Þjóðviljinn - 20.06.1954, Side 8
8) — ÞJÓÐVILJINN - • Sunnudagur 20. júní 1954
Samnorræn imglmga-
keppni í frjálsum íþróttmn
Á þingum þeim, sem hin nor-
rænu Frjálsíþróttasambönd
hafa efnt tii, hafa oft verið
ræddir möguleikarnir á því að
koma á fót meistaramótum fyr-
ír unglinga. Vegna fjármála-
legra erfiðleika hefúr reynzt ó-
mögulegt að stofna til slíkra
móta.
Á síðasta þingi sambandanna
urðu fulltrúarnir' sammála um
að efna til samnorrsennar
keppni í frjálsum íþróttum fyr-
ir unglinga.
Ætlunin er sú, að félög hvar
sem er á Norðurlöndum geti
efnt til keppni fyrir unglinga
og einnig má taka árangra, sem
unglingar ná á öðrum mótum
t.d. héraðsmótum.
Hin Norðurlöndin ákváðu að
umrædd mót skyldu fara fram
dagana 18.—20. júní og þá
einnig að árangur sem ungling-
ar næðu á öðrum mótum, sem
fram færu þessa daga skyldi
tekin með.
Frjálsíþróttasamband Islands
bað um að fá helgarnar 3.—4.
júlí og 10.—11. júlí sem keppn-
isdaga og var orðið við þeirri
beiðni.
Iþróttagreinamar, sem keppa
skal í á þessu samnorræna ung-
lingamóti eru: Hlaup: 100 m.
og 1500 m.
Stökk: Hástökk og langstökk.
Köst: Kúluvarp og kringlukast.
(Nota skal við köstin fullorð-
ins kúlu og kringlu).
Þeir unglingar, sem fæddir
eru 1934 og síðar eru hlutgeng-
ir til keppninnar. Þess er ósk-
að að unglingar fæddir 1939 og
síðar séu ekki látnir keppa í
1500 m. hlaupi.
Unnið skal að því að fá sem
flesta unglinga til þess að keppa
og skal skrá og tilkynna árang-
ur hvers þeirra.
Þegar skrásettur árangur
allra mótanna hefur borizt
Frjálsíþróttasambandi íslands
verður árangur hinna ýmsu
unglinga í hverri íþróttagrein
raðað. Meðaltal af árangri 15
beztu íslenzku unglinganna
telst hinn opinberi árangur ís-
lands.
Meðaltal af árangri 25 beztu
unglinga hinna Norðurlandanna
telst hinn opinberi árangur
þeirra hvers fyrir sig.
Sú þjóð, sem fær beztan með-
alárangur í einni grein fær 5 st.
fyrir þá grein. Sú sem á næst-
bezta árangurinn fær 4 stig
o.s.frv.
Sú þjóð sem e:gi nær fullum
þátttakendafjölda í einni grein
fær fyrir þá grein 0 stig. Nauð-
synlegur þátttakendafjöldi Is-
lands í hverri grein er 15.
Fyrir getur komið að fleiri
en 15 — þátttakendafjöldi Is-
lands — eigi beztu afrekin í
sinni grein og skal þá telja
alla þátttakendur en þó finnst
meðaltalið með deilingu tölunn-
ar 15.
Sú þjóð, sem hlýtur hæstu
samtölú meðaltalanna
keppnina.
Gert verður sérstakt ’sameig-
inlegt heiðursmerki vegna þess-
arar keppni. Hver á unglingur
sem nær slíkum árangri að
hann telst með við útreikning
meðaltals hlýtur heiðursmerki.
Stjórn Frjálsíþróttasambands
Islands hefur skipað þá Lárus
Halldórsson, Hermann Guð-
mundsson og Þorsteinn Einars-
son í nefnd til þess að ann-
ast alla framkvæmd þess-
arar keppni. hér á landi.
Nefndin hvetur alla þá sem
koma til þess að standa fyrir
mótum þessar keppnishelgar,
hvort sem um sérstök unglinga-
mót eða ekki er að ræða að
senda sem ýtarlegastar móta-
skýrslur og strika undir nöfn
unglinga. Skýrslur þessar þurfa
að hafa borizt nefndinni fyrir
1. ágúst n.k. Skoða skal keppni
þessa sem hverja aðra lands-
keppni. Hún hefur þá sérstöðu,
að eigi er fáum afreksmönnum
safnað saman til eins íþrótta-
vallar, heldur fer hún fram á
öllum þeim völlum Norður-
landanna, sem uppfylla settar
leikreglur um hverja íþrótta-
grein og þátttakendur eru allir
unglingar Norðurlanda.
# ÍÞRÓTTIR
RITSTJÓRl. FRÍMANN HELGASON
Sundmeisfaraméf Islands á Úlafsfirði
Fiá Iþréttavellinum:
Fjéiði leikui
íslcmdsmótsins
í knattspymu
fer fram á Iþróttavellinum
í kvöld kl. 8.30.
FRAM og KR
keppa.
Dómari:
Hrólfur Benediktsson
Fimmti leikurinn verður annað kvöld kl. 8.30 milli
VALS og VlKINGS
Dómari: Haraldur Sigurðsson
Fjölmennið á Völlinn! Sjáið skemmtilega leiki!
MÓTANEFND.
Að þessu sinni fór sund-
meistaramót Islands fram í ÖI-
afsfirði- Eru í ár liðín 20 ár
síðan sundmeistaramót IsIandS
hefur verið haldið norðanlands,
en það var haldið á Akureyri
1934.
Fer vel á því að landsmótin
í sundi séu haldin hér og þar
um landið; það örfar áhugann
bæði hjá forustumönnum og
eins sundfólkinu, Við það bæt-
ist að framfarir hafa orðið svo
miklar út uin landsbyggðina, og
því eðlilegt að mótum sé
dreift eftir því serti aðstæður
leyfa.
Skráðir voru keppendur til
vmnur móts þessa frá 8 aðilum, sam-
tals 51, og komu flestir til
leiks. Þessir aðilar voru: Sund-
ráð Reykjavíkur 18, Knatt-
spyrnufél. Keflavíkur 10, Umf.
Keflavíkur 2, Iþróttabandalag
Akraness 8, Umf. og Iþrótta-
samband Austurlands 3, Sund-
félag Hafnarfjarðar 1, Haukar,
Hafnarfirði 1 og Leiftur Öl-
afsfirði 8.
Iþróttasíðan hefur hitt að
máli Jón D. Jónsson, en hann
var staddur á mótinu, og spurt
hann um mót þetta. Honum
fórust orð á þessa leið: I fá-
um orðum sagt var undirbún-
ingur allur og móttökur með
þeim myndarbrag að vart verð-
ur á betra kosið. íþróttabanda-
lag Ólafsfjarðar sá um mótið,
og naut skilnings og stuðnings
bæjarstjómar ólafsfjarðar sem,
gerði allt sem hún gat til þess
að gera móttökurnar og dvöl-
ina sem skemmtilegasta. Höf-
uðþunginn af undirbúningnum
mun þó hafa hvílt á herðum
Hartmanns og Björns Stefáns-
sonar form. IBÓ, sem lögðu,
ef svo mætti segja, nótt við
dag sólarhringana áður.
Laugin, sem er ein glæsileg-
asta útisundlaug á landinu, var
í sérlega góðu ástandi og skil-
yrði því góð fyrir sundfólkið-
Mótið setti form IBÓ, Björn
Stefánsson. Við setninguna
flutti Erlingur Pálsson form.
SSl einnig mjög góða ræðu.
Að loknu mótinu hafði bæj
arstjóri ÓlafsfjarSar boð inni
fyrir lceppendur og gesti. Ás
grímur Hartmars bæjarstjóri
setti hófið með stuttri ræðu.
Björn Stefánsson, Erlingur
Pálsson og Benedikt G. Wáge
fluttu ávörp og þökkuðu fyrir
hönd keppenda og gesta. Að
lokum flutti forseti bæjarstjórn
arinnar, Þorvaldur Þorsteins-
son, afburða snjalla ræðu.
Allir þátttakendur luku upp
einum munni um það að allar
móttökur hafi verið svo góðar
að varla hafi verið hægt að
gera betur; þess má geta hér,
að bæjarstjórn Ólafsfjarðar af-
henti Ben. G. Wáge fagra
mynd af Ólafsfirði í tilefni
af 65 ára afmæli hans sem þá
stóð yfir.
Árangur sundfólksins væri
gaman að ræða nokkuð, en af-
rekaskráin talar sínu máli,
sagði Jón að lokum.
Það kemur greinilega fram
í móti þessu hve sundfólki ut-
an af landi fer ört fram, og að
Reykjavík má hafa sig alla við
áð verða ekki undir í þeirri
sundkeppni. Það vekur líka
nokkra furðu að hin stóru
sundfélög úr Reykjavík skuli
ekki koma til leiks í meistara-
móti undir eigin nafni, en
keppa undir nafni sundráðsins.
Úrslit urðu þessi:
lOOm skriðsund
Pétur Kristjánsson SRR 1;016
Ari Guðmundsson SRR 1;04,9
Ólafur Guðm. Haukar 1:05.8
400m bringusund
Magnús Guðm.: KFK 6; 19.0
Ólafur Guðm.ss. SRR 6;38.0
Lindberg Þorst. UÍA 6:42.5
400m bringusund
Helgi Sigurðsson SRR 5;10.5
Ari Guðm. SRR 5;18.9
Pétur Hansson KFK 5;48.8
lOOm baksund
Jón Helgason lA 1;16.0
Ólafur Guðm. Haukar 1;19.4_
Sig. Friðriksson UMFK 1;20.2
200m bringusund
Magnús Guðm. KFK 2;58.7
Ólafur Guðm. SRR 3;02.4
Hjörleifur Bergst. SH 3;07.7
lOOm flugsund
Pétur Kristjánsson SRR 1;19.9
Jón Otti Jónsson SRR 1;33.6
4xl00m fjórsund
Sveit manna utan Rvk 5;11.5
Sveit Reykvíkinga 5;14.2
4x200m skriðsund
Sveit SRR 9; 49.8
Ðrengjasveit frá KFK 11;14,9
K V E N N A S U N D
200m bringusund
Inga Árnadóttir KFK 3; 24.4
Vilborg Guðleifsd. KFK 3:29.0
Sigriður Guðm.d. IA 3:38.6
lOOm skriðsund
Inga Árnadóttir KFK 1;16.5
Inga Magnúsdóttir lA 1;31.1
Lilly Walderhaug Leift. 1;31.4
lOOm baksund
Helga Haraldsd. SRR
Inga Magnúsdóttir IA
Auður Brynjólfsd. ÍA
1;25.4
1;52.3
2;00.4
2;03.5
2;03.5
3x50m þrísund
Sveit SRR
Sveit KFK
Sveit lA
Sveitir SRR og KFK urðu að
synda t.visvar og urðu jafnar
að tíma í bæði skiptin, en sveit
ERR úrskurðuð sigurvegari!
DRENGJASCND
Helgi Hannesson ÍA 1;06.0
Steinþór Júlíusson KFK 1;07.9
Sig. Friðriksson UMFK 1;12.0
lOOm bringusund
Magnús Guðm. KFK 1;22.7
Björn Óskarsson ÍA 1 ;29.2
lOOm baksund
Sigurður Friðriksson 1;21.S
Birgir Friðriksson 1;26.5
TELPN AS UND
50m bringusund
Inga Árnadóttir KFK 43.4
Vilborg Guðleifsd. KFK 44.7
Sigríður Guðmundsd. ÍA 44.8
Marciaao hélf meisbratitlinam
Bandaríski hnefaleikarinn
Roéky Marciano, heimsmeistari
þungavigt, varði meistaratitil
sinn s.l. fimmtudag á Yankee-
stadium í New York. Andstæð-
ingUrinn var að þessu sinni
landi hans, blökkumaðurinn Ezz-
ard Charles, sem var heims-
meistari í þessum sama þyngd-
arflokki frá því í júní 1949 fram
júlí 1951. Marciano sigraði
Charles á stigum og stóð leikur-
inn í 15 lotur: 45 mínútur.
Márciano hafði nokkra yfirburði
þó að Charles sýndi meiri leikni
og skemmtilegri hnefaleika.
Dæmdu dómaramir heimsmeist-
aranum sigur í 8 lotum en Charl-
es í 5 en 2 voru jafnar.
Þetta var 46. hnefaleikakeppni
Rocky Marcianos síðan hann
gerðist atvinnumaður 1948. Af
þessum 46 leikjum hefur hann
unnið 40 á rothöggi og aðeins
einu sinni hefur hann verið sleg-
inn í gólfið og tekið talningu.
Það var í fyrsta leiknum við
Joe Walcott. Marciano tókst þó
síðar, í 13. lotu leiksins, að slá
Walcott óvígan. í marz 1953
hittust þeir aftur á hne(aleika-
pallinum og þá tók það Marciano
ekki nema 1 mínútu og 25 sek.
áð Ijúka keppninni — á þann
hátt sem myndin sýnir.