Þjóðviljinn - 18.10.1956, Qupperneq 12
Fyrsta sfóra kjarnorkuraf-
sföð heims opnuð í Englandi
RaforkuveriS Calder Hall var 3 V2 ár í
smíðum og kostaSi 760 milljón kr.
í gær var tekin í notkun stærsta kjarnorkurafstöð
heims til þessa, Calder Hall stöðin í Cumberland í norð-
vesturhluta Englands. Starfræksla þessarar stöðvar mark-
ar tímamót í brezkri sögu og mun verða einnig talin
einn mikilvægasti áfanginn í upphafi kjarnorkualdar.
Elísabet drottning tók í gær
í handfang í kjarnorkurafstöð-
inni og hleypti þarmeð fyrsta
rafstraumnum frá henni inn í
raftaugakerfi Bretlands. Marg-
ir tignir gestir voru viðstaddir
opnunina, svo og kjarneðlis-
fræðingar frá mörgum löndum.
Afköstin 75.000 kílóvatta
Frá því hefur verið skýrt að
raforkuverið muni ásamt öðru
eins sem byggt verður á sama
stað og fullgert eftir tvö ár
framleiða 150.000 kílóvött, og
verða því afköst þessarar
fyrstu stöðvar að líkindum
75.000 kílóvött þegar hún verð-
ur komin í fullan gang eftir
hálft ár. Núverandi afköst
hennar munu ekki vera meiri
en um 7.000 kílóvött.
Þessi kjarnorkurafstöð er
ekki aðeins sú stærsta sem enn
hefur verið tekin í notkun í
heiminum, lieldur einnig sú
fyrsta sem starfrækt er sem
liður í heildaráætlun um bygg-
ingu kjarnorkurafstöðva til að
fullnægja verulegum hluta raf-
orkuþarfar einnar þjóðar. Bret-
ar búast við að árið 1965 verði
önnur hvor rafstöð sem tekin
Framhald á 5. síðu
Eiga aS gera fillögur um
námssfyrkja
Menntamálaráðuneytið hefur
falið el'tirtöldum mönnum að
gera tiliögur til ráðuneytisins
uin fyrirkomulag á veiting
námsstyrkja og námslána,
bæði tii jteirra er nám stunda
hér á iandi og erlendis, svo
og yfirfærslu námskostnaðar
til þeirra, er stunda nám er-
lendis:
Dr. Þorkeli Jóhannessyni,
háskólarektor, Pálma Hannes-
syni, rektor, dr. Leifi Ásgeirs-
syni, prófessor, Ölafi Hans-
syni, menntaskólakennara og
Björgvin Guðmundssyni, for-
manni Stúdentaráðs Háskólans.
Leifur Ásgeirsson er formaður
nefndarinnar.
Gomulka sagður krefjast
að Rokossovskí fari frá
Miðstjórn Sameiningarflokks verkamanna
kemur saman á morgun, þingið eftir helgi
Fulltrúar í miðstjórn Sameiningarflokks verkamanna
streyma nú til Varsjár frá öllum landshlutum, en hún
kemur þar saman á fund á morgun, og er búizt viö að
Wladyslaw Gomulka veröi þá aftur tekinn í hana.
mið-
Gomulka var framkvæmda-
stjóri flokksins fyrst eftir
styrjöldina, en var vikið úr því
starfi árið 1949 og síðar dæmd-
ur í 4 ára fangelsi fyrir svik
við flokkinn. Hann var látinn
laus 1953 og undanfarna mán-
uði hefur vegur hans farið
mjög vaxandi og lengi verið
búizt við því, að hann fengi
aftur fyrri virðingarstöður sín-
ar í flokki og stjórn landsins,
en hann gegndi áður embætti
varaforsætisráðherra.
Þegar tekinn í framkvæmda-
stjórn?
Fréttaritari brezka blaðsins
The Times í London sagðist
í gær hafa það eftir góðum
heimildum, að Gomulka hefði
þegar verið veitt upptaka í
framkvæmdanefnd miðstjórnar-
innar. Búizt er við, að þetta
þlÓÐVUJINI!
Fimmtudagur 18. október 1956 — 21. árgangur — 238. tölublað
Fyrsta lisimunauppboð haustsins
Verk eftir Ásgrím, Kjarval
Jón Stefánsson, Mug
og fjöida annarra íslenzkra lisfamanna
Fyrsta listmunauppboö Sigurðar Benediktssonar á
þessu hausti verður á morgun. Verður þar margt fágætra
og eigulegra verka. M.a. er þar líkan af konu í skaut-
búningi eftir Einar Jónsson. Taldi hann sjálfur þaö vera
eina verk sitt sem safn hans ætti engar minjar um.
rrr3
Auk framangreindrar myndar
eru þarna allmörg verk annarra
„meistara", m.a. „Seglaskógur“,
rauðkrítarmynd eftir Kjarval,
þrjár Þingvallamyndir eftir hann
og ýmsar fleiri mjmdir, eða alls
13 myndir eftir Kjarval.
Tehús Ágústmánans frum-
sýnt á sunnudagskvöldið
Á suiinudagskvöldið frumsýnir Þjóðleikhúsið leikritið Tehús
Ágústmánans, eftir ameríska leikritaskáldið John Patrick. Leik-
stjóri er Einar Pálsson, en þýðandi Sigurður Grímsson.
Þjóðleikhússtjóri sagði frétta-
mönnum frá þessu í gær. Leik-
rit þetta gerist á eyjunni Ok-
inawa, fjallar um líf banda-
ríska hersins þar í heimsstyrj-
öldinni, gerir gys að skrif-
finnskunni í hernum og til-
raunum hermannanna til að
,,siða“ hina innfæddu; en þær
tilraunir mistakast með öllu.
| ÞJðfiVBUANN
j vantar fólk
til blaðburðar í;
Meðalholt og
\ Káiisnes
| ÞJðeVBLJINN
: sími 7500
Höfundurinn var sjálfur á Ok-
inawa um skeið, og þekkir því
vel það umhverfi sem lýst er í
leiknum.
Leikstjóri er sem áður segir
Einar Pálsson, en aðalhlutverk-
ið leikur Lárus Pálsson, túlk-
inn Sakini. Þessir leikarar fara
einnig með veigamikil hlut-
verk: Rúrik Haraldsson, Valur
Gíslason, Bessi Bjarnason,
Gestur Pálsson, Anna Guð-
mundsdóttir og Margrét Guð-
mundsdóttir.
Leiktjöld hefur Lárus Ing-
ólfsson gert.
Austurlenzk hljómlist er
flutt með ieiknum, og hefur
Þjóðleikhúsið fengið hana á
segulbandi frá Japan.
Leikritið er í þremur þátt-
um, og tekur sýningin allt að
þremur stundum.
verði tilkynnt á fundi
stjórnarinnar á morgun og far-
ið fram á, að hún samþykki þá
ráðstöfun.
Framhald á 10. síðu
Blaðamannakabarettinn:
Það verða tvær
sýningar enn
Það hafa náðst samningar
um það við fjöllistafólkið, sem
hér hefur sýnt að undanförnu
á vegum Blaðamannafélagsins,
að það hafi tvær sýningar í
viðbót. Verður önnur kl. 9 í
kvöld í Austurbæjarbíói, en hin
á sama tíma annaðkvöld. Sýn-
ingar verða undir engum kring-
umstæðum fleiri, þar sem fjöl-
listafólkið flýgur utan á laug-
ardagsmorgun.
Aðgöngumiðar að báðum
sýningunum eru seldir í dag
kl. 2—9 síðdegis í Austurbæj-
arbíói.
Þing Iðnnema-
sambandsins
verður um næstu helgi
14. l>ing Iðnnemasambands
íslands verður haldiS hér í
Reykjavík um næstu lielgi
Þingið verður sett kl. 2 i
samkomusal Vélsmiðjunnar
Hamars og lýkur á sunnudags
kvöld.
Þingið munu sitja fulltrúar
frá flestum sambandsfélögum,
en þau eru nú 9 talsins. Tekin
verða fyrir þau mál, er mestu
varða iðnnema í dag, svo sem:
framkvæmd iðnskólalöggjafar-
innar, verklega námið og kjara-
málin. Þá mun þingið einnig
fjalla um starfsemi og hlutverlt
iðnnemafélaganna og áfram-
haldandi baráttu heildarsam
takanna fj'rir hagsmunamálum
iðnnema. — Núverandi formað-
ur sambandsins er Ingvaldur
Rögnvaldsson, en varaformað-
ur er Gunnar Guttormsson.
Frummyndin af Ðjákn-
anuin á Myrká
Þarna er frummynd Ásgríms að
Djáknanum á Myrká, eftir henni
gerði hann mynd þá sem nú er í
listasafni ríkisins. Alls eru 3
mund Einarsson frá Miðdal, Vet-
urliða Gunnarsson, Eggert Guð-
mundsson, Friðrik Guðjónsson,
Eggert Laxdal, Sigurð Árnason
og Gísla Jónsson.
Alls eru á uppboðinu 39 mál-
verk og teikningar.
Þá eru nokkrir munir aðrir,
skatthol, skrautborð, kínverskur
útskorinn stóll úr ibenviði,
„rökkursögustöll“ o.fl.
Uppboðið er í Sjálfstæðishús-
inu og hefst kl. 5 síðdegis á
morgun, en uppboðsmunir verða
til sýnis kl. 2—7 í dag og kl.
10—4 á morgun.
Mynd Einars Jónssonar: Skaut-
búin kona, gerð í Kaupmanna-
höfn fyrir síðustu aldamót
(1896?)
myndir eftir Ásgrím, —1 ein
þeirra, Hestfjall, nýkomin aftur
til íslands frá — Indónesíu!
Nefndafundur i
Tröllheimi
Fimm teikningar eru eftir
Mugg (Guðmund Thorsteinsson),
heita þær Nefndarfundur í tröll-
heimi, „Hvað er svo glatt“, Amor
í tröllahöndum, Eltingaleikur við
svin og ein er af Sauðafells-
kirkju.
Þá er mynd eftif Jón Trausta,
málverk af Baulu, gert 1915.
Ein mynd er eftir Jón Stefáns-
son, blómamynd, sem líklegt er
að mikil keppni verði um.
Og fleira er girnilegt
Auk mynda er áður hafa verið
taldar eru verk eftir Þorvald
Skúlason, Kristínu Jónsdóttur,
Þórarin B. Þorláksson, Jón
Engilberts, Jón Þorleifsson, Guð
Eiga að gera tillögur um
úthlufun lista-
mannalauna
Menntamálaráðuneytið hefur
nýlega falið eftirtöldum ínönn-
um að gera tillögur til ráðu-
neytisins um, hvernig veiting
Iistamannalauna verði felld í
fastara form en nú á sér stað
og betur að skapi þeirra, er
launanna njóta:
Guðmundi G. Hagalín, rithöf-
undi, Gunnlaugi Scheving, list-
málara, Helga Sæmundssyni,
ritstjóra, Jóni Leifs, formanni
Bandalags ísl. listamanna, dr.
Páli Isólfssyni, tónskáldi,
Snorra Hjartarsyni, skáldi, dr.
Steingrími J. Þorsteinssyni,
prófessor, Þorsteini Hannes-
syni, óperusöngvara og Ævari
R. Kvaran, leikara. Helgi
Sæmundsson er form. nefndar-
Misjafn síld-
arafli í gœr
Sjö bátar komu til Hafnar-
fjarðar í gær með samtals 400
tunnur síldar. Afli var mjög
misjafn, frá 10 upp í 200 tunn-
ur á bát. Fram var með 200
tunnur og Fjarðarklettur 100.
Síldin var ýmist fryst eða sölt-
uð. Bátarnir fóru allir aftur á
sjó.
Afli Akranessbáta var einnig
mjög misjafn í gær. Tíu bátar
höfðu samtals 700 tunnur, en
fjórir þeirra voru með lítinn
sem engan afla. Aflahæst var
Sigurvon með 213 tunnur,
Sveinn Guðmundsson 110 tunn-
ur. Bátarnir fóru allir aftur
á veiðar.
Þrír bátar komu til Grinda-
víkur með samtals 270 tunnur.
Aflahæstur var Ársæll Sigurðs-
son með 175 tunnur.
Hefur þú sent Þjóðviljanum nýjan áskrifanda í afmælisgjöf?