Þjóðviljinn - 25.06.1953, Side 6
fr) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 25. júní 1953
þJÓOVIUINN
Otgefandl: Samelningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurlnn.
Bdtstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sígurður Guðmuadsson.
Fréttastjórl: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð-
mundur Vigfússon, Magnús Torfi Ólafsson.
ituglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig.
19. — Sími 7500 (3 línur).
Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17
annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintaklð.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
MinnihSuiaflokkar reyna að
hrifsa völdin
Fjöldi íslendinga gerir sér ekki ljóst, að einn íslenzkur
stjómmálaflokkur, sem hefur átt mikinn hlut að ríkis-
stjórn íslands undanfarna þrjá áratugi, hefur vegna ó-
lýðræðislegrar kjördæmaskipunar haft miklu meiri völd
en þjóð/'n hefur ætlazt til, miklu me/'ri völd en fylgi
með þióðinni hefur gef/'ð honum rétt t/'I.
Við kosningarnar 23. okt. 1949, síðustu kosningar til
Alþingis, kom í ljós að Framsóknarflokkur/'nn og Sós-
íal/'staflokkurinn eru álíka stórir flokkar, njóta svipaðs
fvlgis meðal þjóðarinnar. Þessi staðreynd sést skýrt af
atkvæðatölunni og hlutfallstölum flokkanna:
FramsóSmasilokkur 17659 atkvæði 24,5%.
Sósía!Istaí!c.kkur 14077 atkvæði 19,5%
Ef vilji þjóðarinnar réði, hefði átt aö muna tveimur
til þremur á þingmannatölu þessara flokka. En Framsókn
hsfur nú 18 þingmenn, Sósíalistaflokkurinn 9.
Áhrif Framsóknarflokksins eru því langtum meiri á
Alþingi en fylgi flokksins meðal þjóðarinnar réttlætir.
Þessi illa fengnu völd hefur flokkurinn notaö til að
gera bandalag við verstu afturhaldsöfl Sjálfstæðisflokks-
íjis til hvers konar árása á lífskjör almennings í landinu;
þessi illa fengnu völd hefur Framsókn notaö til að hjálpa
Siálfstæðisflokknum og Alþýöuflokknum til að selja af
hendi íslsnzk landsréttindi, taka upp ölmusustefnu í
efnaliagsmálum og ofurselja þjóðina erlendum her. Illa
íenginn þingstyrkur Framsóknarflokksins er orðin önnur
sierkasta stoð afturhaldsins í landinu, önnur sterkasta
stoð bandarískrar leppmennsku í landinu.
Alveg sérstaklega hefur þetta illa fsngna þingmannalið
Framsóknar unnið gegn hagsmunum Reykvíkinga, án
þess þó að hafa með því á nokkurn hátt bætt hag fólks-
ins í öðrum landshlutum. Framsóknarforingjar hafa
löngum valið Reykvíkingum hæðilegustu nöfn „Grimsby-
]ýður“ og ,,skríU“ eru þau málblóm sem foringjar Fram-
scknar telja bezt lýsa innræti þeirra sem byggja höfuð-
borg íslands, og þá einkum alþý'ðu hennar. Þaö er aöeins
rétt fyrir kosningar, og þá hvergj. nema í Reykjavík, að
Framsókn setur upp mildari svip gagnvart Reykvíking-
um.
En það eru sýnilega fleiri flokkar en Framsókn, sem
gætu þegið að taka völdin á íslandi, án þess að njóta
til þess fylgis meirihluta þjóðarinnar.
Fyrir nokknim dögum reiknaði Morgunþlaðið það út,
að Sjálfstæðisflokkurinn gæti fengið hreinan meirihluta
á þingi, með því að bæta við sig nokkrum hundruðum
atkveeða 1 ýmsum fámennum kjördæmum.
Það virtist ekki hvarfla að lýðræðishstjum Sjálfstæðis-
flokksins aö neitt væri við það athugavert þó flokkur-
inn hr/fsaðz' þann/'g völdin sem minnihlutaflokkur með
þióðinni. Það var allt í stakasta lagi, bara ef það var
Sjálfstæðisflokkurinn sem græddi á ranglætinu!
Og svo kom loks Alþýðuflokkurinn í útvarpsumræð-
unum. Draumur Hanníþals var að ranglát kjördæma-
skipun og ónýt atkvæði gætu gefið Framsókn og Al-
þýðuflokknum til samans vöidin á Alþingi., í fulí'ri vitund
þess, að þaö væri í óþokk mikils meirihluta þjóðarinnar.
Þannig er lýðræðisást hernámsflokkanna þriggja. Þá
dreymir alla um að hr/'fsa t/'l sín völd/'n gegn vilja
meir/'hluta þjóðar/'n^ar.
Það er engin tilviljun, að einmitt Iþessir þrir flokkar
hikuðu ekki við að hafa stjórnarskrá landsins að engu
tr þeir frestuðu alþingiskosningum 1941. Og sömu þrír
fiokkar, Framsókn, Sjólfstæðisflokkurinn og Alþýðu-
f'okkurinn rufu stjórnarskrána, er þeir sömdu um her-
námið áratug síðar, 1951.
Fólkið getur kennt þessum flokkum að virða lýðræðið,
virða vilja þjóðarinnar. En þeir skilja aðeins eitt mál,
þ'að er mál stóraukins fylg/'s Sósíalistaflokks/ns við þess-
ar kosningar.
Hans Hedtoft ber vitni gegn
Hermanni Jónassyni
Alitur formaSur Framsóknarflokksins
formann danskra sósíaldemókrata ganga
erinda Rússa þegar kann hafnar handa-
riskum herstöSvum \ Danmörku?
Ðarátta íslenzku þjóðarinnar
U gegn bandarísku hernámi
og þeim innlendu erindrekum
Bandaríkjastjómar, sem fóru
á bak við íslendinga og
hleyptu hernum inn í landið
á næturþeli þvert ofan á ský-
laus stjórnarskráratkvæði og
hátíðleg loforð, er farin að
hafa áhrif alla leið út fyrir
landsteinana. Það sýna orð
Hans Hedtoft, formanns
danskra sósíaldemókrata, á
þingi flokks hans í fyrradag.
Hann kvað þá upp úr með það
eftir eins árs hik að danskir
sósíaldemókratar tækju ekki í
mál að afhenda bapdarískum
flugher stöðvar í Danmörku
eins og stendur. Ein af megin
röksemdunum sem hann færði
fyrir þessari ákvörðun var
reynzlan af bandaríska her-
náminu á íslandi. Þróunina
hér kvað Hedtoft sýna að
ekkert væri til þess fallnara
en erlent lierlið í landi smá-
þjóðar að vekja almenna and-
stöðu gegn þátttöku í Atlanz-
hafsbandalaginu.
■ff ærdómsríkt er að bera um-
■“-* mæli Hedtofts um erlenda
hersetu í Danmörku saman
við réttlætingu Hermanns
Jónassoaar á hernámi ísiands.
Ráðherrann hefur undanfarið
birt réttlætingarrollu sína
hvað eftir annað í Tím-
anum og flutti hana svo í út-
varpið í fyrrakvöld. Hermanni
er mjög tamt að vitna til af-
stöðu og reynslu hiana Norð-
urlandaþjóðanna þegar hann
er að reyna að sætta Islend-
inga við setu erlends hers í
landinu. Það er því elcki úr
vegi að athuga, hvernig þessi
rök koma heim við það sem í
raun og veru hefur gerzt og
er að gerast í Noregi og Dan-
mörku, sem ásamt íslandi eru
í Atlanzhafsbandalaginu.
Ræða Hans Hedtofts gerir
slíkan samanburð enn auð-
veldari og tímabærari.
Oermann mótmælti því harð-
“lega í útvarpsræðu sinni í
fyrrakvöld að nú væru friðar-
tímar í heiminum. Hans Hed-
toft er á öðru máli. Hann tók
það sérstaklega fram í flokks
þingsræðu sinni, að ein af á-
stæðunum fyrir því að dansk-
ir sósíaldemókratar hafna
bandarískri hersetu er sú að
þeir telja að friðarhorfur i
heiminum hafi vænkazt veru-
lega upp á síðkastið. Norska
ríkisstjórnin hefur einnig
hafnað bandarískum flug-
stöðvakröfum á þeirri for-
sendu, að Noregur telji sér
enga árásarhættu búna.
Treystir hinn rökfimi Fram-
sóknarráðherra sér til að
skýra það, hvenaig Islending-
um getur stafað j-firvofandi
háski af rússneskri árás þeg-
ar Danmörk og Noregur, sem
liggja milli íslands og Sovét-
ríkjanna, telja sér enga slíka
hættu búna? Hans Hedtoft
lýsti því meira að segja yfir
að flokkur hans teldi aðgerðir
sovétstjómarinnar undanfarið
eina megia sönnunina fyrir
þvi að friðvænlega horfi nú í
heiminum.
ÍT'itt af því sem Hermann
Jónasson hamrar statt og
stöðugt á jafnt í ræðu og riti
er að hernárh Bandaríkja*
manna á ísiandi bægi árásar-
hættu frá landinu. Ekki tclur
Hans Iledtoft þessa kenaingu
gilda um Danmörku. Ilann
sagði flokksbræðrum sínum,
að vafasöm vernd væri að
bandarískum flugstöðvum i
landinu. Eins liklegt væri að
þær ykju hættuna fyrir Dani
ef til stríðs kæmi og því taldi
hann glapræði að leyfa þær
nema fyrir headi væri ógrynni
annars herafla til að vega
upp á móti þeirri auknu hættu
sem flugstöðvarnar hlytu að
leiða yfir landið. Sama máli
gegnir auðvitað um Jsland.
Hver maður, sem um málið
hugsar, hlýtur að gera sér
ljóst að viðbúnaður Banda-
ríkjamanna hér miðast við það
að héðan sé hægt að reka
hernaðaraðgerðir ef í odda
skerst en sem vernd fyrir ís-
letidinga, sem eru svo fá-
mennir að hervernd fyrir þá
verður að vera alger ef hún á
að vera nokkurs virði, er hann
einskis verður. En væri slík
alger vernd tekin upp myndi
þjóðin drukkna í flóði er-
lends hers. Islendagar geta
því vegna sérstöðu sinnar al-
drei sótt neitt traust í vopn
og vígvélar kjamorkualdar-
innar. Reynsla síðustu styrj-
aldar er alrangur leiðarvísir
um það sem framundan væri
ef friðslit jrðu á þessum
hjara.
Tlylgjur Hermanns Jónasson-
” ar um að all’r þeir Is-
lendxigar, sem ekki vilja er-
lendar herstöðvar í landi sínu,
séu vitandi eða óafvitandi er-
indrekar Rússa og vinn'i að
því að gera þeim fært að her-
nema landið, eru enn fárán-
legri en áður eftir að Hans
Hedtoft og aðrir danskir sósí-
aldemókratar hafa tekið af-
stöðu gegn bandarískum her-
stöðvum í Danmörku. Heldur
ráðherrann að honum takizt
að telja nokkrum manni trú
um að danskir sósíaldemókrat
ar séu að vinna að því að land
þeirra verði hernumið af
Rússum? En það verður haim
að gera ef hann ætlast til að
telcnar scu alvarlega staðhæf-
ingar hans um að íslenzkir
sósíalistar og aðrir liernáms-
andstæðingar séu verkfæri
Rússa. Herbúnaður Dana
sjálfra annarsvegar -og vopn-
leysi Islendinga hinsvegar ger
ir hér engan teljandi mun.
Hershöfðingjar A-bandalags-
ins á Norðurlöndum hafa
hver um annan þveran full-
vissað Dani og Norðmenn
um það að herir þeirra sjálfra
séu einskis megnugir ef til
stríðs komi og því beri þeim
tafarlaust að veita viðtöku er
lendum liðsauka, einkum flug-
her.
|>íkisstjórn. Noregs hefur
hvað eftir annað hafnað
bandarískum herstöðvakröf-
um og nú hafa stjórn-
málaflokkarnir, sem hafa að
baki sér mikinn meirihluta
dönsku þjóðarinnar og hrein-
an meirililuta á þingi lýst yf-
ir andstöðu við herstöðvar-
kröfurnar á hendur Dönum.
Þær eru því úr sögunni.
Danskir og norskir stjórn-
málamenn hlýða á mál ba'nda-
manna sinna en gera það eitt
sem þeim sjálfum sýnist. Her
mann Jónasson og aðrir for-
vígismenn hernámsflokkanna
hér á landi dansa hinsvegar
nákvæmlega eftir pípu banda-
rísku herstjórnarinnar án
nokkurs sjálfstæðs mats á_
því, hvað íslendingum sjálfum
er fyrir beztu. Þess vegna á
andstaða Islendinga gegn her
náminu, sem Hans Hedtoft tel
ur svo lærdómsríka, eftir að
eflast og sigra hvað sem Her-
mann Jónasson og aðrir her-
námspostular kunna á páfa-
gaMkavísu að hafa eftir banda
rískum lærifeðrum sínum.
Þótt þeir mæli á íslenzku eru
röksemdirnar bandarískar.
M.T.Ó.
Nanntión U. S. h.
Útvarpið í Pyongyang, höfuð-
borg Norður-Kóreu. skýrði frá
því í gær að manntjón Banda-
ríkjamaima og bandamanna
þeirra í styrjöldinni hefði á
þrem árum numið 989.00G fölln-
um, særðum og handteknum,
þaraf 380.000 Bandarikjamenn.
Norðanmenn hafa skotið niður
5431 flugvél og sökkt 320 her-
skipum.