Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1995, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1995, Blaðsíða 28
40 MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 1995 Erótík Unaðsdraumar Pöntunarsími: 462-5588 Póstsendum vörulista hvert á land sem er! Fatalisti, kr. 350 Nýr tækjalisti, kr. 850 Blaðalisti, kr. 850 Videolisti, kr. 850 Sendingarkostnaður innifalinn BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI Faxafeni 12. sími 588 2455 Hringiðan Valdimar í Iðunni áttræður Valdimar Jóhannsson bókaútgefandi hélt upp á áttræöisafmælið sitt nú fyrir stuttu og af því tilefni heimsóttu hann margir góöir gestir. Meðal þeirra var Þorgeir Þorgeirson rithöfundur sem sést hér ræöa viö afmælisbarniö. 6 nema... ber ávöxt • Námudebetkort, ekkert árgjald j 3 ár • Skipulagsbók • NÁMU-reikningslán • NÁMU-styrkir • Einkaklúbburinn: Ókeypis aðild • Internettenging: Ekkert stofngjald og afsláttur af mótaldi frá EJS • Gjaldeyriskaup án þóknunar • Fjármálaráögjöf • LÍN-þjónusta NAMAN - Námsmannaþjónusta Landsbanka íslands N • Á Glíma á Bernhöftstorfu Glímudeild KR og Ásatrúarfélagið munu á næstunni standa fyrir glímusýn- ingum á Bernhöftstorfunni á hverjum laugardegi í sumar. Sýnd veröa alls konar brögð og tök, auk þess sem glimumenn veröa klæddir aö fornum hætti og krydda sýninguna meö margs konar leikjum. Fyrsta glímusýningin var á laugardaginn og þar tókust þessir fræknu kappar vel á og vakti þetta uppátæki að sjálfsögðu mikla athygli vegfarenda. Kaþólska unglingafélagið PÍLÓ bauð vegfarendum upp á kaffi og með því á Laugaveginum á laugardaginn um leið og það kynnti félagið og seldi rit sem það gefur út. Þessi uppákoma ásamt fleiri var í tilefni af löngum laugardegi sem að undanfomu hefur verið haldinn fyrsta laugardag hvers mánaðar við góðar undirtektir borgarbúa. Gleði á Austfjörðunum ?að var mikið trallað og sungið í útreiðartúr sem farinn var í tengslum við jórðungsmót Austurlands í hestaíþróttum um helgina. Riðið var að Skógey ' Hornafirði og þar var grillað og notið náttúrufegurðarinnar, auk þess sem oenn þöndu raddböndin að hestamanna sið. DV-mynd EJ SANYL Þakrennur fyrir íslenska veðráttu ALFABORG ? KNARRARVOGI 4 • 8 568 6755 vortl! Toyotadagur í Fjölskyldugarðinum Það var mikið um að vera í Fjölskyldugarðinum í Laugardal á laugardaginn en þar stóð Toyotaumboðið á íslandi fyrir Toyotadegi fjölskyldunnar. Veðrið lék við gesti Laugardalsins og eins og sést á þessari mynd kunnu börnin vel að meta veðurblíðuna og skelltu sér í pollana í Fjölskyldugarðinum eins og ekkert væri sjálfsagðara. DV-myndir VSJ Fjölmennt á Alþingi um helgina Hið endurreista Alþingi fslendinga er 150 ára um þessar mundir og í til- efni af því tóku þingmenn á móti gestum í Alþingishúsinu á laugar- daginn. Gestir gátu rætt við alþingis- menn, forseta þingsins og ráðherra og fengu tækifæri til að ganga um húsið og kynna sér sögu þess og ýmissa muna sem til sýnis voru. A myndinni er Geir Haarde, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, að sýna gestum húsið og voru þeir flestir mjög ánægðir með þessa nýbreytni. Síðasti sjens Þessir kumpánar vöktu mikla athygh á löngum laugardegi á Laugaveginum um síðustu helgi þegar þeir þrömmuðu með miklum látum um götuna. Skýr- ingin á þessari uppákomu var sú aö fígúran með trommurnar mun ganga í það heilaga á næstunni og voru félagarnir að nota tækifærið til að láta vin- inn sletta ærlega úr klaufunum. Þaö virtist takast ágætlega, að minnsta kosti fór þessi gleðiganga ekki fram hjá mörgum vegfarendum Laugavegarins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.