Þjóðviljinn - 01.05.1955, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 01.05.1955, Blaðsíða 9
Sunnudagur 1. raaí 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9 ÍÞRÓTTIR tUTSTJÓRl. FRtMANN HELGASON Reykj avíkurmótið í knatt- spyrnu hefst n.k. sunnudag LokiS viS niðurröSun allra knatfspyrnuleikia sem fram fara i Reykjavík í sumar Knattspyrnuráð Reykjavíkur hefur nýlega lokið við niðurröð- un allra knattspyrnukappleikja, sem fram far,a í Reykjayík í sumar. Er það hið vandasamasta verk, því að ákveðinn er hver leikur allt frá 4. flokki B til hins nýstofnaða móts í I. deild, sem leysir af hólmi Knattspyrnumót íslands. Er einnig tilgreindur keppnisstaður, leikstund og dóm- ari hvers leiks. Ráðið hefur látið prenta skrána í aðgengilega handbók með líku fyrirkomulagi og s.l. ár og er bókin ómissandi öllum, sem hafa eitthvað með íþróttina að gera, leikmönnum, þjálfurum og ekki hvað sízt áhorfendum, sem fá nú á einum stað skrá yfir helztu viðburði sumarsins á f- þróttavellinum, því að þar eru einnig tilgreindir þeir leikir, sem fram fara gegn hinum erlendu liðum sem hingað koma, en þap verða ekki færri en 5 talsins. Fyrst kemur úrval frá Neðra- Saxlandi á vegum Vals, síðan úr- valslið unglinga frá Hamborg til Vals, og síðan 3. flokkur frá Bagsværd i Danmörku til KR. Danska landsliðið kemur hingað og leikur landsleik 3. júlí, og að síðustu kemur meistaraflokks- lið til KR um 10. júlí. Innlendu mótin hefjast sunnu- daginn 8. mai með leik Fram og Vals i Reykjavíkurmótinu, en þann 9. leika KR og Þróttur. íslandsmótið eða 1. deild hefst 12. júní og lýkur 15. ágúst. Mót- in í yngri flokkunum hefjast sem hér segir: 1. flokkur laugardag- inn 14. mai (Fram-Þróttur og KR—Valur), 2. flokkur laugar- daginn 21. maí (Fram — KR og Valur — Víkingur), 3. flokkur á 2. í hvitasunnu (Þróttur — Fram og Valur — Víkingur) og 4. flokkur sama dag, (Fram— Vik- itigur og KR — Þróttur), Knattspymumót Reykjavíkur átti að hefjast n.k. mánudag með leik KR og Vals, en vegna verkfallsins hefur ekki unnizt tími til þess að undirbúa völlinn, en einnig er völlurinn votur vegna óvenjumikils klaka, sem verið hefur í jörðu allt til þessa. Badmintonkeppni í gær hófst í íþróttahúsi KR keppni í Badminton með. þátt- takendúm frá UMF Snæfelli, Stykkishólmi og TBR. Leiknir voru 34 leikir í gær en í dag fara svo fram úrslitaleikirnir, þar sem nokkrir beztu badminton- spilarar landsins leika,. t. d. ís- landsmeistarinn Wagn'er Wal- böm, Ólafur Guðmundsson frá Stykkishólmi og Malajinn Ric- hardo, sem nú spilar í hljóm- sveitinni á Hótel Borg. Keppnin hefst kl. 2 í dag. Pað má Ifflw fceppa á mótorhjóli á ís Trésmiðir. verkameim ✓ og murarar óskast strax Byggingafélagið Bru hí. sími 6298 Grein Hannibals Valdimarssonar Framhald af 7. síðu. an úr grárri forneskju. Þá ætti það enga þjó§ að móðga, þótt ísland lýsti yfir þeim blákalda og augljósa sannleika, að það sé þess alls ómegnugt að taka nokkurn þátt í kjarnorkustríði, og vilji því engar þær ráðstafanir gera, sem leitt geti beinar ógm ir kjarnorkustríðs yfir land vort og þjóð. Gunnar M. Magnúss: Börmn frá Víðigerði Stjána datt snjallræði í hug. Hann greip undir kyrnuna með kyndaranum og hjálpaði honum tii að steypa öskunni í sjóinn. Kyndarinn kinkaðii til hans kolli og benti honum frá> svo að hann gerði sig ekki kolugan. En Stjáni sló saman lóf- unum og sagði hlæjandi: „Olræ’t’, olræt, englisman, olræt“. Svo kom næsta kyrna og þeir síeyptu báðir brosandi úr henni. Fleiri kyrnur komu og allt fór á sömu leið, þangað til askan var búin í það skiptið. Svo fór Stjáni á eftir kyndaranum inn á griná- urnar yfir vélarúminu. Þar var hlýtt og nota- leg't'. Kyndarinn klappaði á öxl Stjána og sagði eitthvað hlæjandi, sem Stjáni botnaði ekkert í. En nú ætlaði Stjáni að framkvæma hugmynd sína, þegar kyndarinn var horfinn. Hann þvoði sér í framan með grútskítugum og kolugum höndunum og reyndi að dreifa kola- hríminu upp í hársrætur og niður á háls. Því næst fór hann úr blússunni og milliskyrtunm, sneri milliskyrtunni við og fór í hana úthverfa, En nú var. hann farinri að hreinkast dálítið á hönd. unum, svo að hann leitaði að kolahrími til þess að klína á skyrtuna hér og þar. Síðan bretti hann skyrtuermarnar upp fyrir olnboga og gerði svöri; sfrik og klessur á handleggina. Nú var hann hróð- ugur. Þetta skyldi hrífa> til þess að láta karlana' auðmýkjast. Hann fór sér ekki að neinu óðslega. Ef-tir all- langa stund vafði hann saman blússu sína og lagði af stað niður til Víðigerðisfólksins. „Hér er þá sukkið og fýlan“, sagði Stjáni, þegar hann kom niður í svefnklefana.r Margir litu upp, þegar þeir heyrðu í Stjána og sförðu undrandi á drenginn. „Já, þið starið undrandi á mig. En svona verðá þeir útlits, sem vinna á skipum“. Hann rambaði til og frá um klefana, til þess að flestir gætu séð, hvernig hann var útlits. En svo settist hann fyrir framan Geira, sem lá glaðvak- andi á bekknum. Geiri setti sig í kút og ýtti hon- um fram á gólfið. Verkfallssálmur EFTIR JÓN FRÁ PÁLMHOLTI Verkamaður, í dag er þhm dagur, í dag skaltu öruggur stíga þín slrref. I dag skaltu fylkja liSi og sýna mátt þiiui. I dag skaltu rísa upp og mótmæla svo lengi. nnmist sex vikna lierferð sjúks auðvalds á hendur þér og börnum þínum. 1 dag skaltu minnai heimimi á, að barn þitt biður um brauð. 1 dag skaltu láta það berast að kona þín þrái gott Ueimili. 1 dag verður þess miimst að hið vinnandl fólk stendur undir þjóðhmi, fæðir hana og hlæðir, en yerður sjálft að himgra og ganga fátirklega khett. 1 dag skal minnst misréttis þess auðvaldsþjóðfélags, sem sveltir böm. 1 dag skal þess minnst að verkamenn eiga réttinn. I dag skulu allir vinnandi menn fylkja llðl til baráttu fyrir samtökum sínum og þar með tilveru sinni. Verkamaður, í dag skaltu jninuást þess hungurs, sem böm þín hafa þolað. 1 dag skaltu heilsa þeim mönnum, sem hafa borið á þig þjófsorð. I dag skaltu þakka þau hogg er þú hefur hlotið.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.