Þjóðviljinn - 16.03.1954, Blaðsíða 3
2) — ÞJÓÐVILJINN ,-t Þriðjudagur 16. marz 1954
Var Hallgrírour úti ,
alla nóttina
En það gerðist, er Hallgrímur
var á. fcrð í Mjóafirði, að þeim
barst mjög á honum og Her-
manni. Var ilit við Hallgrím
að fást fyrir kveðskapnum og
orðkynnginni, og þóttist Her-
mann fara halloka. Hélt nú
Haligrímur til Héraðs um
Slenjudal og býst að hafa nátt-
stað í tóftunum á Þuríðarstöð-
um eða húsræflunum uppistand-
andi. Leið nú fram á nótt og
gerðist heldur ókyrrt. Fór Hall-
grímur þá á vit við siæðing
þennan, en fylgdarmaður hvíldi
kyrr. Var Hallgrímur úti alla
nóttina, og var trú að sendingu
Hermanns hefði hann komið af
sér, en eigi fyrir, og þótti jafn-
an verða vart á Þuríðarstöðum
eftir þetta.
En það bar til nokkrti síðar, að
Hallgrímur kom nm Þórdals-
heiði frá Reyðarfirði til Skrið-
dals. Réðst nú nýr og magnaður
draugur á hann frá Hermanni
og vildi færa í gljúfur, er nærri
voru. Hrakti draugsi Hallgrím
mjög og hugðist nú kyrkja
hann. Kom þá Hallgrímur skáld-
skapnum við:
Ertu fjandinn eða hvur
eldi granda meinvættur?
Mót þér standi mátíugur
minn guð andi heilagur.
Dró nú mjög af draugsa og
komst Hallgrímur til bæja, en
nauðuglega. Er það satt að mjög
sá á hálsi hans, og þær mcnjar
bar hann eftir þessa ferð, að
aldrei gat hann rennt niður
þurrum bita matar, og varð
ætíð að hafa vökva með.
[(Austurland II, um Hallgrím í
Stóra-Sandf elli).
' i f dag er þriðjudagurinn 16.
* marz. Gvöndardagur. — 75.
dagur ársins. — Guðmundur hinn
góða Hólabiskup. Vika lifir gðu.
— Tungl í hásuðrl kl. 22.47. —
Árdegisháflæði Id. 3.49. Síðdegis-
háflæðl kl. 16.08.
err3!R)—-a
Söfnin eru opiní
Þjöðmlnjasafnið:
kl. 13-16 á sunnudögum, kl. 13-15
á þriðjudögum, fimmtudögum og
iaugardögum.
Landsbókasafnlð:
kL 10-12,- 13-19, 20-22 alla virka
daga nema iaugardaga kl. 10-12
og 13-19.
Læknavarðstofan
er í Austurbsajarskólanum. —
Sími 5030.
Næturvarzla
er í Laugavegsapóteki. Sími 1618.
LV
Lúðrasveit verkalýðsins. —
Æfing í kvöld kl. 6:30.
Eliknasjóðuv tslanðs
Pramlögum til Ekknasjóðs Is-
lands er veitt móttaka í biskup.s-
skrifstofunni, í Sparisjóði Rvíkur
og nágrennis, hjá Mariu Maack
Þingholtsstræti 25. og Guðnýju
Gilsdóttur Freyjugötu 24.
Siðastliðinn laug-
ardag opinberuðu
trú'ofun sína ung-
frú Ragnhildur
Thorlacius, Kárs-
» nesbraut 42, og
Gunnay. Ax^lsson , Bergstaðastr. 9.
Bæjarbókasafnið
Lesstofan er opin al’.a virka daga
ki. 10:—12 árdegis og kl. 1—10 síð-
degis, nema iaugardaga er hún
opin 10—12 árdegis og 1—7 síð-
degis; sunnudaga kl. 2—7 síðdegis.
ÚUánadeildin er opin alla virka
daga kl. 2-10 síðdegis, nema laug-
ardaga kl. 2-7 síðdegis. Útián fyrir
börn innan 16 ára ki. 2-8.
Sinfóníuhljómsvcitin flytur á op
inberum tónieikum, er hefjast i
kvöld, tvö verk
eítir Beethov-
en, meistara
meistaranna
eins og sumir
hafa kallað
hann. Verkin
eru Píanókons-
ert nr. 4 í G-
dúr, og leikur
Árni Kristjáns-
son þar einleik
á píanóið; og
Sinfónía nr. 6
í F-dúr, sem frægust er undir
heitinu Pastóralsinfónían. Olav
Kieiland stjórnar sveitinni í kvöld
— og mættu það vera dýrir að-
göngumiðar er ekki stseðu fyrir
sínu verðl.
Félagið Berklavörn
Félagsvist og dans í Tjarnarkaffi
(uppi) í kvöld kfiukkan 8.30.
Dansk kvindeklub
heldur fund í kvöld klukkan 8.30.
Fundurinn verður í Aðalstræti 12.
'Beethoven
Svona svona,
komdu nú,
Tryggur minn —
ég meinti ekkert
með því þegar
ég sparkaðl í þig
á simnudagsnn.
Bókmenntagetraun
Á sunnudaginn var bírt skrýtin
vísa eftir séra Stefán Ólafsson
Va'iianesi, sem uppi var á 18. öld
sem kunnugt er. Hvað er að
tarna?
Dags iít ég deyjandi roða
drekkja sér norður í sæ;
gi'átandi skýin ,.það skoða
.. skuggaieg upp yfir hæ.
Þögulust nótt áilra nótta,
nákyrrð þin ofbýður méí,
stendurðu á öndinni af ótta?
Eða hvað gengur að þér?
Jörð yfir sofandi síga
svart-ýrðar iætur þú brýr;
tár þin á hendur mér hníga
hljótt, en ég finn þau samt
skír.
Verður þér myrkum á vegi
vesturför óyndisleg?
Kvíðir þú komandi degi,
lsolbrýnda nótt, eins og ég?
ÚTBKEIÐED
ÞJÓÖVILJANN
mamzr-‘
Neytendasamtök Keykjavíkur
Skrifstofa samtakánna er í Banka
stræti 7, sími 82722,- opin dag-
lega kl. 3.30—7 síðdegis. Veitir
neytendum hverskonar uppllýsing-
ar og fyrirgreiðslu. BlaJð samtak-
anna er þar einnig tii sölu.
Hekla, flugvél
Loftleiða, er vænt
an'eg til Rvíkur
frá N.Y. í nðtt.
Flugvélin heldur
18.00 Dönskuk. H.
ffl. 18.30 Enskuk.
I. fl. 18.55 Fram-
burðark. í ensku.
19.15 Þingfr. ý-l
Tónleikar. 20.30
Erindi: Ríki og kirkja (GísH.
Sveinsson kirkjuráðsmaður og
fyrrum sendiherra). 21.05 Tónleik-
ar Sinfóníuhljómsveitarinnar (út-
varpað frá Þjóðleikhúsinu). Stj.
Olav Kielland. Einleikari Árni
Kristjánsson. a) Píanókonsert nr.
4 í G-dúr eftir Beethoven. 22.00
Framhald hljómsveitarleikanna í
Þjóðleikhúsinu. b) Sinfóniá nr. 6
í F-dúr (Pastoral-sinfónían) eftir
Beethoven. 22.45 Dagskrárlok.
-rf :• ,
áfram eftir skamma viðdvöl til
Stafangurs, Kaupmannahafnar og
Hamborgar.
Mlnnlngarspjöld Mennlngar-
ag minningarsjóðs kvenna
fást í Bókaverzlun Braga Bryn-
jólfssonar, Bókaverzlun Isafoldar
áusturstræti 8, Hljóðfærahúsinu
Bankastræti 7.
Listasafn Elnars Jónssonar.
er iokað yfir vetrarmánuðina.
Náttúrugripasaf nið;
kl. 13.30-15 á sunnudögum, kl. 14-
15 á þriðjudögum og fimmtudög-
■. Si- $&k
Á iaugardaginn
yoru -gefin- saman
í hjónáband af sr.
Jóni Thorarenson
ungfrú Inglbjörg
Guðrún Magnús-
dóttir og Þor-
steinn Löve. Heimili þeirra er að
Tjarnargötu 3.
AFDRIF JÓNS
GERREKSSONAR
Var Kirkjubólsbrenna suður,
er jungkeri Ivar Vigfússon
var skotinn til dauða. Var
fyrir brennunni Magnús kæ-
meistari í Skáilioíti, er sumir
sögðu son biskups Jóns. Kann
bað fyrst systur Ivars, er
Margrét hét, og fekk ekki.
Þeirra faðir var Vigfús, er
lúrðstjóri hafði verið ....
En Margrét komst úr eidinum
um ónshúsið, hafði hún getað
gert þar holu ineð skærum
síuum. VHdi. hún pngan mann
eiga nenia þann, sem hefndi
bróður hennar. Tók sig þá
tii Þorvarður Lo.ftsson frá
Möðruvölium í EyjaJiröi og iét
drekkja biskupi í Brúará með
taug og steini í einum sekk.
Giítist haim síðan. Margréti.
(IsL annálar).
• ÞJÓÐVXLJANN
• ÚTBBEH9ID
Dagskrá Alþingis
þriðjudaginn 16. marz kl. 1.30.
Efrldelld
Búnaðar-banki Islands.
Skipun læknishéraða.
Skipun læknishéraða.
Neðrideild
Skipun jarða í opinberri eigu.
Fyrningarafskriftir.
Eignarnám, erfðafesturéttindi í
Dalvíkurhreppi
Fuglaveiðar og fuglafriðun.
Vátryggingarfélög fyrir fiskiskip.
Atvinna við sigíingar.
•Tiá'héffiiniií
Eimskip
Brúarfoss fór frá Rotterdam 11.3.,
væntanlegur til Rvíkur kl. 17 i
gær. Dettifoss fór frá Hull 12.3.
væntanlegur til Rvíkur kl. 21.00
í gærkvöid. Skipið kom að
bryggju um kl. 12 i gærkvöld.
FjaUfoss kom’til Rvíkur 14.3. frá
Flateyri. Goðafoss kom til Rvíkur
13.3. frá N.Y. GulJfoss fór frá R-
vík .13.3. til Hamborgar og Kaup-
mannahafnar. Lagarfoss fer frá
Ventspils 15.—20. þm. til Rvíkur.
Reykjafoss fór frá Siglufirði 14.
þm. tSl Hamborgar, Rotterdam,
Hull og Rvíkur. Selfoss fer frá
Keflavik í gærkvöld til Rvikur.
Tröllafoss kom til N.Y. 12. þm.
fer þaðan til Rvíkur. Tungufoss
■fór væntanlega frá Santos i gær
til Recife. og Rvikur. Vatnajöku’.l
lestar i N.Y. um 18. þm. til R-
vikur, Hanne Skou lestar í Kaup-
mannahöfn og Gautaborg 15,—18.
þm. til Rvíkur.
Sambandsskip
Hvassafell er í Rvík. Arnarfell
er i Rvík. Jökulfe’l fór frá N.Y.
12. þm. áleiðis til Rvikur. Dísar-
fell er á Þórshöxn. Bkifell er í
Rotterdam, fer þaðan í kvöld á-
ieiðis til Leith. Litlafell er í R-
vík.
Ríkisskip
Hekla er í Rvík og fer á fimmtu-
daginn vestur um land í hring-
ferð. Esja fer frá Rvílc kl. 20 i
kvöld austur um :and í hring-
ferð. Herðubreið er í Rvílc og fer
þaðan á fimmtudaginn austur um
■land til Þórshafnar. Skjaidbreið
er á Húnaflóa á suðurleið. Þyrill
er á Breiðafirði á Vesturleið.
Krossgáta nr. 822
Lárétt: 1 ritið 4 hróp 5 boðháttur
7 borða 9 atvo. 10 á kind 11 tók
13 ákv. greinir 15 tveir eins 16
afskekktur staður.
Lóðrétt: 1 borg 2 býli 3 ónotuð
4 bæjarnafn 6 telgja 7 ennþá 8
vesæl 12 elskar 14 atvorð 15
dúr.
Lausn á nr. 321
Lárétt: 1 kústa 4 no. 5 tá 7 all
9 föl 10 orf 11 arf 13 ar 15 ár
16 ásinn.
Lóðrétt: 1 KO 2 sól 3 at 4 nefna
6 álfar 7 ala 8 lof 13 rói 14 rá
15 án.
Öll nauð og sérhver bölvun, svartidauði,
etórabóla, kolbrandur, eyðilegging, krabbi,
mýrakalda og rauðir hundar dynji nú þeg-
ar á hinum guðlausu Niðurlöndum.
Látum okkur ganga, sagði Ugluspogill við
Lamba. — Já, strax, svaraði Lambi hinn.
ákafasti. Og hann fór að skyggnast um
meðal hinna fögru og andagtugu kvenna í
þrönginni, en enginn hafði nokkru sinni
verið kona hans.
Ugluspegill dvaldist nú í kránum, meðal
frelsiselskandi manna. Hann sagði: Filipp-
us hótar nú að hirta okkur með fallbyss-
um — sannarlega konungleg hirting. Þetta
þótti mönnum vel að orði komizt, og þeir
brostu.
Einn dag var líkneskja jómfrú Maríu bor-
in í mikilli skrúðgöngu um bæinn, og var
þá svivirt af einhyerjum ókunnum þrjóti.
Henni var hið skjótasta komið fyrir toak-
við grindverkið í Vorrar Frúar kirkju.
íiUfí
(3
•J mih 4Í.2! 'íR úiíi umzM i'
rr ---------
i mj
Keflavík. Frá fréttaxitara Þjóðviljans.
Nýlega flutti bifreiðastöðin hér, Aðalstöðin, í ný og góð húsa
kynni.
Það var árið 1948, að 12 bif-
reiðarstjórar, sem stunduðu
leigubifreiðaakstur frá Bifreiða-
stöð Keflavikur, réðust í að
stofna hlutafélag til þess að
reka sjálfir bifreiðastöð. Félag-
ið hlaut nafnið: Aðalstöðin h.f.
Strax var ráðist i að afla hús-
næðis og fékk félágið inni með
rekstur sinn í gömlu raftækja-
verkstæði, og tveim dögum eft-
ir að félagið var stofnað var
bifreiðastöðin opnuð.
Jafnframt rekstri sjálfrar
stöðvarinnar, hefur félagið selt
benzín og olíur, frá byrjun í
umboði Olíufélagsins h.f. Þá hef-
ur það og annast dekkjaviðgerð-
ir og séð um þvott á bifreiðum
fyrir viðskiptamenn sína. Fyrir
tæpum tveim árum voru einnig
sett upp frumstæð smurtæki úti.
S,l. yor var þafizt handa
um bygging hins nj'ja stöðvar-
húss við Hafnargötu 86, sem
nú er verið að leggja síðustu
hönd á. Húsið er 166,8 ferm.,
tvær hæðir með valmaþaki,
byggt úr steinsteypu. Skyggni
ca 70 ferm. er byggt út úr
framhlið hússins og yfir benzín-
dælur. Neðri hæð hússins er
fullgerð, og er að mestu notuð
fyrir stöðvarrekstur jfélagsins,
að undanskildu einu herbergi,
sem leigt hefur verið fyrir rak-
arastofu. Afgreiðsluherbergi og
-biðstofa eru stór og rúmgóð og
öllu mjög haganlega fyrirkom-
ið. Geymslur fyrir olíur o. fl.
eru inn af afgreiðslu. Bifreiða-
stjóraherbergi mjög stórt og
rúmgott, búið stálhúsgögnum,
og inn af því stór svefnskáli fyr-
ir bifreiðastjóra vegna nætur-
aksturs. Skrifstofuherbergi er
einnig. Snyrtiherbergi eru bæði
fyrir viðskiptavini og bifreiðar-
stjóra. Efri hæð er óinnrétt-
uð, en í framtiðinni er ætlun-
in að hafa þar bifreiðavarahluta-
lager. Kjallari er undir húsinu
aðeins fyrir hitunartæki.
Á miðju sumri hófst svo félag-
ið einnig handa um byggingu
fullkominnar smurstöðvar á lóð
sinpi, Er húsið 170 ferm., stein-
steypt. Tvær bifreiðalyftur eru
af fullkomnustu gérð. Þar er
einnig annazt um dekkjavið-
gerðir í sérstöku herbergi. Vand-
að herbergi er þar fyrir starfs-
menn smurstöðvarinnar, svo og
snyrtiherbergi. Smurstöðin tók
til starfa 16. janúar s.l. Lóð
stöðvarinnar er 4500 ferm. og
er þar bílastæði, einnig ér fyr-
irhugað að reisa þar viðgerða-
verkstæði og þvottahús.
Árið 1951 bættust 8 nýir fé-
lagar í hluthafahópinn, svo að í
dag eru þeir 20, og venjulega
aka um 20 bifreiðar frá stöð-
inni, en þegar allar bifreiðar
stöðvarinnar eru í gangi þá eru
þær 28.
Þegar stöðin tók fyrst til
starfa voru starfsmenn félagsins
aðeins 2, nú eru þeir 9 talsins.
Ætlunin er að hafa í ein-
hverri Vnynd útibú á gamla
staðnum.
Formaður Aðalstöðvarinnar
h.f. hefur Haukur H. Magnússon,
Keflavík, verið frá stofnun fé-
lagsins. Núverandi stjórn skipa
með honum: Svavar Sigfinns-
son og Gunnar Kristjánsson.
Aðrir, sem verið hafa i stjórn,
félagsins á undanförnurri árum:
Erlendur Sigurðsson, Valgeir
Jónsson, Guðmundur Helgason
og Björgvin Þorsteinsson.
VABIZT SLYSIN nefnist. 16
bís. baéklingur efíir Þórð Run-
ólísson, sem gefinn er út á veg-
nm búnaðarfræðslu Búuaðarfé-
lags ísiands.
Er þar bent á aukna slysa-
hættu samfara vaxandi véla-
vélanotkun við landbiinaðar-
störf og sýnt með myndum og
frásögnum, hver slýs geta af
þvi liiotizt ef trassað er að hafa
iiauðsynlegan öryggisútbúnað á
vélum.
Niðurlagsorð bækiingsins eru
þessi: „Leggið ykkur vel á
minni þau aðvörunarorð sem
þessi bæklingur fljTur ykkur.
Gætið þess, að vélar ykkar séu
búnar auðsynlegum öryggis-
hlífum og haldið hlífunum vel
við. Andvaraleysi í þessu efni
getur kostað örorku og manns-
líf.“
I ðureUendwr
ktdrii
iðnmémrmmhmtei n sísa.ssrisumr
ÚísiiíAþýöing fynr samkeppnishæíni að
nofa innlenda og erl. verkfræðiþekkingu
Ársþing iðm’ekenda 1954, sem hófst með aðalfundi Fé-
lags ísl. iðnrekenda s.l. laugardag, hélt áfram störfum
í gær.
Á fundi þingsins ki. 5-7 e.h.
voni ræddar tillögur laganefnd-
ar og samþykktir gerðar i
nokkrum málum. Þessar álykt-
anir voru gerðar á þinginu í
gær:
„Ársþing iðnrekcmia 1954
lýsir sérstakri ánægju yfir því
að hin nýja. Iðnaðarmálastofnun
íslands, í núverandi formi,
skuli tekia til starfa
og færir ácsþingið Iðnaðarmála-
nefnd þakkir fyrir ágætt starf
við a.ð koma stofnunimxi upp,
þrátt fyrir andstöðu og erfio
Aðaifundur Starf sraannafélags
Reykjavíkur
Aðalfundur Starfsmannafélags Reykjarikurbæ.jar var haldinn
sunnudaginn 7. ma.rz, í Tjarnarkaffi.
í upphafi fundarins minntist
formaður félagsins, Þórður Ág.
Þórðarson, fjögurra látinna fé-
laga svo og Hallgríms Bene-
diktssonar, fyrrv. forseta bæj-
arstjórnar Reykjavíkur, og
Knud Zimsen, fyrrv. borgar-
stjóra, sem látizt hafði
snernma á starfsárinu. Fundar-
menn vottuðu hinurn látnu
virðingu sína með þvi að rísa
úr sæturn. .
Formaður bað Sigurð Á.
Björnsson að vera fundarstjóra
og var nú gengið til dagskrár,
a ungi
Fiamhald af 12. síðu.
fiskar eða 3.8%. Árið 1948, eða
43 árurn síðar voru merktir 692
fiskar af sömu stærð á sömu slóð-
um og hafa fengizt aftur af
þeim 94 fiskar eða 13.6% þ. e.
3.6 sinnum hærri hundraðshluti
en í fyrri merkingunni. Það er
einnig athyglisvert að allar end-
urheimtur fró merkingunni ,1905
fengust af ísl. skipum, en nú
fékkst 31 merkjanna, eða þriðj-
ungur, af erlendum veiðiskipum
Sókn Islendinga í þennan stofn
hefur því aukizt um 240%, en
verulegur hluti heildaraukning-
arinnar stafar af stóraukinni
sókn erlendra veiðiskipa við
strendur landsins.
Göngur milli íslands og
annarra landa
Þorskstofninn við ísland er
algerlega sjálfstæður og hefur
h'til sambönd við önnur lönd. Þó
hafa merkingar undanfarinna
ára leitt í Ijós, að fiskur alinn
upp hér við land hefur gengið
til Grænlands, Norður-Noregs og
jafnvel í Norðursjó. Komu end-
urheimturnar frá N-Noregi mjög
á óvart en merkingar næstu ára
munu án efa staðfesta hvort hér
er um tímafyrirbæri að ræða
eða reglubundnar göngur.
Framhald af 1. síðu.
urn þjóð sína, og bók Askels
Snorrasonar í landi lífsgleðinn-
ar. Einnig víkur hann að út-
gáfu Máls og menningar á rúss-
neskum bókmenntum. „Þrátt
fyrir það hversu ólík lönd vor
eru“, bætir hann við, „bæði að
stærð og fólksfjölda, höfum við
hinar mestu mætur á íslenzku
þjóðinni og dáum ínnilega ríka
og forna menningu hennar og
list“.
Tvær bækur um ísland
Enn segir Polevoj írá því, sem
áður befur verið skýrt frá, að
verið er að undirbúa nýja út-
gáfu íslendingasagna þar eystra.
Tvær bækur hafa kornið út um
ísland, skrifaðar af sovézkum
rithöfundum, sem hingað hafa
iftBkkurm
ORöSENDING
frá Sósíalistafélagi
Reykjavíkur
Athygli skal vakin á að út hafa
verið gefin ný skirteini og brejút
um fyrirkomulag á greiðslu
f’okksgjalda. Nauðsyniegrt er því
að flokksícCagar kynni sér þetta
strax til þess að auðvelda inn-
heimtustarfið. — Greiðið flokks-
gjöld ykkar skjlvislega í skrifsíofu
félagsins. Þórsgötu 1, opið frá kl.
10-12 og 1-7 al a virka daga. - Stj.
komið, og seldust báðar upp á
skömmum tíma. Skáldið Sofro-
noff og píanósnillingurinn og
tónskáldið Nikolajeva hafa í
sameiningu gert flokk laga og
ljóða um ísland og er hann oft
ieikinn í útvarpi og á tónleikunx.
Söngvarinn Lisitsían syngur oft
íslenzk lög á hljómleikum sín-
um. Enn segir Polevoj frá því
að Sjálfstætt fólk og Atómstöð-
i'n fari senn að koma út, og
minnist á leikrit Kiljans í því
sambandi. Einnig hefur smásag-
an Ósigur ítalska loftflotans í
Reykjavík kornið nýlega í tíma-
ritinu Ogonjok, „en síðan hefur
rignt yfir tímaritið bréfum írá
lesendum sem létu í ljós mikinn
áhuga á höfundinum og landi
þvi sem hann ritar um“.
Yiur frá köldu Iandi
Lokaorð greinarinnar eru
þessi:
„Við fórum frá Reykjavik
snemma i júni. Loftið var enn
svalt, brumhuapparnir á kræki-
óttum birkitrjánum i litlu görð-
unum í Reykjavík voru enn
lokaðir, hafið við strendurnar
var ískalt. Sarnt geymdum við
í hjörtum okkar yl frá þessari
heimsókn, yl sem við viljum
færa löndurn okkar um leið og
við segjum þeirn frá þessu fjar-
læga landi og hinurn atorku-
sömu, hugrökku, óbugandi íbú-
um þess“.
og flutti formaður skýrslu
stjórnarinnar. Gjaldkeri skýrði
reikninga félagsins, en þeir
höfðu áður verið prentaðir og
sendir hverjum félagsmanni. Er
fjárhagur félagsins með blóma.
Stjórnarkosning hófst með
því, að formaður, Þórður Ág.
Þórðarson, varð sjálfkjörinn,
og einnig meðstjórnendur, þau
Júlíus Björnsson, Kristín Þor-
láksdóttir og Haukur Eyjólfs-
son. Fvrir í stjórn voru Kr.
Haukur Pétursson, Georg Þor-
steinsson og Sigurður Halldórs-
son.
Varastjórn var nú kosin, en
hún hefur ekki verið til i félag-
inu unx margra ára bil. Kosnir
voru í varastjórn: Þorkell Gísla-
son, Helgi Helgason og Berg-
sveinn Jónsson, urðu þeir eum-
ig sjálfkjörnir, þar sem eigi
komu frarn aðrar uppástungc.r.
Endurskoðendur félagsins
vroru kjörnir einróma: Sigúrður
Á. Björnsson og Hallur Þorleifs-
son, til v'ara: Sigurður Þor
steinsson.
Stjórnin skiptir með sér verk-
urn og hefur gert það á eftir-
farandi hátt: Varaformaður Júl-
íus Björnsson, ritari Kristín Þor-
ur Pétursson, gjaldkeri Georg
Þorsteinsson, fjármálaritari
láksdóttir, bréfritari Kr. Hauk-
Haukur Eyjólfsson og spjald-
skrárritari Sigurður Halldórsson
í stjórn styrktarsjóðs var Jak-
obína Jósefsdóttir kjörin ein-
rórna. í st.jórn eftirlaunasjóðs
voru kjörnir: Karl Á. Torfason
og Þórður Ág. Þórðarson, til
vara: Július Björnsson og Sig-
urður Þorsteinsson .
Fulltrúar á þing Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja voru
kjörnir: Karl Á. Torfason, Lár-
us Sigurbjörnsson, Karl I.árifs-
son, Gunnar Halldórsson, Júlíus
Björnsson, Helgi Hallgrímsson,
Hjálmar Blöndal, Kr. Haukur
Pétursson, Karl Bjarnason,
Þórður Gíslason, Kristinn Valde-
marsson, Sigurður Halldórsson,
Jón Þórðarson og Þórður Ág
Þórðarson.
í félasinu eru nú á sjöunda
hur.drað bæjarstarfsmenn.
skilyrði. Benda athuganir þær,
sem Iðnaðarmálastofnunin hef-
ur þegar framkvæmt á einstök-
um iotigreinum, eindregið til
þess að verksmiðjuiðnaðinum
í landinu verði góður styrkur að
störfum hennar.
Ársþingið telur, að tækni-
stofnun af þessu tagi, með all-
an verlcsmiðjuiðnað landsmanna
sem viðfangsefni, sé gagtunerk
tilraun í þá átt, að auka ai-
mennt f rs mleiðslua fköst og
vöruvöndun og lýfta iðnaðinum
á hærra þróunaistig.
Að því er snertir innlenda
iðnaðinn fyrir heimajnarlcaðinn,
leiðir siík starfsemi a£ sér
lækkandi verð á neyzluvörxun
fyrir almenning, vegna minnk-
andi framleiðslukostnaðar.
Markmið íslenzks verksmiðju-
iðnaðar er ekki einimgis að fuil-
nægja imxlendri vöruþörf, held-
ur einnig að hefja útflutning í
sem flestum iðnaðargreinum. Að
alhindrunin þar er hinn hái
framleiðslukostnaður inna,n-
lands, og til þcss að dra.ga úr
honum er leiðbeiningarstarf
eins og það, sem Iðnaðarmála-
stofnun íslands stefnir að ó-
metanlegt.
Gagnvart útflutningsiSn-
aðinum, eltki sízt fiskiðnað-
inum, getur það haft úr-
slitaþýðingu um samkeppn-
ishæfni á heimsmarkaðnum,
að ekkert sé l.átíð ógert til
þsas au nýta sem bezt þá
verkfræðilegu þekkingu, bæði
sem íslendingar hafa yfir að
ráða og fáanleg er erlendis
frá iðnaðinum tíl aðstoðar.
Ársþingið færir því Alþingi
og ríkisstjóm þakkir fyrir vel-
viljaðaix skilning á þessum mál-
um, með því að hafa lagt fram
fyrsta skerfinn og grundvöll-
inn ao því að iðnaðarmálastofn-
un íslands komst á laggirnar.
Telur þingið eðlOegt að frainlag
ríkissjóðs til þcssarar stofnun-
ar í framtíðinni verði í réttu
hlutfalli við framlag xákissjóðs
á hverjum tíma til Fiskifélags
Islands og Búnaðarfélags ís-
lands.“
Aðalfmidur Félags
járniðnaðarnema
Aðalfundur Félags járninð-
aðarnema var haldinn 10. þ.nx.
í Baðstofu iðnaðarnranna.
Kosin var ný stjórn fyrir fé-
lagið. Formaður var kosinn Ól-
afur Dariðsson (Stillir) og aðr-
ii- í stjórn: Ilaraldur Einarsson
(Héðinn), Garðar Karlsscn
(Héðinn), Gunnar Guttormsson
(Landsmiðjan), og Brynjólfur
Villxjálmsson (Landsmiðjan).
Varastjórn: Gísli Sigurhansson
(Héðinn) og Kristmundur Sæ-
mundsson (Stálsmiðjan). Einn-
ig voru kosnir endurskoðendur
og skemmtinefnd.
Mildll hugur er í félaginu
fyrir a.ð virnxa að bættum kjör-
um nemanna. — I félagitiu eru
nú 180 nemar.