Þjóðviljinn - 16.05.1954, Blaðsíða 1
Sumiudagur 16. maí lí>54 — 19. árgangur — 109. töhiblað
Kosiiingaskrif-
stofa G-listans
verður á Marbakka, símar
4904 og 81693
og á'Snælandi, sími 80488
ag tryggja Képavogsbðar sigur framfarastefn
unnar m fylkia sér um GHstann
AlþýSuflokkurinn yfirgefur útstrikanahreppst'iórann
og veitir G-Iisfanum o5 málum
Kosningin t Kópavogshreppi hefst í dag kiukkan 10 f. h.
I dag tryggja Kópavogsbúar áíramhald framíara-
stefnu sinnar meö því að fylkja sér um G-listann og
tryggja honum glæsilegan sigur.
Þau tíðindi gerðust í gær að sex aí frambjóð-
endum A-listans lýstu yfir því að hann væri sér
með öllu óviðkomandi og Alþýðublaðið lýsti einn-
ig í gær fylgi Alþýðuflokksins við G-listann, lista
stuðningsmanna fráfarandi hreppsnefndar.
í kosningunum í dag svara
Kópavogsbúar árás ríkisstjórnar-
flokkanna sem fyrirskipuðu
nýjar kosningar, enda þótt síð-
ustu kosningar færu á allan hátt
löglega fram og væru alveg ótví-
ræðar.
Kína viil oukin
viðskipti
Aðstoðarverzlunarmálaráðherra
Kína, sem staddur er á ráð-
stefnunni í Genf, sagði við
fréttamenn í gær, að viðskipti
Kína við auðvaldslöndin hefðu
aukizt um þriðjung á síðasta
ári. Hann sagði, að mikill mark-
aður væri í Kína fyrir hvers
konar afurðir og Kínverjar gætu
látið í skiptum fyrir þær margs
konar vörur, sem önnur lönd
vanhagaði um, t. d. siiki og soja-
baunir. Kína væri reiðubúið að
taka upp viðskipti á jafnréttis-
grundvelli við Bandaríkin, og
ráðherrann kvaðst vita, að marg-
ir kaupsýslumenn í Bandaríkjun-
um hefðu hug á slíkum viðskipt-
uni.
Ekki íhaldið
Landnemarnir í Kópavogi eru
margir hverjir, og raunar flest-
ir, flúnir þangað undan slóða-
skap og ræfildómi íhaldsmeiri-
hlutans í Reykjavík. Þeir geta
því ekki kosið frambjóðendur
Sjálfstæðisflokksins, því það
væri það sama og lýsa yfir að
þeir vildu gera Kópavog að nýrri
Blesugróf eða Smálöndum.
Efeki lénsherrann
Kópavogsbúar geta heldur
ekki kosið hinn nýja lénsherra
Framsóknarráðherranna, valda-
sjúka sprelligosann sem hyggst
taka allar lóðir af íbúunum og
skipta þeim upp eftir sínum eig-
in geðþótta og setja niður götur
og byggðir i trássi við löglega
byggingarnefnd hreppsins.
Ekki
útstrikunarhreppstjórann
Og ekki kjósa þeir lista út-
strikunarhreppstjórans. Hann er
endanlega dauður sem pólitísk
■ stærð — og það fór vel, segja
allir — nema íhaldið.
Það einsdæmi í islenzkri
stjórnmálasögu hefur nú gerzt að
6 af þeim sem eru á lista með
Alþýðuílðkkurínn afneitar A-lisl-
anum, lista útstrikaoakeppstj.
„Við undirritaðir fyrsti, annar, þriðji, fimmti, sjötti
og níundi maður A-listans \ið hreppsnefndarkosningar
þær, sem fram eiga að fara í Kópavogshreppi -hinn 16.
þ.m., Iýsum hér með yfir, að við teljum þenna iista ekki
lista Alþýðuflokksins og okkur því með öilu óviðkom-
andi.
Kópavogi 15. maí 1954.
Guðmundur Hagaiín Pétur Guðmundsson
Keinliardt Keinhardtsson Runólfur Pétursson
Eyþór Þórarinsson Árni PáIsson“.
útsírikunarhreppstjóra þessum
hafa afneitað listanum með öllu
og segja hann sér algerlega ó-
viðkomandi.
Alþýðuflokksfólk í Kópavogi
fylkir sér því um G-listann, lista
Finnboga Rúts og samstarfs-
manna hans, og lýsti Alþýðu-
blaðið því yfir í gær með eftir-
farandi orðum:
„Verkefni Alþýðuflokksfólks
í Kópavogshreppi getur því
orðið það eitt í þessum
kosningum, að vinna gegn í-
halclsflokkunum báðum og
útstrikanastjóranum sem cft-
ir stendur á A-listanum.“
í dag svara Kópavogsbúar
kúgunartilraunum ríkisstjórnar-
flokkanna, kjósa gegn ihalds-
flokknum og sendli þeirra, út-
strikanahreppstjóranum. í dag
kjósa Kópavogsbúar sér frelsi og
áframbaldandi framfarir, kjósa
G-iistann.
Kosning hefst kl. 10 í.h. Kjós-
ið snemma.
AHir eitt um G-Iistann!
ESætt um tillögur
Molotoffs í Genf
Enginn fundur var haldinn á
Genfarráðstefnunni gær, en
þeir Eden, Bidault og Bedell
Smith, aðstoðarutanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, ræddust
við í einrúmi um tillögur þær
um Indó Kína, sem Molotoff
lagði fram í fyrradag.
Fundurinn á morgun mun
verða fyrir luktum dyrum að til-
lögu Edens. Indó Kína er áfram
til umræðu.
450 fisbimenn
taldir af
Óttazt er um afdrif 450
fiskimanna, sem ekki hafa kom-
ið fram eftir aftakaveður sem
geisaði undan ströndum Jap-
anseyja fyrri part síðustu viku.
Frakkar undirbúa allsherj-
arundanhald i Indó Kina
ÆSstu foringjar franska hersins sendir í
skyndingu á fund Navarre i Saigon
Sagt er, að franska landvarnaráðið hafi ákveðið aö
franski herinn í Indó Kína verði látinn hðrfa undan
til mikilvægustu samgöngumiöstöðva landsins. Æðstu
hershöfðingjar Frakka fara í dag til Saigon til viðræðna
við Navarre, yfirmann franska hersins í Indó Kína.
Fréttaritari Reuters í Genf símar, að þar séu menn
sammála um, að Frakkar geti ekki gert sér vonir um að
halda yfirráðum yfir Viet Nam.
Landvarnaráðið var kallað
saman á fund í fyrradag til að
ræða hinar alvarlegu horfur
fyrir franska herinn í Indó
Kína og hvaða ráðstafanir
væri unnt að gera til að bæta
vígstöðu hans. Ráðið kom aft-
ur saman á fund í gær og var
þar ákveðið, að Ely herráós-
foringi, Salan yfirmaður
franska landhersins og fynr-
rennari Navarre sem j'firmaður
franska hersins í Indó Kína og
Pelissier yfirmaður franska
flughersins skjddu fara til
Saigon til viðræðna við Navarre
Enginn liðsauki.
Talið er, að ráðið hafi ekki
getað fundið neina leið til að
efla herinn í Indó Kína með
liðsauka frá Evrópu eða Norð-
ur-Afríku eins og talið hafði
verið nauðsynlegt. Minnzt hafði
verið á a.m.k. ÖO.OOj manns í
því sambandi.
Þar sem sú leið reyndist ófær
er sagt, að landvarnaráðið
hafi ákveðið, að franski herinn
í Indó Kína skuli lá.tinn yfir-
gefa allar stöðvar sem hann
hefur nú á valdi sínu nema mik
ilvægustu samgöngumiðstöðvar.
Verður þessi áætluu lögð fyrir
Navarre og honum faldar fram-
kvæmdir, sem eiga að forða
Frökkum frá fleiri ósigrum á
borð við fall Diebienphu.
Geta ekki haldið Viet Nam.
Fréttaritari Reuters í Genf
símaði í gær, að þar væru menn
sammála um, að það væri al-
gerlega vonlaust fyrir Frakkii
að reyna að halda Viet Nam,
stærsta ríkinu í Indó Kína, þar
sem um 20 miIJiónir af 29 millj.
íbúa alls landsins búa.
Það fylgdi með, að Frakk&r
gerðu sér þetta Ijóst sjálfir;
þeir vis3u að þeir hefðu ekkert
bolmagn gegn sjálfstæðishern-
um, nema með beinm íhlutun
bandamanna sinna, Bandaríkj-
anna og Bretlands, í stríðiö og
slík íhlutun væri nú sem stend
ur ha.rla ósennileg. Sa.gt var að
franska stjórnin myndi e.t.v.
geta sætt sig við að láta stjórn
Ho Chi Minh eftir allt Viet
Nam, ef hún fengi tryggð vfir-
ráð sín í Laos og Kambodsja.
Ný árás á Phu ly.
Sjálfstæðisherinn hefur hafið
nýja stórskotaárás á bæinn Phu
ly, sem er um 55 km fyrir sunn
an Hanoi. Hann gerði áhlaup
á bæinn á þriðjudaginn. Frakk-
ar héldu þá velli, en misstu
margt manna. Framsveitir
sjálfstæðishersins grafa nú
skotgrafir umhverfis Phu ly og
er ótti í Frökkum að Phu ly
kunni að verða þeim önnur
Dienbienphu.
180.000
Notum helgina til öflugs
starfs fyrir söínunina
Dagurinn i gær færðl okkur
27.000 krónur í söfnunina. Þetta
er ágætur árangur og þannig
þurfum við að halda sleitulaust
áfram dag hvern þar til söfnun-
inni er lokáð og markinu náð.
Hln glæsilegu fordæmi sem marg-
ir menn og konur hafa þegar
gefið okltur með sínum rausnar-
legu framlögum, þrátt fyrir tak-
markaða fjárhagsgetu, eru öflug
hvatning til allra góðra sósíal-
ista og anmvrra liðsmanna um að
stórauka starfið.
Helgln er ágætt tækifærl tll að
liitta vlni og kunningja í erind-
uni söfnunarinnar. Notum því frí-
ið til að efla starfið. Og glej-m-
um ekki að skila árangri heigar-
innar á skrifstofu söfnunarinnar
á morgvm svo vöxtur súlunnar
leyni scr ekkt í þriðjudagsblað-
inuL
Ein milljón króna fyrir 17. júní
’ Vi millj.
millj. j-
millj. |-
1 millj.l
^►180.000 kr.