Þjóðviljinn - 11.04.1954, Qupperneq 1
Ráðstefna
Sósíalistafélags Reykjavik-
ur hefst kl. 10 f.h. í dag
í Baðstofu iðnaðarmanna.
Fulltrúar eru beðnir að
mæta stundvíslega og fjöl-
menna.
Stjóirnin.
Bæjarutgerðarf ogarl fer á veiðar mei 14Færey-
inga þrátt fylr bann Sjómannafélags Reykjavikur
Islenzku og færeysku sjómeimirnir skráðir um borð í skipinu ut á ytri
höfn en þangað var skipið flutt um sjö leytið í fyrrakvöld!
Bæjarútgerðartogarinn Þorsteinn Ingólfsson lét
úr höfn í fyrrakvöld með 14 færeyska sjómenn og
10—11 íslenzka háseta með nokkuð óvenjulegum
hætti. Létu framkvæmdastjórar Bæjarútgerðarinnar
færa skipið á ytri höfn um sjö leytið og leggja því
þar. Síðan voru sjómennirnir, bæði þeir færeysku og
íslenzku fluttir um borð í sérstökum bátum og sitt í
hvoru lagi. Fór skráning fram um borð í skipinu á
vegum tollstjóra. Engin breyting hefur orðið á af-
stöðu Sjómannafélagsins til ráðningar Færeying-
anna og fór skipið á veiðar með þá innanborðs í
íullkomnu óleyfi félagsins .
son varaformann og starfs-
mann Sjómannafélags Reykja-
víkur um þetta. mál og innti
hann m.a. eftir því hvort stjórn
félagsins hefði einhverjar ráð-
stafanir í undirbúnmgi út af
þessum ósvífnu framkomu
'gagnvart félaginu. Kvað hann
’stjórnma hafa til athugunar
hvernig þessu ofbeldi yrði
mætt og komið í veg fyrir að
Jslíkt endurtæki sig en engar
jendanlegar ákvarðanir hefðu
enn verið teknar.
RÍKISSTJÓRNIN ÆTLAR
AÐ STÖÐVA TOGARANA
Nefnd á að athuga hag togaranna!
Ríkisstjórnin viröist staðráðin í að senda Alþingi heim
án þess að gera nokkrar ráðstafanir til að leysa úr vanda
togaraútgeröarinnar og togarasjómanna.
t auglýsingatíma útvarpsins
I fyrrakvöld var lesin tilkynn-
ing frá Bæjarútgerðinni til
skipverja á Þ-orsteini Ingólfs-
syni um að mæta til skráning-
ar kl. 10 þá um kvöldið. Fóru
fulltrúar frá stjóm Sjómanna-
félags Reykjavíkur á vettvang
á tilsettum skráningartíma.
Var þá húið að flytja 14 fær-
eyska sjómenn um borð í súip-
ið sem lá úti á ytri höfn en
þangað hafði það verið flutt
um sjö leytið eins og fvrr seg-
ir. Kom þá í ljós að ekki var
til þess ætlazt að skráning færi
fram á veniulegum stað heldur
um borð í skipinu. Mótmæltu
fulltrúar Sjómannafélagsins
þessum vinnubrögðum og tjáðu
skipsmönnum sem mættir voru
að útgerðin hefði ekki leyfi
Sjómannafélagsins til ráðning-
ar á Færeyingum.
Vönu mennirnir
neituðu
Langmestur hluti hiimar
venjulegu skipshafnar á
Þorsteini Ingólfssyni livarf
frá því ráði að láta skrá sig
á skipið þegar þelrn urðu
þessar aðfarir Ijósar. Auk
yfirmaima vélamanna o. s.
frv. fóru um borð í skipið
10—11 hásetar, auk þeirra
14 Færeyinga sem fyrr get-
ur. Voru það rnest unglingar
og menn sem óvanir eru tog-
arasjómennsku.
Um borð í skipinu á \-tri
höfninni fór svo skráning þess-
arar skipshafnar fram og ann-
aðist hana fulltrúi frá toll-
stjóra. Hélt svo skipið úr höfn
og mun því vera ætlað að
stunda veiðar í salt.
Þjóðviljinn átti í gærkvöld
stutt viðtal við Sigfús Bjarna-
Það eina sem ríkisstjórnin
virðist ætla að gera í málinu
er þessi þingsályktunartillaga,
sem lögð var fram í gær í sam-
einuðu þingi:
,,Tillaga til þingsályktunar
um athugun á hag togaraút-
gerðarinnar.
Alþingi ályktar að kjósa með
hlutfallskosningu 7 manna
nefnd til þess að athuga hag
togaraútgerðarinnar.
Sjái nefndin að lokinni rann-
sókn ástæðu til, skal hún
benda á úrræði, sem hún telur
að megi verða útgerðinni að
viðhlítandi gagni.
Ríkisstjómin skipar fórmann
nefndarinnar“.
Lúftrik Jósefsson deildi fast
á ríkisstjómina fyrir aðgerða-
leysi og þá vesælu blekkingar-
tilraun sem í tillögunni fælist.
Rakti hann vanda togaraút-
gerðanna og sjómanna og benti
á þær leiðir sem sósíalistar
liafa þegar sýnt í tillögum á
Alþingi.
Nýír samnieig"
ar flugvirkja
í fyrradag voru undirritaðir
nýir kjarasamningar milli Flug-
virkjafélags íslands og flugfélag-
anna. Hafði félagið sagt upp
samningum og voru þeir útrúnn-
ir 15. febr. s.l. en samningaum-
leitanir hafa staðið yfir að
undanförnu.
Helztu nýmæli nýju samning-
anna eru þau, að eftirleiðis þurfa
flugvirkjar ekki að vinna á
vöktum á tímabilinu frá kl. 24
að kvöldi til kl. 6 að morgni. £>á
fá flugvirkjar 40 kr. á mánuði
sem verkfærapeninga og er það
svipuð upphæð og bifvélavirkj-
ar fá í sama skyni samkvæmt
samningum sínum við atvinnu-
rekendur.
Síldarlegt
við Lófót
Oslóarútvarpið sagði í gær,
að nú væri óvenju síldarlegt
á miðunum við Lófót og væri
búizt við því, að fiskimönn-
um yrði innan skamms leyft
að hefja veiðarnar.
I,
Aðalfundnr
Flugvirkjafélags íslands
Fyrir nokkru hélt Flugvirkja-
félag fslands aðalfund sinn. í
stjórn voru kosnir: Ásmundur
Daníelsson formaður, Jón Júlíus-
son ritari og Jón Stefánsson
gjaldkeri. Aðalfundarstörfum
varð ekki lokið og verður hald-
inn framhaldsaðalfundur síðar.
Bandaríska herstjórnin vill hernaðar-
aðgerðir gegn Kina þegar í stað
Washíngfonfréffaritari brezka blaSsins The Times
skýrir frá brjálæSisáformum Bandarikjamanna
Sameiplegnr fundtir fulltrúa verk-
lýðsfélaganna 11 saiiiingsuppöp
Fundurinn veiður á þriðjudagskvöldið
í húsnæði Þréiiar
Sameiginlegur fundur verkalýösfélaganna 1 Reykjavík
verður haldmn n.k. þriðjudagskvold í húsakynnum Vöru-
Lílstjóraíélagsins Þróttar og er umræðuefnið hvort segja
skuli upp kjarasamningum verkalýösfélaganna í vor.
Skeyti sem Washingtonfréttaritari brezka stórblaðsins
Tlie Times sendi blaði sínu í fyrradag hefur vakið mikla
athygli í Evrópu. í skeytinu skýrir hann frá því, að
bandaríska herstjórnin vilji, að þegar í stað verði hafnar
hernaöaraðgerðir gegn Kína. Fyrirhuguö stríðshótun
Bandaríkjastjórnar á hendur Kína eigi rætur sínar að
rekja til þessara áforma herstjórnarinnar.
Það er fulltrúaráð verkalýðs-
félaganna sem gengst fyrir fund-
inum og hefur boðið hverju
verkalýðsfélagi í bænum að
senda tvo fulltrúa á fundinn. Ó-
hjákvæmilegt er orðið fyrir fé-
lögin að fara að taka afstöðu
til þess hvort segja skuli upp
samningum þar sem tími til
uppsagnar er aðeins til 1. maí
en samningarnir renna út mán-
uði síðar þ. e. 1. júní.
Gert er ráð fyrir að fulltrúar
frá flestum eða öilum verka-
lýðsfélögunum sæki fundinn.
Fundurinn hefst kl. 8,30 síð-
degis.
Auguste Lumiére, Frakkinn
sem ásamt bróðurnum Louis,
fann upp kvikmyndasýningarvél-
ina árið 1894, lézt í Lyons í
gær, 91 árs að aldri. Síðar gerði
Auguste tsnargar uppfinningar
á sviði læknavísinda.
Fréttaritarinn segir, að ekki
sé ljóst, hvaða aðgerðir her-
stjórnin vilji, en að talið sé, að
hún vilji beita flugher og flota
Bandaríkjanna gegn meginlandi
Kína þannig, að raunverulegt
styrjaldarástand skapist. Hún
hugsi sér, að bessar aðgerðir
mætti hefja með þvi að setja
hafnbann á Kína.
Ríkisstjórnin sammála
Fréttaritarinn bætir því við,
að Bandaríkjastjórn vonist til
að stjórnir Bretlands og Frakk-
lands fallist á slíkar aðgerð-
ir. Það sé enn ekki á vitorði
neinna utan stjórnarinnar og
helztu embættismanna hennar,
hvaða boð Dulles muni gera
þeim Churchill og Laniel í við-
ræðum sínum við þá, en lík-
legt er talið, að Dulles muni ó-
fús til að hætta við þessi áform,
en hinsvegar hugsanlegt, að
hann fallist á að fresta þeim
fram yfir Genfarfundinn, ef
Bretar og Frakkar lofa fylgi
sínu við þau, ef enginn árang-
ur næst á honum.
Churchill heimtaði
að Dulles kæmi
Dulles lagði af stað með flug-
vél frá Washington á miðnætti
í gær og kemur til London i
dag, þar sem hann mun ræða
,við Churchill og Eden. Á þriðju-
dag heldur hann áleiðis til Par-
ísar og ræðir við Laniel og Bi-
dault, en heldur síðan heim aft-
ur.
Fréttaritarar í Washingtori
segja, að þetta ferðalag Dulles
sé þannig til komið, að Eisenhow-
er hafi fyrir nokkru hringt í
Churchill og tilkynnt honum, að
Bandaríkjastjórn hefði í hyggju
að senda nokkra sérfræðinga til
London til viðræðna við em-
bættismenn brezka utanríkis-
ráðuneytisins um öryggismál
Suðaustur-Asíu. Churchill hafði
þá sagt, að hér væri um stór-
pólitískt mál að ræða, sem eng-
ir aðrir en ábyrgir ráðamenn
gætu fjallað um. Varð það úr,
að Eisenhower lofaði að senda
Dulles.
Verkfall í Róm
í dag og morgun munu engin
almenningsfarartæki, strætis-
vagnar, sporvagnar né neðan-
jarðarlestir, ganga í Róm. Öll
þrjú verkalýðsfélögin hafa efnt
tjl verkfalls (starfsmanna við
samgöngur borgarinnar til að
fylgja á eftir kröfum þeirra um
launahækkun.