Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1995, Side 25
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 1995
25
dv__________________Menning
Guðdómlegur
sirkus
Á vegum Sólstafa var óperan Sirkusinn guödómlegi fluttur í Borgarleik-
húsinu sl. fostudagskvöld. Höfundurinn, Per Norgaard, er eitt virtasta
tónskáld Dana og meðal hins mikla fjölda verka sem frá honum hafa
komiö eru m.a. þrjár óperur en fyrir þá þekktustu þeirra, Gilgamesh,
hlotnuðust honum tónskáldaverðlaun Norðurlandaráðs 1974.
Óperan Sirkusinn guðdómlegi fjallar um líf og fantasíur Svisslendings-
ins Adolfs Wölílis sem var/er þekktur fyrir geðsýki sína og sérstæða list-
sköpun. Verkið er ákaflega súrrealískt og sýnir mikið ímyndaðar sýnir
Tónlist
Áskell Másson
Wölflis. Hljómsveitina skipa sex slagverksleikarar, sellóleikari og hljóm-
borðsleikari sem leikur á hljóðgervil. Umsjón með þessu umfangsmikla
slagverki haföi Kjell Samkopf, sem er bæði þekktur sem slagverksleikari
og í dag ekki síður sem tónskáld. Hljóðfæraleikarar og söngkraftarnir
allir koma frá Den Norske Opera, tónstjóri er Tore Dingstad, leikstjóri
Per Einar Fosser, búningahönnuður Kiss Markovic, leikmynd Chinelle
Markovic og dansa sá Alejandro Meza um.
Hljóðfærin sem hönnuðurinn notar koma nánast frá öllum heimshorn-
um, göngsur úr balísku Gamelan, stór marimba, boobams, og málmgjöll
hin flölbreytilegustu, svo eitthvað sé nefnt.
Verkið hefst á forleik, eða forspih, sem höfundurinn tekur úr verki sínu
I Ching, fyrir slagverkseinleikara. Hljóðfæraleikaramir sjálfir skipa stór-
an sess í sýningunni enda eru þeir á sviðinu allan tímann. Sviðsmyndin
er einföld að gerð, en haganleg, og virkaði vel. Ljósin gerðu hins vegar
lítið fyrir sýninguna, en sex manna hópur, sem er kallaður riðlar, vó þar
á móti og var raunar mjög skemmtilegt hvemig hlutverk þeirra fóm á
milh innri og ytri veruleika í sýningunni.
Söngvarar eru sex og syngja þeir allir tvö eöa fleiri hlutverk, utan hlut-
verk Wölflis sjálfs sem var sungið af Ole-Hermod Henriksen og fórst
honum það ágætlega úr hendi. Það var hins vegar Helena Jarlsrud, sem
söng m.a. hlutverk Biönku, Sereenu og Maríu meyjar sem bókstaflega
átti sviðið. Var hún í einu orði sagt frábær í hlutverkum sínum og hélt
á tíðum hreinlega sýningunni uppi. Aðrir söngvarar voru Anne Felberg,
sem m.a. móðirin og Katrín Spánardrottning, Nils Harald Sodal sem Orf-
eus og Doufi, Bjorn Morch-Olsen sem fór mjög skemmtilega með hlut-
verk Sankti Adolfs og læknisins og Arve Ramsey, sem söng hlutverk
Sankti Adolfs II og Alfons Spánarkonungs. Mikil áhersla er lögð á leikræn
tilþrif í verkinu og er söngurinn aðeins hluti hlutverkanna og á stundum
ekki sérlega stór. Fjölbreytileikanum og flæði sýningarinnar er einkum
náð meö mjög litríku slagverkinu og sterkum og oft hröðum leikrænum
tilburðum. Leikstjórinn, Per Einar Fosser á stóran þátt í sýningunni og
ekki má gleyma Tore Dingstad, sem heldur öllu saman meö tónsprota
sínum. Aðstandendum Sólstafa er þakkað fyrir að stuðla að því að við
gátum notið þessa verks, eftir eitt helsta tónskáld á Norðurlöndum í dag.
Bridgefélag Reykjavíkur
Síðastliðinn miðvikudag, 8. mars, lauk aðalsveitakeppni félagsins og úrslit
í efsta riðlinum uröu eftirfarandi:
1. Landsbréf 65
2. Samvinnuferðir 54
3. S. Ármann Magnússon 32
2. riðill:
1. Ólafur Lárusson 54
2. Tryggingamiðstöðin 51
3. Hjólbarðahöllin 37
Næsta keppni félagsins er einmenningur með barómetersniði. Þetta form er
þekkt úr Islandsmótinu og hefur notiö mikilla vinsælda.
Ekið á mannlausan bíl
Ekið var aftan á mannlausan bíl
sem stóð fyrir utan Ármúla 11 aö-
faranótt síðasthðins sunnudags. Um
er að ræða svartan Audi, árgerö 1990,
og gerðist atvikið einhvem tímann
frá klukkan 23 til 5. Bíllinn skemmd-
ist mikið og eru þeir sem telja sig
geta gefið upplýsingar um óhappið
beðnir að hafa samband við lögreglu.
Stolins bíls leitað
Lögreglan leitar nú að rauðum
Volkswagen Golf, árgerð 1994, með
skrásetningamúmerið OU-050, sem
stohð var fyrir utan innanlandsflug
vllilfl.
9 9-17-00
Verö aðeins 39,90 mín.
jOATJi±
mngsnumer
lj Lottó
2 j Víkingalottó
3 1 Getraunir
Flugleiða á Reykjavíkurflugvelli 26.
febrúar síðastliðinn. Ekkert hefur
spurst til bílsins frá þeim tíma og em
þeir sem telja sig geta gefið upplýs-
ingar um þjófnaðinn beðnir að hafa
samband við lögreglu.
Vitna óskað
Lögreglan í Kópavogi lýsir eftir
vitnum þegar ekið var á hvíta Volvo-
bifreið sunnudaginn 26. febrúar síö-
asthðinn. Um er aö ræða Volvo 740,
árgerð ’87. BíUinn stóð mannlaus á
afleggjaranum að Heimsenda við
Vatnsendaveg þegar ekiö var á hann.
Hann skemmdist mjög mikið og bið-
ur lögreglan þá sem telja sig geta
gefið upplýsingar um atvikið að hafa
samband við sig í síma 5603030.
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Stóra sviö kl. 20.
DÖKKU FIÐRILDIN
eftir Leenu Lander
4. sýn. fimmtud. 16/3, blá kort gilda, fáein
sæti laus, S. sýn. sun. 19/3 gul kort gilda,
örfá sæti laus, 6. sýn. sunnud. 26/3, græn
kortgllda.
LEYNIMELUR 13
eftir Harald Á. Sigurðsson, Emil
Thoroddsen og Indriða Waage.
Aukasýningar vegna mikillar aðsóknar
föstud. 17. mars, föstud. 24. mars og laug-
ard. 1. apríl, allra siðustu sýningar.
Litla svið kl. 20:
ÓFÆLNA STÚLKAN
eftir Anton Helga Jónsson.
Þriðjud 14. mars kl. 20.
Söngleikurinn
KABARETT
Höfundur: Joe Masteroff,
eftlr leikriti Johns Van Drutens og sögum
Christophers Isherwoods
Laug. 18/3, fimmtud. 23/3, fáein sæti laus,
laug. 25/3.
Litla sviðiö kl. 20:
FRAMTÍÐARDRAUGAR
eftir Þór Tulinius
Miðd. 15/3, uppselt, flmmtud. 16/3, uppselt,
laugard. 18/3, örfá sætl laus, sunnud. 19/3,
uppselt, miðvlkud. 22/3, uppselt, fimmtud.
23/3, örfá sæti laus.
Norræna menningarhátíðin
SÓLSTAFIR
Stóra sviðki.20.
Norska óperan á íslandi sýnir:
Frá Finnlandi, hópur Kenneth
Kvarnström sýnir ballettinn:
1 ...and the angels began to
scream. og 2. Carmen?!
Frá Noregi, hópur Inu Christel Jo-
hannessen sýnir ballettinn:
3. „Absence de fer“.
Sýningar þri. 21. mars og mvd. 22. mars.
Miðaverð 1500 kr.
Miðasala verður opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 13.00-20.00.
Miðapantanir í sima 680680 alla
virka daga frá kl. 10-12.
Munið gjafakortin okkar
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavíkur-
Borgarleikhús
Sinfóníuhljómsveit íslands
sími 562 2255
Tónleikar Háskólabíói
fumntudaginn 16. mars, kl. 20.00
Hljómsveitarstjóri: Osmo Vanska
Einleikari: Grigory Sokolov
Efnisskrá
Magnús Bl. Jóhannsson:
Adagio
Frederic Chopin:
Pönókonsert nr. 2
Witold Lutosiawslcy:
Sinfónía nr. 4
Miðasala á skrifstofutíma og við innganginn
við upphaf tónleika. Greiðslukortaþjónusta.
Tilkyrmingar
List á Laugarvatni
Dagana 17. júní til 2. júlí í sumar verða
haldnir á Laugarvatni listadagar sem
kallaðir verða „Gullkistan". Listamönn-
um í öUum Ustgreinum er boðið að sýna
þar viðfangsefni sín og hafa þeir frest tU
25. mars að tilkynna þátttöku. Uppákom-
an mun að mestu fara fram innan veggja
Héraðsskólans, byggingar sem um ára-
tugi hefur verið tákn Laugarvatns. Lista-
menn geta þar nýtt sér herbergi, ganga
og sali hússins. Tilgangur með þessu
framtaki er margþættur og má þar eink-
um nefna eftirfarandi: Að gefa Usta-
mönnum tækifæri til að koma Ust sinni
á framfæri í nýju og fallegu umhverfl
utan Reykjavikursvæðisins. Að vekja at-
hygU á húsi Héraðsskólans á Laugarvatni
en húsið hefur lengi verið tákn skólaset-
ursins Laugarvatns og tengist merkum
kafla í menntunarsögu íslendinga. Einn-
ig var þar lengi rekið glæsUegt sumarhót-
el. Nánari upplýsingar og skráning hjá
Oldu Sigurðardóttir í síma 98-61146 og
Kristveigu Halldórsdóttur í síma
98-61261.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Stóra sviðið kl. 20.00
Söngleikurinn
WESTSIDE STORY
eftir Jerome Robbins og Arthur
Laurents viö tóniist Leonards Bern-
steins
5. sýn. föd. 17/3, uppselt, 6. sýn. Id. 18/3,
uppselt, 7. sýn. sud. 19/3, uppselt, 8. sýn.
fid. 23/3, uppselt, föd. 24/3, uppselt, föd. 31/3,
uppselt, sud. 2/4, föd. 7/4, nokkur sæti laus,
Id. 8/4, sud. 9/4. Ósóttar pantanir seldar dag-
lega.
Leikhúsgestir sem áttu miöa á 2. sýningu
West Side Story laugard. 4/3 hafa forgang
aö sætum sinum á sýningu laugardaginn
1/4. Nauösynlegt er aö staöfesta við miöa-
sölufyrir 15/3.
FÁVITINN
eftir Fjodor Dostojevskí
Fid. 16/3, Id. 25/3, nokkur sæti laus, sud.
26/3, fid. 30/3.
GAURAGANGUR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Aukasýningar vegna mikillar aðsóknar. í
kvöld, örfá sæti laus, mvd. 15/3, örfá sæti
laus. Síóustu sýningar.
SNÆDROTTNINGIN
eftir Évgeni Schwartz
Byggt á ævintýri H.C. Andersens
Sud. 19/3 kl. 14.00, sud. 26/3 kl. 14.00.
Smiðaverkstæðið kl. 20.00
Barnaleikritið
LOFTHRÆDDIÖRNINN
HANN ÖRVAR
eftir Stalle Arreman og Peter Eng-
kvist
Ld.16/3 kl. 15.00.
Miðaverð kr. 600.
TAKTU LAGIÐ, LÓA!
eftir Jim Cartwright
Fld. 16/3, uppselt.löd. 17/3, uppselt, Id. 18/3,
uppselt, sud. 19/3 aukasýn. uppselt, fid. 23/3,
aukasýn., uppselt, föd. 24/3, uppelt, Id. 25/3,
uppselt, sud. 26/3, uppselt, fid. 30/3, uppselt,
föd. 31/3, uppselt. Id. 1/4, uppselt, sud. 2/4,
uppselt, fid. 6/4, föd. 7/4. Ósóttar pantanir
seldar daglega.
LISTAKLÚBBUR
LEIKHÚSKJALLARANS
DÓTTIRIN, BÓNDINN OG
SLAGHÖRPULEIKARINN
eftir Ingibjörgu Hjartardóttur.
Sud. 19/3 kl. 16.30.
Gjafakort í leikhús - Sigild og
skemmtileg gjöf.
Miöasala Þjóðleikhússins er opin
alla daga nema mánudaga frá kl.
13 til 18 og fram að sýningu sýning-
ardaga.
Tekið á móti simapöntunum virka
daga frá kl. 10.
Græna linan 99 61 60. Bréfsimi 61 12 00.
Siml 112 00 - Greiðslukortaþjónusta.
|l fSLENSKA ÓPERAN
''W” Slmi 91-11475
Tónlist: Giuseppe Verdi
Fös. 17/3, uppselt, laud. 18/3, uppselt,
fös. 24/3, sun. 26/3.
Sýnlngar hefjast kl. 20.00.
Ósóttar pantanir seldar 3 dögum fyrlr
sýningardag.
Munið gjafakortin.
SÓLSTAFIR NORRÆN
MENNINGARHÁTÍÐ
Kroumata og Manuela Wiesler
Sun. 19/3 kl. 14.
Ljóðatónleikar með Hákan
Hagegárd og Elísabeth Boström
Sun. 19/3 kl. 20.00.
Kynningarskrá Sólstafa liggur
frammi i íslensku óperunni.
Miðasalan er opin kl. 15-19
daglega, sýningardaga til kl. 20.
SÍM111475, bréfasími 27384.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
9 9-17*00
Verð aðeins 39,90 mín.
1 j Fótbolti
: 2 | Handbolti
Körfubolti
Enski boltinn
ítalski boltinn
Þýski boltinn
Önnur úrslit
81 NBA-deildin
lj Vikutilboð
stórmarkaðanna
[2] Uppskriftir
lj Læknavaktin
[2J Apótek
3j Gengi
1J Dagskrá Sjónv.
_2j Dagskrá St. 2
; 3 [ Dagskrá rásar 1
4j Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
5 j Myndbandagagnrýni
6 j ísl. listinn
-topp 40
7 j Tónlistargagnrýni
8 [ Nýjustu myndbóndin
HKrár
-2) Dansstaöir
[31 Leikhús
; 41 Leikhúsgagnrýni
_5J Bíó
J6J Kvikmgagnrýni
[ij Lottó
2 [ Víkingalottó
3 Getraunir
; jj Dagskrá
líkamsræktar-
stöðvanna
fMlIJl,
iJÍÍllfti
OV!
SF
99*1 7-00
Verð aðeins 39,90 mín.