Þjóðviljinn - 23.11.1955, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 23. nóvemtær 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (3
r t , • 1 1,1 , 1 l 1 Áskorun Bandalags kvenna til bæjarstjórnar:
Haustsynmg relags íslenzkra mynd- T, . ,, • v
i- J x v * i -ij [omstundaneimili sem vioast i bæn-
hstarmanna verður opnuð 1 kvold
Þar sýna 20 málarar og 5 myndhöggvarar
80-90 verk er fœst hafa veríS sýnd áSur
Kl. 8.30 í kvöld verður opnuð i Listamaniuuskálanum sam-
sýning listmálara og myndhöggvara, samtals 25 listamanna.
IÞað er Félag íslenzkra myndlistarmanna sem efnir til sýningar-
innar, en þátttaka í henni er þó ekki bundin við félaga þess
eina; utanfélagsmenn hafa einnig rétt tíi þátttöku, og eiga
nokkrir þeirra verk á sýningunni. Hún verður opin 12 daga.
„Hingað hafa komið myndir
frá ólíklegustu stöðum,“ sagði
formaður FlM, Svavar Guðna-
son, við fréttamann blaðsins í
gær er hann leit inn 1 Lista-
mannaskálann og spurði hvort
félagar FÍM einir hefðu rétt
til þátttöku í sýningunni. Síðan
komu þeir Jóhannes Jóhannes-
son og Sigurður Sigurðsson til
skjalanna og uppfræddu frétta-
manninn. Á sýningunni verða
milli 50 og 60 olíumálverk og
einnig nokkrar vatnslitamyndir.
Flestar þessara mynda hafa
ekki verið sýndar áður, og
meirihluti þeirra er til sölu.
Nokkrir málarar sýna nú verk
sín opinberlega fyrsta sinni, og
eru þeir þessir: Kristín Þor-
kelsd., Guðrún Svava Guðmunds
dóttir, Ágúst Petersen, Haf-
steinn Austmann, Jón B. Jóns-
son, Hrólfur Sigurðsson,
Gísli Kolbeinsson og Vil-
hjálmur Berg. Þessir nýju
málarar hafa flestir stundað
nám í Myndlistarskólanum. Þá
verður á sýningunni ný mynd
eftir Kjarval; þeir sögðu að
hún væri varla orðin þurr enn-
þá. Af öðrum málurum skal
nefna Guðmundu Andrésdóttur,
Braga Ásgeirsson, Benedikt
Gunnarsson, Karl Kvaran, Jó-
hannes Jóhannesson, Valtý Pét-
ursson og Kjartan Guðjónsson.
Og þegar hér var komið
sögu fóru þeir Karl Kvaran og
Sigurður Sigurðsson að rekja
sundur spotta til að hengja
myndimar upp á, en Jóhannes
settist við að skíra myndir
sínar. Bundið bláu, heitir ein;
eftir langa umhugsun skírði
hann aðra málverk; það var
komin uppástunga um Rapsó-
díu í rauðgulu á þriðju mynd-
ina, en nafnið mun hafa fallið
með jöfnum atkvæðum.
En það em lika höggmyndir
eins og áður segir. Ásmundur
Sveinsson og Magnús Á. Áma-
son voru þar og leiddu frétta-
manninn í allan sannleika. Ás-
mundur sýnir 3 myndir; tvær
þeirra hefur hann ekki sýnt áð-
ur, en hin þriðja: Höfuðlausn,
var á sýningu fyrir nokkmm
ámm. Höfuðlausn er uppkast
að minnismerki um Egil Skalla-
grímsson. Magnús sýnir eina
mynd: afsteypu af minnismerki
um Sigurbjörn Sveinsson skáld
— undurfagra mynd. Þá sýnir
Axel Helgason eina mynd; en
þá em ótaldar 14 myndir af
19, og þær eiga bræður tveir:
Jón og Guðmundur Benedikts-
synir (húsgagnasmiðir). Þeir
munu vera nær þrítugu, og
hófu nám hjá Ásmundi í Mynd-
listarskólanum fyrir 2 eða 3
árum; nú sýnir Jón 10 mynd-
ir, Guðmundur 4, flestar gerðar
í tré.
„Þeir eru ákaflega efnilegir,
þessir piltar," sagði Magnús
við fréttamanninn, „en ákaflega
hlédrægir. Við þurftum að
ganga lengi á eftir þeim, áður
én þeir féllust á að sýna með
okkur.“
m og leikvelli í nýju ibúðarhverfin
í samþykkt Bandalags kvenna í Reykjavík um barna-
og unglingavernd var m.a. skoraö á bæjarstjórnina að
hefja nú þegar starfrækslu tómstundaheimila sem víö-
ast í bænum og sjá um aö í hverju nýju íbúöarhverfi séu
jafnan skipulagöir og gerðir leikvellir fyrir börnin.
„1. Fundurinn skorar á bæjar-
stjórn Reykjavíkur að hefja nú
þegar starfrækslu tómstunda-
heimila, sem víðast í bænum.
Tómstundaheimili þessi séu rek-
in undir eftirliti kennara eða
annarra leiðbeinenda.
2. Fundurinn beinir þeirri á-
skorun til lögreglustjóra, að hann
sjái um, að samkomuhúsin verði
gerð ábyrg fyrir því að hleypa
ekki börnum og unglingum inn á
þá skemmtistaði, sem þeim er
með lögum eða reglugerðum
bannað að sækja.
3. Fundurinn beinir eindreg-
inni áskoru til hins háa Alþing-
Bifreiðar stærri en 8 farþega
verði háðar sérleyfisákvæðum
Frumvarp um skipulag fólksflutninga
með bifreiðum komið fram á Alþingi
Fram er komið á Alþingi frumvarp aö nýjum lögum
um skipulag fólksflutninga með bifreiöum. Á þaö að
koma í stað laga þeirra, sem nú gilda og um leið gerðar
nokkrar breytingar.
Mikil aðsóknað
kabarettsýningum
fslenzkra tóna
Mjög mikil aðsókn hefur verið
að kvöldskemmtunum íslenzkra
tóna í Austurbæjarbíói og hafa
miðar að hverri sýningu selzt
upp á svipstundu. Þriðja sýning
kabarettsins er í kvöld og er
uppselt að venju. 4. sýning verð-
ur síðan á föstudagskvöld og 5.
sýning sunnudagskvöld. — Mynd-
in er af Ingibjörgu Þorbergs,
sem er meðal skemmtikrafta.
Breytingarnar felast í 1. gr.
í>ar er svo ákveðið; „Engum er
heimilt að hafa með höndum
fólksflutninga með bifreiðum,
sem stærri séu en svo, að þær
rúmi átta farþega, nema hann
hafi til þess sérleyfi frá ríkis-
stjórninni. Slíkt sérleyfi þarf og
til að hafa á hendi fastar ferð-
ir eða áætlunarferðir til fólks-
flutninga með bifreiðum, er
rúma þrjá til átta farþega. Til
áætlunarferða teljast í lögum
þessum allar auglýstar ferðir og
allar ferðir, þar sem farþegum
eru seld einstök sæti í bifreiðum
á ákveðinni leið. Nú verður á-
greiningur um, hvað skuli telja
fastar ferðir eða áætlunarferðir,
og sker þá ráðherra úr.“
Þá er heimild fyrir ráðuneytið
til að taka ferðimar i sínar
fyrir sérleyfum.
Ríkisstjómin, sem flytur þetta
frv., gerir þá grein fyrir því, að
nú á þessu ári hafi verið fluttar
til landsins og teknar í notkun á
bifreiðastöðvum stærri bifreiðar
en áður, 7 til 8 farþega og ekki
sé talið rétt að standa gegn
þeirri þróun. Einnig hafi reynzt
nauðsynlegt, að setja skýrari á-
kvæði um hvað skuli teljast fast-
ar ferðir eða áætlunarferðir. Þá
sé orðið úrelt það ákvæði, sem
fjalli um svokallaða ,boddýbíla“.
Slík notkun vörubifreiða hafi nú
lagzt niður og ekki sé ástæða
til að ýta undir að hún verði tek-
in upp aftur, m. a. af öryggisá-
stæðum. Sé því lagt til að fella
það ákvæði niður.
is, að það' veiti nú þegar fjár-
festingu og áðra þá fyrirgreiðslu,
sem þarf, til stofnunar uppeld-
isskóla fyrir ungar stúlkur.
Kvennasamtökin vilja leggja á-
herzlu á, að í þessum skóla séu
kenndar bæði bóklegar og verk-
legar námsgreinar, og að hann
verði settur á jarðhitasvæði svo
hægt sé að kenna stúlkunum
fjölbreytta garðrækt o. fl.
Fræðslumálastjórnin setji skóla
þessum reglugerð.
4. Fundurinn fagnar andmæl-
um prestastefnu og biskups gegn
innflutningi og útgáfu sorprita,
og vill styðja kirkjuna af alhug
í þeirri baráttu. Vísar fundurinn
í því sambandi til fyrri sam-
þykkta sinna.
5. Fundurinn skorar á bæjar-
stjórn Reykjavíkur að sjá um,
að í hverju nýju íbúðarhverfi
séu jafnan skipulagðir og gerð-
ir leikvellir fyrir börn hverfisins.
Séu leikvellir þessir jafnan bún-
ir til notkunar á sama tíma
og íbúðir hverfisins. Telur fund-
urinn, að með slíkum fram-
kvæmdum væri stigið stórt spor
í áttina til þess, að stemma stigu
fyrir þeirri slysahættu, sem
börnum stafar af umferðinni á
götunum. Jafnframt telur fund-
urinn fulla nauðsyn til bera að
koma þegar upp leikvöllum í
ýmsum þeim bæjarhverfum, sem
nú þegar eru að nokkru upp-
komin, eða hafa smáíbúða- eða
fjölbýlishús í smíðum.
6. Fundurinn óskar eindregið
eftir því, að bæjarstjórn Reykja-
víkur sjái um útvegun á fjár-
festingarleyfi til þess að byggja
vöggustofu þá, sem elzta kven-
félag landsins, Thorvaldsensfé-
lagið, hefur undanfarin ár beitt
sér fyrir að byggja. Félagið á
góða, velsetta lóð fyrir húsið og
hefur þegar fengið teikningu af
vöggustofii. Th.fél. treystir sér
hvað efnahagshlið snertir að
koma húsinu upp strax og fjár-
festingarleyfi fæst.“
Ný atlaga afturhaldsins
3 nýjar barna- og unglinga-
bœkur frá útgáfu Æskunnar
Komnar eru út 3 bamabækur frá Barnablaöinu Æsk-
unni: Todda í tveim löndum, Bjallan hringir og Höröur
á Grund.
Framhald af- 12. síðu.
legri ræðu áðalágalla þess
breytta skipulags, sem nú á að
taka upp, auk þairra, sem þeg-
ar hefur verið rætt um. Benti
m.a. á eftirfarandi atriði.
Með því að fela framleiðslu-
ráði einkarétt til innflutnings
á grænmeti er verið að ganga
framhjá sjónarmiði neytend-
anna. Ríkisstofnun á bæði að
gæta hagsmuna framleiðenda
og neytenda, framleiðsluráð er
aðeins fulltrúi framleiðenda.
Reynslan liefur sýnt, að
framleiðsluráðinu er ekki eins
vei og Grænmetisverzlun rík-
isins treystandi til að fram-
kvæma fullkomið mat á garð-
ávöxtum, en það er vitanlega
mikið atriði fyrir neytendur.
Það er óleyst gáta, hver á
að vera raunverulegur eigandi
þessa nýja fyrirtækis. Ekki er
það ríkið, naumast framleiðslu-
ráð, það iieyrir hvorki undir
ríkisrekstur né einkarekstur.
Gunnar vísaði til álits for-
ráðamanna Grænmetisverzlunar
ríkisins og tii mótmæla ýmsra
kaupfélagsstjóra stærstu kaup-
félaganna og búnaðarfélaga.
Hér er um stórt mál að ræða.
Um ófyrirsjáanlega framtíð
mun það því miður verða svo,
að nokkur innflutningur hljóti
að verða á grænmeti og þá er
það mikið atriði fyrir neytend-
ur að þeirra sjónarmið sé ekki
fyrir borð borið og framleið-
endum sjálfum tvísýnn hagn-
aður af þessu nýja skipulagi.
Það er einnig alvarlegt mál,
ef afturhaldinu á að takast að
ræna ríkið hverri eigninni af
annarri. Slikt þarf að stöðva.
hendur, ef henta þykir. Ennfrem-
ur segir svo:
„Ráðherra getur undanþegið
frá isérleyfisskyldu á vissum
leiðum vörubifreðar, er flytja
að staðaldri framleiðsluvörur
bænda, en rúma auk þess allt
að átta farþegum, enda fullnægi
þær að öðru leyti settum regl-
um fyrir fólksflutningum. Und-
anþága skal veitt til ákveðins
tíma í senn. Sérleyfi þarf ekki
til fólksflutninga innan hvers
lögsagnarumdæmis, ef um er að
ræða hópferðir á héraðsmót eða
almennar skemmtanir. Bæjarfé-
lög skulu í þessu sambandi telj-
ast til þess lögsagnarumdæmis,
sem næst þeim er. Heimilt er ráð-
herra að undanþiggja sérleyfi
slíkar fólksflutningaferðir, sem
farnar eru milli lögsagnarum-
dæma.“
Svo segir að sýslu- og sveitar-
félög skuli að öðru jöfnu ganga
Hörður á Grund (sem raunar
er líka ætluð unglingum) er
eftir Skúla Þorsteinsson skóla-
stjóra á Eskifirði. Ilún er 149
blaðsiður, og fylgja nokkrar
teikningar. Höfundur segir í for-
mála að sögurnar í bókinni séu
skrifaðar fyrir börn og unglinga
sem unna dýrum og sveitalífi og
yndi hafa af ævintýrum. í fyrra
kom úþ barnabókin Börnin hlæja
og hoppa eftir sama höfund, og
fékk hún hinar ágætustu viðtök-
ur.
Todda í tveim löndum er eftir
Margréti Jónsdóttur, hinn kunna
bamabókahöfund. Er það 4. bók-
in þar sem Todda er aðalpersón-
an. Sagan er 124 blaðsíður. Segir
þar frá vist Toddu í Kaupmanna-
höfn um tveggja ár.a skeið, en
hugurinn leitar til íslands, og
hún hverfur aftur heim — „og
örlögin virðast vera ráðin“ stend-
ur þar; vafalaust verður 5.
Toddubókin um þau örlög.
Bjallan hringir er eftir Jennu
og Hreiðar á Akureyri, og er
11. bók þeirra. Sagan er 109
blaðsíður. Nokkrar teikningar
eftir Þórdísi Magnúsdóttur eru í
bókinni. Höfundar þessarar sögu
skrifuðu á sínum tíma hinar svo-
nefndu Öddubækur sem orðið
hafa vinsælar, og er góður blæc
yfir ritverkum þeirra.