Þjóðviljinn - 18.10.1956, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 18. október 1956 — 21. árgangur — 238. tölublað
Munið
Happdrætti
Þjóðviljans
Vetnissprengingabann er
ialvopn demókrata í USA
Sfevenson gefur i skyn a3 hann muni
beifa sér fyrir fundi œSsfu manna
Aðaltromp demókrata í baráttunni fyrir forsetakosn-
ingarnar í Bandaríkjunum eftir tæpan hálfan mánuö er
loforð Stevensons, forsetaefnis þeirra, að beita sér fyrir
banni við tilraunum með vetnissprengjur og nú hefur
hann látið hafa eftir sér, að hann muni beita sér fyrir
fundi æðstu manna stórveldanna, ef hann verði kjörinn,
til að semja um slíkt bann.
Ste.venson hefur hvað eftir
annað á undanförnum vikum
lýst yfir, að Bandaríkin ættu
að beita sér fyrir banni við
vetnissprengingum. Hann hefur
haldið því fram, að Bandarík-
in hefðu engan hag af slíkum
sprengingum framvegis, ef önnur
Blauche Tkbom
syngur fyrir Tón-
nstarfélagið
Bandaríska óperusöngkonan
Blanche Thebom, mezzosópran
við Metropolitanóperuna í New
York, er komin hingað til
lands, og í kvöld og annað
kvöld syngur hún í Austurbæj-
arbíói fyrir styrktarfélaga Tón-
listarfélagsins. Söngskemmtan-
irnar hefjast bæði kvöldin kl.
7. Á efnisskránni eru þrjú lög
eftir Beethoven, fimm lög eftir
Richard Strauss og þrjú eftir
Sibelius. Einnig syngur hún lög
eftir Oscar Rasbach, Celius
Dougherty, W. Peterson-Berg-
er og Josef Jonson, aríu eft-
ir Massenet og þrjá negra-
sálma. William Hughes aðstoð-
ar söngkonuna.
ríki féllust einnig á að hætta
við þær. Hann hefur einnig
bent á, að mjög auðvelt væri að
Stevenson ræðu í sjónvarp og
útvarp og var hún að miklu leyti
helguð þessu máli og þar lof-
iaði Stevenson að beita sér fyrir
framkvæmd þess, ef hann yrði
kosinn forseti Bandaríkjanna 6.
nóvember n.k.
Vísindamenn styðja
rök hans
Tíu kunnir bandarískir vís-
indamenn, sem eru sérfróðir á Eins og Þjóðviljinn skýrði frá í gær skemmdist bifreiðin
þessu sviði, hafa gefið út tii- q 217 mjög verulega er hún ók út af Keflavíkurveginum
kynningu, þar sem þeir styðja skammt frá Kálfatjörn í fyrradag. Gefu myndin nokkra
kröfu Stevensons um bann við hUgmyng um þag hvernig hlassið skall á húsinu og lagði
það að heita má saman. Er mikil mildi að bílstjóri og
farpegi skyldu komast lífs af.
Adlai Stevenson
ít-
fylgjast með því, að ekki væri
brotið gegn slíku banni, þar sem
engin leið væri að sprengja svo
vetnissprengju nokkursstaðar í
heiminum, að það lcæmist ekki
upp.
V etnissprengjubaim
aðaltrompið
Á fundi æðstu stjórnar demó-
krata, sem haldinn var um síð-
ustu helgi, var ákveðið að vetn-
issprengjubannið skyldi verða að-
altromp þeirra í kosningabarátt-
unni.
Á þriðjudagskvöldið flutti
vetnissprengingum.
Þeir telja víst að mörg lönd
muni innan skamms verða fær
um að framleiða kjárnorku-
sprengjur og komast síðan svo
að orði:
„Brátt kemur að því, að jafn-
vel takmarkaðar hernaðarað-
gerðir hljóta óhjákvæmilega að
leiða til kjarnorkustyrjaldar. Það
á ekki að leyna þjóð okkar þeim
ógnþrungna veruleika sem við
augum blasir. Almenningur verð-
ur að skilja liver hætta okkur
stafar af geislavirku ryki.
Að okkar áliti myndi tillaga
Adlai Stevensons vera gagnleg
leið til að koma samningaumleit-
unum um þetta mál úr þeim
ógöngum, sem þær eru nú í“.
Framhald á 5. síðu
Sendibíll ók á leigubíl
og fór í marga parta —
en mennirnir sem voru í honum íundust
ómeiddir í brahinu
Snemma í gærmorgun ók sendiferðabíllinn R-1806
aftan á leigubifreið, er var að taka farþega á Hringbraut
sunnan hljómskálagarðsins; fór sendibíllinn í marga
parta, en enginn maöur meiddist svo orð sé á gerandi.
1 sendibílnum, sem er Chevro-
let, árgerð 1935, voru tveir
Emil Jónsson kjörinn for-
seti sameinaðs þings
Gunnar Jóhannsson og Karl Kristjánsson
varaforsetar
Á fundi Alþingis í gær fór fram kjör forseta sameinaðs
þings, fyrsta og annars varaforseta, skrifara og kjör-
bréfanefndar.
Kosning féll þannig að forseti
sameinaðs þings var kjörinn
Einil Jónsson með 31 atkvæði.
Jón Pálmason forsetaefni Sjálf-
stæðisflokksins hlaut 18 at-
kvæði.
Fyrsti varaforseti sameinaðs
þings var kjörinn Gunnar Jó-
liannsson með 29 atkvæðum.
Bernharð Stefánsson hlaut 1
atkvæði, en 20 seðlar voru auð-
ir.
Annar varaforseti var kjör-
inn Karl Kristjánsson með 32
atkvæðum, en 19 seðlar voru
auðir.
Þá fór fram kosning skrifara
og varð sjálfkjörinn af sam-
eiginlegum lista stjórnarflokk-
anna Skúli Guðmundsson, en
Friðjón Þórðarson af lista
Sjálfstæðisflokksins.
Þá var kjörin kjörbréfanefnd
og er hún skipuð þessum þing-
mönnum: Gísla Guðmundssyni,
Alfreð Gíslasyni, Áka Jakobs-
syni, Bjarna Benediktssyni og
Friðjóni Þórðarsyni.
Er hér var komið frestaði
forseti fundi til kl. 13.30 í dag
og fer þá fram kosning til
efri deildar, svo og kosning for-
seta beggja þingdeilda.
Júgóslavar afþakka gjafir og
hemaðaraðstoð frá USA
En vilja gjarnan fá lán til langs tíma til
kaupa á landbúnaðarafurðum þar
Stjórn Júgóslavíu hefur skýrt Bandaríkjastjórn frá því,
að hún kæri sig ekki lengur um að taka við hernaðar-
aðstoð frá Bandaríkjunum né gjöfum, en vilji hins vegar
fá lán til langs tíma til kaupa á landbúnaðarafurðum.
Stjórn Júgóslavíu sendi
Bandaríkjastjórn í gær orð-
sendingu, þar sem hún kvartar
yfir óviðkunnanlegu orðalagi
á tilkynningu Eisenhowers for-
seta á mánudaginn var um þá
ákvörðun sína að áfram skyldi
haldið að veita Júgóslavíu efna
hagsaðstoð, en hætt við hern-
5000 handteknir
Tilkynnt var í Hongkong í
í fyrradag, að nú væri vitað um
alls 56 menn sem látið hefðu
lífið í óeirðunum í Kálún í síð-
ustu viku. 5000 menn hafa ver-
ið handteknir fyrir hafa tekið
þátt í óeirðunum og mikill hluti
þeirra situr enn í fangelsum.
Um 130 menn sem særðust í ó-
eirðunum liggja enn í sjúkra-
húsum.
aðaraðstoð, a. m. k. fyrst um
sinn. Eisenhower hafði gefið í
skyn, að ekki væri óhætt að
ganga að því sem vísu, að
Júgóslavía væri með öllu óháð
Sovétríkjunum.
Júgóslavneska stjórnin segir,
að eins og nú sé búið um
hnútana af hálfu Bandaríkj-
anna, sé mjög hæpið fyrir
hana að treysta í framtíðinni
á nokkra hernaðaraðstoð frá
þeim. Því telur hún að betra
væri, að þeirri aðstoð verði
hætt með öllu, en henni hins
vegar veitt lán til langs tíma
til kaupa á landbúnaðarafurð
um af hinum bandarísku of-
framleiðslubirgðum.
Júgóslavneska stjórnin tekur
fram, að það hafi engin áhrif
á hina góðu sambúð Júgóslavíu
og Bandaríkjanna, þó hætt
verði við hernaðaraðstoðina.
menn. Er mennirnir í leigubíln-
um, sem á var ekið, fóru að
huga að þeim sáu þeir annan
liggja innundir brakið af sendi-
bílnum; og stóð hann upp ó-
meiddur í sama bili. Bílstjór-
ann sáu þeir hinsvegar ekki,
en þegar betur var að gá<$
fannst hann undir brakinu*
einnig ómeiddur. Sendibíllina
fór í ótal parta, meðal annars
brotnuðu bæði framhjólin und-
an honum við ákeyrsluna; og
er hreinasta furða að menn-
irnir skyldu sleppa án þess að
stórslasast.
Mennirnir sem voru að fara
í leigubílinn meiddust heldur
ekki, en bíllinn skemmdist
nokkuð.
Leigubíllinn stóð með ljósum
á brautinni, og sýnist líklegt
að í sendibílnum hafi verið á
ferðinni einn af allmörgum
ökugikkjum hér í bæ.
HHPPORŒTTi PJÍMJflHS
Nú eru aðeins 14 dagar þang-
að til dregið verður í liapp-
drætti Þjóðviljans. Allir sem
fengið hafa miða ættu að nota
þessa daga vel og gera skil
jafnóðum og þeir hafa selt sína
miða. Enn fleiri þurfa að taka
þátt í miðasölunni. Flokksfóf:
og aðrir velunnarar Þjóðvilj-
ans, herðið söluna. Yerum sar--
taka að gera árangur happ-
drættisins sem beztan.
Óðum styttist þar til dregið verður, gerið skil fyrir selda happdrættismiða