Þjóðviljinn - 14.07.1954, Blaðsíða 4
4) — ÞJÖÐVILJINN — Miðvikudagur 14. júlí 1954 ---
Ejnar Petersen frá Kleif:
í Mosfellssveit liggur eyði-
jörð sem er fáum kunn, þrátt
fyrir að þar reynir einn af
yngri vísindamönnum þjóðar-
innar að leysa einn þátt spurn-
ingarinnar hvernig bezt sé að
búa á íslandi.
Lausn þessarar spurningar
er mjög aðkallandi, því að sveit-
irnar tæmast nú hröðum skref-
um af fólki; í sumum byggðar-
lögum er enginn maður eftir,
í ennþá fleiri varla annað en
gamalt fólk. Til þess að snúa
imdanhaldinu í sókn þarf mik-
inn yilja og kunnáttu..^.. .
Nýi tíminn — vélaöldin —
kom mjög seint hingað til
lands, og margir munu ekki
ennþá hafa gert sér fulla grein
fyrir að venjuleg jarðýta ráði
fyrir meira afli til verks en
bændur heillar sýslu í vöðvum
sínum. Lengst af hefur menn
skort afl til að koma áformum
sínum í framkvæmd. Nú er það
aflið yfirfljótanlegt, vegna þess
að tekizt hefur að leysa nátt-
úruöflin úr læðingi, svo nú er
gæfa manna og þjóða komin
undir mannviti og manngæzku.
Við höfum síðan í stríðsbyrj-
un lifað að miklu leyti á stríði
og undirbúningi undir það.
Samt vonum við að því ástandi
linni sem fyrst, en þá þurfum
við að breyta um stefnu og
reyna að lifa á eigin dug og
gæðum lands og sjávar, því
maður eða þjóð, sem ekki á
til næsta máls, varðveitir ekki
frelsið lengi.
Um skeið leit út fyrir að ekki
myndi hægt að afla fyjir bjýn-
ustu lífsnauðsynjum þjóðarinn-
ar, en vöruskiptasamningarnir
við Austur-Evrópulöndin hafa
tryggt okkur það sem við þörfn-
umst af nauðsynlegasta mat,
olíum og byggingarefni, og er
þar með bægt frá dyrum okkar
bráðri hættu kreppu og ör-
birgðar, og þar með þeirri nið-
urlægingu að þurfa að lifa á
betli og .sníkjum. 'Við vonum
að framhald verði á þessum
vöruskiptum báðum tiL hags,
því þær þjóðir sem lifa við
Sósíalistiskt skipulagskerfi eru
nú orðnar fjölmennasta fram-
leiðslueíning heimsins. Fram-
leiðsluvörur þessara þjóða eru
, yfirleitt þær vörur sem við
þurfum á að halda við uppbygg-
ingu landsins, því þær eru að
nema lönd sín, eins og við
þurfum að gera, og miðast
framíeiðsla þeirra við það gagn
sem menn geti haft af henni,
en- ekki við það hvað hægt sé
að græða á henni.
En enda þótt að _ opnuðust
ófyliandi markaðir fyrir ís-
lenzkar sjávarafurðir myndi
það ekkí leysa ö!I vandamál,
enrda mjög varhugavert að
binda örlög þjóðarinnar við
vaiðimennsku eingöngu, þv-í af
mörguro ástæðum er það skyn-
samlegt fyrir þjóðina að vera
sem mest sjálfbjarga með mat
sinn, eins og það er fyrir fjöl-
skyldu á dalajörð að eiga þann
Gagnrýni á gagnrýni — Hví að skrifa ekki fyrr en
eftii dúk og disk? — Þakkir
forða um veturnætur sem dugar
mönnum og dýrum fram á gró-
anda. Sem stendur fæðir land-
búnaðarframleiðsla ekki þriðja
hluta þjóðarinnar, og þó er
mjólkurframleiðslan byggð að
miklu leyti á innfluttu korn-
meti.
Enginn efi er á því að með
því að beita mannviti og nú-
tíma visindum og nota f jármagn
á sem hagkvæmastan hátt
myndi verða hægt að fá mjög
góða vexti af fjármagni og góða
borgun fyrir þá vinnu, sem lögð
væri í landbúnaðarframleiðslu
til útflutnings, því mannkyninu
fjöígar mjög ört og margir
hugsa með kvíða til framtið-
arinnar, því talið er að tvelr
þriðju hlutar af mannkyninu
lifi nú við stöðugan skort,
og fremur lítið útlit er fyrir að
ástandið muni batna, því með
sömu þróun mun verða 600
milljónum manna fleira á jörð-
inni eftir 25 ár en nú er, og
það sem kannske er verst:
ræktunarland heimsins minnkar
stöðugt vegna uppblásturs og
gæðarýrnunar. Til dæmis telja
búvísindamenn Eandaríkjanna
að % hluti.upprunalega ræktan-
legs lands þar sé nú orðinn ör-
foka, annar þriðji hluti stór-
spilltur og aðeins þriðji hlutinn
ennþá gott ræktunarland, og
búast þeir ekki við að geta flutt
út matvæli, eftir nokkra ára-
tugi. Svipað mun ástatt víða
annarsstaðar utan sósíalistísku
ríkjanna, svo allt virðist benda
til að eftir þvi sem árin líða
verði frumskilyrði fyrir lífi
manna æ torfengnari, og verð
matarins því hátt samánborið
við aðrar nauðsynjar.
Hér eru varla ræktuð 2%
af því landi sem er vel fallið til
búskapar. Veðurfar og jarðveg-
ur gera landið einkar vel fallið
til grasræktar og samanborið
við önnur lönd er uppskera all
sæmileg af hverri einingu rækt-
aðs lands, og þó vitum við raun-
ar ekki hver hún gæti orðið,
ef öllú væri til tjaldað með
ræktun, - skjólbelti og áburð.
Síðastliðið sumarvar uppskeran
sem samsvarar 140 hestum af
heyi í tilraunum á Akureyri
með hækkandi áburðarskammti
og ekkert bendir til að hámarki
væri náð.
ísland stendur á krossgötum,
og þess vegna: verðum við
að reyna að glöggva okkur á
kennileitum og spyrja til vegar.
Eitt af því mest aðkallandi
er að vita hvaða plöntur eiga
bezt við hér á landi, bæði
niðri við sjó og uppi til fjalla.
En við höfum hér ungan vís-
indamann sem hefur sérmennt-
un í að finna þær plöntur sem
hæfa ákveðnu veðurfari og jarð-
vegi, og margt bendir til að
hann virðist af vilja gerður til
að verða löndum sínum að liði
í þessu efni. Búnaðardeild há-
skólans hefur látið honum í té
til tilraunastarfsemi eyðijörðina
Varmá í Mosfellssveit. Og það
er í hæsta máta fróðlegt og
uppörfandi að skoða þau
hundruð af plöntutegundum og
stofnum, sem þar vaxa í til-
raunareitum, en um leið finnst
mér að við, sem njótum eða
munum njóta góðs af því verki
sem þar er hafið, þyrftum að
búa þeim tilraunum betri skil-
yrði og kynna okkur betur
hvað þar er að gerast. Fátt
mun borga sig betur en það
fé sem fengið er í hendur þeim
tilraunamönnum, er sýnt hafa
í verki að þeim er alvara að
viðhalda og efla íslenzkan
landbúnað.
G.G. SKRIFAR: „Kæri Bæjar-
póstur. Um leið og ég læt í
Ijós ánægju mína yfir hinni
ágætu tónlistargagnrýni Þjóð-
v:ljans, langar mig til að
minnast á annað atriði í því
sambandi. — Eg hef oft furð-
að mig á því, hve langur drátt
ur verður stundum hjá dag-
blöðum bæjarins á því að
birta gagnrýni um þá hljóm-
I3ika, sem hér eru haldnir;
iðulega er það ekkr g'ért;fyrr
en mörgum vikum seinna.
Þetta er mjög leitt, og verð-
ur oft til þess að fólk missir
allan áhuga á að lesa gagn-
rýni -löngu eftir að hljómleik-
arnir hafa farið fram. Einnig
finnst mér það hljóta að vera
betra fyrir gagnrýnandann
sjálfan að láta í ljós skoðun
sína að nýafstöðnum hljóm-
leikum, heldur en löngu
seinna. Tónlistargagnrýni ætti
að mínum dómi, helst að birt-
ast strax daginn eftir hljóm-
leikana, eða að minnsta kosti
ekki seinna en tveimúr dögum
síðar.
«
SÍÐAST EN ekki sízt er svo
sú hliðin sem að listamönnun
um snýr. Ekki þykir mér ó-
líklegt að þeir séu óþolinmóð-
ir að bíða nærri því endalaust
eftir gagnrýni dagblaðanna.
Satt að segja finnst mér það
bæði tillitsleysi og skortur á
háttvísi, ekki sízt gagnvart
okkar tiltölulega fáu tónlist-
armönnum sem hafa lagt á
sig mikið erfiði fyrir okkur
áheyrendur. — Eins furðar
mig á því, þegar um einsöng
á hljóm’eikum er að ræða,
að í sumum tilfellum skuli
jafnvel ekki vera getið um
nafn þess er aðstoðar með
píanóundirleik, eins og t. d.
átti sér stað þegar hin fræga
söngkona JBlanche Thebom
kom hér fram á vegum Tón-
listarfélagsins. Hvort sem sá
undirleikur kann að hafa lík-
að betur eða verr, þá var
vitanlega sjálfsagt að geta
undirleikarans engu síður en
söngkonunnar; þáttur hans er
enginveginn þýðingarlítið at-
riði þegar um ljóðasöng er að
ræða, eins og allir vita.
AÐ LOKUM vildi ég svo láta
í ljós þakklæti mitt til for-
ráðamanna Tónlistarfélagsins
fyrir þann mikla áhuga sem
þeir hafa sýnt við útvegun
hinna ágætustu tónlistar-
manna og kvenna, sem völ
hefur verið á víðsvegar úr
heiminum. Það er ekki víst
að mönnum sé það almennt
Ijóst, hvert geisilegt menning-
, arstarf félag'ð hefur unnið á
tiltölulega skömmum tíma.
Þeir, sem unna góðri tónlist,
hefðu vist fæstir átt kost á
að heyra allt þetta ágæta
li3tafólk ef ekki hefði verið
fyrir milligöngu Tónlistarfé-
lagsms. Því vitanlega eru slík
ir listamenn svo eftirsóttir
allsstaðar í heiminum, að ekki
er á allra færi að komast á
hljómleika hjá þeim, svo ekki
sé minnzt á kostnaðarhliðina.
— Með þökk fyrir birtinguna.
Reykjavík 12. júlí 1954.
G. G.“
Yfirráðasvæði
leppkeisarans
Bao Dai í Viet
Nam fer alítaf
minnkandi ofe
upplausnin vex
með hverjum
degi. Aðeins lít-
ill hópur
Frakka er nú
eftir í Hanoi og
Saigon, aðallega
braskarar, ráns-
menn og ópíum-
salár. Til þess
að verja keisar-
ann og liina
frönsku vini
hans hefur ver-
ið komið upp
miklu lögreglu-
liði og her, sem
daglega veður
um borgirnahí
og fyllir fang-
elsin af nýju og
r.ýju fólki. En
andspyrnu-
hreyfingin er’
einnig sterk á
yfirráðasvæði
Frakka og ræðst daglega í djarfar framkvæmdir yið nefið á lögregluliðinu og hernum. — Leppkeisarinn hefur reynt mjög að
koma sér í mjúkinn hjá almenningi méð því að heimsækja skóla, verksmiðjur og stofnanir. En hann er hættur að gera boð á
undan sér því fólkið hverfur í mótmælaskyni þegar það veit að von er á „hans hátign“.------Myndin sýnir leppkeisarann í burð-
arstól sínum, umlukinn lögreglu og her, fara um mannauðar götur, þar sem hann sér aðeins byssustingi og hlera fyrir gluggum.