Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1995, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 1995
11
Fréttir
Opinberir starfsmenn:
Kjarasamningar í kyrrstöðu
- beðið niðurstöðu kennaradeilunnar
„Þaö hefur nánast ekkert gerst.
Haldinn hefur verið einn og einn
fundur meö félögunum svona meira
til aö uppfylla skyldur en til að
semja. Ég held aö fólk hafi það á til-
finningunni aö ekki verði samið við
BSRB-félögin á undan kennurum,"
sagði Svanhildur Halldórsdóttir hjá
BSRB í samtali við DV í gær.
Hún sagði að BSRB sem slíkt kæmi
ekki að samningunum. Það gerðu
félögin hvert fyrir sig.
Sama er upp á teningnum um það
hjá BHMR. Birgir Björn Sigurjóns-
son, framkvæmdastjóri bandalags-
ins, sagði að þar færi hvert félag fyr-
ir sig með samningsréttinn. Hann
sagði að í síðustu viku hefðu nokkur
félög innan BHMR fengið sína fyrstu
fundi með samninganefnd ríkisins
og þar gefist kostur á að kynna kröf-
ur sínar. Fleiri félög ættu von á fund-
um í þessari viku. Birgir Björn benti
á að sú stefnubreyting samninga-
nefndar ríkisins í síðustu viku að
hefja viðræður við fleiri félög en
kennarafélögin benti ef til vill til þess
að ekki yrði endilega beðiö eftir því
að samningar tækjust við kennara
áður en samið yrði við önnur félög.
Kristin Stefánsdóttir, 19 ára Kópavogsbúi, auglýsti eftir búslóð og barna-
dóti gefins í október og svo aftur eftir ibúð til leigu í smáauglýsingum DV
i haust. Svörunin var mjög góð og þau voru búin að fá húsgögn og íbúð
eftir nokkra daga. Kristín segist hiklaust geta mælt með smáauglýsingum
DV. DV-mynd GVA
Smáauglýsingar DV skila árangri:
Fengu búslóð á
nokkrum dögum
„Viö áttum ekkert svo við settum
auglýsingu í blaðið og óskuðum eftir
öllu í búið ódýrt eöa gefins. Við feng-
um hjónarúm, barnarúm og svefn-
sófa, þvottavél og margt fleira - allt
gefins. Við auglýstum eftir íbúð og
fengum fbúð. Svo þurftum við að
leigja íbúðina okkar út og ég aug-
lýsti eftir leigjendum í DV. Svo seldi
ég allt dótið sem við áttum um dag-
inn. Það var hringt löngu eftir að ég
var búin að selja allt. Ef við hefðum
átt meira hefði ég getað selt meira,"
segir Kristín Stefánsdóttir, 19 ára
Kópavogsbúi.
í október á síöasta ári ákváðu
Kristín og kærastinn hennar að fara
að búa en þau eiga von á sínu fyrsta
barni eftir mánuð. Þar sem þau áttu
lítið í búið ákváðu þau að auglýsa í
DV, fyrst eftir búslóð og dóti fyrir
barniö og svo eftir íbúð til leigu.
Kristín segir að svörunin hafi verið
mjög góð. Þau hafi verið búin að fá
fullt af dóti og verið flutt inn í íbúð-
ina eftir þrjá eða fjóra daga frá því
að auglýsingin birtist. Kristín segist
mæla hiklaust með smáauglýsingum
DV.
„Við seldum gamalh konu í Árbæ
glerborð fyrir þúsundkall og ég
bauðst til að keyra það til hennar.
Hún var svo ánægð þegar ég kom
með það og var búin að búa til falleg-
an dúk á það. Ég vildi gefa henni
borðið en hún vildi að ég tæki þús-
undkall í bensín. Og svo til að kóróna
allt vorum viö dregin út í smáauglýs-
ingapotti DV og unnum gufustrau-
jám fyrir nokkrum vikum,“ segir
Kristín að lokum.
ALVÖRU HLJÓMUR!
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR:
• Digital FM/MW/LW útvarp
með 19 minnum
• 100 watta magnari
• Forstilltur tónjafnari
með 5 stillingum
• Geislaspilari
• Tvöfait Dolby segulband
• Innstunga fyrir heyrnartól
og hljóðnema
• Fullkomin fjarstýring
• Surround-hljóðkerfi
• 100w hátalarar
FULLKOMIN
SURROUND-HUÓMTÆKI
nvzirpsmiðstöi
SIÐUMULA 2 • SIMI 68 90 90
MX-92
Rykmælir
fótrofi
INNDRAGANLEG SNÚRA
GEYMSLA fyrir fylgihluti
KRAFTMIKILL 1200 WATTA mótor
Styllanlegur sogkraftur
breytilegur haus fyrir hörð gólf og teppi
létt og meðfærileg (4,9kg)