Þjóðviljinn - 23.11.1955, Síða 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 23. nóvember 1955
★ ★1 dag er miðvikudagurinn
23. nóvember. Klemensmessa.
326 dagur ársins. — Sólarupp-
rás kl. 9:20. Sóíarlag kl. 15:08.
Tungl H hásuðri kl. 9:12. Há-
flæði kl. 11:36.
Kvöldskólinn
I kvöld fræðir Steingrímur
Aðalsteinsson, um tryggingar-
löggjöfina. Það er kl. 9.30 og
eru nemendur beðnir að mæta
stundvíslega. — Verkalýðssag-
an fellur niður í kvöld vegna
veikindaforfalla kennarans.
f \\/V' Kl. 8:30 Morgun-
, vÍaIN. útvarp. 9:10 Veð-
ál\\N urfregnir. 12:00
y Nl A Hádegisútvarp. —
/ \ \ 12:50-14:00 Við
vinnuna: Tónleikar af plötum.
15:30 Miðdegisútvarp. 16:30
Veðurfregnir. 18:00 íslenzku-
kennsla I. fl. 18:25 Veðurfregn-
"ír.' Í8:30 Þýzkukennsíá IÍ. fl.
18:55 Framburðarkemisla í
ensku. 19:10 Þingfréttir. Tón-
leikar. 19:40 Auglýsingar.
20:00 Fréttir. 20:30 Daglegt
mál. 20:35 Þetta er ekki hægt,
gamanþáttur eftir Guðmund
Sigurðsson. Stjórnandi: Rúrik
Haraldsson leikari. 21:20 Tón-
leikar (pl.): Francesca da Rim-
ini, hljómsveitarverk eftir Tsc-
hailcowsky (Fílharmoniska
hljómsveitin í Lundúnum leik-
ur; Sir Thomas Beecham stj.)
21:45 Hæstaréttarmál (Hákon
Guðmundsson). 22:00 Fréttir
og veðurfregnir. 22:10 Vöku-
lestur (Helgi Hjörvar). 22:25
Létt lög: a) Vico .Torriani syng-
ur. b) Alexander og harmon-
ikuhljómsveit hans leiká.
Rangæingafélagið í Reykjavík
minnist 20 ára afmælis síns
með veizlu í Tjarnarcafé þann
1. desember n.k. Þar flytja þeir
Ingólfur Jónsson ráðherra og
Gúðmundur Daníelsson rithöf-
undur ræður, fluttir verða
þættir úr sögu félagsins, leik-
arar skemmta og stiginn verð-
ur dans til kl. 2 eftir miðnætti.
Aðgöngumiðar verða seldir í
anddyri hússins mánudaginn
23. þ.m. klukkan 5 til 7 og
þriðjudaginn kl. 6 til 7.
Sýning Sig-
rúnar fram-
lengd
Listiðnaðarsýning Sigrúnar
Jónsdóttur í Bogasal Þjóð-
minjasafnsins, sem ljúka átti
um sl. helgi, hefur verið fram-
lengd; og verður hún opin kl.
1—10 daglega til sunnudags-
kvölds. Mjög mikil aðsókn var
að sýningunni um helgar, og
alls munu hafa séð hana hátt á
4. þúsund manns. — Nokk-
uð er selt af sýningar-
mununum, einkum batik-grip-
irnir; er mikið af mununum
til sölu, en þó ekki allir.
Sem sagt: sýningin er opin til
sunnudagskvölds.
V-
Við fórum nokkrum rúílum
fyrr sunnan Skálholt og stefnd-
úm béint vestur yfir vatna-
klasa, þar §em margt var af
álftum, vestur að Ólafsvöllum,
þar sem við komum um nón-
bil, og eins og vanalega, fór-
um við beint á fund prestsins.
Mér brá ekki lítið i brún, er
hann ávarpaði mig á góðri
ensku, sem hann hafði lært
af sj.álfum sér á löngum vetr-
arkvöldum. Meðan kaffið var
að sjóðá í katlinum, sýndi hann
mér bókasafn sitt, sem var
sæmilega ríkt af frönskum,
þýzkum, enskúm og dönskum
bókum, fyrir utan margar ís-
lenzkar bækur. Hann var flug-
læs á allar þessar tungur, og héraskinnshúfu
dönsku tálaði hann eins og
móðurmálið, eins og flestir ís-
lendingar, auk þess sem hann
kom sæmilega vel orðum að
því, sem’ hann vildi segja á
ensku og frönsku. þégar þess
er gætt, að maðurinn var
sjálfmenntaður og lifði af-
skekktu iífi þessu fásinni,
mátti kalla hann mjög góðan
málamann og vel að sér í sögu
og stjórnmálum Evrópu. Nátt-
úran virtist hafa gætt þennan
krj'ppling sálargáfum á kostn-
að líkamans, sem var allt ann-
að en ásjálegur. Eftir
klukkutíma viðtal um heima
og geima, frá „Austra hinum
mikla“ til síðustu herferðar-
innar, vildi hann endilega
fylgja mér hálfa leið yfir að
Hráungerði, sem er kirkjustað-
ur þriggja tíma ferð frá Ól-
afsvöllum, hinum megin við
Hvítá. Þar réð hann mér að
gista. . . .
Eftir að hafa fylgt mér að
hraunsendanum og hér úm bil
hálfa leið á áfangastað rninn
og talað ensku af öllum lífs-
og sálarkröftum, sneri vinur
minn hesti sínum við og kvaddi
okkur með virktum. Eg gat
ekki að mér gert að borfa á
eftir honum, er hann reið í
burtu skakkur í söðli og sendi
okkur brosandi kveð.iu. þ>ar
sem hann sat í hnipri á söðúl-
boganum eins og kósakki, með
á höfði, .”1-
flöskugrænum frakka, með
reiðsokka útan yfir skóm og
buxum og á ótótlegri hest-
pöddu í þokkabót, þá var hann
sannarlega einhver sá ósjáleg-
asti padre, sem ég hef nokkru
sinni augum litið. Fáum mundi
hafa dottið í hug, að þarna
færi einn af menntuðustu
mönnum þjóðar sinnar, — en
Island er ekki eina landið,
þar sem maður hittir menntun,
er mann varir minnst, og sjald-
an hefur menntun verið dýrk-
uð af hreinni hvötum en af
þessum samtýnismanni norður-
skautsbaugsins.
(C. S. Forbes í ferðabók, um
Jón Þorleifsson á Ólafsvöllum,
r.h ha * 1 . "
—rr—I--r—1 - --1--rrí--------i------
, - sifajjv JL >iíl--í:5'-Æ8l.-ríþ>c^'H
*l: :<g3J^3@§fð6í|
Næturvarzla
er í Ingólfsapóteki,
sundi, sími 1330.
Fischer-
LYFJARCOIE
Holts Aþótek | Kvöldvarzla tl
SSP- | kl. 8 alla dag>
Apóteb Austur- | nema laugar
bæjar j daga til kl 4
Tímaritið Sam-
vinnan hefur
borizt og flyt-
ur fyrst grein
um hinar upp-
rísandi kjör
búðir SlS. Greinargerð er um
opinber gjöld SÍS í 14 ár og
birt tafla um þau. Þá er grein-
in Félagsheimili hinna dreifðu
byggða, og birt þar undurfög-
ur mynd af Hlégarði. Þá er 3.
verðlaunasaga Samvinnunnar:
Glóðin, eftir Bjartmar Guð-
mundsson á Sandi. Ræða er
eftir Grím Jónsson í Hvera-
gerði flutt á aðalfundi Kaup-
félags Ámesinga. Sumargestir.
kvæði eftir Pál H. Jónsson frá
Laugum. Sú var tíðin, heitir
grein með mörgum myndum af
fornum háttum.Hvað er tryggt ?
heitir skemmtileg teikning
með skýringum. Jón í Yzta-
feili: Bagga-Siggi og sóknar-
vísur Ljósavatnssystkina. Þá
hefst í þessu tölublaði ný fram-
haldssaga. Er hún eftir Braga
Sigurjónsson og heitir Hrekk-
visi örlaganna. Þá er greinin
Bókhald í 5000 ár, og grein um
Paul Césanne — og enn er
margt ótalið í heftinu.
Esperantistafélagið Auroro
heldur fund í Edduhúsinu Lind-
argötu 9 A (uppi) í kvöld kl.
8.30.
Sextugsafmæli
Guðlaug Kjartansdóttir Kamp
Knox E 15 verður sextug í dag.
GETRAUN: Hvar er pessi ?nannsöfnuður staddur, og af
-^hvaða tilefni skyldi hann vera parna? (Myndin í gœr var
frá Geirpjófsfirði vestfa).
Söfnin eru opin
Bæjarbókasafnið
títlán: kl. 2-10 alla virka daga,
nema laugardaga kl. 2-7; sunnu
daga kl. 5-7.
Lesstofa: kl. 2-10 alla virka
daga, nema laugardaga kl. 10-
12 og 1-7; sunnudaga kl. 2-7.
ejóðmlnjasafnið
i þriðjudög-um, fimmtudögum og
augardögum.
kjóðskjalasafnlð
i virkum dögum kl. 10-12 of
14-19.
Landsbókasaf nið
d. 10-12, 13-19 og 20-22 alla virka
laga nema laugardaga k). 10-12 og
.3-19.
Listasafn Einars Jónssonar
Opið sunnudaga og miðviku
iaga kl. 1.30 til 3.30 frá 16.
september til 1. desember, síðan
verður safnið lokað vetrarmán-
íðina.
VáttúrugrlpasafnJð
tl. 13.30-15 á sunnudogum, 14-15 *
>riðjudögum og fimmtudögum
Leiðrétting
I frétt frá menningar- og frið-
arsamtökum íslenzkra kvenna í
sunnudagsblaðinu misritaðist
heimilisfang einnar konunnar,
sem tekur við bazarmunum.
Sigríður Jóhannesdóttir, sögð
eiga heima á Grettisgötu 64 en
átti að vera Grettisgötu 67.
GÁTAN
Fjórar skinnpílur
skjóta í eina trépílu.
Ráðning síðustu gátu: Yefstóll
Iírossgáta nr. 733
Lárétt:
2 féll 7 belju 9 kvennafn 10
þrír eins 16 skipstjóri 18 gil
20 flan 21 miða.
Lóðrétt:
I hræðslu 3 félag 4 hraðinn 5
skst 6 heimabruggið 8 klukka
II leikari 15 karlmannsnafn
17 sérhljóðar 19 fangamark.
Lausn á nr. 732
Lárétt:
1 fá 3 skák 7 org 9 afl 10
Sara 11 ao 13 ar 15 enni 17
Nói 19 nón 20 Anna 21 TN.
Lóðrétt:
1 Fossana 2 ára 4 KA 5 áfa
6 klofinn 8 grá 12 ann 14 Rón
16 nót 18 in.
Æskulýðsfélag
Laugar nessókna r
Fundur annað kvökl (fimmtu-
dag) kl. 8.30 í samkomusal
kirkjunnar. Fjölbreytt fundar-
efni. — Séra Garðar Svavars-
son.
/ '2 3 V S U
? 3 <5
/0 /1 /2
/3 m ■
/y /S Ib /7
/B /9 2o
21 , -r
Skipaútgerð ríkisins
Hekla kom til Rvíkur í gærkv.
að vestan úr hringferð. Esja
verður væntanlega á Akureyri
i dag á austurleið. Herðubreið
er væntanleg til Rvíkur í dag
írá Hornafirði. Skjaldbreið er í
Rvík. Þyrill fór frá Hafnarfirði
í gærkvöldi til Akraness og er
væntanlegur til Rvíkur í dag.
Skaftfellingur fer frá Rvík í
dag til Vestmannaeyja.
Skipadeild SlS
Hvassafell er á Sauðárkróki
Arnarfell er í Þorlákshöfn.
Jökulfell er í Amsterdam. Dis-
arfell fór frá Cork 21. þm til
Hamborgar og Rotterdam.
Litlafell ér' í Faxáflóá. Helga-
fell fer í dag frá Genova til
Roquetaa og Gandia. Werner
Vinnen fór í dag frá Wistmar
áleiðis til Reykjavikur.
Eimskip
Brúarfoss er í Hamborg. Detti-
foss fór frá Keflavík í gær til
Lysekil. Fjallfoss fór frá Hull
í gær til Reykjavíkur. Goða-
foss er í New York. Lagarfoss
foss fór frá Ákranesi í gær
til Keflavíkur og þaðan til Gd-
ynia og Ventspils. Gullfoss fór
frá Leith í gær til Reykjavík-
ur. Reykjafoss er í Reykja-
vík. Selfoss fór frá Akureyri í
gær til Ólafsfjarðar, Húsavík-
ur, Norðfjarðar og Reyðar-
f jarðar. Tröllafoss fór frá Vest-
mannaeyjum 12. þm til New
York. Tungufoss fór frá Vest-
mannaeyjum i gær til New
York. Baldur lestaði í Leith í
fyrradag til Reykjavíkur.
Sólfaxi fór til
Dsló, Kaupmanna-
bafnar og Ham-
borgar í morgun;
er væntanlegur aftur til Rvík-
ur kl. 18:15 á morgun.
Pan American fiugvél kom til
Keflavíkur kl. 1:15 í nótt og
hélt áfram til Prestvíkur og
London. Flugvélin kemur til
baka í nótt og heldur þá til
New York.
Innanlandsflug í dag er ráð-
gert að fljúga til Akureyrar,
Isafjarðar, Sanas og Vest-
mannaeyja. Á morgun er ráð-
gert að fljúga til Akureyrar,
Egilsstaða, Kópaskers og Vest-
mannaeyja.
Raffræðingaíéíag Islands
heldur framhaldsaðalfund í
kvöld kl. 8:30 í Aðalstræti 12,
uppi.
Húsmæðrafélag Reykjavíkúr
heldur fund annaðkvöld kl. 8 í
Borgartúni 7. Á dagskrá eru
fréttir frá nýloknum fundi
Bandalags kvenna í Reykjavík,
félagsvist; og ennfremur verður
smábazar með ódýrum jólafatn-
aði. Konur velkomnar.
Mæðraf élagskouur
Munið fundinn á fimmtudaginn
í Grófinni 1, kl. 8:30. Fjöl-
breytt dagskrá. — Stjómin.