Þjóðviljinn - 18.10.1956, Qupperneq 3
Fimmtudagur L8. október 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (3
ianslagakeppni S.K.T. hefur áorkað því að
íslenzk Ijóð og lög hafa komið í stað
hinna erlendu söngva er áður ríktu
Næsfa danslagakeppni S.K.T. heísf á laugardaginn
«>
Sjöunda danslagakeppni SKT hefst á laugardaginr,
kemur. Frá því keppni þessi hófst 1950 hefur mikil breyt-
ing oröiS á danssöngvum hér, íslenzk ljóS og lög hafí.
aS verulegu leyti komiS í staS erlendra söngva, sunginnr.
á erlendum málum á íslenzkum skemmtunum.
Auk ísl. dægurlagahöfunda svo
sem Sigfúsar Halldórssonar, Olí-
vers Guðmundssonar og Oddgeirs
Kristjánssonar, er kunnir voru
áður en keppnir SKT hófust
liafa komið fram nýir höfundar,
liægir að nefna Svavar Bene-
diktsson, Jenna Jónsson, Ágúst
Pétursson, Steingrím Sigfússon
og Jón frá Hvanná.
28 LÖG
I þetta sinn hafa 28 lög af
þeim sem bárust verið tekin til
keppninnar. Verða greidd at-
kvæði um 7 lög á kvöldi, lög við
gömlu dansan.a á laugardags-
kvöldum og ný j u dansana á
sunnudagskvöldum. Stendur
keppnin þannig 4 kvöld, og loks
er úrslitakeppnin þriðju helg-
ina.
12 TIL ÚRSLITA
Þrjú lög verða valin hvert
kvöld til þátttöku í úrslitakeppn-
inni, er fer fram síðar, koma
þannig alls 12 lög til úrslita-
keppni. Skemmtanagestir greiða
verður starfandi dómnefnd.
Hljómsveit Carls Billich leikur
lögin og munu þessir dægurlaga-
söngvarar syngja þau: Svava
Þorbjarnardóttir, Sigurður Ól-
afsson, Adda Örnólfsdóttir,
Haukur Mortens og Jóna Gunn-
arsdóttir.
GÓÐ VERDLAUN
Hljóðfæraverzlun Sigríðar
Helgadóttur gefur gítar (verð
kr. 500,00) í verðlaun fyrir bezta
lagið við nýju dansana 'óg pá!k-
irin gefur öperu (á plötumT að
eigin vali fyrir bezta lagið við
gömlu dansana.
Flugfélag íslands hefur boð-
ið far til Kaupmannahafnar og
heim aftur, og ferðaskrifstofan
Orlof vikudvöl í Kaupmanna-
höfn í verðlaun til höfund.ar
bess lags er flest atkvæði fær' í
keppninni.
ÚRSLIT í AUSTUR-
B/EJARBÍÓI
Um þrjár helgar fer keppnin
atkvæði um lögin, en auk þess?ð venju fram í Góðtemplarahús-
stiienlar
í gær komu hingað til Reykjavíkur á vegum Stúd-
entaráðs Háskóla íslands fimm bandarískir háskólastúd-
entar, fjórir piltar og ein stúlka.
Koma þeirra hingað er liður
í stúdentaskiptum, sem tekizt
liafa með Stúdentaráði og
bandarískum stúdentasamtök-
um, en eins og kunnugt er fóru
fimm íslenzkir stúdentar vest-
ur um haf sl. vor og dvöldust
í Bandaríkjunum um nokkurra
vikna skeið í boði samtaka
stúdenta þar.
Bandarísku stúdentarnir, sem
Fræðsltirit um
bindindismál
Áfengisvarnaráð hefur gefið
út bækling um bindindismál og
nefnist hann Ungur nemur —
gamaíl temur. Hannes J. Magn-
ússon kennari tók rit þetta
saman að tilhlutan Bindindis-
félags íslenzkra kennara. 1 for-
mála segir Hannes að bókinni
sé ætlað það hlutverk að vera
námsbók eða lestrarbók í bind-
indisfræðslu fyrir börn og
unglinga, en til þessa hefur
skort handhæga bók til að
styðjast við í fræðslu þessari.
Aðalhluti bókarinnar fjallar
um áfengi og skaðsemi áfeng-
isneyzlu, en nokkur hluti er
um tóbakið og áhrif þess og
er höfundur Níels Dungal próf-
essor. Bæklingurinn er 64
blaðsíður, í honum eru fjöl-
margar myndir sem Stefán
Jónsson hefur teiknað.
inu, en úrslitakeppnin fer fram
í Austurbæjarbíói. Gestir Góð-
templarahússins ráða einungis
hvaða lög komast í úrslit, því
.auk þeirra sem atkvæði greiða
á skemmtununum sjálfum verða
atkvæði utan af landi tekin til
greina •—• lögunum verður út-
varpað. Munu öll blöðin flytja
atkvæðaseðla er lesendur geta
notað til þátttöku. Má því bú-
ast við óvenjumikilli þátttöku
í atkvæðagreiðslu um lögin nú.
SAMNORRÆN
KEPPNI
í viðtali við blaðamenn í gær
sagði Freymóður Jóhannesson
aðspurður að hann hefði hug á
að kom.a á norrænni danslaga-
keppni, er fram færi í hverju
landi fyrir sig, þar sem valin
yrðu t.d. 3 lög frá hverju l.andi
til* sameiginlegrar úrslitakeppni.
En þessi hugmynd er ekki kom-
in á framkvæmdastigið ennþá.
ÁFENGISLAUSAR
SKEMMTANIR
Stjórn S.K.T. ræddi við b’aða-
menn í gær um keppni þessa og
sagði Haraldur Norðdahl þá m.a.
að templarar hefðu alla tíð taJið
það hlutverk sitt að halda uppi
áfengislausum skemmtunum, og
staðreynd væri að fjöldi heimila
vildi heldur vita af bömum sín-
um á skemmtunum templara
heldur er á brennivínsstöðun-
um. Þáð verkefni .að gefa mönn-
umkost á að skemmta sér án
áfengis væri stærra nú en áður
Einar Gunnar Einarsson
kosinr formaéi
fi
Á aðalfundi Æsk ýð'sfylkingarinnar í Reykjavík í gær-
kvöld var Einar Gimnar Einarsson lögfræðingur kosinn
formaður ÆFR fyrii næsta kjörtímabil, sem er til vors.
Varaformaður var
hannes B. Jónsson i
Jó- 'ari Lúther
rit- gjaldkeri Ein
i maður Me "
kjörin þau
skrifstofustú! i
sælsson verkr
Hringsson ■
Þrír var. ..
voru kjörin
arson mennt;
rnsson iðnnemi,
ísgeirsson verka-
ómendur voru
íargrét Blöndal
Hrafnkell Ár-
:ður og ísak Öra
imaður.
i í stjórn ÆFR
Albína Thord-
ílanemandi, Sig-
urður Guðmuncisson iðnnemi og
Örn Friðrik: :-on neniandi.
Einar Gunnar Einarsson
iMméfnirJÍ
neskiinámsl
Reykjavíkurdeild
S rií&s-
kClÖS
K mun
í vetur efua til námskeiðs i
rússnesku og er ráðger i það; erindi. Öllum er heimill aðgang-
ur.
Viðskiptafræðingar og við-
skiptafræðinemar munu minn-
ast þess í dag, að 15 ár eru
liðin frá því, að kennsla hófst
í viðskiptafræðum við Háskóla
Islands. Verður samkoma í há-
tíðarsal Háskólans "kl. 5. Meðal
ræðumanna verður mennta-
málaráðherra ;g formenn fé-
lags viðskiptafræðinga og fé-
lags viðskiptafræðinema. Próf.
Ólafur Björnsson mun flytja
hefjist um næstu mánaðamót.
Námskeiðið mun s m:j í 20
tíma og verður Geir Kristjáns-
son rithöfundur kennari. en
kennt verður í Mlfl-sa aum
Þingholtsstræti 27. " sem
hafa hug á að sækja námskeið-
ið eru beðnir að kon .il inn-
ritunar í skrifstofu U sem
er opin daglega kl. 10 ár-
degis og kl. 4.30-6.30 -oðdegis
á mánudögum, miðviþudögum
og föstudögum.
Andrés Jónsson sextugur
hingað eru komnir, eru allir
frá háskólanum í Minnesota-
fylki, en þar dvöldust íslenzku
stúdentámir lengst í Banda-
ríkjaför sinni. Þeir heita: Peter
Thorsteinsson, formaður stúd-
entasamtaka í Duluth, John
Hill varaformaður sömu sam-
taka, Sandra Ericson, Ted
Huller og Dick Quanrud, þrjú
þau síðastnefndu st.unda öll
nám við háskóiann í Minneap-
olis. Peter Thorsteinsson er af
íslenzku bergi hrotinn, foreldr-
ar hans tala íslenzku og eru
þó fædd vestan hafs.
Stúdentaráð sér um dvöl
bandarísku stúdentanna hér, en
þieir munu dveijast hér á landi
um mánaðarskeið, ferðast um
nágrenni Reykiavíkur og heim-
sækja Akureyri.
.
Tveir togarar seíja í
V-Þýzkalandi
Tveir íslenzkir togarar seldu
afla sinn í V-Þýzkalandi í gær,
Fylkir 205 lestir í Cuxhafen
114,280 mörk, og Jón forseti í
Bremerhafen 173 lestir fyrir
97,200 mörk. .
Harðkakur landar
Togarinn Harðbakur lagði á
land á Akureyri í fyrradag 145
lestir af saltfiski og 7 lestir
af nýjum fiski.
Andrés Jónsson verkamað-
ur, Smiðshúsum á Eyrarbakka
er sextugur í dag.
Hér verður ekki rakin ýtar-
lega ætt eða uppruni Andrés-
ar Jónssonar. Hann er fæddur
að Litlu-Háeyri 18. október
1896 og voru foreldrar hans
hjónin Jón Andrésson og Guð-
rún Sigmundsdóttir.
Andrés er fyrir löngu
Um kvöldið munu viðskipta-
fræðingar og viðskiptafræði-
nemar hittast í Þjóðleikhús-
inu.
W
mér h hW
veess
a
þekktur maður í verkalýðs-
hreyfingunni í Ámessýslu.
Hann. hefur lengi starfað í
Verkamannafélaginu Bámnni
á Eyrarbakka og gegnt fyrir
félaga sína margháttuðum
trúnaðarstörfum, m.a. stund-
um verið formaður Bámnnar
og miklu oftar átt sæti i
stjórn hennar. Andrés er ein-
beittur í skoðunum og fylgir
hverju máli er hann ljær
stuðning fast fram. Hafa
þeir eiginleikar oft réynzt ó-
metanlegir í starfi og baráttu
verkalýðshreyfingarinnar
Mun ekki um það deilt á
Eyrarbakka að trúmennska
Andrésar við málstað og hags
muni alþýðunnar hafi a’drei
bmgðizt. Um það munu sam-
herjar sem andstæðingar hans
sammála.
Alla tíð hefur Andrés skip-
að sér lengst til vinstri í fylk-
ingu verkalýðssinna á stjórn-
málasviðinu. Hann var vinstri
maður í Alþýðuflokknum fyr-
ir 1930, einn af stofnendum
Kommúnistaflokksins er leiðir
skildu, og gerðist e-inn af
stofnendum Sósíalistaflokksins
er vinstri menn Alþýðuflokks-
ins og kommúnistar tóku
höndum saman og stofnuðu
þann flokk 1938. Hefur
Andrés- alla tíð verið einn
vaskasti stuðningsmaður
flokksins í sínu héraði og
ekki talið eftir sér störf og
fyrirhöfn í þágu sameiginlegs
málstaðar.
Vinir og samherjar Andrés-
ar í Smiðshúsum senda honum
og fjölskyldu hans í dag hlýj-
ar kveðjur og þakkir i tilefni
af sextugsafmælinu.
Eg hitti kurmingja minn á
götu fyrir stuttu. Við tókum
tal saman um vandamál líð-
andi stundar: Aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar, Alþýðusam-
bandskosningarnar, Keflavík-
urflugvöll og eitthvað var
minnzt á alþjóðapólitík.
Eg fann fljótt að kunningi
minn var illa heima í þess-
um málum. — Hvað er þetta
maður, lestu ekki blöðin,
sagði ég. — Eg lít sjaldan í
blöð, var svarið. =— Hvaða
blöð lestu helzt? — Eg sé
stundum Morgunblaðið. —•
Þ.að er nú mjög einhliða
fræðsla sem þú færð úr þeirri
áttinni, svo ekki sé meira
sagt, svaraði ég. —Hefurðu
ekki lesið Þjóðviljann? Ef þú
villt fá glöggt yfirlit um þau
mál, sem á dagskrá eru á
hverjum tíma, verður þú að
kynna þér þau frá fleiri en
einu sjónarmiði. Þú ættir að
kaupa Þjóðviljann, enginn
sem af alvöru vill fylgjast
með vandamálum dagsins,
hvort er á innlendum eða er-
lendum vettvangi, getur án
Þjóðviljans verið. Þetta sérðu
bezt á því, að sjálft Morgun-
blaðið vitn,ar oftar í Þjóðvilj-
ann en nokkurt annað blað,
þess vegna getur þú ekki án
Þjóðviljans verið jafnvel þó
þú lesir Morgunblaðið endr-
um og eins.
— Þú segir mikið satt í
þessu, sagði kunningi minn.
Láttu þá senda mér blaðið
framvegis.
S.Ó.