Þjóðviljinn - 24.07.1953, Side 8

Þjóðviljinn - 24.07.1953, Side 8
£)' — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 24. júlí 1953 - JOSEPH STAROBIN: Viet-Nam sækir fram til sjálfstæðis og frelsis Eg skildi þessar upplýsingar sem ótvírætt svar við þeim ásölc- Tjnum franskra blaða að hjálp frá Kína styrkti her Viet-Nam. En þá hjálp ætlar franska herstjórnin að nota til að útskýra ósigra sina, en það á einnig að skapa jarðveg fyrir útbreiðslu stríðsins, hafandi sem átyllu að Kína sé þegar þátttakandi í stríðinu. Auðvitað hefur Viet-Nam verið viðurkennt af Kína, Sovét- r kjunum og mörgum öðrum alþýðuríkjum. Það hefur haft við- skiptasamband við Kína síðan 1950, þannig að það hefur getað skipt á skógarframleiðslu sinni og því sem það vildi kaupa. En ..aðallega“ eins og Giap lagði áherzlu á er birgða aflað meðan á bardögum stendur og æskan fórnaði lífi sínu og fórnirnar hafa verið miklar til að koma upp vopnabúrum og vopnaverksmiðjum. Næsta dag átti ég að sjá eina af þessum „verksmiðjum í skóginum“ <og rannsaka sprengjuvörpur og skriðdrekabyssur framleiddar í Yiet-Nam. Hann sagði hreinlega að sinn her hefði engar flugvélar eða Æinnur þung vélahertæki. Nokkrar flugvélar og þungir skriðdrekar háfa verið teknir herfangi, en það hefur ekkert haft að segja fyrir hernaðaraðgerðir alþýðuhersins fram til þessa. Allt annað hefur herinn útvegað sér í baráttunni. „Þar sem við á undanförnum árum, þc-gar okkur skorti allt, gátum sigrazt á örðugleikunum“, sagði Giap sannfærandi, „munum við einnig sigrast á þeim nú.“ ,En loftárásirnar á vegina?“ Auðvitað valda þær tjóni en það hefur enga úrslitaþýðingu," svaraði hann. Hann sagði gamansögu af Ho íorseta, þegar hann heimsótti bændurna, sem gerðu við vegina, einmitt þá, sem ég hafði ekið um. „Þið hafið hakana“, sagði forsetinn „og þeir hafa flugvélarnar, en vagnar okkar komast samt í gegn, ekki satt?“ Bsendurnir létu í Ijós ánægju sína. rauninni", hélt hershöfðinginn áfram „erum við neyddir til að foera allar nauðsynjar á bakinu. Þegar um er að ræða stuttar vegalengdir, geíur einn bóndi birgt upp einn hermann." Hann sneri sér aftur að landabréfinu og leit yfir norð-vestur svæðin. „Hér er svæði með tiltölulega stórum fjarlægðum í landi eins og c-kkar. 200—250 km á breidd, þrjár ár .... við verðum að.komast --f:r Tærá, Svartá og Rauðá. Við verðum að fara neðst niður 1 dali til að komast í höggfæri við miðstöðvar franska hersins í Sanla og Nasan. Og til að taka Nghia-lo urðum við að sækja yfir 30 vatnsföll, sum af þeim yfir 200 metrar á breidd og erfiða yfir há fjöll. Franskir liðsforingjar sögðu okkur síðar, að þeir hefðu ■ekki skilið, hvernig við gátum þetta. Þeir skildu ekki, hvernig herjum okkar skaut upp við Nasan, hundruðum kílómetra í burtu. IVanskur liðsforingi tjáði okkur undrun sína yfir að sjá bændur ■okkar bera birgðarnar án þess að nokkur hermaður héfði gát á þeim. Okkar bændur eru frjálsir bændur, þeir köma langt og skamrnt að, eftir áskorun Ho forseta Það sem Frakkarnir ekki skilja, er aðeins einn hlutur — ckkar siðferðisþrek. í þá daga, þegar 6—10 manna hópar okkar lágu upp til fjalla, og urðu að telja hvert skothylki .... var það hið sama: Pólitískur skilningur, siðferðisþrek. Því að okkar her undir leiðsögn Ho forseta, kemur frá alþýðunni, verndar lengsl sín við alþýðuna og berst fyrir alþýðuna. Svo tók hann sér málhvíld. „En þér eigið sjálfur að sjá þetta, ■er ehki rétt?“ Og hann benti til skógarins. „Yður er það velkomið .... en varúð,“ bætti hann við, „smitizt ekki af mýraköldu.“ Hsnn leit á úr sitt, það var kominn tími til að leggja af stað. Heimsókn til hersins í írumskóginum. — Leyndar- dómurinn um hina miklu sigra Þjóðfrelsishersins. Við urðum fyrst að ferðast í norðvesturátt í tvær nætur til að komast til 308. herdeildarinnar, sem var í þann veginn að Ijúka heræfingum. Quang, pólitíski fulltrúinn, fór með okkur. Hann var 35 ára að aldri, hærri miklu en flestir Viet-Nam-búar, svarthærður ■og otureygur. Hann var sjálfkjörinn fox'ingi þessara manna, því að í hvert sinn sem einhver hindrun varð á veginum eða einhver töf á ferðinni yfir árnar, litu þeir til hans til að heyra, hvað hann .legði til málanna. Og þegar hann sagði „dithoi“, en það merkir höldum áfram, hélt vagninn stynjandi áleiðis. Quang henti gaman að refsidómunum, sem hann hafði orðið að sæta. Einu sinni var hann dæmdur í 5 ára fangelsi, en komst undan. Svo fékk hann 10 ára dóm, en þá skall stríðið á. Þá var har.n og dæmdur í ævilanga þrælkunarvinnu. „Og hér er ég“, sagði hann og brosti. .................................. ..... .......... . ....... ' ' — I hlnu frjálsa Viet-Nam er lestrarþorstiim óslökkvandi. Bóka- þöfn og lestrarsalir eru alltaf troðfull, urigir og gamlir reyna aJi afla sér þekkingar með lestri blaða og frseðirita. # ÍÞRÓTT RITSTJÓRI. FRÍMANN HELGASON Akranes tapaði fyrir B-1903 — 10:0 Það hljómar all einkennilega í eyrum að heyra að lið Akra- ness skuli hafa tapað 10:0 gegn þó ekki sterlkara liði en B 1903 er og það þó vantað hafi Ríkarð og Þórðana báða. Sannarlega segir markafjöld- inn ekki til um gang leiksin3 því eftir honum er þessi sigur alltof stór. Má þar skrifa á reikning markvarðanna um það bil helming markanna. Þó vant- að hafi þrjá menn í sóknar- línu Akraness er athyglisvert að liðinu tekst mjög oft með ágætum hröðum samleik að komast fram að vítateig B-1903 en þar vactaði sýni- lega Þórð og Ríkarð. Aftur á móti var vörnin sundurlaus og skipulagslaus, og það var fyrst og fremst hún sem ekki stóð í stöðu sinni, og kunni ekki að loka markiau. Öftustu vörnina vantaði gagnkvæman skilning á staðsetningum. Framverðirnir lögðu of mikið í sóknina fóru of langt fram, og þá inn á svæði inmberjanna. Þar við bættist að bæði innherjar og framverðir voru seinir aftur. Máður trúir varla að vörn eins meistarafl.-liðs geti misst svo gjörsamlega tök á leiknum að það fái 8 mörk í einum hálf- leik. Rétt er það að sókn er bezta vörn og með Ríkarði og Þórði hefði þetta farið öðru- vísi en það sýnir sig að þessi veila er fyrir í liðinu og virð- ist hin skipulagslega hlið varn- arinnar hafa verið vanrækt og það kom Akranesi í koll í þess- um leik. Þessi úrslit eru nokk- urt áfall fyrir okkar ágætu Akurnesinga, en af reynslunni læra menn. Eftir á má segja að sjálf- sagt hefði verið að styrkja liðið, en eins og sagt hefur verið var það ekki sóknin sem bilaði nema að því leyti að gera mörk, og hefði því fyrst og fremst átt að styrkja vörn- ina, og hefði það þótt dálitið skrítið. Nei þama kom alvar- lega -fram veila í liðinu sem raunar alltaf hefur verið mokk- uð kunn en kom betur fram nú er á reyndi en nokkru sinni fyrr. Sennilega hefði telcizt bet- ur að verjast mörkum ef þeir í tíma og ótíma hefðu sparkað löngum og háum spyrnum, en þeir gerðu það aldrei, þeir reyndu að ná samleik og á þana hátt komast í gegnum vörn B 1903. - Hvað samleik og leikni snerti var þetta ■ bezti leikur þessar- ar heimsóknar og mun meiri samleikur og leikni sýnd en áður í þessum leikjum og í þessu umhverfi og leikaðferð náðu Danir því sem þeir bezt áttu og við það bættist að það gaf möi’k í tíma og ótíma. Byrjun Akraness lofaði ekki góðu þar sem þeir áttu skot í stöng og svo ónýttist þeim vítaspyrna sem Sveinn Teits skaut beint á markmann. Ann- að skot til áttu þeir síðar í stöng. Halldór Sigurbjörnsson lék miðherja og gerði það nokkuð vel. Sveinn Teits var innherji en framvörður var nýr maður, Jón Leósson sem átti oft góð tilþrif og lofar góðu hvað kraft snertir. Hægri útherji var Guð- mundur Jónsson og vinstri Jón Jónsson annars var liðið ó- breytt. Er stutt var komið út í annan hálfleik skiptu Akurnesingar um markmann og kom inn ungur maður sem sýnilega á mikið ólært og gekk- honum sízt betur en Magnúsi. Fengu þeir á sig sín 5 mörkin hvor. Beztu menn Dananna voru miðframvörðurinn og miðfram- herjinn sem er mjög hreyfan- legur og vinstri innherjinn. Annars var liðið sem heild hreyfanlegt og náði oft ágæt- um leik. Áhorfendur voru um 4000 og fóru allir nokkuð vonsvikn- ir heim. Dómari var Haukur Óskarsson og dæmdi vel. B1903 leikur við styrkt Víkingslið í kvöld CARX ERIK HANSEN, liægri út- herji B-1903. Danska knattspyrnuliðið B- 1903 hefur nú háð þrjá leiki hér á landi, unnið, tapað og gert jafntefli, og samtals sett 13 mörk en fengið 4. Fjórði og síðasti leikur Dan- anna verður háöur á íþrótta- vellinum í kvöld og leika þeir þá við Knattspyrnufél. Víking, sem bauð þeim hingað til lands. Víkingar munu styrkja lið sitt með nokkrum lánsmönnum úr öðrum félögum og eftir því sem Þjóðviljinn hefur fregnað verð- ur hið styrkta lið Víkings væntanlega þannig skipað (tal- ið frá markmanni) : Ólafur Ei- ríksson, Guðmundur Samúels- son, Sveinbjörn Kristjánsson, Gissur Gissurarson, Helgi Ey- steinsson, Sæmundur Gíslason Fram, Hörður Felixson, Val, Bjöm Kristjánsson, Gunnar Gunnarssori Val, Halldór Hall- dórsson Val og Reynir Þórð- arson. Danski dómarinn Aksel As- mundsen dæimr leikinn, en hann kom hingað með knatt- spyrnuflokki B-1903 og er í fararstjórninni. á ■ ' ; ' '< t 1 >r v - * m ^ M s Á : A: ■ :*. ■ v, ■; y'iit. 1 , f

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.