Þjóðviljinn - 06.02.1955, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 06.02.1955, Blaðsíða 9
1 ÍÞRÓTTIR ft/TSTJÖRl FRtMANK HELGASON Norðmenn urðu sigursœlir é skíðomótinu í Moskvo Rússar unnu boðgönguna og 15 km göngu ÍE(' Á skíðamótinu sem fór fram í Moskvu um síðustu helgi urðu Norðmenn sigursælir þar sem þeir áttu tvo fyrstu menn í tví- keppni, göngu og stökki. Voru það þeir Per Gelten með 456 stig og Sverre Stenersen með 440.8 stig. Voru þeir einu nor- rænu keppendurnir. Þriðji mað- ur var Pólverjinn Joseph Ncheptovski, fékk 436.2 stig. 5. var Tékki og .6. Rússi. Sverre Stenersen vann stökk- ið sem fór fram í Leninstökk- brautinni; fékk hann 216 st„ stökk 62.5 og 60 m. Annar varð Rússinn Nikolai Tursoff, fékk 211.5 st„ stökk 61.5 og 55 m. Sverre Stallvik frá Noregi varð þriðji, fékk 210.0 stig, stökk 59.5 og 57.5 m. Rússinn Jurij Sukotsox ‘ fékk sama stigafjölda og Stallvik. Arne Hoel frá Noregi og Bror Östman urðu nr. 10 með 199.0 stig hvor. Nokkur stormur var á og gerði það stökkin miklu erfiðari . I 30 km göngu urðu þeir fyrstir og á sama tíma, 2.06.41 Martin Stokken frá Noregi og Sixten Jernberg frá Svíþjóð. Þriðji varð' Fjodor Terentéff frá So vétrík j unum á 2.08.44. í næstu þrem sætum voru Rússar en í 7. sæti var Tékki, Edvin Landsen Noregi varð 12. og Hallger Brenden frá Noregi í 21. sæti. Boðgönguna, 4x10 km vann Sovétsveitin á 2.28.15. Norð- menn voru í öðru sæti á 2.28.46. Var keppni þeirra mjög hörð og tvisýn og voru þeir Stokken og Brenden þar harðastir og drógu mjög inn það sem hinir höfðu tapað af tíma. Kúsín var í lokaspretti með því forskoti sem hann hafði og varð hann ekki sigraður og kom hann 3 sek. á undan Brenden í mark. Þriðja sveitin var sú sænska og 4. var sveit frá Tékkóslóvakíu. 5. B-lið Rússa, 6. Pólland. Þess má geta að tími Brendens var bezti tími í einstakri göngu og dró hann 2 mín. og 41 sek. á Kúsín í loka- sprettinum. Rússamir urðu ákaflega hrifn- ir af Brenden og afreki hans og kom þeim alveg á óvart. Aldrei fyrr hafði göngumanni tekizt að draga 2 mín. og 41 sek. á meist- ara þeirra Kúsín. Það voru „jakar" en ekki ..pokar" Vér erum ekki sammála „prentsmiðjupúkanum", sem leyfir sér að skjóta því inn í grein um Skjaldarglímuna að Bjarni Sigurðsson hafi verið með „poka“ í fanginum í glím- unni. Vér verðum þvi að biðja „prentsmiðjupúkann1' að fall- ast á að í þessari glímu hafi það verið „jakar“ sem gengu til fangs við Bjama. f 10 km göngu kvenna áttu Rússar 6 fyrstu konumar og V. Tsareva, heimsmeistarinn frá í fyrra, var fyrst. 2. Luboff Kos- yreva. Fyrsta norræna konan var Margret Ashberg-Albrett- sen. í 15 km göngunni urðu tveir Rússar fyrstir. Kúsín sem var á Sunnudagur 6. febrúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9 Vladímír Kúsin undan Fedor Terentéff á tímum 52.07 og 53.09. Þriðji var Hall- ger Brenden frá Noregi á 53.20 og fjórði varð Stokken frá Nor- egi. Rússinn Nicolas Kosloff varð fimmti 10 sek. á eftir Stokken. f 5 km göngu kvenna voru rússnesku stúlkurnar í efstu sætum. í ■karlagöngum kepptu 109 keppendur frá 7 þjóðum en 45 í kvennakeppnum, þar af 22 er- lendar, og 55 í karlakeppninni. Áhugi var mikill og fjöldi fólks fylgdist með mótinu. Toivo Salonen setui finnskt met i 500 m skautahlaupi Finnski skautamaðurinn Toivo Salonen, sem er aðeins 20 ára setti nýlega finnskt met á 500 m, var tími hans 42.9. Er Salonen talinn mjög efni- legur hlaupari því ísinn var tal- inn slæmur og auk þess svolítil snjókoma. Verða hnefaleik- ar bannaðir í Svíþjóð? í neðri deild sænska ríkis- þingsins kom nýlega fram tillaga sem miðar að því að banna hnefaleika, bæði áhugamanna og atvinnumanna. Tillögurnar ákveða að stjórn- in láti rannsaka hver séu hin hættulegu áhrif hnefaleika og á hvern hátt sé hægt að fjarlægja þau eða komast hjá þeim. Nefnd þeirri sem á að vinna þetta er einnig falið að semja ákvæði sem tryggja það að ekk- ert af þeim peningum sem þing- ið leggur til íþrótta, fari á einn eða annað hátt til hnefaleika. Að tillögu þessari standa fjórir bingmenn. Heimsmeistarakeppmn í listhlaupi kvenna á skautum hefst í Vín 13. febrnar Heimsmeistara.keppnin í list- hlaupi á skautum hefst í Vín 13. þ.m. Bandaríkin senda þangað 20 keppendur. Frægasta nafn þessa hóps er talið Hayes Alan Jenkins frá Colorada og hefur hún mikinn hug á að ná titlinum í ár. Tenley Albright hefur líka hug á að ná aftur titli sínum en hún tapaði hon- um í fyrra til þýzku stúlkunn- ar Gundi Busch, en hún hef- ur nú gerzt atvinnukona í list- hlaupi. Sovétríkin unnu Svíþjóð í grísk- rómverskri glímu Flokkur sænskra glímumanna í griskrómverskri glímu voru á ferð um Sovétríkin til keppni í þeirri íþrótt. Voru það bæði A- og B-lið sem fóru saman og kepptu i Moskva og Lenin- grad. I Moskva fóru leikar svo að B-lið Sovétríkjanna vann í öllum þyngdarflokkum eða 8:0 en A-liðið 7:1. Á leiðinni heim kepptu Svíamir í Leningrad og töpuðu þar líka 7:1. Nýju og gömlu daíisarnir í G.T.-húsinu í kvöld bl. 9 Sigurður Ólafsson syngux með hljómsveit Það sem óselt er af aðgöngumiðum verður selt kl. 8 SKEMMTIÐ YKKUR ÁN ÁFENGIS MM as Emkaritarlnn Gamanleikur í prem páttum eftir CHARLES HAWTREY Frumsýning í IÖnó á mánudagskvöld, 7. febr. kl. 8 Uppselt NÆSTA SÝNING þriðjudagskvöld kl. 8 Aðgöngumiðar seldir frá kl. 2 á mánudag í Iðnó Lelkfélag Menntaskólans í Reykjavík \ !■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■! ■•l■■■n.^■■l•■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Allstierjar- atkvæSagreiðsla um. kjör stjórnar og trúnaðarráðs Félags jám~ iðnaðarmanna fyrir næsta starfsár fer fram laug- ardaginn 12. og sunnudaginn 13. þ.m. í skrif- stofu félagsins í Kirkjuhvoli. Framboðslistum skal skilað í skrifstofu félags- ins fyrir kl. 18.00 þriðjudaginn 8. þ.m. Listumnn skulu fylgja meðmæli minnst 40 full- gildra félagsmanna. Kjörskrá liggur frammi í skrifstofu félagsins Bandylið frá Sovétríkjunum keppir í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð Undanfarin tvö ár hefur tek- izt mikil samvinna með bandy- mönnum á Norðurlöndum og í Sovétríkjunum, en þessi lönd munu þau einu sem iðka leik þenna að staðaldri. í fyrra fóru flokkar austur og kepptu þar og lauk þeirri keppni þannig að Svíar unnu mótið, sigruðu Rússa 4:3 í úrslitum. I sam- bandi við mótið voru reglur leiksins ræddar og lögðu Rúss- ar fram nokkrar breytingar- tillögur sem voru samþykktar einróma. Rússamir byrja leiki sína í Noregi þann 8. þ.m. Þeir koma í dag, 6., febrúar, til Osló. Eftir leikinn í Osló fara þeir til Svi- þjóðar og keppa þar landsleiki 13., 15. og 16. þ.m. Fara leik- imir fram í Stokkhólmi og Nassjö. I Helsingfors keppa þeir 20. febrúar. I sambandi við þessa heim- sókn Rússa verður haldið bandyþing í Stokkhólmi. Bandy er leikið af 11 mönn- um á ís, lítill knöttur er not- aður og sleginn með kylfum. Leikið er á velli sem er á stærð við knattspymuvöll. föstudaginn 11. þ.m. kl. 17.30—19.00 og laug- | ardaginn 12. þ.m. kl. 10—12. • ■ Stjórnin s Beztú itsalan Síðdegiskjóiar, Bútar verð frá 200 kr. í mikhi úrváli. Tyllkjólar, verð frá 300 kr. Pilsefni Pils, Kjólaefni verð frá 75 kr. Blússuefni / BEZTSTSALAN AVALLT BEZT BE7T dJjLI Vesturgötu 3 Tilkynning nm þátttöku í Varsjármotinn Nafn: ................................... Heimili: ................................ Atvinna: ................................ Fœðingardagur og ár:..................... Félag: .................................. (Sendist til Eiðs Bergmanns, Skólavörðust. 19, Bvik) ■■■■■■■■■■•■•■■■■■■■■<

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.