Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1995, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1995, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 1995 Fréttir Maðurinn sem sat inni vegna Skeljungsránsins laus: Handtakan var algerlega ástæðulaus - telur lögregluna eiga erfitt með að viðurkenna mistök „Ég er mjög ósáttur við þessa handtöku sem ég tel aö hafi verið algjörlega ástæðulaus," segir 32 ára maður sem lögreglan handtók á leið til Amsterdam, stuttu eftir Skelj- ungsránið. Manninum var haldið í gæsluvarðhaldi í Síðumúlafangelsi í tíu daga án þess að lögreglan hefði sannanir gegn honum. Manninum var sleppt á fóstudag og hyggst hann nú kæra lögregluna vegna þessarar handtöku. „Ég var tíu ár í miklu rugli, var fíkniefnaneytandi og lenti oft í af- brotum. Ég hef margoft setið inni og er því þekktur hjá lögreglunni. Und- anfarin fimm ár hef ég hins vegar verið þuir og hef ekki brotið neitt af mér. Ég er búinn að gjörbreyta lífi mínu og hef verið í fuUri vinnu. Árið 1989 var ég nær dauða vegna ofneyslu og lenti þá á sjúkrahúsi fár- veikur. Síðan fór ég í ellefu mánaða meðferð og hef ekki smakkað vin eða fíkniefni síðan. Mér finnst það mjög hart að lenda í þessu þar sem ég mátti ekki við þvi að við mannorði mínu væri hróflað. Til dæmis birti Morgunpósturinn nafn mitt og ég mun kæra hann fyrir það. Menn eru ekki sekir fyrr en sekt þeirra er sönn- uð,“ segir maöurinn. Peningar mínir koma lögreglunni ekki við Hann segist hafa verið í fuUri vinnu undanfarin ár og hafi lagt peninga tíl hhðar til íbúðarkaupa síðar. „Mig langaði að bjóða vinkonu minni með mér í skemmtiferð, ætlaöi að taka mér bílaleigubU og keyra um Holl- and. Auk þess langaöi mig að kaupa gömui húsgögn enda vita aUir að það er hægt að hagnast vel á slíkum við- skiptum. Ég var þess vegna með alla þessa peninga á mér. Annars skU ég ekki hvað lögreglunni kemur við þótt ég sé með peninga á mér. Það eru alUr með mikla peninga á sér á leið tíl útlanda og ég hef ekki Visa- kort,“ segir maðurinn enn fremur. Hann segist ekki hafa munaö fyrstu dagana í gæsluvarðhaldinu hvar hann hafi verið á mánudags- morgninum enda hafi hann verið yfirspenntur vegna handtökunnar og með slæmt minni vegna langvar- andi neyslu. „Ég veit hins vegar að rannsóknarlögreglunni var vel kunnugt um ferðir mínar en hún gaf mér engin stikkorð tU aö rifja upp. Þegar ég loksins mundi að ég haíöi t.d. verið að versla í HeimUistækjum þennan morgun ásamt vini mínum sögðu þeir: Loksins manstu þetta. Eg hefði aldrei látið mér detta í hug að kaupa farseðla tíl útlanda ef ég hefði verið viðriðinn eitthvert rán, svo vitlaus er ég ekki. Auk þess kenndi lögreglan mér um sprenju- hótunina sem var alls ekki mitt verk. Ég hélt að ég hefði gleymt farseðlun- um mínum heima og sneri því við og þess vegna var ég orðinn alltof seinn. Ég talaði við kunningja minn og sagði honum að ég væri að missa af vélinni en hann sagðist ætla að bjarga því. Ég hafði ekki hugmynd um að hann ætlaöi að nota þessa aðferð tíl þess og það kom mér mjög á óvart,“ segir maðurinn. „Það er alveg ljóst að Rannsóknar- lögregla ríkisins er ekki nógu góð að leysa erfið glæpamál. Hún kíkir í gömlu bófaskrána og leitar að nöfn- um en ef hún finnur engan í henni getur hún ekki neitt. Auk þess á hún mjög erfitt með að viðurkenna mis- tök eins og í mínu tilfelli." Deilt um aukningu skulda á Akranesi Garöar Guðjónsson, DV, Akranesi: Skuldir Akranesbæjar aukast um 40 mUljónir króna á árinu sam- kvæmt fjárhagsáætlun sem bæjar- stjóm samþykkti á dögunum. Bæjar- fulltrúar Framsóknarflokksins deildu á meirihluta bæjarstjórnar vegna skuldaaukningarinnar og greiddu áætluninni ekki atkvæði sitt. BæjarfuUtrúar meirihlutans töldu hins vegar eðlUegt að bærinn héldi uppi framkvæmdum í erfiðu árferði eins og nú er og því væri ekki rétti tíminn til að greiða niður skuldir. Atvinnuleysi var 9% á Akranesi í janúar. Húsið við Suðuriandsbraut, sem brann fyrir tveimur vikum, var hreinsað af grunni sínum um helgina. Húsið gereyðilagðist í brunanum og tugmiilj- ónatjón varð. Rannsókn er lokið og reyndist ekki unnt að upplýsa upptök eldsins þar sem allt brann sem brunnið gat innandyra. Á myndinni virða starfsmenn verktaka fyrir sér stórvirkar vinnuvélar brjóta niður rústirnar. DV-mynd Brynjar Gauti Stofnfundur Sjávamytja: Vilja stuðla að skynsamlegri nýtingu hvala „Það hefur oröið mjög mikil fjölg- un á hval og það kallar á auknar rannsóknir. Vísindamenn eru nú famir að viðurkenna að hvalir éti fisk. Það þarf að finna út hversu mikið hvalurinn étur og hvaða hlut- verki hann gegnir í lífkeðjunni. Til- gangur þessara samtaka er að stuðla að skynsamlegri nýtingu þessara dýra,“ segir Birgir Stefánsson stýri- maður sem ásamt Þórði Hjartarsyni stendur fyrir stofnun samtaka sem hafa það að markmiði að stuðla að skynsamlegri nýtingu á sjávarspen- dýrum. Auk þeirra félaga standa sel- veiðimenn að samtökunum. „Við bendum á að Norðmenn hafa veitt hrefnu í þijú ár án þess að það komi niður á mörkuðum þeirra. Þvert á móti hafa þeir aukið útflutn- ingsverðmæti sjávarafurða um 17 milljarða," segir Þórður. Að sögn þeirra félaga heita samtök- in tilvonandi Sjávamytjar og verður stofnfundur þeirra á Hótel Sögu í kvöld. Fundarstjóri verður Bjami Grímsson fiskimálastjóri. -rt Þar sem kosningar til Alþingis fara fram innan mánaðar taldi Dagfari víst að stjórnmálaflokk- amir væm fyrir löngu búnir að móta og kynna stefnuskrár sínar. Það kom honum því mjög á óvart þegar Framsóknarflokkurinn kall- aði fréttamenn á sinn fund rétt fyr- ir helgi til að kynna stefnuskrá flokksins. Þetta kom líka nokkuð flatt upp á þá fréttamenn sem sóttu stefnuskrárfundinn. Þeir vom sömuleiðis hissa á því að ekki væri minnst á sjávarútvegsstefnu í þess- ari stefnuskrá og höfðu orð á því við Halldór formann. Halldór Ásgrímsson upplýsti þá að ekki væri verið að kynna stefnu- skrá Framsóknarflokksins heldur væri þetta kosningastefnuskrá flokksins. Það væri íjallað um sjáv- arútvegsmálin í hinni eiginlegu stefnuskrá sem hefði verið sam- þykkt á flokksþinginu í vetur. Mál dagsins snerist hins vegar um kosningastefnuna. Þetta er auðvit- að hárrétt þjá Halldóri. Vitaskuld þurfa flokkamir sérstaka kosn- ingastefnuskrá. Þeir þurfa að vera með sérstaka stefnu fyrir kosning- ar til þess að Kjósendur haldi ekki að sú stefna sem gefin er út á lands- fundum gildi. í þessari kosninga- stefnuskrá Framsóknarflokksins ! er til dæmis lögö áhersla á að næsta ! ríkisstjóm verði mynduð undir for- Isæti Halldórs. Það er auðvitaö I nauðsynlegt að setja svona ákvæði I í kosningastefnuna því annars ! kynnu einhveijir kjósendur að standa í þeirri trú að HaUdór vildi ekki í stól Davíðs. í kosningastefn- unni er líka komist að þeirri gagn- merku niðurstöðu að aukin ríkisaf- skipti leiði ekki til verðmætasköp- unar. Mun þetta ákvæði byggt á rannsóknum á þeirri reynslu sem fékkst af ríkisafskiptum framsókn- armanna í ríkisstjómum undan- farna áratugi. Aðrir flokkar hafa ekki hóað i blaðamenn til að kynna kosninga- stefnur sínar. En stefna þeirra virðist samt skýr. Jón Baldvin vill í stjóm og að við sækjum um inn- göngu í ESB. Dayíö vill í stjórn án aðildar að ESB. Ólafur Ragnar vfil í stjórn til að mynda geysilega öflugt bandalag með Asíubúum þar sem kraftvélar efnahagslífsins ganga hvað hraðast. Jóhanna hefur þá stefnu að fara ekki í stjórn með Sjálfstæðisflokknum og hafnar ESB og Asíuleiðinni. KvennaUst- inn hefur þá stefnu að fara í stjórn með hveijum sem er, hvar sem er, hvenær sem er og hvað sem það kostar. HaUdór hefur þá stefnu aö mynda stjórn eftir kosningar sem skipti sér ekki af efnahags- eða at- vinnumálum en kanni tvíhUða viö- ræður við ESB, Noreg, Kína og Japan. Ef viö reynum að einfalda þetta svolítið verður útkoman sú að þeir sem vUja ESB kjósa Jón Baldvin. Þeir sem vUja Asíuleiðina kjósa Ólaf Ragnar. Þeir sem-vilja hvorugt kjósa Davíð. Þeir sem vUja ekki bera ábyrgð á ríkisstjóm kjósa Jó- hönnu og þeir sem telja HaUdór góöan forystusauð kjósa hann. Þeir sem vUja hvaða leið sem er og hvaða stjórn sem er kjósa Kvenna- Ustann. Og ef einhveijir era ekki ánægðir með þessa kosti geta þeir bara setið heima á kjördag eða skil- að auðu. Svo era alltaf tíl nöldrarar sem vísa í svikin kosningaloforð allra flokka á liðnum árum. Það er fóUdð sem skilur ekki stjómmál, stefnur eða kosningastefnur. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.