Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1995, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1995, Blaðsíða 10
fSlESSIA AUClfSIHCASTOUN 10 MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ1995 Fréttir Flutningur grunnskólans frá ríki til sveitarfélaga: Verkef nisstjórn til að annast undirbúninginn - menntamálaráðherra vill góða samvinnu við flutninginn Björn Bjarnason menntamálaráð- sem á að undirbúa flutning grunn- Samkvæmt lögum sem samþykkt sveitarfélögin að taka við rekstri herra hefur skipað verkefnisstjórn skólans frá ríki til sveitarfélaga. voru á Alþingi síðastliöinn vetur eiga skólanna 1. ágúst á næsta ári. LJÓSMYNDASAMKEPPNI Méb því áb smella af á Kodakfilmu í sumar ÖLRÍK ^ynditv FLUGLEIÐIR geturðu unnið til glæsilegra verálauna í Ijósmyndasamkeppni DV og Kodak. Hvort sem þú ert á ferðalagi innanlands eða erlendis skaltu setja Kodakfilmu í myndavélina og gera þannig góðar minninqar að varanleqri eiqn. Veldu síSan bestu sumarmyndina þína og sendu til DV, Þverholti 11 í Reykjavík, fyrir 26. ágúst í haust. á 03 Flugmiðar til Florida fyrir tvo. Canon EOS 500 myndavél. Canon EOS 5000 myndavél. 4. verðlaun TryggSu þér litríkar og skarpar minningar með Kodak Express gæðaframköllun á Kodak Royal-pappírinn. Hann er þykkari en venjulegur Ijósmyndapappír og litir framkallast frábærlega vel. vero ICodak §méí Þinn hagur Kodak Höfuðborgarsvæðið Verslanir Hans Petersen hf: Austurveri, Bankastræti, Glæsibæ, Grafarvogi, Hamraborg (Kópavogi), Hólagarði, Kringlunni, Laugavegi 82, Laugavegi 178 og Lynghólsi. Myndval: Mjódd. Haf narf jörður: Filmur og Framköllun. Keflavík: Hljómval. Akranes: Bókav. Andrésar Nielssonar. ísaf jörður: Bókav. Jónasar Tómassonar. Sauðárkrókur: Bókav. Brynjars. Akureyri: Pedrómyndir. Egilsstaðir: Hraðmynd. Selfoss: Hans Petersen, Vöruhúsi K.A. Aðalverðlaun 2. verðlaun - fyrir bestu innsendu sumarmyndina á Kodakfilmu: Flugmiðar fyrir tvo með Flugleiðum til Florida, að verðmæti 120.000 kr. Canon E0S 500, með 35-80 mm linsu, að verðmæti 45.900 kr. Mjög fullkomin og jafnframt léttasta SLR myndavélin á markaðnum. Canon EOS 5000, með 38-76 mm linsu, að verðmæti 39.900 kr. Nýjasta SLR myndavélin. Mjög einföld i notkun. Canon Prima Zoom Shot myndavél. Canon Prima AF-7 myndavél. Canon Prima Junior DX myndavél. 5. verðlaun Canon Prima Zoom Shot myndavél, að verðmæti 18.990 kr. Ný Zoom vél - hljóðlát og nett. Canon Prima AF-7, að verðmæti 8.990 kr. Sjálfvirkur fókus, filmufærsla og flass. Prima Junior DX, að verðmæti 5.990 kr. Sjálfvirk filmufærsla og flass. Skilafrestur ertil 26. égúst1995. Myndum ber að skila til DV, Þverholti 11. Verkefnisstjórnin er skipuð þeim Hrólfl Kjartanssyni, fulitrúa menntamálaráðuneytisins, sem jafn- framt er formaður, Steingrími Ara Arasyni, fulltrúa íjármálaráðuneyt- isins, Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, formanni Sambands íslenskra sveit- arfélaga, og Eiríki Jónssyni, fulltrúa Kennarasambands íslands og Hins íslenska kennarafélags. Að auki hafa verið skipaðir þrír starfshópar sem ætlað er að annast útfærslu og framkvæmd tiltekinna verkefna. Einn hópurinn á að gera tillögur um tilhögun og meðferð kjaramála, lífeyrismála og starfsrétt- inda kennara. Öðrum hópi er ætlað að kanna kostnaðinn við flutninginn og kanna leiðir til að tryggja sveitar- félögunum auknar tekjur. Þriðji hóp- urinn á síðan að vera Sambandi ís- lenskra sveitarfélaga til ráðuneytis um fyrirkomulag þeirrar þjónustu sem fræðsluskrifstofur hafa annast. -kaa Neyðarástand hjá AFS: Vantar sárlega fjölskyldur „Þetta er óvenjulegt ástand og í raun neyðarástand. Við erum að senda 125 krakka út í haust en getum ekki tekið við 33 að utan. Við höfum fengið nokkur heimiii úti á landi en aðeins eitt hér í borginni. Ungmenn- in, sem koma að þessu sinni, koma frá 10 löndum Suður- og Norður- Ameríku, Norðurlöndunum, Vest- ur-Evrópu, Asíu og Ástralíu," segir Jóna Fanney Friðriksdóttir hjá Skiptinemasamtökunum AFS á ís- landi. Jóna segir að á sama tíma í fyrra hafi verið búiö að útvega tveim- ur þriöja hluta hópsins fjöldskyldur en nú aðeins einum þriðja. Jóna Fanney segir að farið verði í að aug- lýsa af krafti og að reynt verði til þrautar með því að leita til félaga í samtökunum. -sv Selfoss: Hélt hann væri feigur Regina Thorarensen, DV, Selfosá: Viö hjónin fórum í Kolaport Sel- fyssinga, sem sett var upp í stóru tjaldi, sl. laugardag. Tíu huggulegum og vel skipulögðum básum var komið fyrir í stóru tjaldi. Þar mátti fá margt, ætt og óætt. Eiginmaðurinn fékk sér eitt af því óæta, milliskyrtu, og þá hélt ég að karlinn væri feigur. Milliskyrtu hefur hann aldrei keypt á langri ævinni. Á eftir var öllum boðið í vöfflur með ijóma og kakó. Þetta var í annað sinn sem markaðurinn er haldinn á Selfossi og er stefnt að því að þrisvar verði opið í viðbót.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.