Þjóðviljinn - 18.02.1956, Side 1
ILaugardagur 18. februar 1956 — 21. árgangur — 41. fölublað
Framvarp sósíalista um uppsögn heraámssamníngsins iil l.umræðuígær
ku.
Ábyrgðarmenn hernámsins treysta
sér ekki til að verja gerðir sínar
Vilja þeir varanlegt hernáni á friðartímum — eða reyna að afplána
sektsína með því að samþykkja uppsögn hernámssamningsins?
Allar þær afsakanir, sem ábyrgðarmenn hemáms-
ins færðu fram 1951, til að réttlæta það að kalla
bandarískan her inn í landið, eru orðnar að engu.
Nú er ekki nema um tvennt að ræða fyrir þing-
menninasem óskuðu eftir hernáminu 1951. Annað-
hvort að viðurkenna að þeir hafi viljað og vilji til
frambúðar binda ísienzku þjóðinni óbærilegan bagga
erlendra herstöðva á friðartímum, — eða samþykkja
framvarp sósíalista um uppsögn hemámssamnings-
ins eða aðrar sambærilegar tillögur um þau mál.
Á þessi atriði lagði Einar
Olgeirsson þunga áherzlu á
fundi neðri deildar Alþingis í
gær, er kann fiutti framsögu
fyrir frumvarpi sósíalistaþing-
mannanna um uppsögn her-
námssamningsins milli íslands
IL\I.Í.1)ÓK KILJAN;
rnyndin er tekin um svipað leyti
og Alþýðubókin liom fyrst út.<^
og Bandaríkjanna og afnám
laga um lagagildi hans.
Efni frumvarpsins felst, eins
og áður hefur verið skýrt frá, í
þessum greinum.
1. gr. Ríkisstjórn IsLands
skal tilkymm ráði Norður-
Atlantshafsbandalagsins,
þegar eftir að lög þessi hafa
öðla/.t gildi, að tsland hafi
ákveðið að segja varnar-
samningi milli fslands og
Bandaríkjanna upp með til-
skildum fyrirvara og endur-
skoðun sé aðeins formsatriði.
Sex mánuðum eftir þá til-
kynningu til nefnds ráðs
- skaí rflíissstjórnin tilkynna
stjórn Bandaríkja Norður-
Ameríku uppsögn sanmings-
ins og sjá svo um, að tólf
mánuðum eftir það liafi
Bandaríiiin flutt allt sitt lið
af landi brott.
varnarsamnings milii íslands
og Biandaríkjanna og um
réttarstöðu liðs Bandaríkj-
anna og eignir þess nr. 110
19. des. 1951, falia úr gildi,
um leið og vamarsamning-
urinn fellur niður sam-
kvæmt 1. gr.
3. gr. Lög þessi öðlazt
þegar gildi.
2. gr. Lög um lagagiidi
Fjórða útgáfa af Alþýðubók
Halldórs Kiljans komin út
Einvörðungu æiluð félögum Máls og
menningar og verður ekki til sölu
í bókabúðum
Á mánudag kemui’ út síöari félagsbók Máls og menn-
ingar 1955, og er þaö' fjóröa útgáfa á Alþýð'ubók Halldórs
Kiljans Laxness, gefin út í minningu þeírra tíöinda að
höfundur hennar fékk bókmenntaverölaun Nóbels.
Jón Helgason prófessor skrif-
ar formála fyrir þessari útgáfu
og segir m.a.: ,,Alþýðubókin,
sem hér birtist. í minningu þess-
ara tíðinda, er aðeins igripa-
verk milli tveggja mikilla skáld-
verka. En hún mun jafnan verða
talin vitnisburður um merkileg
tímamót i sögu höfundar sem
aidrei hefur látið sinn hlut eftir
liggja að ræða vandamál lið-
andi stunda með einarðlegum og
sérkennilegum hætti og aldrei
taldi það hlutverk skálda að
einangra. sig frá stríðandi lýði,
heldur vildi berjast fyrir fegra
og bjartara mannlífi."
Einnig birtast þarna formál-
ar þeir sem Halldór skiifaði
með annarri og þriðju útgáfu.
Fjölmargar myndir eru í bók-
inni, frá æsku Halldórs og ýms-
um tímabilum ævi hans, einnig
margar myndir frá nóbelshátíð-
tíðahöldunum í Stokkhólmi.
Hafa. margar þeirra ekki komið
fyrir almenningssjónir áður.
Þessi útgáfa er einvörðungu
ætluð félogum Máls og menn-
ingar, og vei'ður ekki seld í
bókabúðum.
★ Heimtuðu herstöðvar —
tíl 99 ára
Rifjaði Einar upp forsögu
hemámssamningsins, hvemig
hindrað var að Bandaríkin
fengju framgengt vilja sínum
er þeir heimtuðu 1945 að fá
þrjár herstöðvar á íslandi til
99 ára.
Það sem síðan hefur gerzt
er að Bandaríkjastjórn setti
sér þá hernaðaráætlun að ná
því í áföngum sem ekki fékkst
1945, en sú ógæfuleið er mörk-
uð Keflavíkursamningnurr
1946, inngöngunni í Atlanz-
hafsbandalagið 1949 og loks
bandarísku hemámi 1951.
★ Áætlun Bandaríkja.stjórnar
í áföngum
Minnti Einar á hve ósvífir
ásókn Bandaríkjanna hefði ver-
ið alla stund meðan verið var
að framkvæma þessa liernaðar-
áætlun. Óspart liefði verið
svarið að aldrei skyldu verða
herstöðvar á íslandi á friðar-
tímum, jafnt af utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna og ís-
lenzkum stjórnmálamönnum.
meðan verið var að blekkja
þjóðina og rugla, svíkja upp á
hana bandarísku herstöðvarn-
ar.
★ Hvar er nú stríð?
Árið 1951 hefði hernámið
verið afsakað með Kóreustríð-
inu. Skoraði Einar á ábyrgðar-
menn hemámsins aö segja til
hvar væri stríð í Htiminum til
að réttlæta með hernám Islands.
Að vísu væri barizt á Malakka-
skaga, i Kenya. og í Norður-Af-
ríku, en þar væru það herir
Bretlands og Frakklands, her-
sveitir Atlanzhafsbandaiagsins,
sem væm að reyna að berja
niður frelsishreyfingu nýlendu-
þjóða.
Ef ábyrgða rmeryi hernámsins
þingrnennimir sem óskuðu eftir.'
bandarískum herstöðvum á Is-
landi, ætluðu að hörfa til þeirrar
röksemdar að hér yrðu að vera
bandarískar herstöóvar meðan
vígbúizt væri í heiminum, væri
það sama og yfirlýsing um að
þeir vildu hafa bandarískar her-
stöðvar hér á landi á friðar-
tímum um langa framtið.
★ Geig\ænleg spillingaráhrif.
Einar minnti á spillingará-
hrif herstöðvanna, hvemig þau
spillingaráhrif gripa inn á stoð-
ugt fleiri svið og trufla efna-
hagslíf þjóðarinnar.
Þimg væri ábyrgð þeirra
þingmanna og stjómmálaflokka
sem óskað hefðu eftir erlendum
herstöðvum. Nú hefðu þeir
tækifæri til að standa við fyrri
svardaga að hér ætti ekki að
vera erlendur her á friðartím-
um.
Að vísu væru sterk öfi sem
öftruðu þessum alþingismönn-
um að játa afbrot sin og
reyna að bæta fyrir þau. Þeim
væri stjórnað frá Washington,
í krafti áhrifavalds sem erlend
ríkisstjórn, erlend auðmanna-
stétt, hefði náð í efnahagslifi
íslendinga síðustu árin.
Framhald á 8 síðu
| Landlielgié-" |
! ftrjétur áæmdnrj
í öðru sinni í
5 :
: í gær var í sakadómi ■
S u
: Reykjavíkur kveðinn upp •
: dómur í máli skipstjórans á ■
: belgíska togaranum Curie «
: O—88, sem staðinn var að ■
: ólöglegum botnvörpuveiðum 5
5 innan við fiskveiðitakmörkin :
* ■
; s.l. miðvikudagskvöld. Var :
■ ■
■ skipstjórinn, Maurice Brackx, :
» ■
■ dæmdur í 90 þús. króna sekt :
■ til landhelgissjóðs íslands og :
“ 5
• afli skipsins og veiðarfæri :
■ ■
• gert upptækt. Hér var um :
• ítrekað brot hjá skipstjóran- ■
m ■
: um að ræða; hann var dæmd- ■
: ur í Vestmannaeyjum hinn 6. ■
: desember 1954 fyrir ólöglegar »
: botnvörpuveiðar í landhelgi. ■
Félagsvist
Sósíalistafélag Reykjavíkur og
Kveníéiag sósíalista hafa félags-
vist annað kvöld kl. 8.30. Að
vistinni lokinni flytur Þorvaldur
Þórarinsson ávarp og Karl Guð-
mundsson leikari skemmtir.
Kaffi o. fl. —
— Vissara er að tilkynna þátt-
töku sem allra fyrst í skrifstofu
Sósíalistafélags Reykjavíkur kl.
10—12 og 1—8 í dag, sími 7511.
Robert Masset, ræðismaður ís-
lands í Boulogne sur Mer, and-
aðist hinn 16. febrúar s.l.
(Frá utanríkisráðuneytinu)
Áróðursbelgir á
flugleiðum
Hér sést einn af iieim banda-
risku áróðursbelgjum sem gert
hafa flugleiðir ótryggar yfir
Austur-Evrópu og reyndar víð-
ar. Vetni cr í belgnmn og tíma-
sprengja er noituð til að dreifa
flugrituuum. TíinaspreMgjuklukk-
an er merkt: „Made in USA“.
Beigirnir standa þegar í björtu
báli ef þeir rekast á eitthvað.