Þjóðviljinn - 09.06.1953, Blaðsíða 12
leíjast eftir losiigaraar
Enn hefur bandaríski herinn verid að mælingum í Njarðvík
og stikað íit fyrirhugaðar framkvæmdir. — í Keflavík hafa þeir
lokið við smíði pramma efns er mun geta borið nokkur l>ús. tonn.
Er pramminn knúinn áfram -með tveim véliun.
Pramma þenna kvað eiga að
nota við gerð hafnarinnar fyrir
herinn í Njarðvík. Framkvæmdir
eiga þó ekki að hefjast fyrr en
eftir kosningar, en e'inn vinnu-
Ælokkurinn á flugvellinum hefur
verið látinn fá vitneskju um -að
hann eigi að byrja í höfninni —
eftir mánaðamótin!
Þeir bandarisku hafa mælt allt
svæðið utan við Niarðvík ,að
fiskiðjunni og sett þar niður
stikur og alla leið að veginum
við flugvallarhliðið. Telja áhorf-
endur að það eigi að koma braut
her.raþjóðarinnar niður að höfn-
Landshafnarstjóri „landshafn-
^ar_ Keflavíkur og Njarðvíkur11
segir sér með öllu ókunnugt um
hvað stikur þessár merkýa.
2S|ómsiama-
••ism
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Húsavík í gær.
Hátíðahöld sjómannadagsins
byrjuðu á iaugardagskvöld með
kappróðri bæði karla og kvenna.
í gær hófust hátíðahöldin með
skrúðgöngu klukkan eitt e. h. Þá
fór fram messugerð, en klukkan
4 hófust íþróttir á íþróttavellin-
um. Um kvöldið var samkoma í
samkomuhúsinu og flutti Jónas
(Árnason, alþingismaður, þar
ræðu. Ennfremur fór þar fram
einleikur á harmoniku, gaman-
vísnasöngur og dans.
Fersksíldarverð óbreytt
Þjóðviljaniyn barst í gær eftir.
farandi frá Síldarútvegsnefnd:
„Síldarútvegsnefnd hefur á-
ikveðið að lágmarksverð á fersk-
síld til söltunar norðanlands
verði hið sama og s.l. ár, þ. e.:
1) Fyrir uppsaltaða tunnu, 3
2ö,g í hring, a£ hausskorinni og
slógdreginni síld kr. 157.68.
Bjarni bingó
Bjarni Benediktsson ut-
anríkisráSherra og dóms-
málaráfSlierra Islands játar
í Morgunblaðinu í fyrradag
að hann liafi sl. miSviku-
dag unað sér við að spila
i drykkjuklúbbl yfirmanna
á Keflavikurflugvelli fjár-
liættuspll það sem bingó
nefnls.t. Seglst hann hafa
orðið að „þiggja boð hers-
höfðingjans á Keflavíkur-
flugvelli til kvöldverðar og
siíjja síðan í félagsskap
hans“. Hinsvegar segir liann
að bingó það sem hann
spilaði sé sérstakrar nátt-
úru, það s.é liður í því „að
leysa úr ýmsum vandamál-
um sem óhjákvæmllega
skapast vegua dvalar varn-
arliðsins hér“ og það hafl
orðið til leiðréttingar „mörg-
um atriðum sem Þjóðviljinn
telur liorfa til bóta um
aðgerðir og dvöl varnai-
liðsíns hér á Iandi“.
Þannig virðast vera komn-
ir nýstárlegir vinningar í
þetta fjárhættuspil:
Bjarni lirópar blngó, og
lögregiustjórinn er settur
af.
Bjarni luópar bingó, og
hernámsliðið bættir slíotæf-
ingum á landi Vatnsleysu-
st randa rbænda.
Bjarul hrópar bingó, og
herlögreglan er afvopnuð.
|>að er hins vegar með í
samningunum að þessir
vlnningar gildi aðeins fram
að kosningum. Að þeim af-
loknum verða það Banda-
ríkjamennimir sem byrja
’ að hrópa bingó, og þá á
Bjarni að sjá fyrir vinning-
unum á kostnað íslenzku
þjóðarinnar. — Nema kjós-
endurnir skerist í þenn-
an nýsfcárlega leik í kosn-
lngunum 28. júní.
2) Fyrir oppmælda síld, kr.
116.64 pr. tunnu.
í verðinu er innifahð 8% fram
leiðslugjald hlutatryggingar-
sjóð.
Verðlagsráð sjávarútvegsins
hefur lýst sig samþykkt verð-
ákvörðun Síldarútvegsnefndar.
Akurnesingar
unnu Fram 4:1
Knattspyrnumót íslands hófst
á íþróttavellinum í Reykjavík í
gærkvöld með leik milli Akur-
nesinga og Fram. Akuimesingar
unnu leikinn með 4 mörltum
gegn einu.
Góður afli við
Austfirði
Um helgina kom brezkur tog-
ari inn til Eskifjarðar með slas-
aðan ,mann. Togarinn fór þegar
um hæl er slasaðj maðurinn
hafði verið fluttur í land, vildi
ekki tefja því úti fyrir AÍist-
fjörðum væri ágætur afli.
Sló eign siisisi
á 500 kráiiii
• ávísuxi
Á sunnudaginn lcom unglings-
piltur inn ’’ Hressingarskálann
við Austurstræti og bauð fram
500 króna ávísun, sem frammi-
stöðustúlkumar vildu elcki taka
við. Maður nokkur, sem staddur
var þarna og heyrt hafði tál
piltsins og stúlknanna, bauð nú
aðstoð sína við að koma ávísun-
ihni í peninga. Þáði pilturinn
boðið og héldu þeir félagar þessu
næst að Bifreiðastöðinni Hreyfli.
Er þangað var komið ibað að-
stoðarmaðurinn strák að bíða
á meðan hann færi að húsabaki
með ávísunina og seldi hana. Sú
bið varð löng, því að að-
stoðarmaðurinn hefur ekki. sézt
síðan og er málið nvi í höndum
rann sókn a rlögreglu nn ar.
Þriðjudagur 9. júní 1953
18. árgangur
126. tölublað
Banaslys á Suðurlandsbrauf
Það slys varð s.l. suimudag, að þriggia ára ganiall drengur.
Kjartan Ragnar Kjartansson, Kirkjuteig 18, varð fyrir bifreið á
Suðurlandsbraut skammt austan við Þvottalaugaveginn og lilaut
svo alvarleg me'ðsl, að hann andaðist síðdegis í gær.
Litli drengurinn v,ar að koma
ásamt foreldnjm sinum til bæj-
arins með langferðabíl. Þegar
hjónin fóru úr bílnum hljóp
drengurinn frá þeim út á ak-
brautina og lenti þá fvrir bíl,
sem ók um veginn. Slasaðist
barnið mjög alvarlega. og var
flutt meðvitundarlaust á Land-
spítalann. Komst barnið aldrei
til meðvitundar og andaðist síð-
degis í gær eins og áður var
sagt. Malið er í rannsókn,
Tvö önnur minni hóttar nm-
ferðaslys urðu á sunnudaginn og
aðfaranótt sunmidags. í öðru
.slysinu, þai* sem saman rálcust
bifreiðar á gatnamótum Spitala-
stígs og Bergstaðasti'ætis, meidd-
ust tveir farþegar í annarri bif-
Sósialistar!
[SkiliS i dag i\
kosninga-
sjóSinn!
Ljúka á gróðursetningu í Heiðinörk
fyrir 17 juní
Gi'óðiirsetningai'starfið i Heiðinörk hefur gengjð ágætlega
undanfarið, enda er þetta bezta vorið síðan trjáplöntnn var liafin
þar. — Þegar liafa verið gróðursettar 60 þiis. trjáplöntur, en ætl-
unin er að gi-óðursetja í vor 130 þús.
Mörg
j-sýning í Njarðvík
Öpin í kvöld og aanaö kvöíd — Oddbefgui Eiríks-
son s^gár fiá dvöl sirnii í Slalingiad.
MÍR — Menningartengsl íslands og Ráðstjórnarríkjanna —
opna Stalíngrad-sýningu í lcvöld kl. 6, verður sýningin opin í kvöld
og annað kvöld.
Á sýningu þessari verða mynd-
ir frá Stalíngrad og einnig verð-
ur sýnd kvilcmvnd frá Stalín-
grad.
í kvöld kl. 8,30 flytur Oddber-gur
Eiríkss'on ræðu og segir frá því
sem haiin kynntist í Stalíngrad,
en hann er nýkominn úr ferða-
lagi um Sovétríkin. Þá verður
sýndur fvrri hluti kvikmyndar-
innar af orustunni um Stalín-
grad.
Annað kvöld kl. 6 verður sýn-
ingin opnuð aftur. Kl. 8,30 talar
Sverrir Kristiánsson sagnfræð-
ingur. Að ræðu hans lokinni
verður sýndur síðarj hluti kvik-
myndarinnar af orustunni um
Stalíngrad.
félög hafa undanfarið
unnið að gróðursetningu á svæð-
um sínum og unnið af bjartsýni
og dugnaði, en nokkur hafa enn
ekki tekið til starfa.
Ætlunin er að nota næstu daga
vel og helzt að hafa lokið við
áætlunina, gróðursetningu 130
þús. plantna, fyrir 17. iúní. Einar
Sæmundsen skógai;vörður, sem
stjórnar gróðursetningarstarfinu
í Heiðmörk, beinir því þeim ein-
dregnu tilmælum til allra þeirra
félaga sem ekkí hafa enn lokið
sínum hluta, að taka til starfa
naestu daga, og tala við sig áður
en þau fara uppeftir, svo hægt
sé að skipuleggja starfið sem
bezt.
Reksturshagnaður Eimskip 1,6 millj. kr.
— Eignir afskrifaðar fyrir 11 millj.
Aðalfumlur Eimskipafé-
lags Islands var haldinn s.
1. iaugardag. Fonnaður flutti
skýrslu félagsstjórnar. Hagn
aður af rekstri félagsins á
s. 1. ári varð 1 millj. 589
þús. 303,67 kr. og er þá tíú-
ið að afskrifa skipin með
20% af upphaflegn verði
Jieirra, Heildarafskriftir af
eignum félagsins námu á síð
asta ári kr. 10 millj. 990
þús, — Bæði heildartekjur
og heildargjöld félagsins
urðu nokkru lægri s.l. ár en
árið áður.
Vöruflutningar ineð sldp-
um félagsins og' leiguskipum
urðu samtals 212 947 smál.
og höíðu aulvi/.t um 18 þús.
smál. frá því árið áður,
enda liöfðu skip félagsins
aldrei farið jafnmargar ferð-
ir og á s.l. ári, ails 88 ferð-
ir milli landa. auk 10 leigu-
skipa, og höfðu sltipin siglt
samtals 338 þús. sjómílur á
árinu. — Eigin sJdp félags-
ins fluttu 96% af vöni-
magninu. — Nánar síðar.
reiðinni nokkuð o.g voru fluttir
á sjúkrahús.
Borgarnesi. Frá fi'éttaritara
Þjóðviljans.
í s.l. vlku vár tekinn t:I r.otk-
unar liýf trillubátur, 5—G sui.il.,
er fer nú í sína fyrstu veiðiför.
Báturinn var byggður á Akur-
eyri hjá KEA á s. 1. vetri og
smíði hans lokið í Borgarnesi.
í bátnum er 16 ha. Lister-Diesel-
vél. Tilganigurinn með smiði báts-
ins er að stunda fiskveiðar héðan
og afla Borgnesingum og byggð-
arlaginu nýs fiskiar, en á því
hefur verið mishrestur undan-
farið. Að þessu standa athafna-
samir ungir menn hér. Óska
Borgnesingar þessum litla báti
og eigendum hans allra heilla.
Sæmilegur afli
Siglufirði.
Frá fréttaritíara Þjóðviljans.
Allgóður reitingsafli á hand-
færi er hjá trillúbátum. Á laug-
ardaginn fékk einn maður' sem
hafði dreng með sér á bátnum
3600 pund af fiski, en flestir
hafa fengið um 2000 pund í
róðri.
Mesta blíðviðri hefur verið
hér undanfarið. Er verið að
moka Siglufjarðarskarð og mun
það verða fært á fösludaginn
kemur.
i hjá Hanníbal
ar ílest var!
Hamííbal Alþýðublaðsritstjóri
boðaði til almenns stjórnmála-
fundar í Hótei Norðurlandi á
Akureyri s.l. föstudag, i fundar-
s.al sem tekur 300 rnanns.
Þegar flest var undir ræðu
Hanníbals voru 46 menn í saln-
um og ekkj nema nokkur hluti
þeirra sá ástæðu til að láta í
Ijós velþóknun á máli lians.
Hanníbal forðaðist að minnast
á nokkurt stefnumál Alþýðu-
flokksins, — sagðist treysta fram
bjóðandanum til þess — nema
aðeins þetta sem hengt var ulan
á Alþýðuhúsið í Reykjavík fyrir
síðustu kosningar: að Alþýðu-
flokkurinn væri móti erlendum
her! — Allir vita hv.emig Hanní-
bal og aðrir Alþýðufloklcsþing-
menn stóðu við það heit.
iMegintíma ,ræðu sinnar eyddi
Hanníbal í að lýsa sigunnögu-
leikum Alþýðuflokksins í land-
inu!!! Næst stóð upp frambjóð-
andi Alþýðuflokksins á Akur-
eyri, Steindór, og fór þá tölu-
verður hluti hinna 46 áheyrenda
út!
C-listinn er listi Sósíalistaflokksins