Þjóðviljinn - 01.05.1955, Qupperneq 9
Sunnudagur 1. raaí 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9
ÍÞRÓTTIR
tUTSTJÓRl. FRtMANN HELGASON
Reykj avíkurmótið í knatt-
spyrnu hefst n.k. sunnudag
LokiS viS niðurröSun allra knatfspyrnuleikia
sem fram fara i Reykjavík í sumar
Knattspyrnuráð Reykjavíkur
hefur nýlega lokið við niðurröð-
un allra knattspyrnukappleikja,
sem fram far,a í Reykjayík í
sumar. Er það hið vandasamasta
verk, því að ákveðinn er hver
leikur allt frá 4. flokki B til hins
nýstofnaða móts í I. deild, sem
leysir af hólmi Knattspyrnumót
íslands. Er einnig tilgreindur
keppnisstaður, leikstund og dóm-
ari hvers leiks.
Ráðið hefur látið prenta
skrána í aðgengilega handbók
með líku fyrirkomulagi og s.l. ár
og er bókin ómissandi öllum, sem
hafa eitthvað með íþróttina að
gera, leikmönnum, þjálfurum og
ekki hvað sízt áhorfendum, sem
fá nú á einum stað skrá yfir
helztu viðburði sumarsins á f-
þróttavellinum, því að þar eru
einnig tilgreindir þeir leikir, sem
fram fara gegn hinum erlendu
liðum sem hingað koma, en þap
verða ekki færri en 5 talsins.
Fyrst kemur úrval frá Neðra-
Saxlandi á vegum Vals, síðan úr-
valslið unglinga frá Hamborg til
Vals, og síðan 3. flokkur frá
Bagsværd i Danmörku til KR.
Danska landsliðið kemur hingað
og leikur landsleik 3. júlí, og
að síðustu kemur meistaraflokks-
lið til KR um 10. júlí.
Innlendu mótin hefjast sunnu-
daginn 8. mai með leik Fram
og Vals i Reykjavíkurmótinu,
en þann 9. leika KR og Þróttur.
íslandsmótið eða 1. deild hefst
12. júní og lýkur 15. ágúst. Mót-
in í yngri flokkunum hefjast sem
hér segir: 1. flokkur laugardag-
inn 14. mai (Fram-Þróttur og
KR—Valur), 2. flokkur laugar-
daginn 21. maí (Fram — KR og
Valur — Víkingur), 3. flokkur á
2. í hvitasunnu (Þróttur — Fram
og Valur — Víkingur) og 4.
flokkur sama dag, (Fram— Vik-
itigur og KR — Þróttur),
Knattspymumót Reykjavíkur
átti að hefjast n.k. mánudag
með leik KR og Vals, en vegna
verkfallsins hefur ekki unnizt
tími til þess að undirbúa völlinn,
en einnig er völlurinn votur
vegna óvenjumikils klaka, sem
verið hefur í jörðu allt til þessa.
Badmintonkeppni
í gær hófst í íþróttahúsi KR
keppni í Badminton með. þátt-
takendúm frá UMF Snæfelli,
Stykkishólmi og TBR. Leiknir
voru 34 leikir í gær en í dag
fara svo fram úrslitaleikirnir, þar
sem nokkrir beztu badminton-
spilarar landsins leika,. t. d. ís-
landsmeistarinn Wagn'er Wal-
böm, Ólafur Guðmundsson frá
Stykkishólmi og Malajinn Ric-
hardo, sem nú spilar í hljóm-
sveitinni á Hótel Borg. Keppnin
hefst kl. 2 í dag.
Pað má Ifflw fceppa á mótorhjóli á ís
Trésmiðir. verkameim
✓
og murarar
óskast strax
Byggingafélagið Bru hí.
sími 6298
Grein Hannibals
Valdimarssonar
Framhald af 7. síðu.
an úr grárri forneskju.
Þá ætti það enga þjó§ að
móðga, þótt ísland lýsti yfir
þeim blákalda og augljósa
sannleika, að það sé þess alls
ómegnugt að taka nokkurn
þátt í kjarnorkustríði, og vilji
því engar þær ráðstafanir
gera, sem leitt geti beinar ógm
ir kjarnorkustríðs yfir land
vort og þjóð.
Gunnar M. Magnúss:
Börmn frá Víðigerði
Stjána datt snjallræði í hug. Hann greip undir
kyrnuna með kyndaranum og hjálpaði honum tii
að steypa öskunni í sjóinn. Kyndarinn kinkaðii
til hans kolli og benti honum frá> svo að hann
gerði sig ekki kolugan. En Stjáni sló saman lóf-
unum og sagði hlæjandi:
„Olræ’t’, olræt, englisman, olræt“.
Svo kom næsta kyrna og þeir síeyptu báðir
brosandi úr henni. Fleiri kyrnur komu og allt fór
á sömu leið, þangað til askan var búin í það
skiptið.
Svo fór Stjáni á eftir kyndaranum inn á griná-
urnar yfir vélarúminu. Þar var hlýtt og nota-
leg't'. Kyndarinn klappaði á öxl Stjána og sagði
eitthvað hlæjandi, sem Stjáni botnaði ekkert í.
En nú ætlaði Stjáni að framkvæma hugmynd
sína, þegar kyndarinn var horfinn.
Hann þvoði sér í framan með grútskítugum
og kolugum höndunum og reyndi að dreifa kola-
hríminu upp í hársrætur og niður á háls. Því
næst fór hann úr blússunni og milliskyrtunm,
sneri milliskyrtunni við og fór í hana úthverfa,
En nú var. hann farinri að hreinkast dálítið á hönd.
unum, svo að hann leitaði að kolahrími til þess
að klína á skyrtuna hér og þar. Síðan bretti hann
skyrtuermarnar upp fyrir olnboga og gerði svöri;
sfrik og klessur á handleggina. Nú var hann hróð-
ugur. Þetta skyldi hrífa> til þess að láta karlana'
auðmýkjast.
Hann fór sér ekki að neinu óðslega. Ef-tir all-
langa stund vafði hann saman blússu sína og lagði
af stað niður til Víðigerðisfólksins.
„Hér er þá sukkið og fýlan“, sagði Stjáni, þegar
hann kom niður í svefnklefana.r
Margir litu upp, þegar þeir heyrðu í Stjána og
sförðu undrandi á drenginn.
„Já, þið starið undrandi á mig. En svona verðá
þeir útlits, sem vinna á skipum“.
Hann rambaði til og frá um klefana, til þess að
flestir gætu séð, hvernig hann var útlits. En svo
settist hann fyrir framan Geira, sem lá glaðvak-
andi á bekknum. Geiri setti sig í kút og ýtti hon-
um fram á gólfið.
Verkfallssálmur
EFTIR JÓN FRÁ PÁLMHOLTI
Verkamaður, í dag er þhm dagur,
í dag skaltu öruggur stíga þín slrref.
I dag skaltu fylkja liSi og sýna mátt þiiui.
I dag skaltu rísa upp og mótmæla
svo lengi. nnmist
sex vikna lierferð sjúks auðvalds
á hendur þér og börnum þínum.
1 dag skaltu minnai heimimi á,
að barn þitt biður um brauð.
1 dag skaltu láta það berast
að kona þín þrái gott Ueimili.
1 dag verður þess miimst
að hið vinnandl fólk
stendur undir þjóðhmi,
fæðir hana og hlæðir,
en yerður sjálft að himgra
og ganga fátirklega khett.
1 dag skal minnst misréttis
þess auðvaldsþjóðfélags, sem sveltir böm.
1 dag skal þess minnst
að verkamenn eiga réttinn.
I dag skulu allir vinnandi menn
fylkja llðl til baráttu
fyrir samtökum sínum
og þar með tilveru sinni.
Verkamaður, í dag skaltu jninuást
þess hungurs, sem böm þín hafa þolað.
1 dag skaltu heilsa þeim mönnum,
sem hafa borið á þig þjófsorð.
I dag skaltu þakka þau hogg
er þú hefur hlotið.