Þjóðviljinn - 22.02.1955, Síða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 22. febrúar 1955
n
ilðstæður bæjarvinnumanna — Réttindalaus stétt
— Léttum tónum send kveðja — Góður þáttur til
tilbreytingar.
EFTIRFARANDI bréf hefir Bæj-
arpóstinum borizt:
,.Kæri Bæjarpóstur. Fyrir
skömmu síðan kom til mín gam-
all heimilisvinur sem starfað
hefur í bæjarvinnunni í 26 ár.
.Þegar hann var á leiðinni til
mín vék sér að honum maður
sem hann kannaðist við, og
sagði: Svo að þið ætlið að gera
verkfall? Hann kvað þá hafa
sagt upp samningum. Og eftir
að vinur minn hafði skýrt mér
frá þeim aðstæðum sem þeir
verkamenn eiga við að búa
sem vinna við bæjarvinn-
una, settist ég niður og skrifaði
það sem hann sagði mér, í von
um að þú vildir birta það í
blaði þínu.
1. ) Bæjarvinnumenn hafa enga
svokallaða veikindadaga. Þeir
fá aðeins 7 daga greidda ef þeir
verða fyrir slysi.
2. ) Þeir fá enga helgi- eða há-
tíðisdaga borgaða.
3. ) Þeir fá engin eftirlaun eftir
tuga ára stritvinnu í þágu bæj-
arins.
4.) Bæjarvinnumönnum er
hægt að segja upp fyrirvara-
laust; skiptir engu hvort mað-
urinn er búinn að vinna við
þetta starf fjölda mörg ár. Það
er ekki réttlátt að ein stétt
manna sem vinnur ársins hring
úti, í hvaða veðri sem er, sé al-
veg gersamlega réttindalaus.
Eg fékk þetta ekki birt í mínu
flokksblaði.
Sjálfstæðiskona"
OG svo við vöðum úr einu í
annað, þá kemur hér bréf sem
Þórður kakali skrifar um þátt-
inn Létta tóna:
„Kæri Bæjarpóstur. Allir
skamma alla þessa dagana, og
því ætla ég' að vera friðarins
dúfa og hrósa, svona til tilbreyt-
ingar.
Eg hlustaði á þáttinn Léttir
tónar í gærkveldi og varð undr-
andi á því að stjórnanda þátt-
arins tókst að gera þáttinn að
einum bezta skemmtiþætti sem
ég hefi heyrt í útvarpinu í vet-
ur. Það er synd að segja að ég
hafi verið hrifinn af Léttum
tónum hingað til, það hefur ver-
ið sífellt jassgarg sýknt og heil-
agt, og flákjaítaðir ameríkanar
hafa gaulað rammfalskt, stjórn-
anda þáttarins til mikillar á-
nægju, eftir því sem hann hefur
sagt við hverja kynningu, en í
síðasta þætti kom hann með
Alfreð Clausen og Alfreð söng
nokkur ný íslenzk lög, svo vel,
að ég hef ekki heyrt hann betri.
Þakka þér fyrir textaframburð-
inn( Alfreð, þar mættu aðrir
íslenzkir söngvarar taka þig, til
fyrirmyndar. Svo söng Alfreð
eitt amerískt dægurlag, svona
rétt til að sýna að hann gæti
það líka, svo kom annar söngv-
ari, sem mér fannst ágætur, og
ég gæti trúað að hann yrði góð-
ur þegar hann hefur fengið
Eddie Fisher grillurnar úr höfð-
inu, annars fannst mér hann
ekki syngja neitt síður en fyr-
irmyndin.
Jan Móravék spilaði með og lék
auk þess tvö jasslög með hljóm-
sveit sinni og fannst mér hann
ekki gefa könunum eftir, hefði
ég þó haft meira gaman af fal-
legum tangó eða vals, en allir
vilja hafa eitthvað.
Eg vil þakka Jónasi Jónassyni
fyrir smekkvísi hans, og hefur
hann sýnt, að hann getur þegar
hann vill og því mundi ég dæma
hann enn harðar hér á eftir.
Þórður kakali“
Ný sending
5
SKIPÆÚTGÍRS
RIKISINS
Helgi Helgason
fer til Vestmannaeyja á morg-
un. Vörumótttaka daglega.
í
vetrarkápur
M.a. tweedkápur
MARKAÐURINN
Laugaveg 100
Skjaldbreið
vestur um land til Akureyrar
síðari hluta vikunnar. Tekið á
móti flutningi til Súgandafjarð-
ar, Húnaflóa- og Skagafjarð-
arhafna, Ólafsfjarðar og Dal-
víkur á morgun. Farseðlar seld-
ir á föstudag.
| Innaniiássinátið
| í hjttspyran
| heldur áfram í kvöld 1
Þá keppa
.. 20.00 aS Hálogalandi.
Esja
vestur um land í hringferð
hinn 28. þ.m. Tekið á móti
flutningi til Patreksfjarðar,
Tálknafjarðar, Bíldudals, Þing-
eyrar, Flateyrar, ísafjarðar,
Siglufjarðar og Akureyrar í
dag og árdegis á morgun. Far-
seðlar seldir árdegis á laugar-
dag.
Söngskemmtun til heiðurs Pétri
Á. Jónssyni ópérusöngvara
Það ísland, sem okkur er
öllum ævinlega efst í huga, er
land sagnanna og ljóðanna.
Víða í Evrópu kannast fólk
við nöfn Snorra, Gunnars,
Laxness, Davíðs, Kambans,
Nonna o. fl. íslenzkra skálda.
En það er ekkert undarlegt,
því þjóðin hefur i þúsund ár
setið við sögur og ljóð og
ræktað jarðveginn fyrir snill-
inga orðsins. Af síðum skinn-
bókanna las hún sín málverk
og niðurinn í læknum, suðið í
ánni og brimhljóðið var að
jafnaði hennar eina tónlist.
Jarðvegur málarans og tón-
listarmannsins var ekki eins
langræktaður, og enginn
vænti sér á íslandi af þeim
sökum mikilla listafreka í öðr-
um greinum en skáldskap. —
Fyrirbæri eins og Ásgrímur
Jónsson og Pétur Jónsson
verða því helst að teljast til
ævintýranna, sem alltaf hafa
gerzt með þessari þjóð á öll-
um öldum. Ef reynt væri að
skýra uppruna þessara manna,
væri það þá helst með því að
sanna skyldleika hinna ýmsu
listgreina. En hvort sem hið
einstæða fyrirbæri, ævintýrið
Pétur Jónsson, á sér nokkurn
skynsamlegan aðdraganda eða
ekki, er það staðreynd, aug-
ljós og ánægjuleg. Söngvarinn
Pétur Jónsson er fyrir okk-
ur landa hans likt og Strauss
og Schubert voru fyrir Vínar-
búa á sínum tíma. í Þýzka-
landi, landi tónlistarinnar,
þekkti eitt sinn hvert manns-
barn í ýmsum stórborgum
landsins Pétur Jónsson. Hann
var dáður og elskaður, og að
jafnaði nefndur Pétur okkar,
„unser Peter“, og er það eftir-
tektarvert, að einmitt þetta
nafn, er Pétur hlaut meðal
aðdáenda sinna, segir okkur
meira um manninn, listamann-
inn, öðlinginn, hrók alls fagn-
aðar, Pétur Jónsson óperu-
söngvara, en löng ræða eða
ritgerð getur gert. Pétur söng
sig með svo eðlilegum hætti
og svo djúpt inní hjörtu á-
heyrenda sinna, að hann varð
hverjum manni ástfólginn vin-
ur, átrúnaður og ljúflingur.
Það þarf engan að undra,
þó vorið sé íslenzku þjóðinni
dýrmætara en flestum öðrum
þjóðum, þegar það lyftir hinu
sumarfagra landi undan
klakafargi vetrarríkisins. En
vorið átti hér áður fyrr einn-
ig önnur tilhlökkunarefni, og
minnist ég þó einskis kærara
en þeirrar fréttar, að Pétur
Jónsson væri á heimleið til
þess að syngja gleði, kjark
og trú inní hálfkulnuð hjört-
un eftir vetrarfargið. Um leið
og Pétur hóf upp raust sírta,
tók sumarið völdin í hjörtum
okkar og sálum. Munum við
þetta ekki öll?
Það er ekki sagt öðrum
söngvurum til lasts, þó ég
segi, að við höfum ennþá að-
eins átt einn Caruso. Þann
eld hrifningar og fagnaðar,
sem Pétur vakti hér á sínum
tíma með sínum neistandi tón-
um, hefur enginn fyrr né síð-
ar kveikt á íslandi.
Því miður var tónbandið,
undratæki nútímans, ekki
komið til sögunnar þegar Pét-
ur var uppá sitt bezta. Ef
svo hefði verið, væru tónbönd-
in, sem geymdu hina stór-
fenglegu tórileika hans, geymd
í hillum Islendinga við hlið Is-
lendingasagnanna. En Pétur
var ekki bara raddmaður,
söngvari, túlkari mikillar list-
ar, hann var í einu orði sagt:
stórinenni, og hann var val-
menni að mannkostum. I dag
er hann ljúflingur við hlið
okkar beztu mönnum.
Hinn listræni söngur Péturs
Jónssonar, þrunginn heitri til-
finningu og andagift, olli að
ýmsu leyti svipuðum tímamót-
um í sönglist okkar og ljóð
Jónasar í ljóðlistinni. Báðir
fluttu þeir með sér hingað
heim ylgeisla heimsmenning-
arinnar, en i brjóstinu sló ís-
lenzkt hjarta, hvar sem þeir
fóru.
Nýlega varð Pétur Jónsson
sjötugur. Honum var þá sýnd-
ur margvíslegur heiður. Þá
kom út bókin hans, frásagn-
ir hans af ævintýrinu, færðar
í letur af aldavini hans, Björg-
úlfi lækni Ólafssyni. Nú hafa
beztu söngvarar bæjarins á-
kveðið að halda söngskemmt-
un til heiðurs Pétri Jónssyni.
Er það vel ráðið, og göfug-
mannlegt af söngbræðrum
hans og systrum, að minnast
hins mikla söngvara á þenn-
an hátt. Þau sem syngja eruc
Guðrún Á. Simonar, Guðrún
Þorsteinsdóttir, Þuríður Páls-
dóttir, Einar Sturluson, Guð-
mundur Jónsson, Jón Sigur-
björnsson, Ketill Jensson,
Kristinn Hallsson, Magnús
Jónsson og Þorsteinn Hann-
esson. Fritz Weisshappel leik-
ur undir á flygilinn. Þessi
einstæða söngskemmtun fer
fram í Gamla Bíói næstkom-
andi föstudag kl. 7 síðdegis.
Allur ágóðinn rennur til Pét-
urs Jónssonar. Er ekki að efa
að Reykvikingar fylla liúsið.
Páll ísólf sson.
4. fl. Þróttur — Fram A
4. fl. Fram B — K.R. A
2. fl. KR C — Þróttur A
2. fl. Fram — KR B
M. fl. K.R. C — K.R. B
M. fl. K.R. A — Fram A
Komið 09 sjáið hverjir komast í úrslit
Aðgangur 10 kr. fyrir fullorðna og 5 kr. fyrir böm.
Mótanefndin
Lærið að dansa
Námskeið í gömlu dönsun-
um hefst fimmtudaginn 24.
febrúar í Skátaheimilinu. —
Innritun í byrjendaflokk kl.
8, framhaldsflokk kl. 9.
Þjóðdansafélag
Reykjavíkur
HiMmnuiiiiM
BUTASALA |
Mikið aí allskonar bútum selt á lágu verði
•. ; >
>
Ásg. G. Gunnlaugsson & Co.
b.