Þjóðviljinn - 23.11.1955, Side 12
atlaga afturhaldsiris
hpi ríkisins
Hneykslisfmmvárpið um að leggja niður Græn
metisverzluniná hefurað nýju verið lagt fram
Ríkisstjórnin hefur nú látið meirihluta landbúnaðar-
nefndar neðri deildar flytja að nýju frumvarpið um af-
nám Grænmetisverzlunarinnar. Er það að vísu í ofur-
lítið breyttu formi, en inntak þess og' megintilgangur
sá sami.
Miðvikudagur 24. nóvember 1955 — 20. árg. — 266. tðlublað
Sá óvenjulegi atburður gerðist í gær að Ingi Ingi-
mundarson, fulltrúi sakadómara, lét varpa Guðlaugi Ein-
syni lögfræðingi út úr dómssal meö lögregluvaldi.
Grænmetisverzlun ríkisins
lögð niður.
Meginbreytingin frá núgild-
lögum felst í 4. gr. b-lið, sem
á að verða 30. gr. laganna.
Þar segir svo:
„Undir starfssvið framleiðslu-
ráðs fellur frá 1. janúar 1956
öll sú starfsemi, sem Græn-
metisverzlun ríkisins liefur nú
rneð höndum varðandi ræktuii
og sölu íslenzkra matjurta.
Skal sú stofnun, er upp frá
því annast verzlun með kartöfl-
ur og annað grænmeti í umboði
framleiðsluráðs, heita Græn-
metisverzlun landbúnaðarins."
í næstu grein segir, að ríkis-
stjórninni sé heimilt að selja
Grænmetisverzlun landbúnaðar-
ins fasteignir Grænmetisverzl-
unar ríkisins, eins og þær
verða, þegar lögin koma til
framkvæmda.
Þá koma ákvæði um einka-
rétt ríkisins (landbúnaðarráðu-
neytisins) til innflutnings á
grænmeti, um umboðsmenn
Grænmetisverzlunar landbúnað-
arins o. s. frv.
Fyrirtæki framleiðsluráðsins
á að fá einkaréttinn.
1 aðalatriðum er frumvarpið
eins og það sem lagt var fyr-
ir Alþingi rétt undir þinglokin
í fyrra, en náði þá ekki fram
að ganga, fyrst og fremst fyr-
ir harðvítuga andstöðu fulltrúa
Sósíalistaflokksins.
Nú er að vísu ekki beint gert
ráð fyrir í frv. að Grænmetis-
verzlun landbúnaðarins hafi
einkarétt til innflutnings á
kartöflum. Ráðherra hefur
einkaréttinn, en þegar búið er
að leggja niður þá rikisstofnun,
sem séð heiur um þennan inn-
flutning og afhenda með lögum
fyrirtæki framleiðsluráðs einka-
rétt til að verzla með græn-
meti í heildsölu, þá gefur það
auga leið, að þetta þýðir í
framkvæmdinni einkarétt Græn
metisverzlunar landbúnaðarins
til að flytja inn grænmeti.
Einn liður í sókn afturhaldsins
gegn ríkiseignum.
Þegar frv. kom til 1. umræðu
í gær, bentu þeir Sigurður
Guðnason og Einar Olgeirsson
á, hve hér væri verið að troða
Það var bandarísk leitarflug-
vél, sem fann flugvélarflakið
undir hamravegg fyrir ofan bæ-
inn Ós í Skilamannahreppi. Virð-
ist flugvélin hafa lent á fjallinu
fyriV ofain hamijabrúniina, en
fallið síðan fram af henni og
staðnæmst undir hamrinum.
Karl Eiríksson flugmaður,
flaug í lítilli flugvél upp að slys-
staðnum í ljósaskiptunum í gær
og gekk úr skugga um að þetta
viðsjáverða braut. Þetta væri
einn liðurinn í sókn íhaldsins
og afturhaldsins til að leggja
niður öll fyrirtæki ríkisins,
selja eða afhenda einstakling-
um eða, hagsmunahópum eignir
og völd ríkisins. Það væri kald-
hæðnislegt, að það skyldi nú
vera Framsóknarflokkurinn,
sem þarna gengi fram fyrir
skjöldu. Grænmetisverzlun rík-
isins væri einn ávöxturinn af
stjórnarsamvinnu Framsóknar
og Alþýðuflokksins á sínum
tíma. Nú hefði Framsókn for-
göngu um að tortíma þessu af-
Undanfarið ár hafa samein-
aðir verktakar notað vörubíla
frá hernum og Nello Teer til
að aka efni úr Stapafelli inn á
Keflavíkurflugvöll. Vörubíl-
stjórar á suðurnesjum telja að
með þessu hafi verið brotin lög
á þeim, þar sem sameinaðir
verktakar hafi með samningum
skuldbundið sig til að skipta
við vörubílstjórana. Sameinaðir
verktakar hafa hins vegar bor-
ið því við að þeir fengju því að-
eins þetta verkefni að þeir not
uðu tæki hersins, það væri skil-
yrði hernámsliðsins. Hefur
þetta staðið í stappi um skeið,
þar til bílstjórarnir á suður-
nesjum misstu þolinmæðina í
gær, óku af stað í 30-40 bílum
og stöðvuðu alla efnisflutninga
úr Stapafelli með því að leggja
bílunum þvert yfir veginn.
Reyndu sameinaðir verktakar
fyrst að fara aðrar leiðir til að
ná í efni og kölluðu síðan á
lögregluna, en hún þverneitaði
að skipta sér af málinu. Var þá
loks setzt að samningaborðinu,
var flakið af bandarisku æfinga-
flugvélinni, sem týnd var.
Sennilegt er talið að allir sem
í vélinni voru, 4 menn, hafi
farizt þegar er slysið varð.
Flokkur úr Flugbjörgunar-
sveitinni lagði af stað á slys-
staðinn síðdegis í gær. Leiðang-
urmenn gátu þó ekkert aðhafzt
þá vegna myrkurs og höfðust þvi
við á Akranesi í nótt. Ráðgert
var að leggja af stað á slysstað-
inn með birtingu í morgun.
kvæmi síhu. Sagði Einar, að
það væri sannarlega ástæða til
að spyrja: Hver er stefna
Framsóknarflokksins ? Hvað
veldur því, að hann leggur
slíkt kapp á að farga eignum
ríltisins ?
Þegar mál þetta kom til um-
ræðu í vor, rétt áður en þingi
lauk, rakti Gunnar M. Magn-
úss, sem þá sat á þingi, í ýtar-
Framhald á 3. síðu.
Ar til 16. ÚL
í gær var rétt ár þangað til 16.
Olympíuleikarnir á síðari tímum
hefjast í Molbourne i Ástralíu.
þetta verður í fyrsta skipti sem
leikarnir fara fram á suðurhveli
jarðar, en þar er sumar þegar
vetur er hér á norðurhvelinu.
og fékkst það bráðabirgðasam-
komulag að sameinaðir verktak-
ar skuldbinda sig til að taka
22 vörubíla af suðurnesjum til
starfa daglega til 20. desember.
Stjörnubíó hefur nú tryggt sér
til sýningar ýmsar kunnar kvik-
myndir frá síðustu árum.
í vikunni hefjast sýningar á
skemmtilegri þýzkri mynd sem
Úr myndinni Heiðu
nefnist Heiða (Heidi) og gerð er
eftir samnefndri sögu, er komið
hefur út á íslenzku. Af öðrum
kvikmyndum, sem sýndar verða
bráðlega í bíóinu, má nefna
Rekkjuna, sem gerð er eftir leik-
riti Jan de Hertogs, en það hefur
sem kunnugt er verið sýnt í
Þjóðleikhúsinu. Enn má geta
Bakara keisarans, tékkneskrar
gamanmyndar, og sænskrar
myndar, Allt heimsins yndi, en í
henni leikur Ulla Jacobsson aðal-
hlutverkið.
Síðar er von á Die letzte
Brúcke (þýzk), La malquerida
(mexikönsk), O Cangaceiro
Ingi var dómari í máli sem
risið hafði út af áfengisbroti
og var Guðlaugur Einarsson
mættur með salcborningi sem
réttargæzlumaður. Kom upp á-
greiningur milli dómarans og
lögfræðingsins, sem lauk með
því að dómarinn vísaði lög-
fræðingnum á dyr. Er lögfræð-
ingurinn neitaði að fara kallaði
dómarinn til tvo lögregluþjóna
og lét þá fjarlægja lögfræðing-
inn með handafli. Er Þjóðvilj-
anum ekki kunnugt um að
slíkur atburður hafi fyrr gerzt
í réttarsal hérlendis.
Þjóðviljinn hafði í gær tal af
Guðlaugi Eina.rssyni og spurði
hann um málavexti. Kvað hann
dómarann hafa neitað sér um
að fá að heyra það sem gerzt
hefði í rannsókn málsins: er
hann mótmælti þeirri afstöðu
Klakksvík
Framhald af 1. síðu.
ríkisstjórnin myndi ekki taka
endanlega ákvörðun um dvöl
herskipsins og dönsku lögregl-
unnar í Klakksvík fyrr en til-
lögur landsstjómar Færeyja
lægju fyrir. Hækkerup dóms-
málaráðherra kvað ógerlegt að
kalla danska liðsaflann brott
eftir sprenginguna.
(brasilísk), Le plaisir (frönsk),
On the Waterfront, Here to Eter-
nity og The Caine Mutiny
(bandarískar). Væntanlega getur
Þjóðviljinn Sagt nánar frá þess-
um kvikmyndum, þegar byrjað
verður að sýna þær.
Heftið byrjar á ummælum all--
margra listamanna í ýmsum
greinum um Laxness og veitingu
nóbelsverðlaunanna: Listamenn
hylla Laxness. Taka þar til máls
meðal annarra Snorri Hjartar-
son, þorsteinn Ö. Stephensen,
Ásmundur Sveinsson og Magnús
Á. Árnason. Þá er þýdd grein
um Laxness: Vandlæting og písl-
arvætti, eftir Lars-Göran Eiriks-
son. Hjörleifur Sigurðsson skrif-
ar um Listsýningar vor og haust.
Thor Vilhjálmsson birtir Viðtal
við Nínu. Einar Bragi á tvö ljóð.
Jón Óskar og Thor Vilhjálmsson
minnast Magnúsar Ásgeirssonar
Leifur þórarinsson skrifar um
Stravinsky. Geir Kristjánsson
hefðu þeir atburðir gerzt er
fyrr var lýst. Kvaðst Guðlaug-
ur þá hafa kært fyrir sakadóm-
ara og dómsmálaráðuneytinu,
og hefði sakadómari hnekkt
gerðum dómarans, þv.nnig að
hann hefði aftur fengið að fara
inn til sakborningsins og kynnt
sér það sem gerzt hefði í mál-
inu.
Þjóðviljinn hafði einnig tal
af Inga Ingimundarsyni, full-
trúa sakadómara, í gær. Kvaðst
hann ekkert vilja um málið
segja annað en það að vegna
framkomu lögfræðingsins fyrir
réttinum, hefði hann látið
varpa honum á dyr, er hann fór
ekki sjálfviljugur þrátt fyrir
aðvaranir.
Bjarni Böðvarsson
látinn
Bjarni Böðvarsson, hljóðfæra-
leikari, lézt í fyrradag í Land-
spítalanum, 55 ára að aldri.
Bjarni hafði um skeið átt við
erfiðan og þrálátan sjúkdóm að
stríða. Hafði verið gerður á hon-
um uppskurður en án árangurs.
Bjarni Böðvarsson var kunnur
og vinsæll hljóðfæraleikari.
Hann hafði og um áratuga skeið
verið öflugur þátttakandi í stétt-
arsamtökum hljóðfæraleikara og
oftsinnis formaður félags þeirra
og gegnt fjölmörgum öðrum
trúnaðarstörfum í þágu þess. Við
fráfall Bjarna á Félag íslenzkra
hljóðfæraleikara tvímælalaust á
bak að sjá sínum reyndasta og
traustasta f orustumanni, sem
jafnan reyndist stéttarbræðrum
sínum fómfús og ráðhollur þegar
vandamál samtakanna bar að
höndum.
þýðir Ijóð eftir Púskin. Ási í Bæ
á söguna Agn. Grein er eftir
Carl Nielsen um Mozart. Þá er
Syrpa Thors Vilhjálmssonar —
og ber sitthvað á góma. Tvö ljóð
eru eftir Emil Eyjólfsson, og
Hörður Ágústsson skrifar fram-
hald greinar sinnar um Bygging-
arlist. Að lokum er fyrsti hluti
greinar um Albert Einstein, eftir
Magnús Magnússon eðlisfræðng.
Ótalið er það sem er á lð.
síðu heftisins: sögulegt dókú-
ment, sem lesendum er sjálfum
eftirlátið að uppgötva.
Eins og sjá má er efni heftis-
ins einkar fjölbreytt, og heitir
ritstjórinn nýju hefti fyrir jól.
Rugvéiin rakst á AkrafiaEI
Flakiö af bandarísku æfingaflugvélinni, sem týndist í
fyrradag, fannst um miöjan dag í gær í Akrafjalli.
Stöðvuðu vinnu með því að
leggja bílum þvert yfir veginn
Bílstjórar á suðurnesjum knýja fram
samninga við sameinaða verktaka
f gær stöövuöu bílstjórar af suöurnesjum .alla efnis-
flutninga sameinaöra verktaka úr Stapafelli og knúöu
þannig fram samninga um ágreiningsmál sem staöiö
hefur lengi.
Margar kunnar myndir í Stjörnubíéi
Myndarlegt hausthefti
Birtings er komið út
Hausthefti bókmeimta- og listatímaritsins Birtings er komið
út. Er það 3. liefti árgangsins, að vísu nokkru seinna á ferðinni
en ætlað var, en myndarlega úr garði gert um efni og útlit.