Þjóðviljinn - 22.09.1954, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 22. september 1954 — ÞJÓÐVIUINN — (11
Togarasamnmgarnir nýju
Iþróttir
Framhald af 8. síðu.
um og húrrahrópum og Vals-
menn sungu fullum hálsi is-
lenzk lög. I lok hófsins var
sýnd íslenzk kvikmynd, fræði-
mynd um land og þjóð, og var
gerður góður rómur að henni.
Um morguninn hafði myndin
verið sýnd í tveiiri barnaskólum
við mikla hrifningu, og skýrði
Gísli Sigurbjörnsson hana.
Við kvöddum svo Celle,
þessa vinalegu borg, glaðir og
ánægðir og vonum að þessi
fyrstu kynni og menningar-
tengsl Celle og Islands lifi
lengi. Nú erum við komnir til
Barningliausen eins glæsilegsta
íþróttaheimilis Þýzkalands sem
er eign Niðursaxneska knatt-
spyrnusambandsins. ‘Er heimili
þetta svo prýðilegt að manni
verður orðfall en þegar það
lagast reyni ég að lýsa því
nánar.
Góð líðan, beztu kveðjur.
Frímann.
Hsimlíisliáttu?
Framhald af 10. -siðu.
með litlum örnium og því þægi-
legri að sitja í en venjulegir
boröstofustólar og það er hægt
að raða þeim á víð og dreif um
stofuna ef vill. I útskotinu er
horn húsbóndans — stóllinn
hans er með einlitu móbrúnu
ákiæði. Hjá stólnum stendur
dálítið tóbaksborð og innskots-
borð og hann hefur líka bóka-
hillu í skotinu hjá sér. Við
gluggann hjá sófanurn er enn
eitt börð undir síma og lampa.
Að öðru leyti er stofan upplýst
með færanlegum, rauðum lampa
yfir matborðinu og standlömp-
um í skotunum. Gluggatjöldin
í stofunni eru úr sólgulu bóm-
ullarefni.
Barnaherbergið er málað
•með vatnsblárri plastmálningu.'
Á einum yeggnum gr fafaskáp-
ur fyrir föt allrar fjölskyld-
unnar —- skápnrinn. er éjlítið
dekkri en veggirnir. Barnið
sefur á dívan, í herberginu er
ennfremur leikfangaskápur,
borð og stóll. 1 þessu herbergi
eru gluggatjöidin líka gul en
rúmteppið er fjörlega röndótt.
Framhald af 4. síðu.
stað, þar sem því er landað
metið upp úr skipi, en sé það
ekki gert reiknast kr. 40.00 á
smá'est af öllu lýsinu.
10. gr.
Um kjör lifrar-
bræðslumanna
Lifrarbræðslumaður skal
hafa sömu kjör og háseti að
öðru leyti en því sem hér seg-
ir:
Á fiskveiðum skulu afla-
verðlaun af lýsi nema 55 krón-
um af hverri ■ smálest, ef 95%
lýsismagnsins er 1. og 2. flokks
í veiðiferð.
Nú er ekki um bræðslu lifr-
ar á karfaveiðum að ræða og
getur skipstjóri þá kvatt lifr-
arbiæðslumann til almennra
hásetastarfa.
11. gr.
Um fjölda matsveina,
aukaþóknun til þeirra
o. fl.
Á skipi er hefur 20 manna
skipshöfn eða þar yfir skulu
vera tveir matsveinar. Er yf-
irmatsveinn hefur starfað 6
mánuði hjá sarna útgerðarfyr-
irtæki skal uppsagnarfrestur
hans vera einn mánuður af
beggja hálfu.
Matsveinar skulu hafa sigl-
ingaleyfi til skiptis og skal sá
matsveinn, sem siglir í það
skiptið hafa aðstoð í eldhúsl.
Sömuléiðis skulu matsveinár
hafa aðstoðarmann þegar siglt
er með alla skipshöfnina til út-
landa og á fjarlægari mið ut-
an ísiandsmiða.
Hætti skin veiðum, er. mat-
syeini. ekki skyjf að vinna. á
uppsagnarfrestinum önnur
störf en þau, er tilheyra starfi'
hans, sem matsveins, svo og
að þrifa og mála eldhús, mat-
sal og matargeymslur.
Vinnutími matsveins við
þessi störf skal aldrei vera
lengri en 6 klst. á dag fyrir
mánaðarkaupi og fæðispening-
um.
Nú liggur skip í erlendri eða
innlendri höfn annarri en
heimahöfn og skal þá I. mat-
sveinn skila 5 klst. vinnu
fyrsta daginn fyrir mánaðar-
kaupinu en 6 klst. vinnu á
dag eftir það. Fyrsta daginn
ber útgerðarmanni að greiða
I. matsveini aukalega fyrir 5
klst. með kr. 15.90 pr. klst. og
4 klst. á dag eftir það með
sama tímakaupi.
Á sama hátt ber útgerðar-
manni að greiða aukalega til
II. matsveins fyrir 4 klst.
fyrsta daginn og 3 klst. eftir
það með kr. 15.90 pr. klst.
Sama gildir þá daga, sem
skip er á siglingu milli hafna
vegna viðgerðar.
í heimahöfn skipsins skulu
matsveinar hafa hafnarfrí til
jafns við aðra skipverja sbr.
17. gr.
12. g'r.
Um ráðningu
cg kjör miglinga
Heimilt er að ráða í allt að
ársvist á skin tvo unglinga
innan sextán ára, er taki hálf
laun háseta, þ. e. fast kaup og
aukaþóknanir og hafi að öðru
leyti sömu kjör og hásetar.
Unglingum þessum skal
veittur kostur á að læra alla
venjulega hásetavinnu.
Vinnutími þeirra skal yera
frá kl. 6- að morgni til kl. 12
á hádegi og frá kl. 6 að kvöldi
til kl. 12 á miðnætti.
Sé um að ræða atvinnuleysi
togarasjómanna að dómi stétt-
arfélags þeirra, fellur niður
heimild til að ráða unglinga á
skip að nýju, meðan jiað á-
stand varip, ,
13. gr.
Um hvíldartíma
skipverja
Á öllum togveiðum skiptast
hásetar,, þar með talinn báts-
maður í tvær vinnusveitir.
Frá þvi skip lætur úr höfn,
þar til það tekur höfn að nýju,
skal sólarhringnum skipt í
fjórar sex stunda vökur. Hvor
vinnusveit háseta skal vinna
aðra hvora vöku, þannig að
vinnutimi hvers háseta sé tólf
stundir á sólarhring, en hinn
hluta sólarhringsins notar há-
seti til hvíldar og málliða. Á-
kvæði þessi taka ekki til lifr-
arbræðslumanns, þegar hann
einungis gegnir bræðslustörf-
um.
14. gr.
Um siglingar
og siglingaleyfi
Nú siglir skip ’með afia til
sölu á erlendum markaði, og
fer þá um siglingaleyfi sam-
kvæmt ákvæðum greinar þess-
arar.
Ef skip kemur í heimahöfn
að veiðum loknum, skal tveim-
ur þriðju háseta að bátsmanni
og bræðslumanni meðtöldum
veitt leyfi frá störfum, þar til
skipið kemur aftur frá útlönd-
um. Halda skipverjar, er leyf-
is njóta, óskertu kaupi sínu og
fæðispeningum kr. 18.00 á dag
þennan tíma, þó ekki lengur
en 18 daga.
Nú kemur skip að loknum
veiðum í aðra innlenda höfn
og skulu siglingaleyfi þá veitt '
með sama hætti. Sér útgerðar-
maður þá skipverjum sem
leyfi hefur verið veitt, á sinn
kostnað fyrir flutningi til
heimahafnar skipsins þ. á. m.
fa>ði og gistingu. Sama gildir
um flutning háseta frá heima-
höfn, ef næsta veiðiferð er haf-
in í annarri innlendri höfn.
Að öðru leyti fer um kjör há-
seta samkvæmt 2. mgr. meðan
þeir eru í leyfi.
Skipstjóri skal gæta þess, að
leyfum sé réttilega skipt á
skipverja enda sé við það mið-
að að hver þeirra háseta, sem
á veiðum voru, fái leyfi í
tveimur af hverjum þremur
söluferðum. Kyndarar fá sigl-
ingaleyfi til skiptis svo og
matsveinar.
Nú er ákveðið að skip skuli
að söluferð lokinni, hefja
veiðar á erlendum miðum og
er þá ekki skylt að veita sigl-
ingaleyfi áður en sigling til
útlanda hefst. Sé þetta ákveð-
ið skal skylt að tilkynna skip-
verjum það með hæfilegum
fyrirvara áður en farið er úr
heimahöfn.
1 millilandasiglingum skal
vera þriskipt vaka og 8
stunda vinnudagur þeirra er
á þiljum vinna. Sé unnið leng-
ur á sólarhring, skal sú vinna
reiknuð sem yfirvinna og
greiðast með kr. 15.90 á klst.
Nú liggur skip í erlendri höfn
vegna viðgerðar * og skal þá
vinnudagur skipverja vera 6
klst. Sé unnið lengur greið-
ast 2 næstu vinnustundirnar
með gildandi dagvinnutaxta
hafnarverkamanna i heima-
höfn skipsins og það sem um-
fram kann að vera með 15.90
á klst.
Nú njóta skipverjar siglinga-
leyfis og er þá heimilt á sigl-
ingum milli lanaa að hafa tvi-
skiptar vaktir og samtals tólf
stunda v.öku á sólarhring við
störf er eingöngu iúta að sigl-
ingu skipsins.
Framangreindar reglur um
vinnutíma og eftirvinnu
giida bó ekki ef kalla þarf
menn á þilfar vegna öryggis
skips eða farms.
Tímariiið ílytur m.a. bina
umtöiuðu ræðu Halldórs K.
Laxness, er hann ílutti á íundi í
Stndentaíélagi Reykjavíkur
s.l. inánudagskvold
2. keffi 3954, ei kemiS út
Félagsmenn vitji ntsins í
BðMBOÐ
m.m m menningie.
Skólavörðustíg 21.
Lausasöluvero 15 krónur
/
Ti7 skemmfunar: Col*!ng'búkí^ °-ík
Hagnas Bjamason. dægurlagasongur
Aage Lorange leikur í neðri salnum — Skemmtiatr iði í báðum sölum