Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1995, Side 36
FRÉTTASKOTIÐ
562*2525
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563 2700
BLAÐAAFGREIÐSLA 0G
ÁSKRIFT ER 0PIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA*
AFGREIÐSLU: 563 2777
KL. 6-8 LAUGAROAGS- OG MANUDAGSMORGNA
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 1995.
Nauðlenti
við Geysi
- vélarbilun orsökin
Flugmaður nauðlenti lítilli eins
'hreyfils flugvél um kvöldmatarleytið
á laugardag við Geysi vegna vélarbil-
unar og tókst lendingin giftusamlega.
í ljós kom við eftirgrennslan að vent-
ill í vélinni hafði gefið sig, skemmt
út frá sér og þá hafði stimpill í hreyfli
brotnað og flugmaðurinn neyðst til
að nauðlenda. Hann lenti vél sinni á
veginum upp að Geysi, um 5 km frá
hvernum.
Mikil mildi þótti að umferð upp að
Geysi var lítil þegar atvikið gerðist.
Vélin er frá Keflavíkurflugvelli en
um borð voru flugmaður og farþegi.
Þeir voru á leið á ættarmót og ætluðu
sér að lenda á litlum flugvelli að Ein-
holtsmelum. -ÍS
Geitahlíð:
Lélegt skyggni
orsök flug-
slyssins
Flugvélin sem brotlenti í Geitahlíð,
sunnan Kleifarvatns, á fostudaginn
var tveggja hreyfla háþekja af gerð-
inni Partenavia P68 frá Selfossi.
“Flugmaðurinn sem lést hét Gunn-
laugur Jónsson, til heimilis að Heið-
mörk 1 á Selfossi. Hann var þrítugur
og starfaði sem flugmaður hjá Flug-
félagi Vestmannaeyja. Hann lætur
eftir sig unnustu og níu ára dóttur.
Mikil þoka var og lélegt skyggni á
þessum slóðum þegar slysiö varð og
líklegt er talið að orsakir slyssins
megi rekja tii þess. Það var fjögurra
manna leitarflokkur Hjálparsveitar
skáta í Hafnarfirði sem fann vélina.
-ÍS
Slys á Reykjanesbraut:
Ekki í beltum
■’ í aftursæti
Laust fyrir klukkan hálfsjö í gær-
morgun keyrði fólksbifreið yfir á
öfugan vegarhelming við Strandar-
heiðina á Reykjanesbrautinni og
skall þar framan á annarri fólksbif-
reið með þeim afleiðingum að fjórir
slösuðust, þó enginn lífshættulega.
Þeir slösuðu voru fluttir á sjúkrahús
og báðar bifreiðarnar eru taldar
ónýtar.
Farþegar bifreiðanna voru í beltum
í framsætum en þeir sem sátu í aftur-
sætum voru ekki í beltum og hentust
þeir á framsætin við áreksturinn
með þeim afleiðingum að sætin
brotnuðu. Þeir slösuðu voru allir í
- -*framsætum bifreiðanna. -ÍS
LOKI Góð íþrótt er gulli betri!
Einbýlishús úr timbri að Holtsbúð 10 í Garðabæ nær gjöreyðilagðist í eldi, sem kviknaði sennilega út frá raf-
magni, aðfaranótt sunnudagsins. Eigendur hússins voru að heiman. DV-Sveinn
Keflavíkurflugvöllur:
Tollvörðurinn
var sleginn
i andlitið
- við leit í farangri leikmanna knattspymuliðslns Keflavik
„Viðtollafgreiösluhjáleikmönn- tvö vel útilátin högg frá leikmann- „Tollvörðurinn, sem varð fyrir
um knattspymuliðsins Keílavik, inum og það sér á honum,“ sagði högginu, fékk áverkavottorð og ég
sem var að koma frá Skotlandi, var Einar Birgir Eymundsson, deildar- held að það liggi ljóst fyrir að hann
gerð tollleit hjá einum leikmanna stjóri í flugstöð Leifs Eiríkssonar muni kæra þennan verknað. Lög-
liðsins. I Jjós kom of mikið magn við DV. reglan var kölluð tíl og hún róaði
af áfengi hjá einum leikmanni. Keflavíkurliðiö i knattspyrnu var leikmanninn og fjarlægöi af staðn-
Hann var ekki sáttur viö að höfð á heimieið frá leik við skoska liðið um. Það mun ljóst vera að ölvun
yröuafskiptiafþessuogvildileysa Partik Thistle í Evrópukeppni í mun hafa veriðmeð í spilinu, svona
málin með handafli. Ungur toll- knattspyrnu. Atburðurinn gerðist nokkuðgerirvarlanokkurallsgáð-
vöröur, sem sinntí tollskoðun á um miðnættið aðfaranótt sunnu- urmaður,“sagðiEinar. -ÍS
vamingi mannsins, fékk eitt eða dagins.
Sauðárkrókur:
við f ram-
úrakstur
Níu manns vom fluttir á slysadeild
tíl aðhlynningar eftir óhapp sem
varð við framúrakstur á nýlagðri
klæðingu rétt sunnan Sauðárkróks.
Slysið varð klukkan rétt rúmlega
íjögur aðfaranótt laugardagsins 1.
júlí.
Tildrög slyssins eru nokkuð óljós
en svo virðist sem BMW-bifreið hafl
verið ekið fram úr Mazda sendibif-
reið rétt við bæinn Messuholt, um 4
km sunnan Sauðárkróks. Báðar bif-
reiöirnar fóru út af og vait Mazda
bifreiðin og lenti á hvolíi niðri í
skurði.
Allir sem í sendibílnum voru, 9
talsins, hentust úr úr bílnum viö
veltuna og urðu þeir allir fyrir
meiðslum, þó mismikið. Farþegar í
BMW bifreiðinni sluppu allir við
meiðsl. Enginn farþeganna í Mözd-
unni var í bílbeltum en allir í BMW
bifreiðinni. Mazda bifreiðin er skráð
fyrir 7 manns. Tveir farþeganna voru
fluttir með sjúkraflugi til Reykjavík-
ur, einn tíl Akureyrar en hinir, sem
reyndust minna slasaðir, fengu að-
hlynningu á sjúkrahúsi Sauðár-
króks. -ÍS
Vélsleðaslys
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti
slasaðan mann um miðnæturbil að-
faranótt sunnudagsins í Kerlingar-
fjöll og flutti hann til Reykjavíkur á
sjúkrahús. Þyrlan kom með mann-
inn á Borgarspítalann um klukkan
tvö eftir miðnættið en hann hafði
slasast í baki við vélsleðaakstur. -ÍS
Einbýlishús brann:
Vegfarandi
gerði slökkvi-
liði viðvart
Vegfarandi, sem átti leið fram hjá
einbýlishúsi aö Holtsbúð 10 í
Garðabæ, gerði lögreglu og slökkvi-
liði viðvart um að kviknað hefði í
húsinu. Þaö var um klukkan 3:55 að
morgni sunnudags sem vegfarand-
inn varð var reyksins sem lagði frá
húsinu.
Húsiö var úr timbri, svokallað við-
lagasjóðshús. Slökkvistarf tók á ann-
an tíma og er húsið og allt innbú
mikið skemmt, ef ekki ónýtt. Talið
er að kviknað hafi í út frá rafmagni.
Húsið var mannlaust er eldurinn
kviknaði, eigendur þess voru staddir
á Akureyri. -ÍS
Veöriö á morgun:
Vaxandi
suðaustanátt
Á morgun verður hægt vaxandi
suðlæg átt, skýjað suðvestan- og
vestanlands en annars víðast létt-
skýjaö í fyrstu. Vaxandi suðaust-
anátt verður þegar líður á daginn.
Hitinn verður mestur á Austur-
landi, þar sem hann getur náð 20
stígum, en minnstur á Vestur-
landi og Vestfjörðum, í kringum
9 gráður.
Veöriö í dag er á bls. 44
Ertu búinn að panta?
P 32 P
dagar til þjóðhátíðar
FLUGLEIÐIR
Innaniandssími 5050 200
LGTH
alltaf á
Miðvikudögum