Þjóðviljinn - 14.07.1954, Page 7

Þjóðviljinn - 14.07.1954, Page 7
Miðvikudagur 14. júli 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (7 eiðskrnttnr °g sokkmböná / . I ár yrkja skáldin um galdranornir. Bók hins fræga brezk-bandariska rithöfundar Aldous Huxley, Djöflarnir frá Loudun, kom út í danskri þýðingu. Og bandaríski leik- ritahöfundurinn Arthur Mill- er gaf út leikrit sitt Norna- veiðar, en það hefur hlotið góðar undirtektir í Danmörku undanfarið. Bæði þessi verk Huxleys og Millers eru ort um söguleg efni, atburði sem skráðir eru í sögu galdraofsólcnanna á 17. öld. En þeir höfðu nút.íðina í huga. Þeir ætluðu báðir hver á sinn hátt að skýra og berj- ast gegn ofsóknaræði því sem menn víðsvegar um he:m verða að sæta af hendi þeirra sem aðhyllast aðrar skoðanir en þeir. Þriðja bókin um þetta efni kom út í Danmörku nýlega. Það er „Guð nornanna“ eftir Margaret Murray. Það er fræðileg líók, menningarsögu- leg ritgerð um uppruna gaidranorna og hvað þær voru í raun og veru. En einn- ig þessi bók hefur rót í nú- timanum, er hættuiegar skoð- anir koma hverjum i koll, og æístu prestar vopnakapp- hlaupsins verða með öllum ráðum að verja sig gegn á- sökunum um að stefna þe:rra sé á leiðinni að færa mann- kynið norður og niður. Bókin er byggð á þeirri grundvallarkenningu sem fela má í orðunum: Guð úreltra trúarbragða verður djöfull hinna nýju. Er kristindómur- inn komst á í Evrópu bægði hann heiðnum dómi frá opin- beru trúarlífi. En hann lifði áfram við hlið kristinnar kirkju og um aldir börðust þessi tvenn trúarbrögð um völdin yfir hugsun fólksins. Frá sjónarmiði kirkjunnar var litið á hina gömlu guði sem djöfla og dýrkendur þe;rra sem hin verstu flögð, haldin illum öndum. Það varð að berjast gegn þeim með öll- um tiltækilegum ráðum. Höfundurinn heldur fram þeirri kenningu að hinar svo- kölluðu' galdranornir væru á- hanger.dur he'ðinnar trúar og hafi fallið sem píslarvætti fyrir trú sína og hafi vit- að hvað þær gerðu. Þessi heiðnu trúarbrögð álítur hann að hafi verið þau sömu víða um lönd og á löngum tíma- bilum sögunnar. Æðsti guð þeirra var hínn „hyrndi guð,“ en hann hefur fundizt víða undir mörgum mismunandi ^nöfnum: Mínotauros á Krít, Hellismálverk frá steinöld hinni fyrri í Cogul, á Norðaust- ur-Spáni. Hafi Margaret Murray rétt fyrir sér í pví að pað sýni dans níu kvenna kringum nakinn karlmann, er pað elzta mynd af „galdranornum“ sem menn pekkja. Skraut- ið á fótleggjum lcarlmannsins minnir á sokkaböndin, sem síðar á öldum voru talin töfragripir. ísku Lappar eiga samkvæmt þessu að vera einn þessara frumstæðu þjóða. Þeir búa í hringtjöldum og moldarkof- um. Þaðan sé komin hug- mynain um huldufólk sem býr í hólum og hæðum. Smám saman hafi þær hugmyndir blandazt saman við alls k.on- ar þjóðsögur um persónu- gerða náttúruanda: skóganna, vatnanna og fjallanna. Hinn lærði höfundur setur og fram þá kenningu að Tóm- as Becket, erk'biskup af Cant- erbury og Jóhanna frá Arc hafi verið píslarvætti heiðinn- ar villutrúar, þeim hafi verið fórnað vegna dularfullra helgi- siða sem kröfðust þess að kónginum eða fulltrúa hans væri fórnað við hátíðleg tæki- færi. 'En þar liggur önnur skýring nær. Þar var um’ að ræða árekstur milli kirkju og konungsvalds og milli léns- herranna innbyrðis. Óhæf er sú skoðun að hin'r fjöimörgu sem féllu fyrir galdraofsókn- um kirkju og ríkis á miðöld- um hafi orðið fyrir þeim ein- ungis vegna villutrúar sinnar. Þar kom fleira til: Örvænt- ingarfull barátta kirkjunnar fyrir því að trýggja sér ein- okun yfir sálunum og jarð- neskum auðæfum þeirra, hin sígilda nauðsyn valdstéttanna til að viðhalda valdi sínu og forréttindum með því að láta reiði fóiksins yfir ranglæti því er vald þeirra byggðist á bitna á emhverjum skotspæni, en við höfum séð gyðinga, negra og kommúnista í hlut- verki þeirra, og þiörf þeirra fyrir að draga athygli fólks frá arðráni þeirra með því að aia á óvild og tortryggni mill- um þegnanna. Og til þess að slá hotninn í þennan p:stil með einhverju dæmi sem heimfæra mætti upp á vora tíma þá skulu hér tiifærð lokaorð ritgerðar hins danska sagnfræðings Troels Lund um galdraofsókn- ir 16. a’dar. „Hverjir voru mest ofsóttir? Það voru þeir sem varnarlausastir voru. Það var aðallinn sem réðist gegn lægri stéttunum og hélt þvi fram að sinn hlutur væri bor- inn fyrir borð. Og innan borgara- og almúgastéttar voru það hinir betur stæðu sem ákærðu þá illa settu.“ Amon í Egyptalandi, Pan á Grikklandi og Cernunnos í Frakklandi. Þegar á steinöld bjuggu menn sér til myndir af mönnum með dýrahorn og eru það elztu guðamyndir sem þekkjast. Um uppruna þessa guðs er allt á huldu. Hans mætti þó e.t.v. leita í hinni útbreiddu „totem“dýrkun frumstæðra þjóðfélaga. Hún beindist oft að dýrum og haft er það fyr- ir satt að hjarðmenn og veiði- menn hafi einkum tilbeðið liinn hyrnda guð. En augljóst verður það, er málið er athug- að, að þessi hyrndi guð með horn og í mannsmynd er eft- irtakanlega líkur hinum gamla kölska okkar með hófa, geit- arskegg og ógnandi höfuðbún- að. Þegar kirkjan lagði að jöfnu djöfulinn og æðsta guð- dóm heiðinnar trúar þá urðu áhangendur hennar um leið að dýrkendum djöfulsins. Margaret Murray sannar það í hinni ágætu bók sinni að dýrlcun „þess hyrnda“ hafi farið fram í lokuoum klíkum sem talið hafi 13 roeðlimi hver. Við þessar klíkur verð- ur hún vör hvarvetna í hin- um heiðna heimi áður en > kristnin kom t;l: Rómúlus og hinir 12 vandsveinar hans, Hrólfur Kraki og hinir 12 berserkir hans. Og þá vaknar ósjálfrátt spurningin Jesús og hinir 12 postular hans? Var það klíka mynduð á þennan arfhelga hátt? Út frá þessu skýrir höf- undurinn uppruna hinnar brezku sokkabandsorðu. Ein- hverra hluta vegna var sokka- band;ð mikilvægt tákn í hinni fornu ókristilegu trú. Menn báru mismunandi skrautleg sokkabönd eftir þeirri virð- ingu sem þeir nutu innan klíkunnar. Hin fræga skrítla um uppruna orðunnar sé túlk- uð algerlega rangt. Greifa- ynjan af Salisbury missti sokkaband s'tt er hún var önnum kafin að dansa við Játvarð konung hinn þriðja. Þetta fékk á hana, ekki vegna blygðunarsemi (14. öldin var ekki of rík af henni), lieldur vai-ð hún óttaslegin vegna þess að þetta kom upp um þátttöku hennar í heiðnum og forboðnum trúflokki. Og þeg- ar kóngurinn tók upp sokka- bandið, batt um fót sér, og sagði: ..Skömm sé þeim er þetta taka óstinnt upp" og stofnaði með því þar á staðn- um hina riddaralegu sokka- bandsorðu, þá táknaði þetta viðurkenningu á trúfreisi hinna fjölmörgu andkristnu og heiðnu þegna hans. 1 samræmi við talnagaldur þann sem áður er minnst á var það, að hina nýju orðu skyldu bera einungis tveir hópar manna, 12 menn út- nefndir af kónginum og 12 af prinsinum af Wales. Að þeim sjálfum meðtöldum urðu þeir samtals tvisvar 13. Ef menn efast enn þá ber á það að líta að á orðuskikkju kóngs- ins eru 168 sokkabönd, þ. e. 13 sinnum 13 ef reiknað er með það sem hann hefur sjálf ur um fótinn. Óttann við töluna 13, eink- um við það að 13 sitji saman til borðs, má skýra út frá þessum fornu he'ðingjaklik- Werner Thierry, danskur maður, ræð- ir í þessari grein um Kaldra og fordæðu- skap fyrr á tímpm og nú í dag, og bygg- ir grein sína á bók sem nýkomin er út í Danmörku um þetta eíni eftir Margarot Murray. um. Þær komu saman til sam- eiginlegs borðhalds á hátíð- um, en ef upp komst, átti hver þeirra sem hlut átti að máli gálgann eða bálið yfir höfði sér. En sú hætta vofði yfir upp frá því yfir hvar sem 13 sátu til borðs. Og það eru einmitt þessar hátíðir sem gáfu tjefni til útreiðatúra þeirri sem nú eru óaðsldljan- lega tengdir orðinu galdra- norn. Ein elztu skjalfestu um- mæli um þetta fyrirbrigði finnast í stjórnartilkynningu bæjarstjórnarinnar í bæ þeim sem nú nefni3t Ankara í Litlu-Asíu og er höfuðborg Tyrklands. Tilkynningin, er frá 9. öld og hljóðar á þessa leið: „Vissar óguðlegar kvinnur, sem snúizt hafa til Satans og vélazt hafa af djöflanna blekk- ingum og sjónhverfingum, trúa því og viðurkenna að á nóttunni ríði þ:er vissum dýr- um ásamt með Díönu og ó- tölulegum skara kvenna, þjóti ómælanlegar vegalengd:r til að hlýða boði hennar sem drottningar þeirra um að mæta henni á vissum stcðum að næturlagi." Hér sjáum við, næturreið óguðlegra kvenna í samhengi við hinn forna lieið- indóm. En hann er í þessu tilfelli Díana sem frá fornu fari naut útbreiddrar til- beiðslu í Litlu-Asíu. Síðar verður kústskaftið hið sígilda farartæki nornanna. Má vera að það hafi verið í sambandi við hið almenna hlntverk sem það hafði að gegna í húsmóðurstarfi kven- fólksins. En í þjóðtrúnni var kústurinn meira en heimilis- tæki. Hann var upprunalega trjágrein með strávönd á end- anum. Tréð var alltaf mikil- vægt í þjóðtrúnni, (sbr. ask Yggdrasils). Það gat haft á- hrif á dauða og æxlun. Á hinu síðarnefnda byggðist sá siður aj. brúðhjón, bæði brúður og brúðgumi, stukku yfir kúst- skaft til að tryggja sér frjó- semi. — Af þeim gögnum sem varðveitzt hafa um galdrayf:rheyrslur miðald- anna má ráða að menn treystu ekki eingöngu á töfra- trúna heldur smurðu menn sig með smyrslum, unnum úr jurtum eins og t. d. freyju- reið og belladonna. Þeim var ætlað að valda hjartaóró, ó- ráði og tilfinningu um að menn væru að fljúga. Nornahátíðirnar sem virð- ast . upprunalega háfa verið levnilegar máltíðir er hinar lokuou klíkur nutu á vissum dögum, fluttust smám saman t:l fiarlægra cg hárra staða eins og t. d. Hek’u á Islandi, Blokkstindar í Þýzkalandi og Blákulla í Svíþjcð, en margir staíir, þar sem menn trúðu að álfar og hrímþursar byggj’j -nefndust því nafni. Trú á huidufólk er útbreidd víða um Vestur-Evrópu, eða var Jiað að minnsta kos.ti. Margaret Murray útskýrir uppruna þe>rrar trúar á þann veg að huldufólkið sé frum- stæðir frumbyggjar Evrópu sem hafi flúið t:l fjalla og skóga undan núverandi íbúum álfunnar og haldið þar fast við gamla trú og lifnaðar- háttu. Hinir norðurskandinav-

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.