að margir flugfarþegar fari sínu fram þrátt fyr- ir reykingabann um borð, ekki síst ef þeir eru undir áhrifum áfengis. Því sé reykt, og verði vafalítið reykt áfram í laumi á salemum flugvéla, einmitt þar sem hættan er mest. Flugfreyjur hafi oft orðið varar við reykingalykt á salernum án þess að geta sannað reykingar á tfltekinn farþega. Því sé Úklegt að nokkuö sé um brot á reglum um reykingabann. í skýrslu um flugóhapp kom fram að reykskynjari á umræddu salemi væri ekki mjög næmur. Salemið væri lítið, lokað rými þar sem úða- mengun væri oft af Umvatni eða hár- úða og hætta á að slíkt kveikti á reyk- skynjuram sem myndi valda ónæði og slæva öryggistilfinningu þeirra sem um borð vinna. M.a. vegna þessa hafi skynjarinn verið hannaður eins og raun bar vitni. Samkvæmt þessu taldi dómurinn að reykur gæti leikið um salernið án þess að reykskynjari færi í gang. Þrátt fyrir ummæli í flugskýrslu um hættu sem kann að stafa af reyk- ingum á salemi flugvéla taldi dómur- inn ákæruvaldið ekki hafa sýnt fram á að reykingar ákærða hefðu valdið aimannahættu. -Ótt Verða samræmdu próf in látin falla niður í vor? Gyifi Kristjánaaon, DV, Akureyii „Samræmdu prófin vom látin falla niður í grunnskólum landsins eftir íjögurra vikna kennaraverkfall árið 1984 en skólunum vom send próf sem þeir gátu notað ef þeir vildu,“ segir Trausti Þorsteinsson, fræðslusljóri á Norðurlandi eystra, um þær vanga- veltur að samræmdu prófin í 10. bekk grunnskólans verði felld niður í vor. „Það liggur ekkert fyrir um það hvemig tekið verður á þessu máli núna en það stefnir allt í að verkfall- iö nú verði jafnlangt eða e.t.v. lengra en verkfallið 1984. Eg held að ef menn em að hugsa um að fella niður sam- ræmdu prófm núna þá verði reynsl- an frá 1984 skoðuð áðiu* en ákvörðun verður tekin," segir Trausti. Trausti segir að áhyggjur sínar vegna verkfallsins séu ekki bundnar við 10. bekkinn einan. „Ég hef einnig áhyggjur af yngri krökkunum því verkfallið hefur mjög slæm áhrif á þá. Þaö er t.d. mjög slæmt að bijóta upp lestrarkennslu og það skildi eng- inn halda að það að loka skólunum í einhveijar vikur og taka svo upp þráöinn eins og ekkert hafi í skorist sé hægt.“ Þá segir hann að svo geti farið að áhrif verkfallsins í framhaldsskólun- um verði m.a. þau að einhver hópur nemenda hætti hreinlega námi og gefi frá sér þá önn sem nú á aö standa yfir. „Allt er þetta mjög slæmt mál og eins það að nemendurnir hafa ekki þann samastað sem skólamir em, þeir era jú vinnustaðir nemend- anna,“ segir Trausti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.