Þjóðviljinn - 29.10.1953, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 29.10.1953, Blaðsíða 4
’4) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 29. október 1953 Steíán Hördui’ Grímsson Tónleikar í Fríkirkimini Sjö ár eru liðiti síðan Stefán Hörður Grímsson kvaddi sér Mjóðs á skáldaþiingi með bók- inni Glugginn snýr í norður (Rvík 1946, Prentsm. Þjóðvilj- ans h.f.). Ókunnugt er mér um hvernig "bessu ljóðakveri var tekið af lesendum og ritdómurum — man þó að ég las það skömmu eftir að það kom út, skrifaði meira að segja um það ritdóm harla ómerkilegan, og þ>ar rekst ég m.a. á þessa klausu: „. . . . Fyrstu verk ýmissa beztu núlifandi Ijóðskálda vorra hafa á engan hátt staðið þess- um Ijóðum framar, svo áð hér getur farið efnilegt skáld þess vegna....“. Við nýjan yfirlestur þykist ég sjá að þetta kver eitt hefði ekki getað hafið Stefán Hörð, í skáldatölu. Glugginn snýr i norður ber glögg merki þeirrar kreppu sem ljóðlist okkar var komin í nm þessar mundir: Davíð hafði ekki s’ent frá sér íjóðabók í 10 ár, og mörgum fannst síðasta bók lians, Að norðan, lélegust af verkum hans; Tómas hafði engu bætt við sig með Stjörn- um vorsins en haldið vel í horfinu; svipað mætti segja um Undir óttuonar himni eftir Guðmund Böðvarsson; Sól tér sortna eftir Jóhannes kom út árinu áður og hlaut slæma dóma, en harðast dasmdi hann sig þó sjálfur. Jón úr Vör gaf þietta sama ár (’46) út Þorpið, markverða bók sem örugglega hefur haft þýðingu fyrir yngri skáld, en áhrifa hennar var eðiilega ekki farið að gæta þeg- ár hér var komið sögu. Steinn var að smiða sér ný vopn i von ■ um að geta barizt með þeim til nýrra landa — og honum hefur tekizt það. Stefán Hörður yrkir í fyrri hók.sinni að langmestu leyti í gömlum stíl og er undir all- áberandi áhrifum frá eldri sam- íímaskáldum, ekki sízt Snorra Hjartarsonar, en Kvæði hans komu út tveimur árum áður og vöktu allmikla athygli, eink- um meðal ljóðskálda og áhuga- samra ljóðalesenda. Yrkisefni Stefáns Harðar voru í engu nýstárleg: Frásagnarljóð nokk- ur, t.d. Gamall fiskimaður, ó- sköp banalt með dálítilli til- þrifalausri ádeilu: Auði safna fáir þeir, r sem til fansa á æginn ýta, — eigin kröftum slíta. Xðrir meira brenna og bíta, betri kjörum hlíta. Fáein sósíöl Ijóð eru með sama marki brennd: einatt há- stemmd og tilgerðarleg, oftast ófrumleg og ólistræn, missa marks. En þótt þau séu létt- væg flest, eru þau ólýgin heim- 51d um ungan mann er finn- ur til í stormum sinnar tíðar, hatast við kúgun. stríð og þjóð- félagsranglæti — á þá heil- brigðu kviku sem öll sönn list er af sprottin. Málið á Ijóðunum er ærið misjafnt, stundum kjarr-gatt lungutak íslenzkrar alþýðu — og það fer höfundi bezt, enda er hann sprottinn úi' sama jarð- vegi og hún og hefur lítillar skólamenntunar notið — en þegar hann grípur til akadem- ísks Ijóðmáls eru honum mis- lagðari hendur sem von er. Málið verður þá einatt upp- skrúfað, skortir einfaldleik og látleysi: 1 minum draumi. á dularströnd, óx demantsblóm, en óséö blómjörð ofar hió. I frjálsri firð ég frjóar daggir óð og nærði hug minn nýrri fró og næturkyrrð. ' En þögult brim á þaraskóm gekk þveginn sand. Stefáni Herði virðist hin vandasama staða sin ljós: hann finnur sig standa í skugga for- tíðar og örvæntir um að sér muni takast að koma Ijóðfari sinu heilu í höfn — er þess raunar fullviss að það muni farast í fyrstu sjóum, eða þannig skil ég lokaljóðið, Draumurinn. En þótt Stefán Hörður virðist örvænta ■— ör- vilnun ungra skálda er reynd- ar sjaldan þörf að taka of hátíðlega — er svo að sjá sem hann hafi þegar brotið glugga á suðurvegg og sjái yfir nýja ljóðakra, og við það eykst hon- um sjálfstraust: Mara, varaðu þig — ég á voldugasta sprota í heimi. Og nálykt þín skal aidrei angra niig, því ilmur blóms míns fyllir vit míri. Við þessa nýju útsýn gætu Stef og Serenade einnig verið ort, sömuleiðis: HAUSTIÐ KOM Á GLUGGANN 1 nótt liafa vindarnir Vdásið á norðurgluggann og sagt: Við erum haustið. Og ég heí hlýtt á vindana og hjúfrað mig nlður, hjúfrað mig niður og sagt: Sofa, sofa. En frá spegli þíns draums hefur spottandi mynd þín blasað við mér svo bleik og þögul á auðu stræti. Og ég hef risið upp við dogg, róað mitt angur og sagt: Sofa, sofa. B ---------------- Fimm árum síðar sendi Ste- fán Hörður frá sér aðra ljóða- bók sína, Svartálfadans (Rvík 1951, Prentsm, Hólar h.f.). Á þessum fimm árum hafði mikið verið hugsað og rætt um Ijóðlistarmál í hópi ungra skálda og áhugamanna um nú- tímaljóðlist hér á landi, þótt hinar illvígu opinberu deilur um hana hefjist ekki fyrir al- vöru fyrr en á síðastliðnu ári. Auðvelt hefur ekki verið að átta sig á hver væri mergur málsins sem um er deilt, svo fast hefur verið brotizt um. Þó hefur mátt grilla gegnum moldviðrið tvö meginsjónarmið sem ég ætla að reyna að draga saman: Formælendur hefðbundinnar Ijóðagerðar telja skáldunum skylt og nauðsynlegt að yrkja ljóð sín eftir fyrirfram ákveðn- um lærðum reglum ■— undir hefðbundnum íslenzkum brag- arháttum með stuðlum, höfuð- staf, rími, tilskildum atkvæða- fjölda í vísuorði, bundinni hrynjandi osfrv. — annað allt sé leirbull og vitleysa, tilræði við ljóðlist okkar, tungu og menningu. Ungu skáldin virða þessar forskriftir að vettugi. (Sér- stöðu hafa þó Kristján frá Djúpalæk og Þorsteinn Valdi- marsson sem báðir voru löngu byrjaðir að yrkja og mótaðir áður en átökin um nútímaljóð- listina hófust). Viðhorf ung- skáldanna virðist mér mega orða eitthvað á þesga leið: Það hæfir ekki að hella nýju víni á gamla belgi. Skáldskapinn má ekki reyra í fjötra úreltra hátta, heldur eiga skáldin áð skapa hverju ljóði form við þess hæfi. Ljóðformin verða þá jafnmörg ljóðunum — form nýs ljóðs hefur aldrei áður verið til og verður aldrei end- urtekið. Formið er ekki sjálf- stæð höfuðskepna aðgreinanleg frá öðrum hlutum ljóðs, heldur eru inntak og form ódeilan- leg heild: ljóð. Þau líta á ljóða- gerð sem hverja aðra sköpun: Barnið sem er að fæðast núna er öðruvísi en öll sem áðurvoru 1 heiminn borin, og annað ná- kvæmlega eins mun aldrei líta dagsins ljós. Líkami þnss og sál verða ekki aðskilin mA*"an það lifir. Sál hvítvo-ðung ins getur ekki tekið sér bústað í líkama ömmu s’nnar eða lang- ömmu hversu fagurlega limað- ar og vænar konur sem þær eru eða hafa verið. 1 Svartálfadansi leggst Ste- fán Hörður á sveif með skáld- :sem lásu 'kvæði Jakobínu Sig- urðardóttur „Hvort var þar hlegið í hamri“, sem birtist í blaðinu á sunnudaginn, eru á einu máli um ágæti kvæðisins. Vinkona Bæjarpóstsins kom að máli við hann og fór þess á leit, að hann stingi upp á því við lesendur sína, að þeir reyndu að finna gott lag við þetta kvæði, svo að fólk lærði það og syngi. Þetta er góð hug- mynd og ég vil hvetja fólk til að senda Bæjarpóstinum uppá- stungur um lag við þetta fal- lega kvæði. Kvæðin ná enn betur til almennings, ef hægt er að syngja þau við falleg lög og þetta kvæði þarf vissulega að ná til sem flestra. ÞRIGGJA BARNA faðir hefur sent Bæjarpóstinum eftirfar- andi bréf: — „Þjóðleikhúsið hefur iðulega sent boðslista í skóla bæjarins, þar sem skóla- fólki er boðinn afsláttur á verði aðgöngumiða að sýnipgum þess. Við þessu er náttúrlega ekkert að segja nema gott eitt, ef leikritin eru þess efnis, að gera megi ráð fyrir því, að ungling- arnir hafi gagn eða gaman að Á mánudagskvöldið, voru haldnir aðrir tónle’karnir í flokki þeim, sem Félag ís- lenzkra organleikara gengst fyrir uadir nafninu Musica sacra og ætlazt er til, að hald- ið verði áfram í vetur. Hall- grímskirkjukórinn annaðist sönginn undir stjórn Páls Halldórssonar, en til aðstoðar voru nokkrir einsöngvarar og hljóðfæraleikendur þar á meðal organleikararnir Páll Kr. Páls- son, Sigurður Isólfsson og svo stjórnandian Páll Halldórsson. Fyrst á efnisskránni var kórlag eftir Pétur Guðjohnsen, sem garnan var að heyra fyrir þá sök, að Pétur var fyrsti organleikari við Dómkirkjuna og einn af frumherjum is- lénzkrar söagmenntar, þó að tpnsmíðar væru ekki hans að- alviðfangsefni. Þá voru tón- setningar tveggja Davíðs- sálma eftir Gunnar Wenner- um hins nýja tíma og færist við það allur í aukana,. Hann hefur nú eignazt sína eigin hörpu og veit það. Rími hefur hann kastað méð öllu, stuðlun að mestu, en háttbundinni hrynjandi fyl'gir hann í ýmsum þessara Ijóða :\ HJÁ HRUMUM SKIPUM Hjá hruraum slcipum beið 6g fars með brimsins furðu- lag í blust o? leit er vindur sandinn bar í augu sérhvers dags. Frá rauðum vagni kvöldið gekk á sandinn kaldan sýningunni. En alveg er ótækt, þegar Þjóðleikhúsið lætur þessa boðslista ganga í skólana að því er virðist í þeim einum tilgangi að halda uppi aðsókn að lélegum og jafnvel siðspill- andi leikritum. Þannig hefur börnum í gagnfræðaskólum bæjarins verið boðið að horfa upp á „Koss í kaupbæti“, sein- ast í fyrrakvöid, þar sem aðal- grinið snýst um telpu á ferm- ingaraldri, sem er sögð ólétt. Fyrir nú utan, að þetta er varla heilsusamlegt aðhláturs- efni fyrir börn á aldrinum 13 til 15 ára, er vítaverð aðferð höfð til að smala á þessar sýn- ingar þar sem kennurum og skólastjórum er ekki gefinn kostur á að kynna sér fyrir- fram efni leikritanna og þann- ig ekki borið undir þá, hvort þeir telji æskilegt að nemend- ur sjái sýninguna. Eins orkar það tvímælis að safna áskr.f- endum á lista í héilum skólum, fæst börn hafa það siðferðis- þrek að standa á móti, þegar sessunautar hafa „skrifað sig á“, og eyða þannig litlum Vaaa- peningum sínum sjálfum sér þvert um geð. Ef Þjóðleikhúsið ætlar ekkí að hafa óvirðingu af gren, sem mun vera meiri Glúntasmiður en sálmatón- skáld, sungnar af kór og ein- scagsröddum með undirleik. strengjahljóðfæra ~ og orgels. Sigurðui' Isólfsson lék því næst tvo sálmaforleiki eftir Bach, og loks voru svo flutt- ar tvær kantötur eftir Buxte- hude. Vonbrigði urðu það, að verk eftir Giovanni Gabrieli, sem boðað hafði verið í sum- um dagblöðum, að Ieikið yrði, (kallað þar kammersónata), kom hvergi fram, hvort sem blöðin hafa farið hér rangt með eða einhverju öðru hef- \ir verið um að kénoa. Gaman væri, ef þetta vrði bætt upp með því, að á einhverjum næstu tónleikanna yrði flutt eitthvað af verkum þessa. meistara Venezíuskólans. Leiðinlegt er til þess að vita, að kirkjubekkir skuli okki nema hálfsetnir á svona tón- leikum og það enda þótt að- gangur sé ókeypis. Reykvík- ingar hafa sýnt, að þelr geta fyllt stærstu sali þegar góð tóalist er í boði, jafnvel þó að þeir þurfi að kaupa dýra að- göngumiða. Að nokkru leyti mætti ef til vill kenna því um, að efnisskrá hafi að þessu sinni verið nokkuð einhæf, en því var að minnsta kosti ekki til að dreifa á fyrri tónleik- unum fyrir þrem vikum. Gæti ekki skýringin að einhverju. leyti verið sú, að þessir tcn- leikar væru ekki nægilega vel auglýstir? Kunnugt er um dæmi þess, að tilkynningarnar hafa farið fram hjá fólki, sem g.jarnau hefði viljað vera þarna viðstatt. þessum „skólasýningum“ sínum, verður fyrirkomulag þeirra að vera öðru vísi en beint pen- ingatrekkerí. — Þriggja barna faðir“. ANNAÐ BRÉF hefur Bæjarpóst- inum borizt um svívirðilegt okur. Mundi skrifar: — „Ég ranglaði um daginn inn í blómabúð og rakst þar á pakka með blómaáburði. Útsöluverð á honum var kr. 6.75. Þetta var danskur innfluttur áburður, og það hafði gleymzt að fjarlægja danska verðmiðann en á hon- um stóð kr. 0.60. Svona pakki er því seldur á danska sextíu aura út úr búð í Danaveldi, kostár því trúlega á að gizka danska fimmtíu aura í innkaupi. Ef miðað er við rétt gengi hefur verðið á pakkanum því siöfaldazt á leíð- inni hingað, og þótt reiknað sé með bátagjaldeyrisverði og við- hafðar allar mögulegar afsak- anir, verður ekki annað séð en verðið á þessari pakkaögn hafi að minnsta kosti fjórfalduzt. Þetta er sjálfsagt ekkert eins- dæmi, en ekki 'gefur það fagra mynd af ástandinu í verðlags- málum okkar. í sömu búð spurði ég um verð á blómstur- pottum. Það voru ósköp venju- legir pottar, sleinsteyptir og kostuðu sjö krónur. Mér datt í hug, að dýrt yrði að byggja sér hús úr þeirri steypu. Eftlr þessar upplýsingar hafði ég mig á burt, þótt ég hefði raunar ætlað mér að spyrja um verð á Framhald á 11. síðu, Framhald á 11. síðu. Björn Franzson. Lag við ljóðið hennar Jakobínu — Peninga- ,,trekkerí'' — Okur í blómabúðum ALLIR LESENDUR Þjóðviljans

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.