Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1995, Qupperneq 30
42
MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 1995
Afmæli_____________________________
Til hamingju med
afmælið3. júlí
---------------- Bragi Þorsteinsson,
QC Vatnsleysu2.
Sigurður Jónsson,
Mýrargötu 20, Neskaupstað.
85 ára
Hulldóra Þorsteinsdóttir,
Smáratúni3, Selfossi.
Herdís Jónsdóttir,
VarmaMíð 2, Hveragerði.
Herdís er að heiman á afmælisdag-
inn.
Una Guðmundsdóttir,
Furugerði 1, Reykjavík.
80 ára
Kristin Jóhannesdóttir,
Vesturvegi 4, Seyðisfirði.
75 ára
Steinunn Sveinsdóttir,
Varmá 1, Hveragerði.
Sigríður Kristjánsdóttir,
Sogavegi 178, Reykjavík.
Sigriður Álfsdóttir,
Hamraborg30, Kópavogi.
Sigurður Guðlaugsson,
Hamarsstig36, Akureyri.
Ástríður Sigurðardóttir,
Vallargötu 9, Keflavik.
70ára
Ólafur Sigurgeirsson,
Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði.
Cýrus Ðaneliusson,
Skólabraut3, Hellissandi.
Jóhanna Þorgeirsdóttir,
Njálsgötu 85, Reykjavík.
Katrín Maríusdóttir,
Vallargötu 24, Keflavík.
60 ára
Páll Ólafsson,
Túngötu5,Eskifirði.
Baldur Sigurðsson,
Byggðavegi lOlg, Akureyri.
Erla Magnúsdóttir,
Víðihlið 5, Reykjavík.
50 ára
Stefán Pálsson,
Hvassaleiti 36, Reykjavík.
Kristín Gísladóttir,
Bakkavegi 15, Hrúfsdal.
Steinunn Elíasdóttir,
Helgafelli 3, Mosfellsbæ.
Sigríður Bjarnadóttir,
Tjamarbraut 11, Hafnarfirði.
Sigurbjörg Sveinsdóttir,
Vörðubrún l.Keflavík.
Sóiey Benna Guðmundsdóttir,
Uröarholti 1, MosfeUsbæ.
Jóhanna Árnadóttir,
Vallarási4, Reykjavik.
40 ára
Elsa Birna Sveinbjörnsdóttir,
Lækjarbergi 15, Hafharfírði.
Bjarni Ásgeirsson,
Klausturhvammi 4, Hafnarfirði.
Árni Þór Helgason,
Sjávargötu 16, Bessastaðahreppi.
Sólveig Gísladóttir,
Fannafold 148, Reykiavik.
Ásdís Hinriksdóttir,
Heiðarseli l, Reykjavík.
Benedikt Viggó Högnason,
Grundargötu 43, Grundarfirði.
Guðmundur Marinósson,
Bláhömrum 15, Reykjavík.
Bragi Agnarsson,
Fiskakvísl 1, Reykjavik.
Dröfn Jónsdóttir,
Bæjarsíöu 9, Akureyri.
Guðrún Júlíana Ingvarsdóttir,
Sælingsdalstungu.
Hulda Ingibjörg Einarsdóttir,
Sigtúni.
Guðbjörg Kristín Haraldsdóttir,
Brimnesvegi 2, Flateyri.
Jón Jónsson,
Stekkjarflötum.
Sigurður Marteinsson,
Rangárseli 4, Reykjavík.
Smári Adolfsson,
Kvistabergi 17, Hafnarfirði.
Ásgeir Þorsteinsson,
Viðarrima 42, Reykjavík.
Sólveig Thorarensen,
Víðíhvammi 7, Kópavogi.
f sleifur Tómasson,
SkógarhjaUa 5, Kópavogi.
H
FORVAL
Innkaupastofnun Rcykjavíkurborgar, fyrir hönd Hita-
veitu Reykjavíkur, áformar að bjóða út einangrun og
frágang samskeyta á hlífðarkápum hitaveitupípna.
Útboðið verður lokað að undangengnu forvali.
Hlífðarkápurnar, sem ganga skal frá, eru plastpípur,
PEH 90 mm til 400 mm í þvermál. Gengið er frá sam-
skeytunum niðri í skurði eftir að aðrir verktakar hafa
lokið við að sjóða saman stálpípur. Vinnusvæðið er á
öllu veitusvæði Hitaveitu Reykjavíkur.
Lögð er áhersla á að væntanlegir bjóðendur hafi
reynslu af verkinu þar sem gerðar eru miklar og stöðug-
ar gæðakröfur. Hins vegar er ekki nauðsynlegt að bjóð-
endur hafi áður unnið sams konar verk og hér um
ræðir. Starfsmenn verktaka þurfa að ljúka námskeiðum
í einangrun og frágangi samskeyta áður en vinna hefst.
Forvalsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 4. júlí
1995, gegn 5.000 króna skilatryggingu. Forvalsgögnum
skal skila á sama stað fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn
12. júlí 1995.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - sími 552 58 00
Unnur Guðmunda
Vilhj álmsdóttir
Unnur Guðmunda Vilhjálmsdóttir,
húsmóðir og skrifstofumaður, Vest-
urbergi 27, Reykjavík, varð sextug
ígær.
Starfsferill
Unnur Guðmunda fæddist í
Reykjavík og ólst þar upp í austur-
bænum. Hún var í Austurbæjar-
skólnum, stundaði nám við Gagn-
fræðaskólann við Lindargötu og síð-
an við Gagnfræðaskóla Austurbæj-
ar og lauk þaðan gagnfræðaprófi
1952.
Unnur Guömunda stundaði versl-
unarstörf í Reykjavík á árunum
1952-61 og aftur frá 1977-84 en hefur
stundað skrifstofustörf á Borgar-
skrifstofunum í Reykjavík frá 1984.
Fjölskylda
Unnur Guðmunda giftist 20.9.1961
SigurhirtiPálmasyni, f. 29.1.1926,
verkfræðingi í Reykjavík. Hann er
sonur Pálma Einarssonar, land-
námsstjóra í Reykjavík, og Soffiu
Sigurhjartardóttur húsmóður.
Synir Unnar Guðmundu og Sigur-
hjartar eru Vilhjálmur Örn Sigur-
hjartarson, f. 16.3.1962, viöskipta-
fræðingur í Reykjavík, kvæntur
Sigríði Auði Arnardóttur lögfræð-
ingi; Pálmi Jósef Sigurhjartarson,
f. 25.10.1965, tónlistarmaður í
Reykjavík, en sambýliskona hans
er Helga Kwam tónlistarmaður.
Systkini Unnar eru Angantýr, f.
15.9.1938, bakarameistari, búsettur
í Kópavogi, kvæntur Ásu Bjarna-
dóttur verslunarmanni; Elsa Guð-
björg, f. 5.11.1942, fasteignasali í
Virginiu í Bandaríkjunum, gift Leifi
Péturssyni vélvirkja; Hafsteinn,
verslunarmaður á ísafirði, kvæntur
Höllu Sigurðardóttur skrifstofu-
manni; Guðrún, bankamaður í
Hafnarfirði, gift Karli B. Guð-
mundssyni rafeindavirkja.
Unnur Guðmunda Vilhjálmsdóttir.
Foreldrar Unnar: Arngrímur Vil-
hjálmsson, f. 15.11.1906, d. 16.8.1984,
sjómaður og verkamaður í Reykja-
vík, og Aðalbjörg Júlíusdóttir, f.
20.1.1914, húsmóðir.
Sóley Benna
Guðmundsdóttir
Sóley Benna Guðmundsdóttir
sjúkraliði, Urðarholti 1, Mosfellsbæ,
erfimmtugídag.
Starfsferill
Sóley Benna fæddist á Akureyri
en ólst upp í Reykjavík. Hún lauk
prófum frá Gagnfræðaskóla Aust-
urbæjar, stundaöi nám við Banka-
mannaskólann, við Húsmæðraskól-
ann á Varmalandi og við Sjúkraliða-
skóla íslands.
Sóley Benna vann í fimm ár hjá
Heildverslun H. Ólafssonar og
Bernhöft og í fjögur ár hjá Fram-
kvæmdabanka íslands. Þá stundaði
hún barnagæslu hjá Reykjavíkur-
borg en hefur nú seinni árin einkum
stundaö verslunar- og hjúkrunar-
störf.
Fjölskylda
Börn Sóleyjar Bennu eru Guð-
mundur Ingi Bergþórsson, f. 1.9.
1968, húsasmíöameistari og nemi
við HÍ, búsettur í Reykjavík en sam-
býliskona hans er Erla Sigurgeirs-
dóttir og á hún einn son; Rósa Guð-
rún Bergþórsdóttir, f. 13.6.1971,
nemi við HÍ, búsett í Mosfellsbæ.
Systir Sóleyjar Bennu eru Fjóla
Guðmundsdóttir, f. 2.1.1956, ljós-
móðir í Reykjavík, gift Guðmundi
Ólafssyni og eiga þau þrjú börn.
Foreldrar Sóleyjar Bennu: Guð-
mundur Sigurgeirsson, f. 27.11.1921,
d. 14.11.1970, lögregluþjónn í
Reykjavík, og Rósa Guðrún Stefáns-
Sóley Benna Guðmundsdóttir.
dóttir, f. 29.12.1924, húsmóðir.
Sóley Benna verður stödd í út-
löndum á afmælisdaginn.
Menning
Mitt auga leit tvo
annarlega skugga
Tónlistarhátíð, sem ber ofangreint heiti, er nú hald-
in í Borgarleikhúsinu. Tilefnið er hundrað ára fæðing-
arafmæli Paul Hindemiths og hundraö og fimmtiu ára
fæðingarafmæli Gabriels Fauré.
Hátíðin hófst á fimmtudaginn var með tónleikum
þar sem verk beggja höfundanna prýddu efnisskrána
en á tónleikum sl. sunnudag voru eingöngu verk eftir
Fauré.
Ætlunin var að Jón Þorsteinsson tenór myndi syngja
nokkur sönglög Faurés en hann forfallaðist og í stað
hans söng Þórunn Guðmundsdóttir. Viö flygilinn var
Gerrit Schuil.
Þórunn kynnti fyrst höfundinn og las síöan íslenska
þýðingu textanna. Gerði hún þaö einkar skemmtilega.
Tónlist
Áskell Másson
Fyrsta lagið, sem hún söng, var Au Bord de I’Eau og
var það fallega flutt, með öruggri og fylltri röddu og
af næmi fyrir innihaldi textans. Síðan komu lögin
Aprés un Réve og Nell og þá Les Bercaux. Öll voru
þessi lög flutt af öryggi og listrænni tilfinningu. Síð-
ustu tvö lögin söng Þórunn aíbragðsvel en það voru
Le Secret og Clair de Lune. Gerrit Schuil lék skáldlega
á hljóðfærið og fylgdi Þórunni vel eftir.
Einhverjar tilraunir voru gerðar með lítillega mögn-
un hljómsins í salnum og virðast þær hafa tekist nokk-
uð sæmilega, utan að efsta tíðnin hljómar fremur
málmkennd og ekki fyllilega sannfærandi.
Eftir hlé var fluttur Píanókvintett Faurés, nr. 2 op.
115. Verkið er í fjórum þáttum og þrátt fyrir aö Fauré
hafi verið kominn undir áttrætt þegar hann skrifaði
það er enginn skortur á krafti, andstæðum og ljóðræn-
um línum í því.
Flytjendur voru þau Sigurlaug Eðvaldsdóttir og
Bryndís Pálsdóttir fiðluleikarar, Guðmundur Krist-
mundsson á víólu, Sigurður Halldórsson á selló og
Daníel Þorsteinsson á píanó.
Þessi kvintett Faurés er sannkölluð eðal-kammer-
tónlist, margbrotin og þéttofin og hlaðin þrótti. í öllum
fiórum þáttunum hefst strengjavefnaðurinn í víólunni
en annað einkenni er geysistórt píanóhlutverkið. Flytj-
endur náðu frábærri einbeitingu og léku sem sannfær-
andi órofa heild. Á engan er hallað þótt nefndur sé
sérstaklega leikur Sigurlaugar i þriðja þættinum en
hann var svo tilfinningaríkur og vel fram færður að
unun var á aö hlýða. Hópurinn allur náði svo vel sam-
an að úr varð eftirminnilegur flutningur á þessu frá-
bæra verki Faurés.