Þjóðviljinn - 23.06.1954, Side 8
&) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 23. júní 1954
Frá íþróitavelimum:
6. leifeur
Islcmdsmótsms
í knattspyrnu fer fram á
íþróttavellinum í kvöld
kl. 8.30, þá keppa
AKRANES og ÞRÓTTUR
Dómari: INGI EYVINDS.
Fiölmennið á VöIIinn! Móianefnd
Umboðsmenn fyrir KODAK LIMITED,
Verzlun Hans Petersen h. I..
Bankastræti 4.
Kodak er skráð vörumerki.
. i ---— - ... ----—
/-------------------—
BEZTU MYNDIRNAR
- fást á:
Kodak filmur
>
| Tilhynnmg
Vegna sumarleyfa verður skrifstofu og af-
greiðslu vorri lokað frá 12. til 28. júlí að báð-
um dögum meðtöldum.
Tóbafeseinfeasala ríkisins
' *----------------------------------\
*
Hressingarheimili og
| gistihús
verður starfrækt að HLÍÐARDALSSKÓLA f
ÖLFUSI frá 1. júlí.
Nýtízku finnsk baðstofa, medisinsk böð og nudd,
heilnæmt fæði.
Læknir heimilisins verður GRÍMUR MAGNÚS-
j SON.
Pöntunum veitt viðtaka í síma 82820.
% ÍÞRÓTTIR
RlTSTJÓRl. FRtMANN HELGASON
Valur vann Víking 1:0 eftir frem-
ur tilþrifalítinn leik
Eftir ófarirnar við Þrótt
hafði Valur gert 9 breytingar
á liði sínu, og margar þeirra
virtust gefast allvel. Sveinn
Helgason var nú vinstri bak-
vörður með allgóðum árangri.
Sveinn er að vísu búinn að
missa nokkuð af fyrri hraða,
en spörkin voru hrein. Einar
var nú miðframvörður og var
langfrískasti maður liðsins. Jón
Þórarinsson lék nú aftur með
og slapp sæmilega frá viður-
eign sinni við Reyni. Gunnar
Sigurjónsson lék nú sem inn-
herji en Sigurhans Hjartar-
son var framvörður. Vinstri
útherji var nýr maður, Guðni
Sigfússon, í stað Sigurðar Sig-
urðssonar; nokkuð kvikur mað-
ur en hann vantar æfingu. Árni
Njálsson var innherji en fann
sig ekki heima þar í fyrsta
sinn, var of framarlega; en
hann er baráttumaður. Gunnar
Gunnarsson hefur mikla yfir-
ferð en oft skilja samherjar
hans hann ekki. Gunnar fær
því ekki það útúr leik sínum
sem efni standa til, og það
spillir fyrir honum að hann
virðist stundum kærulaus í at-
höfnum sínum. Hörð Felixson
vantar allan baráttuvilja nema
ef hann hefur knöttinn við fæt-
uma, þá getur hann vel hugsað
sér að fara með hann þveran
og endilangan völlinn, en það
er einleikur; knattspyrna er
flokkaleikur. I heild var liðið
betra en móti Þrótti, þó óná-
kvæmni væri mikil í sendingum
og staðsetningum.
Víkingsliðið vantaði Bjarna
Guðnason sem er meiddur í
Skeamtilegar
knattspyrnu-
myndir sýndar í
Gamla bíéi
I gær hóf knattspyrnusam-
band íslands sýningar í Gamla
bíói á tveim ungverskum kvik-
myndum af hinum margumtöl-
uðu knattspyrnukappleikjum,
sem landslið Englendinga og
Ungverja háðu í nóvember í
fyrra og í maí s.l. Leikjum
þessum lauk sem kunnugt er
með sigri ungverska landsliðs-
ins, fr—3 í London, 7—1 í
Búdanest.
Kvikmyndirnar eru mjög
skemmtilegar, en sýningartími
þeirra er um 1 klst. Sýna þær
glöggt hina frábæru leikni ung-
versku knattspyrnumannanna,
ekki hvað sízt félaganna Pusk-
as og Kocsis. Einnig eru sýnd
nokkur atriði frá undirbúningi
að leikjunum, för Ungverjanna
til Englands, æfingaleik i París
o.fl.
KSl hefur látið útbúa skýr-
ingar sem fluttar verða með
myndunum. Kvikmyndirnar
verða sýndar í Gamla bíói
næstu daga.
fæti, og lék Gunnlaugur Lárus-
son í hans stað. Er Gunnlaug-
ur ekki búinn að gleyma göml-
um „töktum“ en skorti úthald.
Sama höfuðveilan var hjá Vik-
ingi og Val: ónákvæmni í
sendingúm og þó að baráttu-
vilji væri fyrir hendi voru
staðsetningar slæmar bæði í
sókn og vörn. Helgi var bezti
maður varnarinnar. Hægri
framvörður var líka duglegur
og fylginn sér.
Fyrri hálfleikur var þóf-
kenndur í meira lagi og fáar
aðgerðir sem vöktu hrifningu,
og segja má að aðeins eitt
skot hafi komið á mörkin all-
Það er öruggt að við munum
eftir Jesse Owens. En hvað
varð af honum?
Eftir ÓL í Berlxn félck mað-
ur af og til fréttir af honum,
m.a. að hann væri orðinn at-
vinnumaður, að hann hefði tek-
ið þátt í nokkurskonar sirkus-
sýningum t.d. í kapphlaupi við
veðhlaupahesta. Sagnir gengu
og um það að hann mundi
brátt lenda í sömu stöðu og
þegar hann byrjaði sem fátæk-
ur svertingi í Harlem.
Áfrek Jesse Owens í Berlín
höfðu gert strik í reikninginn
hjá þeim sem ekki höfðu gert
ráð fyrir að það yrði þeldökk-
ur þátttakandi sem hlyti titil-
inn „bezti þátttakandi leikj-
anna“ með því að vinna gull-
verðlaun í lOOm, 200m og
4xl00m hlaupxrm og langstökki,
og það á nýju ÓL-meti í hverri
grein.
Þegar á fyrsta ári sínu sem
skólaíþróttamaður 1933 náði
hann frábærum árangri í 100
yards hlaupi: 9.4 sek.; 220
yards: 20.7 og 7.57 í lang-
stökki. Sérstaklega mun þó
íþróttasagan minnast ' afreka
hans 25. maí 1935 þegar hann
á fáum klukkutímum hljóp 100
yards á heimsmettíma, hljóp
200m undir heimsmeti (20.3,
sem þó var ekki staðfest) og
setti nýtt lieimsmet í lang-
stökki (8.13) og 200m og 220y
grindahlaupi (22.0). Persónu-
leg met Owens eru lOOy: 9.4,
lOOm: 10.2, 220y (200m): 20.3
og langstökk 8:13.
Stærsti sigur hans
Eins og getið hefur verið
hefur lengi verið hljótt um
Jesse Owens. En nú ekki alls
fyrir löngu hafa komið fréttir
af honum aftur. Hann er nú
atkvæðamikill æskulýðsleiðtogi
í Chicago. Á árunum eftir stríð-
ið var Chicago sú borg í Banda-
ríkjunum sem verst var á vegi
stödd hvað snerti afbrot ung-
linga. Auk allra afbrotanna
meðal þessa æskufólks voru
bardagar milli svartra og hvítra
vandræðaflokka. Við þessi skil-
an hálfleikinn, en það var
þegar Gunnar Gunnarss. skaut
á 43. mín föstu skoti, sem Ól-
afur varði. Á sömu mín. átti
Gunnar Sigurjónsson mjög gott
tækifæri en skaut yfir. Síðari
hálfleikur var mun betri hjá
Valsmönnum, og skoruðu þeir
mark sitt á 9. mín. Gunnar
Gunnarsson var kominn út til
hægri, nær knettinum við enda-
mörk og sendir hann fyrir en
Gunnar Sigurjónsson er þar
fyrir og skallar í mark. Sigur-
hans átti gott skot í þverslá
og Gunnar G. skot rétt fyrir
ofan slá. Víkingar gerðu á-
Framhald á 11. síðu.
yrði gekk Jesse Owens til
starfs. Með aðstoð frá ýmsum
aðilum byrjaði hann skipulags-
starf sitt: stofnaði æskulýðs-
Jesse Owens
félög fyrir drengi og stúlkur
þar sem þau gátu hitzt í fé-
lagslegu samstarfi. Þar voru
íþróttir mikill þáttur í starfi
þessa unga fólks. Nafn Jesse
Owens eitt saman átti mikinn
þátt í að draga æskuna með
í starfið og brátt urðu félög
þessi áberandi þáttur í lífi
æskulýðs borgarinnar.
Rannsóknir hafa leitt í Ijós
að afbrot unglinga hafa stór-
um minnkað og þeir sérfræð-
ingar sem rannsakað hafa telja
það að mjög miklu leyti að
þakka starfsemi Jesse Owens.
Þrátt fyrir frægð og sigra
Owens í Berlín 1936 hefur með
réttu verið sagt að árangur sá
sem hann hefur náð varðandi
þetta afvegaleidda æskufólk, og
það afrek sem hann hefur þar
unnið, sé stærsti sigur Jesse
Owens. —• (Ur Norsk Idrett).
Jesse o
sigur esse wwens