Þjóðviljinn - 09.06.1953, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN' — Þriðjudagur 9. juní 1953
H erstöðva þankar
Það verður með hverjum deg-
inum ljósara að með þvíaðleyfa
herstöðvarnar á Reykjanesi
ihöfum við íslendingar tekið á
okkur ábyrgð sem við fáum
ekki undir risið, fjárhagslega
né andlega. Ef allt verður lagt
ihér í rúst vegna þessara her-
stöðva, þá getur hver sagt sér
það sjálfur að við höfum enga
peninga til að byggja það upp
aftur á minna en mannsaldri,
og þvi höfum við þá stigið stórt
skref aftur á bak. Við getum
ekki skellt skuldinni á aðra og
ikrafizt þess að þeir borgi fyrir
okkur. Stjórnmálamennirnir
okkar leyfðu þessar herstöðv-
ar, og við verðum að taka af-
leiðingunum. Það er ólíklegt að
þeir hafi gert sér ljóst út á
hverskyns glapstigu þeir eru aö
leiða þjóðina. Og hvað eigum
við að segja Guði þegar hann
spyr okkur hversvegna við höf-
um lánað landið okkar til árása
á ókunnugt fólk út í heimi, sem
aldrei hefur gert okkur neitt?
Þetta þykir kannski barnalega
spurt. En athugum bara inn-
takið í lífskoðun okkar Islend-
inga: að lifa í friði við aðra
og láta gott af sér leiða. Það er
bannað í trúarjátningu okkar
að deyða menn. Enda kemur
öllum almenningi þetta ekki til
hugar. Ef menn eiga persónu-
lega óvini, þá reyna þeir heldur
að fyrirgefa þeim, og kapp-
kosta að vinna hylli þeirra, til
þess að gera sér þá að vinum.
Þetta er inntakið 1 lifsskoðun
okkar og það er svo samgróið
okkur að ósjálfrátt reynum við
að lifa eftir því.
Nokkrir menn sem eiga eða
þykjast eiga peninga og hafa
völd, og eru hræddir við að
missa þetta, hafa sogazt inn
í áhrif einhvers viðsjárverðasta
afls heimsins, auðvaldsins. Auð-
söfnun byggist ekki á öðru en
fátækt og vöntun hjá fjöldan-
ujn. — Mikil auðsöfnun
sem notuð er í dráps-
tæki til að verja sjálfa sig er
svo menningarsnautt fyrir-
brigði að því fá engin orð lýst;
svo ósiðlegt brask, að það er
furðulegt að nokkur maður
skuli leggja því liðsyrði, hvað
þá heldur taka þátt í því. Okkur
er sagt að þessi her eigi að
verja frelsi okkar. Það er bara
rugl. Þessi morðtól verja aldrei
þáð frelsi, sem Islandi er dýr-
mætast, frelsi til að breyta í
friði eftir lifsskoðun okkar og
hafna öllu sem er okkur ó-
skylt og framandi og vill draga
okkur niður, þar á meðal her-
stöðvum.
En annað er fullljóst. Herinn
á að verja frelsi fárra manna
til að braska með lífshamingju
fólksins, enda fer bezt á því að
það sé varið með drápstækjum,
það er af þeirri ættinni. Mér
finnst svo skammarlegt að
stjórnmálamennirnir okkar
skyldu ekki þora að neita um
þessar herstöðvar á friðartím-
um. Ég spurði sjálfan mig:
Hvar er víkingslundin forna,
hvar er þjóðarstolt Islendings-
ins, sem hélt virðingu sinni
frammi fyrir útlendum konung-
um og valdsmönnum, stundum
einir í framandi löndum. Hvar
er þótti og sjálfsvirðing ís-
lenzkra manna? Það er ekkert
af þessu að finna í viðbrögðum
þeirra sem þjóðin hefur kos-
ið fyrir forustumenn, gegn
hernaðarbrölti framandi manna,
sem standa okkur langt að baki
í andlegum efnum. Það er ekk-
ert nema amerísk geðveiki að
vera að segja okkur að Rúss-
ar muni koma og drepa okkur,
ef ekki séu hér herstöðvar og
hermenn til að verja okkur. Það
vita allir menn sem eitthvað
hugsa að Rússar gefa ekki skít
fyrir okkur, hvorki dauða né
lifandi. Eta ef hafin verður árás
á þá héðan þá er ekki nema
mannlegt af þeim að fara á
stúfana og athuga hvernig hér
er umborfs. Ég hef enga and-
úð á amerísku fólki eða rúss-
nesku, þetta eru bara menn
eins og við. Við lifum bara í
meira samræmi við rök lífsins
og framvindunnar, þar sem við
uppfyllum það höfuðboðorð
Guðs að drepa ekki rnetm, og
vilja ekki hernað. En það er
nokkuð gott hjá Rússum er þeir
hafa alveg útrýmt atvinnuleys-
inu hjá sér, þessu voðal. píslará-
standi, sem svo margt gott
drepur í dróma. Og ef það er
satt að þeir láti þar að auki
fólk vinna, sem ekki hefur van-
izt því heldur lífað eins og ein-
hverjir útvaldir á striti annarra
í einhverjum fölskum draumi,
þá er ekkert ljótt við það að
Gísli H. Erlendsson:
vekja það til meðvitundar um
veruleikann. Ef þar er bannað
með lögum frelsi einstaklingsins
til að auðga sjálfa sig óhóflega
á vinnu og framleiðslu fjölda
meðbræðra sinna sem eru fá-
tækir af þeim sökum þá eru það
tvímælalaust réttmæt lög. Það
er óhjákvæmilegt að viður-
kehna þetta jafnvel þó það sé
hjá fjarskyldri þjóð.
Það er óvíða í heiminum sem
ekki eru fleiri þúsundir eða
milljónir manna, sem hafa
ekkert fyrir stafni, og geta ekki
séð sér né sínum farboða, þó
nægtirnar séu allt í kringum þá.
Þetta er skipulag sem ekki er
til að prísa. Þeir valdamenn
þjóðanna sem hafa við húsvegg-
ina hjá sér fátækrahverfi stór-
borganna þar sem mannleg til-
vera og sköpun er einn svartur
viðbjóðslegur glæpur, þeir eiga
ekki að vera roggnir eða kátir.
Þetta er fólk sem þeim er trú-
að fyrir, og þeir eiga að breyta
skipulaginu á þjóðarbúinu til
að útrýma svona ljótum blett-
um af menningunni. Það gerir
ekkert þó þeir baki sér óvild
fárra manna sem standa á
lægra þroskastigi en allur al-
menningur. Hugsum okkur
hvað auðmennirnir okkar hérna,
sem hafa gloprað úr höndum
sér Reykjanesinu, væru meiri
og virðingarverðari menn ef
þeir væru lausir við þá firru
að halda að það sé fínt að
plægja til sín peninga frá þeim,
sem þurfa peninga með og hafa
framleitt þá. En þeir eru flækt-
ir í auðvaldsskipulag heimsins
og eiga ekki hægt um vik. Þetta
er tré sem „breiðir sitt lim yfir
lönd yfir höf“, eins og segir í
sálminum um kristindóminn.
Og svo er auðurinn notaður til
að reyna að gefa hégómanum
innihald, sbr. krýninguna í Eng
landi, aumingja unga konan að
verða fyrir þessu, en kannski
hún hafi verið að hugsa um
hvað mörg klæðlaus börn kæm-
ust undir kjólslóðann hennar.
Ég skal ekki fjasa um ómenn-
inguna sem fylgir blessuðum
verndurunum, hún er auðvitað
mikil, bæði amdleg og heilbrigð-
isleg. Það eru auðvitað góðir
drengir innanum þarna, þó
margir séu skrýtnir. En manna-
greyin eru hér eins og fiskar
á þurru landi, og geta á engan
hátt verið.’ Þeim er hér ofaukið.
Þeir eiga að vera heima hjá
sér, og það vilja þeir fyrst og
fremst. Ef stúlkurnar hérna
vilja þá endilega umfram alla
aðra menn, þá verða þær víst
að fá þá, hverjar sem afleið-
ingaraar verða. Aðalómenningin
er auðvitað sú að hernaðaró-
freskjan hefur fengið leyfi til
að hreiðra hér um sig. Höfuð-
djöfull mannlegs þroska og
framfara er stiginn hér á land.
Glæpasjónarmið erlendrar auð-
söfnunar er að troða sér inn í
líf saklausra manna og villa
þeim sýn og leiða þá á glap-
stigu. Þetta sjá allir sem vilja
sjá það. Mér finnst alveg sjálf-
sagt að segja strax upp þess-
um herstöðvasamiiing og biðja
mennina að fara heim til sín.
Það er gömul íslenzk regla,
sem allir sjómenn þekkja, að
sá skipsmaður, sem sá reka á
sjónum, hvort sem það var hval
ur eða annað sjávardýr eða
trjáviður, þá átti sá sem fyrstur
sá sjónarhlutinn, sem kallað
var, en það er annað hvort
fjórði eða fimmti partur og
var aldrei refjazt um að borga
það. Þegar ég var á handfæra-
veiðum í æsku sá ég eiciu sinni
feiknastóra flyðru á sjónum. Ég
fékk þessi ósköp af riklingi fyr-
ir að koma auga á skepnuna.
Nú er það talið að íslenzkur
maður hafi fyrstur fundið Am-
eríku, svo þeir góðu menn
vestra mega svei mér opna
pyngjuna ef þeir ættu að borga
okkur sjónarhlutinn. Við stönd-
um því vel að vígi með að segja
hernum að fara. Það sem nýti-
legt er af þessu hafurtaski sem
þeir eru með, er okkar eign. Við
seljum Dawson enska drápstæk-
in sem brotajárn, þó með því
skilyrði að hann láti bræða þau
upp. — En ef á að halda upp-
teknum hætti með þetta hern-
aðarbrask, og berja það fram
eins og áður að það séu bara
20-30 alþingismenn (eða 32)
sem vit hafi á þessu, hvað við
eigum í hættu, og af hvaða rót-
um það er runnið þá verður
þjóðin sjálfrar sín vegna að
taka völdin í sínar hendur í
kosciingunum í sumar. Hún
verður að sameinast um C-list-
ann. Þá verður hernáminu af-
létt og mannagreyin geta farið
heim til sín í friði, það veit ég
að íslenzk alþýða vill. Við skul-
um ekki vera hrædd við Rússa-
grýluna. Það má hver sem vill
dást að menningu Rússa ekkert
síður en Ameríkana eða annarra
þjóða.
Ef hinir flokkarnir þurfa
endilega að vera að burðast
með þessa hernaðarófreskju, og
ganga þannig í berhögg við is-
lenzk sjónarmið, þá mega þeir
ekki ráða. Þeir hafa ekki leyfi
til að leika sér með lif þjóð-
arinnar — ef þeim er alvara að
innleiða hér hernaðarsiðfræð-
ina, en hún er eihs og allir
vita önnur en enn gildir hjá
friðsömu fólki. Þáð má nefna
eitt fyrirbrigði úr stríðssög-
unni: 100.000 ungir menn, með
allt lífið framundan, eru drepn-
ir eða limlestir á einni klukku-
stund, eða skemmri tíma, og svo
er fámenn sveit Rauðakross-
manna á ferli innanum dreperí-
ið, til þess að bjarga þeim
af þessum unglingum, sem ekki
eru alveg dauðir, til að flytja
þá í sjúkrahús, og þar taka
læknavísindin við þeim og reyna
að halda lifsneistanum við og
lofa aumingja mönnunum að
rorra í 30-40 ár, eða kannski
lengur við hryllilegustu örkuml,
hæsta lagi ef einhver kernst út
á götuna til að „betla. Þetta er
hernaðarsiðferði; og þetta lá
áð innleiðá hér i nafni frelsis.
Ég veit að allir góðir menn
eru á einu máli um það, að það'
má ekki kjósa þá menn á þing,
sem viðurkenna sem nauðsyn-
lega hlúti svona hatramma vit-
leysu.
, ,RE YKVlKIN GUR' ‘ skrifar:
„Mjög er áfátt í framkomu
barna í þessum bæ; af því
verður varla ofsögum sagt. I
gær sá ég og heyrði eftirfar-
andi atvik á veiticigahúsi þar
sem ég var staddur: Drengir
koma inn, á að gizka 10 ára,
og bjóða Vísi til sölu. Þeir
eru háværir og framleiða
hverskyns óhljóð jafnframt
i því sem þeir hrópa upp nafn
blaðsins. Auðsjáanlega ætla
þeir að hörfa út úr veitinga-
ingastofunni aftur án frekari
afskipta af gestunum, þegar
gamall maður út í horni kall-
ar til þeirra og gefur þeim
•bendingu um það, a'ð hann
vilji kaupa af þeim blað. Þeir
• anza því vitanlega og ganga
til mannsins. En ekki hafa
þeir fyrr snúið baki við gamla
' manninum og lagt af stað aft-
úr fram áð dyrunum en þeir
| uppbyrja sama vælið og hafa
Hjáróma tónar frá brostnum streng
Leiti og Ofanleiti
ú í flimtjngum, að gamli
láðurinn (sem var að kaupa
f þeim blaðið) hafi verið
leð nælonsokka á borðinu
yrir framan sig. Sá gamli
;t sig þetta epgu skipta, og
íargendurtóku strákamir
etta samt, eins og til þess að
ita, hvort ekki væri hægt að
leypa viðskiptavininum svo-
tið upp, en það tókst ekki.
.uðsjáanlega voru þessir
rengir ágætt dæmi um fjöl-
íorg böm í þessum bæ, sem
annig er ástatt um, að and-
leg vellíðan þeirra og þroska-
möguleikar eru ekki upp á
marga fiska. Fyrir því liggja
margar ástæður. Ein er sú —
og hún sennilega nokkuð al-
geng — að foreldrarnir láta
börn sín allmjög afskiptalaus;
láta þau ráða sér sjálf og
skipta Isér lítið af þeim,
hvorki til góðs né ills, nema
til þess að fullnægja allra
nauðsynlegustu líkamsþörf-
um þeirra. Hversu margir for-1
eldrar hugsa um áð vera f
sannkallaðir félagar barna \
sinna? Hversu mörg börn er
það ekki, sem hafa að lær:
meisturum og félögum mií
jafnlega þroskaða og upj
vaxna jafnaldra sína, sei
sjálfir kunna eklci fótum sír
um forráð ? — Illt er að vit
til þess, þegar glaðværð barní
sálarinnar beinist inn á þa
neikvæða braut, áð ánægja
fæst t.d. með því að kall
háðsyrðum að saklausu gan
almenpi á veitingahúsi. Þa
hefur eitthvað brostið í brjósl
um þeirra unglinga, sem ger
slíkt. Þeir hafa orðið fyri
einhverjum mikilvægum vor
brigðum með fullorðna fóll-
ið, annaðhvort skyldmenni sr
eða aðra. Bamssálin teku
ekki neikvæða afstöðu t:
þjóðfélagsins upp úr þurri
Minnumst þess, þegar vi
gagnrýnum þá, sem yngri eri
— Reykvíkingur".
FÁUM eða engum íslenzkum
stjórnmálamönnum mun hafa
verið likt jafn oft við Gróu
gömlu á Leiti og Jóeiasi frá
Hriflu. Þæð er því ekki að
ástæðulausu, að hús hans í
Vesturbænum hefur hjá ýms-
um hlotiö sama nafn og bær
Gróu kerlingar. Nú er, eins
og mörgum mun kunnugt, Vil-
hjálmur Þór nágranni Jónas-
ar, og stendur hús hans lítið
eitt fyrir ofan Leiti, þannig
að tún liggja saman.
Fyrir skömmu hitti ungur
Austurbæingur gamlan Vest-
urbæing, og hefur sá fyrr-
nefndi orð á því. að hann hafi
heyrt hús Jónasar kallað
Leiti, og hvort Vesturbæingn-
um sé kunnugt um nokkurt
nafn á húsi Vilhjálms.
„O, ætli maður myndi ekki
kalla það Ofanleiti", anzáði
sá gamli.