Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1995, Síða 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 1995
VINNIN LAUGA (T)( (25 GSTÖLUR RDAGINN 11.3.1995
y® vD
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1.5 al 5 0 8.923.433
r\ 4 af 5 r~ Plús ^ ÍP 100.710
3. 4af 5 171 7.110
4. 3af 5 5.494 510
Heildarvinningsupphæð: 13.646.153
m BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
Taktu þátt. Þú gætir
unnið ijúffenga
fjölskyldu-
veislu fyrir sex.
Muniö aö svörin viö
spurningunum er að
finna í blaðaukanum
DV-helgin sem fylgdi DV
síðasta föstudag.
Sviðsljós
Demi Moore er ekki bara falleg:
Bæði vel gefin
og hæfileikarík
Demi Moore er sko enginn aukvisi þegar kemur að heilastarfseminni.
Ef fegurðin væri það eina sem
þyrfti til þess að verða súperstjama
í kvikmyndunum gæti hver einasta
fyrirsæta sem verið hefði á forsíðum
tískublaðanna orðið stjama í Holly-
wood. En svo er auðvitað alls ekki.
Það em aðeins nokkrar leikkonur í
Hollywood nú um stundir sem taldar
eru geta „horið uppi mynd“ ef svo
má að oröi komast. Ein þeirra er
Demi Moore en hún er eftirsóttasta
leikkonan í Hollywood um þessar
mundir.
Síðasta mynd hennar nefnist Dis-
closure, eða Afhjúpun eins og hún
hefur verið nefnd á íslensku. Þar
þykir Demi fara á kostum. Menn eru
almennt sammála um það að Demi
Moore sé mjög vel gefin kona og það
skíni vel í gegn í hlutverkum henn-
ar. Hún þykir auk þess mjög snjöll
viö að velja sér hlutverk. Hún leikur
aldrei gálur, eða það sem Kaninn
kallar „bimbos", heldur leikur hún
alltaf snjallar konur sem standa jafn-
fætis körlunum eða eru þeim fremri.
Þetta hefur orðið til þess að karl-
menn um víða veröld hreinlega elska
Demi.
Demi Moore fæddist þann 11. nóv-
ember árið 1962 og var skírð Demetr-
ia Guynes. Foreldrar hennar voru
vart annaö en unglingar þegar Demi
fæddist. Þau voru hálfgert vand-
ræðafólk og Demi haföi flutt búferl-
um 48 sinnum áöur en hún flutti
endanlega frá foreldrum sínum sext-
án ára gömul. Fimm árum seinna
fékk hún sitt fyrsta leikarahlutverk
í sápuóperunni „General Hospital“.
Fyrsta kvikmyndahlutverkið hennar
var hins vegar í myndinni Blame it
on Rio þar sem hún lék á móti Micha-
el Caine. Sú mynd hlaut hins vegar
ekki sérstaklega góða dóma gagnrýn-
enda. Ein af fyrstu myndum hennar
var líka myndin St. Elmos Fire en
sú varð mjög vinsæl. Það var eins
konar unglingamynd og Demi var
jafnan flokkuð með ungum leikurum
sem þóttu efnilegir á þeim ‘tíma svo
sem Molly Ringwald, Emiho Estevez,
Anthony Michael Hall og Rob Lowe.
Ljóst er að Demi er nú búin að stinga
þessi öll af hvað vinsældir og vel-
gengni varðar.
Demi Moore sló þó ekki almenni-
lega í gegn fyrr en með myndinni
Ghost frá árinu 1991 en þar lék hún
á móti Patrick Swayze. Myndin varð
metsölumynd um allan heim. Strax
áriö eftir lék hún í myndinni A Few
Good Men ásamt Jack Nicholson og
Tom Cruise. Frá og með þeirri mynd
hefur Moore leikið „sterkar konur“.
í nýjustu mynd sinni, „Disclosure“,
leikur Demi hörkukvendi sem fer illa
meðMichael greyið Douglas og kvik-
myndaframleiðendur keppast nú viö
að bjóða í hana.
MARMARIS
99-1750
Glæsilegir ferðavinningar
\ boði fyrir heppna þátttakendkr!
Sólarleikur Úrval-Útsýn er
skemmtilegur leikur þar sem þú
getur unniö glæsilega vinninga.
Þaö eina sem þarf aö gera er að
hringja í síma 99-1750 og svara
þremur laufléttum spurningum
um sumar og sól. Svörin viö
spurningunum er að finna í
feröabæklingi Úrvals-Útsýnar
„Sumarsól". Bæklinginn getur þú
fengið hjá feröaskrifstofunni
Úrval-Útsýn og umboösmönnum.
Verö 39.90 mín.
Miðvikudagana 8., 15., 22. og 29. mars verður einn heppinn
þátttakandi dreginn úr pottinum og hlýtur hann 5000 kr.
innborgun fyrir tvo inn á ferö til hins glæsilega sólarbæjar
Marmaris í Tyrklandi. Heildarverömæti hvers vinnings er því kr.
10.000. Allir sem svara öllum þremur spurningunum rétt komast í
pottinn í hverri viku og einnig f aðalpottinn. 1. apríl kemur f Ijós
hver dettur í lukkupottinn og hlýtur ævintýraferö fyrir tvo f tvær
vikur til lands ævintýranna, Tyrklands, á hinn sólrfka staö
Marmaris við Miðjaröarhafið.
Heildarverðmasti aðaí-
vinninge er kr. 150.000!!!
Alltaf í fararbroddi þegar
ævintýrin gerast erlendis!
Björk Guðmundsdóttir lét sig ekki vanta þegar tískuhönnuöurinn Hussein
Chalayan sýndi haust- og vetrartísku sína i London á sunnudag. Hún virðist
í uppáhaldi meðal breskra Ijósmyndara sem flykktust að henni í áhorfenda-
hópnum. Ný plata er annars i burðarliðnum hjá Björk en hún er nýkomin
frá Bahamaeyjum þar sem hún lauk upptökum.
Elísabet Englandsdrottning
hefur látið setja sérstaka örsmáa
tölvukubba inn undir feldinn á
hundunum sinum, að undirlagi
bresku dýraverndarsamtakanna.
Með skanna er síðan auðvelt að
lesa upplýsingar um eigendur
hundanna ef þeir kynnu nú að
hætta sér of fjarri heimili sínu
og rötuðu ekki heim aftur.
Ella alein í ellinni
Bandaríska djasssöngkonan
Ella Fitzgerald eyðir elliárum
sínum í heldur dapurlegri ein-
angrun í húsi sínu i Beverly Hills.
Hún þjáist af sykursýki og hafa
læknar þurft að taka af henni
báða fótleggi þar sem drep var
komið i þá. Ofan á það bætist að
Ella er nú nær alveg blind. Eina
manneskjan sem þessi mikla
söngkona hefur samband við er
þjónustustúlkan hennar.
Karolma
í heimsókn
Karólína prinsessa af Mónakó
ætlar að bregöa sér bæjarleið í
maí og heimsækja Bretland. AUt
frá því hún missti móður sína,
Grace prinsessu, og síðar eigin-
manninn, Stefano Casiraghi, hef-
ur prinsessan haft hægt um sig
og varið mestum tíma sínum með
börnunum þremur, þeim Pétri,
Karlottu og Andreu. í London
ætlar hún að horfa á Mónakóball-
ettinn.
Prins
Filippus drottningarmaður af
Englandi vissi ekki hvað hann
átti að gera við fingraskálina sem
sett var á borðið fyrir framan
hann hér endur fyrir löngu. Hann
lét þjóninn sinn hella vatninu úr
henni og fyllti hana síðan af berj-
um sem voru í eftirmat. Þjónn
kjaftaði nýlega frá þessu
Simamynd Reuter