Þjóðviljinn - 22.02.1955, Síða 12
REYKJAVÍ
LONDOj
PARIS
ÁL6IERT>«^
BOU-S AADA
SAHARA
WAMIDAR
SjúkrabOar Rauða krossins fóru 36i
ferðir í Reykjavík á síðasiliðnu ári
Fjársöfnunardagur Rauða krcnsins er
á morgun — öskudag
Á morgun, öskudag, safnar Rauði Kross íslands fé til
hinnar margþættu starfsemi sinnar með merkjasölu um
land allt. í fyrra seldust á öskudaginn merki fyrir nálægt
90 þús. krónur í Reykjavík og voru sölubömin þá hátt á
annað þúsund.
Þau börn, sem selja merki
á morgun, fá aðgöngumiða að
kvikmyndasýningu á sunnudag-
inn kemur og auk þess dálitla
hressingu rnn leið og þau skila
andvirði selda merkja. Ættu
foreldrar að minna börnin á
merkjasöludag Rauða Krossins
og láta þau búa sig vel að
heiman. Á annarri síðu blaðs-
ins í dag er nánar sagt frá því
hvar og hvenær merkin verða
afhent.
10 starfandi deildir
Eins og áður er getið hefur
itauði Krossinn margþætta
starfsemi með höndum: Gefur
út Heilbrigt líf, tímarit um
heilbrigðismál, og unglingablað-
ið Unga Island, rekur sjúkra-
skýli í Sandgerði og rak auk
þess sjúkraskýli á Raufarhöfn
um síldveiðitímann 1 fyrrasum-
ar. Þá hefur Rauði Krossinn
fastráðna hjúkrunarkonu í
þjónustu sinni og ferðast hún
um landið og heldur námskeið
í hjálp í viðlögum í skólum og
víðar eftir því sem óskað er.
Nú eru starfandi 10 RK
deildir á ýmsum stöðum á
landinu og eiga þær samtals 7
sjúkrabifreiðar.
3600 sjúkraferðir
Reykjavíkurdeildin er lang
stærst og telur nú um 2 þús.
félaga. Hún á nú þrjár sjúkra-
bifreiðar, þar af eina afar
vandaða þýzka bifreið, sem tek-
in verður í notkun með vor-
inu. Sjúkrabifreiðarnar eru
reknar frá slökkvistöðinni og
fóru um 3600 ferðir með sjúka
um borgina á liðnu ári og
margar út úr bænum.
Eitt höfuðstarf deildarinn-
ar er að annast sumardvalir
barna úr Reykjavík. Á sl. sumri
voru 240 börn á vegum henn-
ar í sveit, helmingur þeirra á
barnaheimili RKl í Laugarási
og um 60 á hvorum staðnum
Silungapolli og Reykjaskóla í
Hrútafirði.
Þá er Reykjavíkurdeildin að
koma sér upþ nýjum birgðum
hjúkrunargagna, sem lánuð eru
á heimili endurgjaldslaust.
Aðalfundur
ÆFV
Æskulýðsfylkingin í Vest-
mannaeyjum hélt aðalfund sinn
í síðustu viku.
í stjóm voru kosin: Ólafur
Jónsson formaður, Sveinn Tóm-
asson varaformaður, Kristín
Pétursdóttir ritari, Þorsteinn
Gunnarsson gjaldkeri, Haf-
steinn Ágústsson meðstjórn-
andi, Sigurður Ólafsson og
Sigurður Guðmundsson með-
stjómendur.
Ungir sósíalistar i Vest-
mannaeyjum hafa fullan hug á
að efla mjög starfsemina, og
mun takast það. — Kjartan
Ólafsson, erindreki Æskulýðs-
fylkingarinnar mætti á fundin-
um.
Námskeið í lijálp í viðiögum
Á sl. vetri gekkst deildin
fýrir námskeiði fyrir almenn-
ing í hjálp í viðlögum. For-
stöðumaður námskeiðsins var
Elías Eyvindsson yfirlæknir.
Þátttaka var mjög mikil og
komust færri að en vildu.
Um næstu mánaðamót verður
efnt til námskeiðs með sama
sniði og í fyrra, þar sem kennd
verður allskonar hjálp í við-
lögum, m.a. blóðgjafir og með-
ferð á sjúklingum sem orðið
hafa fyrir losti. Stuðzt verður
við bókina Hjálp í viðlögum
eftir Jón Oddgeir Jónsson á
námskeiðinu, en 1. marz nk. er
væntanleg á markaðinn ný út-
gáfa af bókinni. Eru þátttak-
endur í væntanlegu námskeiði
RK beðnir um að gefa sig fram
í skrifstofunni eftir öskudag-
inn.
Það síðasta boðið
upp í dag
Borgarnesi.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
í dag fer hér fram uppboð á
síðustu leifimum af eiguum
gjaldþrotabús Hvítár.
Þar með er á enda kljáð mis-
heppnuð útgerðartilraun Borgnes
inga. Þrátt fyrir hið dýrkeypta
áfall er skoðun ýmissa að at-
vinnuástandið hér verði ekki
bætt nema* með sjávarútgerð,
enda stutt héðan á fiskimiðin.
jókst 9,7% á sl. ári
Heildarmjólkurmagn mjólkur-
búanna (mjólkursamlagaima) á
árinu 1954 reyndist vera 51.946.
673 kg„ sem er 4.600.175 kg.
meira magn en á árinu 1953, eða
9.72% aukning.
í 1. op 2. flokk flokkaðist
50.350.937 kg. mjólkurinnar, eða
96.93 %, og 3. og 4. flokks mjólk
reyndist vera 1.595.736 kg, eða
3.07%.
Á árinu 1953 reyndist 1. og 2.
flokks mjólk vera 45.652.938 kg„
eða 96.42% og 3. og 4. flokks
mjólk reyndist vera 1.693.560
kg„ eða 3.58%.
Spyrðubandavél Valdimars Egilssonar. — Sjálfum mun
honum hafa dottið í hug að kalla vélina „hnýtlu" og er
það mjög vel til fundið nafn, stutt og laggott.
Hnýtir 70 spyrðubönd ámínútu
Valdimar Egilsson vélstjóri Lindargötu 30 hefur fundið
upp og smíðað vél til að hnýta spyröubönd. Getur vél
þessi linýtt um 70 spyröubönd á mínútu.
þlÓÐVILJINM
Þriðjudagur 22. febrúar 1955 — 20. árgangur — 43. tölublað
Aðaifimdnr Sveínafélags skipasmiða
Sveinafélag skipasmiða hélt aðalfund sinn s.l. laugar-
tíag. Helgi Amlaugsson var endurkjörinn formaöur fé-
lagsins.
Með honum voru kosnir í' brerfingunum var kosning
stjórn Magnús
Guðmundur H.
Þórarinsson,
Sigurðsson,
Það mun hafa verið haustið®"
1953 að Hannes Ágústsson kom
með hluta af kornhnýtivél til
Valdimars og bað hann um að
athuga hvort hann gæti ekki
smíðað vél er hnýtti spyrðubönd.
Valdimar fór síðan að hugsa
málið og síðar að smíða slíka vél.
Hafði honum tekizt það í febr-
úarmánuði sl. Síðan hefur hann
smíðað 4 slíkar vélar og hafa
2 þeirra verið sendar til Noregs.
Sem fyrr segir getur vélin
hnýtt um 70 bönd á minútunni
og geta þau verið af mismun-
andi stærðum eftir því hvað
hentar hverju sinni. Vél þessi
er mjög til hagræðis1 skreiðar-
framleiðendum.
Helgl Amlaugsson
Ingvar Jónsson, Bjöm E.
Bjömsson. Varamenn vom
kosnir Kristján Sigurðsson og
Jóh. Ámason. Stjómin skiptir
sjálf með sér verkum að öðm
leyti en því að formaður er
kosinn sérstaklega. — Gjald-
keri, sem er utan stjómarinn-
ar, var kosinn Sigurður Þor-
kelsson.
Miklar umræður vom um
lagabreytingar og var lögum
félagsins mikið breytt. Ein af
var
trúnaðarmannaráðs, sem félag-
ið hefur ekki haft áður. 1 trún-
aðarmannaráð, auk stjórnar,
vom kosnir Sigurður Þórðar-
son, Jens Þorsteinsson, Kjart-
an Einarsson og Þorsteinn Ól-
afsson. Varamenn þeirra voru
kosnir Bragi Guðnason, Jón
Jónsson, Emil S. Guðmundsson
og Sigurður Þorkelsson.
Kennaraverkfall í
Grikklandi
Um fimm þúsund kennarar í
æðri skólum í Grikklandi hafa
sagt lausum stöðum sínum. Ætla
þeir að hætta störfum þegar upp-
sagnarfrestur er útrunhinn ef
ríkisstjórnin verður ekki áður
við kröfum þeirra um launa-
hækkun.
StálrerhfaU
í Saar
1 gær lögðu 40.000 verka-
menn í stáliðnaði Saarhéraðs
niður vinnu. Þeir krefjast 15%
kauphækkunar. Stáliðnaður og
námugröftur em helztu at-
vinnuvegir í Saar.
Minningarathöfn um þá sem férust
með togaranum Agli rauða
Neskaupstað. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
f gær fór hér fram útför Hjörleifs Sigurðssonar og
minningarathöfn um aðra skipverja er fórust með tog-
aranum Agli rauða.
Sóknarpresturinn sr. Ingi Jóns-
son flutti minningarræðuna.
Kirkjukórinn og Samkór Nes-
kaupstaðar sungu við athöfnina.
Geysimikill mannfjöldi var við
athöfnina.
Hún skemmtir í
kvöld í Austur-
bæjarbíói
Hallbjörg Bjarnadóttir skemmt-
ir á kvöldskemmtun knatt-
spyrnufélagsins Þróttar í Aust-
urbæjarbíói í kvöld. — Sjá um
önnur skemmtiatriði í auglýs-
ingu á 8. síðu.
Deildarfundir verða í öllum
deildum n.k. þriðjudag kl. 8,30
e. h. Formenn deildanna eru
beðnir að mæta á fund kl. 6.
annað kvöld að Þórsgötu 1
(skrifstofuna). — Stjórnin.
Hér sjáiö pið leiðina sem farin verður í flugskemmtiferð
ferðaskrifstofunnar Orlofs — sjá frétt á 3. síðu.