Þjóðviljinn - 22.09.1954, Blaðsíða 5
r-riTT-vr
Miðvikudagur 22. september 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (5 ,
Ursögn úr kjarn-
orknnelnd USA
Eini vísindamaðurinn í nefndinni segir
sig úr 'henni
Eini vísindamaö'urinn í kjarnorkumálanefnd Banda-
rikjanna, dr. Henry Smyth, hefur sagt sig úr nefndinni.
Dr. Smyth var einn nefndar-
manna á móti þeirri ákvöi’ðun
nefndarinnar í vor að víkja
dr. Robert Oppenheimer, yfir-
smið kjarnorkusprengjunnar,
úr embætti fyrir óþjóðhollustu.
Yfir Atlanzhaf af
vangá
Ellefu ára gamall bandarísk-
ur drengur komst um daginn í
ferðalag, sem hann hafði ekki
órað fyrir. Hann hafði farið að
heiman frá heimili sínu í New
York og var ætlunin að fara í
bíó. En í staðinn ranglaði hann
niður að höfn, fór um borð í
hafskipið United States og fór
undir þiljur og dvaldist lengi
við allt sem fyrir augun bar.
Þegar hann ætlaði í land aftur,
hafði skipið losað landfestar og
var á leið til Southampton.
Drengurinn er nú á leið aftur
til New, York með skipinu.
Ágreiningur við formann
nefndarinnar.
f lausnarbeiðni sinni minnist
dr. Smyth ekkert á það mál
né önnur ágreiningsefni, en
vitað er að hann og formaður
nefndarinnar, Lewis Strauss,
hafa lengi eldað grátt silfur
saman. Smyth segist hafa
skýrt Strauss frá því þegar í
febrúar, að hann ætlaði sér að
víkja úr nefndinni í haust og
hafi fært þetta í tal við Eisen-
hower.
Eini vísindamaðurinn.
f nefndinni eru fimm menn
og var dr. Smyth sá eini þéirra,
sem er sérfræðingur í kjarn-
orkuvísindum. Við starfi hans
tekur kjarneðlisfræðingurinn
dr. Willard Libby frá Chicago-
háskóla, en Smyth, sem var
forstjóri eðlisfræðistofnunar
Princetonháskóla, áður en
Truman skipaði hann í nefnd-
ina 1949, mun aftur taka við
því starfi.
Ný tegund af löm-
unarveiki?
Dularfull farsótt geisar nú í j
Austurríki, og hafa tvö börn
látið lífið en um 30 manns!
liggja þungt haldnir.
Læknar eru helzt á því, að
hér sé um að ræða sérstaka
tegund af lömunarveiki, sem
virðist vera mun meira smit-
andi en vcnjuleg lömunarveiki.
Fyrst í stað héldu sumir lækn-
ar, að um heilahimnubólgu væri
að ræða, en það reyndist ekki
rétt. Sérfræðingar frá Vín eru
nú komnir til bæjarins Zwettl
á miðju farsóttarsvæðinu til að
rannsaka sjúkdóminn nánar.
KafaSi niSur á
108 m dýpi
Kafarinn John Clark-Samaza
hefur sett nýtt met í köfun án
loftslöngu. Hann komst niður
á 108 metra dýpi búinn sund-
blöðkum á fótum og með súrefn-
isgeymi á baki. Hann varð að
fara upp á yfirborðið í áföngum
til að forðast köfunarveiki og
var hálfan annan klukkutíma á
leiðinni. Til þess að verjast kulda
var hann í samfestingi úr svamp-
gúmmíi.
Mynd þessi var tekin i Kreml, þegar indverska vísindamann-
inum, hershöfðingjanum og þingmanninum Sahib Sing Sokhej
voru afhent friðarverðlaun Stalíns. Sokhej á sæti t heimsfrið-
arráðinu. Hann sést hér halda þakkarræðu.
Gulli fyrir 2 millj. kr. stolið um
hádag á götu í London
Fífldjarfir og handfljótir bófar stálu í gær tveggja
milljóna króna virði af gulli úr bíl á götu í London.
Evrépuráðið sveik loforl
um aðstoð við Iþökubúa
Lítið mask takandi á samþykkium skral-
skjóðuþingsins í Strassborg
íbúarnir á grísku jarðskjálftaeynni íþöku hafa reynslu-
fyrir því, að lítið mark er takandi á.þeim samþ.ykktum,
sem gerðar eru á skrafskjóðuþjhgum. hins svönefÍlda.
Evrópuráðs í Strassborg. ! "•'íT.a’
Olíulindlr í
Frukklandi
Olíuboranir í Les Landes,
strjálbýlum og hrjóstrugum
landshluta á vesturströnd Frakk-
lands, hafa leitt í ljós að þar er
verulegt olíumagn í jörðu.
Eftir þrjár boranir streyma
5400 olíuföt á dag upp úr jörð-
inn.i. .Ekki verður um það sagt
■;með ‘'.viisu’-.fyrri -■ Cir . áð 'ýbfiv
livé stórt olíusvaeðið er. •
Þjófnaðurinn var framinn þar
sem heitir Jockey’s Field nærri
miðbiki London um hábjartan
dag í gær.
Rotschild átti gullið
Gullið var í tveim kössum i
flutningsvagni fyrir utan bygg-
ingu hollenzka flugfélagsins
KLM. Var það sending frá
banka Rotschilds í London til
svissnesks banka og átti að
fara út á flugvöll í vél sem
þar beið.
Fæst þau mál, sem koma á
dagskrá þinga Evrópuráðsins í
Strassborg eru þess eðlis, að
þeim fylgi nokkrar raunhæfar
Jarðskfálfti
á lndlcssidi
Snarpur jarðskjálftakippur
varð um daginn í indverska
fylkinu Assam, þar sem flóð
hafa valdið miklum usla í sum-
ar. Mest varð tjónið í bæn-
ur/i Doom Dooma. Kippurinn
var svo harður að þykkt jarð-
lag þeyttist í loft upp og fóru
hús og önhur mannvirki á kaf.
Ekkert manntjón varð þó og
er það helzt að þakka því, að
húsin í bænum eru byggð úr
leir, sem halaið er uppi af
bambusreyr. Slík hús standast
jarðskjálfta mun betur en hús
byggð úr steini.
Johann Lugge, vinnumaður
á búgarði nálægt Linz í Aust-
urríki, veðjaði um daginn
fimm krónum við félaga sinn
að ser myndi ekki verða mik-
ið um að gleypa sjö mýs lif-
andi. Lugge vann veðmálið en
hefur nú verið varpað í fang-
elsi fyrir að misbyrma dýrum.
framkvæmdir. En 25. septem-
ber í fyrra var samþykkt á
þinginu í einu hljóði ályktun,
þar sem ráðherranefnd ráðsins
var falið að annast „söfnun og
dreifingu fjármuna og ann-
arrar hjálpar handa þeim sem
eiga um sárt að binda vegna
jarðskjálftanna á Jónísku eyj-
unum“ nokkrum vikum áður.
Ennfremur var samþykkt, að
ráðið „tæki að sér“ eina eyj-
una og veitti íbúum hennár
alla hugsanlega aðstoð. Varð
eyjan íþaka, heimkynni Odys-
seifs, fyrir valinu.
Samþykktin gleymdist.
Nú stendur aftur yfir þing í |
Strassborg og á fimmtudaginn
var reis einn af sænsku full-
trúunum, hægrimaðurinn James
Dickson, úr sæti sínu og spurði
hverju það sætti að ráðið hefði
I ekkert aðhafzt til að aðstoða
íbúana á jarðskjálftaeyjunum,
ekki einu sinni á íþöku, sem
ráðið hafði hátíðlega tekið und-
ir sinn verndarvæng.
I
Fengu enga aðstoð.
Eyjaskeggjar bjuggust að
sjálfsögðu við því, að ráðið
myndi hjálpa þieim í þrenging-
um þeirra, sagði Diclcson, en I
þeir hafa enga aðstoð fengið
og' það nær ekki neinni átt.
Urðu fleiri til að taka í sama
streng.
Forseti Iitdénesíu
sekur um tvákvæni
TvíkvæMÍS þé helmáít lögmti samkvæmi,
en kvenfélög MÓtmæia
Þaö hefur vakið allmikla ólgu í Indónesíu, að forseti
landsins, Soekarno, gekk í hjónaband fyrir nokkru.
Ástæðan er sú, að Soekarno
var kvæntur fyrir og hefur
ekki skilið við fyrri konu sína.
Hann er múhameðstrúar, og er
lögum samkvæmt heimilt að
eiga fjórar konur.
Samþykki fyrri konunnar
þarf til.
Á fimmtudag-
inn var boðað-
ur stjórnarfund
ur í kvenfélaga-
sambandi Indó-
nesíu, Perwari,
og samþykkt að
mótmæla harð-
lega þessu hátta
lagi forsetans.
Ástæðan til mót
mælanna er sú
að fyrri eigin-
kona Soekarno
hafði ekki sam-
þykkt seinna hjónabandið fyr-
ir sitt leyti, en samkvæmt lög-
um þarf eiginkonan að veita
manni sínum leyfi til að taka
sér aðra konu.
Ætiar að sækja
urn skiinað.
Kona nr. 2 er fráskilin fimm
barna móðir og fékk maður
hennar nýlega skilnað frá
henni sökum sambands hennar
við forsetann. Kona nr. 1 á
fjögur börn með forsetanum,
og hún hefur nú tilkynnt, að
hún muni fara fram á skiln-
að.
Brezkur herréttur í Vínar-
borg dæmdi í gær tvo brezka
hermenn t.il lífláts. I jfiní s.l.
gengu þeir berserksgang á göt-
um borgarinnar, skutu á fólk
og drápu tvo, en særðu fimm.
Hernámsstjóri Breta í Austur-
ríki á eftir að staðfesta dóm-
inn.
Allt um garð gengið á
20 sekúndum
Þegar bílstjórinn á flutninga-
vagninum var í þann veginn að
loka honum komu þjófarnir á
fleygiferð í litlum flutningabíl.
Óku þeir afturábak að gullbíln-
um svo hratt að bílstjórinn
hrökk frá.
Skipti það engum togum að
þeir vippuðu gullkössunum yfir
í sínn bíl og óku á brott. Tveir
menn voru að verki og tók
þjófnaðurinn þá ekki nema 20
sekúndur. Bíllinn var allur á
bak og burt þegar lögreglan
kom á vettvang.
17 IíIimI feamita
\
kniRu að kfésa
SÞ hafa birt aðra skýrslu
sína um réttindamál kvenna.
Kemur þar í Ijós að 24 ríki
hafa bætzt í tölu þeirra, þar
sem konur hafa kosningarétt,.
síðan heimsstyrjöldinni siðari
lauk.
I 17 ríkjum af þeim 80, sem
skýrslan nær til, hafa konur
hvorki kjörgengi né kosninga-
rétt. Þeirra á meðal eru Ev-
rópuríkin Sviss og Lichtenstein.
Víða þar sem konur hafa feng-
ið kosningarétt skortir enn mik-
ið á að þær hafi réttindi til
jafns við karla á öðrum sviðum.
Fjölda margir Stokkhólmsbú-
ar þóttust í fyrrakvöld sjá
„fljúgandi diska“ geisast ura
himinhvolfið og linnti ekki upp-
hringingum hjá lögreglu, blöð-
um og flugumferðastjórn.
Sænski flugherinn tilkynnti í
gær að þarna hefði verið um
að ræða speglanir af orustu-
flugvélum, sem voru að aéfing-
um.