Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1995, Qupperneq 4
4
MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 1995
Fréttir
Nýr meirihluti tekur viö í Hafnarfirði á morgun:
Ingvar Viktorsson aftur
í bæjarstjórastólinn
Ellert Borgar verður forseti bæjarstjómar
„Þaö má segja að svo til allt sé
frágengið. Það eru örfá atriði sem
þarf að ganga betur frá. Ég á því
von á að nýr meirihluti taki við hér
í Hafnarfirði á bæjarstjórnarfundi
á morgun," sagði Tryggvi Harö-
arson, foringi krata í Hafnarfirði, í
samtali viö DV i gær.
Þá er þaö frágengiö að Ingvar
Viktorsson kennari taki aftur viö
sem bæjarstjóri. Hann tók við bæj-
arstjóraembættinu þegar Guð-
mundur Ámi Stefánsson fór á þing
á miðju síðasta kjörtimabili og
hætti þá sem bæjarstjóri. Þá hafði
Alþýðuflokkurinn hreinan meiri-
hluta í Hafnarfirði.
Nokkur átök hafa verið hjá kröt-
um aö undanfórnu vegna bæjar-
stjóraembættisins. Tryggvi Harð-
arson hafði áhuga á starfinu og
ghmdi því nokkuð við Ingvar sem
sótti það mjög fast að verða bæjar-
stjóri. Ýmsir óttuðust klofning í
flokki Hafnarfjarðarkrata. Margir
þeirra vildu að Guömundur Árni
tæki aftur við embættinu til að
setja niður deilur. Guömundur
Ámi staðfesti í samtali við DV fyr-
ir nokkru að við sig hefði verið
rætt um þetta. Hann var því ekki
fráhverfur að taka við embættinu
ef það heföi leyst deilurnar. En til
þess kom ekki, samkomulag hefur
náöst.
Þá mun það einnig frágengiö að
Ellert Borgar verði forseti bæjar-
stjórnar. Svo vill til að hann gegnir
því embætti líka í samstarfi Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðubandalags
sem nú er senn á enda.
Tryggvi Harðarson sagðist ekki
vilja fara að ræða þann samstarfs-
sáttmála sem geröur hefur verið
við þá Ellert Borgar og Jóhann
Bergþórsson. Hins vegar væri ljóst
að langstærstu máhn, sem taka
þyrfti á i nánustu framtíö, væru
atvinnumáhn og fjármál bæjarins.
Búðagleði
Á annað hundrað ungmenni dvöldu í tjöldum í sólskini og blíðu um helgina að Búðum á Snæfellsnesi. Eins og
glöggt má sjá á þessari mynd voru menn kátir og glaöir, blótuðu Bakkus en ærðust ekki. Þvi fór allt friðsamlega
fram og vandræði í lágmarki. Þessir ungu menn sögðust heita Palli, Matti, Nasi og Nonni, frá vinstri talið.
DV-mynd ÞÖK
Hinrik Bragáson hættur í bili vegna Gýmis-ákæru:
Tek ákær-
unni ekki
fagnandi
- mun keppa á heimsleikunum í Sviss
Hinrik Bragason keppti ekki í
skeiði á fjórðungsmótinu eins og til
stóð en lét eiginkonunni, Huldu
Gústafsdóttur, það eftir. „Guðmund-
ur Jónsson, formaður Landssam-
bands hestamannafélaga, hringdi í
Hinrik og bað hann að keppa ekki
og það varð úr aö Hinrik dró sig í hlé
í þetta skipti," segir Hulda. „En þetta
hefur ekkert með keppnisbann að
gera. Hinrik er á leið til Austurríkis
aö halda námskeiö og þaðan fer hann
að keppa á Eitli frá Akureyri á þýska
meistaramótinu og svo heimsleikun-
um í Sviss,“ segir hún.
„Ég tek þessari ákæru vegna
Gýmismálsins ekki fagnandi. Það
hefur ekkert nýtt komiö fram. En
þetta fer þá sína leið og hlutirnir
koma í ljós,“ segir Hinrik Bragason.
„Annars er ég enn aö melta þetta,
því það er skammt síðan ákæran
kom.
Þá sé ég ekki á hvaða forsendum
ætti að setja mig í keppnisbann.
Ég mun halda mínu striki og keppa
áfram í sumar og á heimsleikunum
í Sviss."
í dag mælir Dagfari
Það er ekki heiglum hent að
lenda í því óláni að finna fólgna
fjársjóði og láta vita af slíkum
fundi. Ómenntað alþýðufólk, sem
verður fyrir þvíhkum hremming-
um, gerir sér enga grein fyrir því
að hlutverk hámenntaðra sérfræð-
inga er ekki að þakka fmnendum
heldur að bera fram ásakanir um
fals og blekkingar. Það verður fólk
að sætta sig viö. Þeir sem verður
það á að grafa óvart upp forna hluti
ættu þó láta það verða sitt fyrsta
verk að leita aðstoðar lögfræðinga.
Þetta sannast best á silfurmálinu
sem kennt er við Miðhús á Héraði.
Miðhúsahjónin féllu í þá gryfju
að tilkynna silfurfundinn fyrir 15
árum og urðu landsfræg á svip-
stundu. Þór Magnússon og Kristján
Eldjárn sögðu silfursjóðinn frá vík-
ingaöld og allir virtust afskaplega
ánægðir. En svo kom í ljós að sum-
ir sprenglærðir fræðingar gátu iha
sætt sig við þá tilhugsun aö
ómenntað sveitafólk hefði fundiö
víkingasilfur í garðinum hjá sér.
Það væri aðeins til þess menntað
fólk sem gæti fundið slíkt við
skipulagðan uppgröft. Þeir bentu á
að bóndinn í Miðhúsum væri bang-
hagur og auk þess menntaður til
silfursmíöi. Efasemdir sérfræðing-
úr. Það er ekki nóg með að þetta
sveitafólk hafi komið hlu af stað
meö því að fmna silfrið og koma
því í hendur sérfræöinga. Þetta fólk
ætlar sér þá ósvífni að draga fræð-
inga fyrir rétt. Einn þeirra sem
lengst gengu í fólsunarkenning-
unni harmar þaö ef menn vilji
tengja málið réttarhöldum. Þetta
sé allt fjölmiðlum að kenna sem
voru svo ósvífnir að birta skjöl sem
voru merkt sem trúnaðarmál.
Formaður þjóðminjaráðs kveðst
líta það alvarlegum augum ef Þjóð-
minjasafniö veröi sótt th saka af
einstökum mönnum í þjóðfélaginu.
Þjóðminjavörður segir ekki ástæðu
til að reka nokkurn mann frá safn-
inu.
Allt ber þetta að sama brunni.
Framkoma Miðhúsafólksins er
með eindæmum frá upphafi til
enda. Það finnur sjóðinn, neitar að
hafa falsað hann og þegar það
sannast að silfrið er ósvikiö kórón-
ar það skömmina með því að fara
í meiðyrðamál. Getur ómenntað
alþýðufólk gengið lengra í því að
vega að æru og heiöri hámenntaðra
sérfræðinga?
Dagfari
Silf urref ir í hár saman
anna bárust út fyrir tilverknað
fjölmiðla sem aldrei eru langt und-
an þar sem von er um ófrið og deil-
ur. Gamanið tók að kárna í minja-
gripasölu hjónanna í Miðhúsum.
Gestir höfðu uppi glósur og spurðu
frá hvaða öld hinir og þessir gripir
væru sem þar voru á boðstólum.
Innan Þjóöminjasafnsins risu úfar
með mönnum. Deilur fræðinga
komust á það stig að rætt var um
lögreglurannsókn, í þeirri von að
takast mætti að koma Miðhúsafóls-
urunum undir lás og slá.
Það varð úr að breskur sérfræð-
ingur var fenginn til að líta á sjóð-
inn eftir að hafa fengið þaö vega-
nesti að vísast væri um fölsun að
ræða. Sá breski rýndi í silfrið
nokkra dagparta og taldi að þarna
væri ekki allt með felldu en málið
þyrfti frekari rannsóknar við. Sú
rannsókn var framkvæmd en niö-
urstöður ekki birtar strax. Stöö 2
skýrði þessa bið þannig að niöur-
stöðurnar væru skelfilegt áfall fyr-
ir Þjóðminjasafnið og því þyrftu
menn tíma til aö undirbúa vörnina.
Svo kemur bara í ljós að sjóðurinn
er ekta. Miðhúsahjón tilkynna þá
aö þau muni höföa meiðyrðarmál
á hendur fræðingum þeim sem sök-
uðu þau um fölsun. Tók þá steininn