Þjóðviljinn - 10.11.1956, Page 3
Laugardagur 10. nóvember 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Þjóðhagsleg nauðsyn að komið sé til móts við
iarnar kröfur um takmörkun
skattlagningar á yfirvinnu
Frumvarp Karls Guðjónssonar og Gunnars Jóhannssonar til umræðu á Alþingi
Frumvarp þeirra Karls Guðjónssonar og Gunnars Jó-
hannssonar um breytingu á lögum um tekju- og eigna-
skatt var til fyrstu umræð'u í neðri deild Alþingis í gær
og hafði Karl Guðjónsson framsögu af hálfu flutnings-
manna. Að lokinni umræðu var frumvarpið samþykkt til
2. umræðu með samhljóða atkvæðum.
Eins og frá hefur verið skýrtKarl, að það er alls ekki æski-
hér í blaðinu er efni frumv.
á þá lund að undanþeginn verði
frá tekjuskatti sá hluti af at-
vinnutekjum þeirra sem vinna
beint við framleiðsluna, sem
þeir afla sér með eftir-, nætur-
eða helgidagavinnu að svo
miklu leyti sem laun fyrir
þessa vinnu eru ekki orlofs-
skyld, en það þýðir að þeir
greiði einasta skatt af þeim
eins og um venjulega dagvinnu
væri að ræða, en það sem borg-
að er umfram dagvinnu verði
þeim skattfrjálsar tekjur.
Verkafólkið njóti sjálft
launamna.
I ræðu sinni gat Karl þess
að frumvarpið væri fyrst og
fremst fram borið í þeim til-
gangi að leiðrétta að nokkru
það ranglæti að mikill eða jafn-
vel meirihluti þeirra launa, sem
verkafólk aflaði með yfirvinnu,
sem unnin væri af þegnskap til
þess að bjarga verðmætum fyrir
þjóðarbúið rynni til annarra að-
ila en þess sjálfs, en sú yrði oft
raunin á eins og skattalögin
væru nú.
Hér væri fyrst og fremst átt
við það er fólk í verstöðvunum
legði nótt með degi í miklum
aflahrotum þegar því bærust
svo mikil verkefni að fullkom-
inn ómöguleiki væri að afkasta
þeim á venjulegum vinnudegi.
ÞjóSimi má ekki við því að
frainleiðslan ininnki.
Það verður að játa, sagði
legt að þurfa að leggja svo
mikla vinnu á menn, sem oft er
gert í slíkum tilfellum. Komið
getur fyrir að slíkar vinnuhrot-
ur standi jafnvel í heilan mánuð
eða lengur, þótt hitt sé algeng-
ara að þær séu tímabundnar.
Eru menn þá oft mjög þreyttir
og beinlínis illa farnir á heilsu.
Mjög væri æskilegt að unnt
væri að taka upp þann hátt
hérlendis að ákveða með lögum
að ekki sé leyft að menn vinni
nema ákveðinn vinnustunda-
fjölda. En það er bersýnilegt að
slíkt er ekki mögulegt nema
þjóðin sé jafnframt undir það
búin að framleiðslan minnki
verulega, en slíkar forsendur
eru ekki fyrir hendi eins og
sakir standa
Samræmi milli orlofs- og
skattalaganna.
Það er því eðlilegt, að þjóð-
félagið reyni að meta það við
þegna sína á einhvern hátt,
þegar þeir leggja hart að sér
til þess að framkvæma þau
störf, sem þjóðfélaginu eru allra
nauðsynlegust og því er þetta
frumvarp fram komið til þess |j
að svo verði frá skattalöggjöf-
inni gengið, að þjóðfélagið veiti |
þá viðurkenningu fyrir slíka á- ! [
reynslu umfram það sem venja
er að krefjast af mönnum, að |
ekki verði krafinn af henni prá sýningunni í Sundhöllinni í fyrrakvöld: MaÖurinn
skattur. hefur kastað sér úr 3—4 metra hœð ofan í gúmbátinn
Ef svo yrði að farið sem gert
er ráð fyrir í frumvarpinu að
telja tekjur við framleiðslu-
störfin einungis skattskyldar að
sama skapi og skylt er að
greiða orlof á þær, þá væri þar
skapað samræmi á miili þeirra
tveggja lagabálka, sem hér er
um að ræða, orlofslaganna og
skattalaganna.
Verkalýðsfélögin gætu bannað
yfirvinnu.
Karl kvað það verða æ greini-
legri kröfur verkafólks, sem
þessi störf ynni, um það að
tekjur sem aflað væri með yf-
irvinnu þess, væru ekki skatt-
lagðar á sama hátt og almenn-
ar tekjur og sagði að fullkom-
lega hugsanlegur væri sá mögu-
leiki að verkalýðsfélög legðu al-
gert bann við yfirvinnu og
hefðu þau til þess fullkominn
lagalegan rétt.
Það væri því miklum mun
viturlegra af löggjafanum að
koma til móts við sanngjarnar
óskir manna í þessu efni og í
því væri einnig ávinningur og
trygging fyrir þjóðarbúið.
(Ljósm. Sig. Guðmundsson).
Kynna útgerðar- og sjómönnum
meðferð gúmbjörgunarbáta
Fióðleg og fjölsótt sýning í Sundhöllinni
í fyrrakvöld
Fyrir forgöngu skipaskoðunarstjóra og Landssambands
íslenzkra útvegsmanna eru komnir hingað til lands þrír
Englendingar, sérfræðingar um gerð og notkun gúm-
björgunarbáta. Er ætlunin að þeir kynni útgeröarmönn-
um og sjómönnum meðferð báta þessara hér 1 Reykja-
vík og nærliggjandi verstöðvum eftir því sem tími vinnst
til.
Englendingarnir eru allir
starfsmenn enska Elliot-fyrir-
tækisins, sem framleiðir eina
þeirra þriggja tegunda, er við-
urkenndar eru af Skipaskoðun
ríkisins.
í fyrrakvöld var efnt til sýn-
ingar á notkun gúmbjörgunar-
báta í Sundhöllinni og boðið
þangað útvegsmönnum þeim
Myndarlegt átak Austur-Húnvetninga
í sjúkrahúsmálum héraðsins
Bygging s}úkrahúss hafin á SauSárkróki
Austur-Húnvetningar hafa tekið í notkun myndarlegt
sjúkrahús á Blönduósi. Heilbrigðismálaráðherra, Hanni-
bal Valdimarsson og fjárveitinganefnd Alþingis fór til
Blönduóss sl. miðvikudag til að athuga framkvæmdir
þessar. Kostnaður við bygginguna er orðinn rúmar 6
millj. kr.
Áttræður í dag
Áttræður er í dag Andrés
Runólfsson verzlunarmaður.
Hann fæddist að Helgustöðum
við Reyðarfjörð 10. nóv. 1876.
Ólst hann þar upp, en fluttist
um þrítugsaldur til Hafnar-
fjarðar og vann þar alla tíð
hjá Ágústi Flygenring þar til
hann fluttist að Drangsnesi við
Steingrímsfjörð. Þar átti hann
heima unz hann fluttist á ný
til Hafnarfjarðar á þessu ári.
Hann mun í dag dvelja á heim
ili sona simia að Vörðustíg 7,
Hafriarfirði.
I Jafnframt því að vera sjúkra-
hús, er bygging þessi, sem er 4
hæðir auk kjallara, einnig elli-
heimili, fæðingardeild og heilsu
verndarstofnun. Hafa A-Hún-
vetningar sýnt feiknamikinn
dugnað og stórhug við þessa
framkvæmd. Að vísu er henni
ekki að fullu lokið, og enn vant-
ar nokkuð af tækjum, en þegar
sjúkrahúsbyggingunni hefur ver-
ið að fullu lokið mun það geta
séð fyrir þörfum héraðsins á
næstu árum og jafnframt létt á
nágrannahéruðum sem illa eru
búin í þessum efnum. Héraðs-
læknir og aðalforgöngumaður
um byggingu sjúkrahússins er
Páll Kolka. Aðstoðarlæknir hans
er Kristján Sigurðsson.
Á Blönduósi skoðaði fjárveit-
inganefnd einnig þá gömlu og
virðulegu stofnun, Húsmæðra-
skólann, en hann er fullsetinn,
nemendur 39. Skólastjóri er
Hulda Stefánsdóttir.
Frá Blönduósi fór fjárveitinga-
nefnd til Sauðárkróks og sko'Jaði
hafnarmannvirki en miklar fram-
kvæmdir eru fyrirhugaðar á
næstunni. Hefur Sauðárkróksbær
hafið samningaumleitanir við
þýzka firmað sem tekið hefur
að sér hafnargerð á Akranesi.
Samningar hafa ekki verið gerðir
in. — Fyrirhugað er að lengja
bryggjuna um 180 metra.
Ennfremur skoðaði nefndin hið
50 ára gamla sjúkrahús á Sauð-
árkróki, en húsakostur þess er
mjög úr sér genginn. Hafin er
bygging veglegs sjúkrahúss er á-
ætlað er .að kosti um 8 millj. kr.
Af því hefur aðeins verið steypt-
ur kjallarinn og nokkrar undir-
stöður aðrar. Fjárveitinganefnd
ræddi bæði við sjúkrahússtjórn-
ina og bæjarstjórnina á Sauðár-
króki, en hélt síðan tl Reykja-
víkur á fimmtudagskvöldið.
II rímur Símonar Dalaskálds á 900 kr.
Á bókauppboðinu í gær komust Lærdómslistafélagsrit-
in í kr. 3.700,00. Frumútgáfur af 10 rímum Símonar
Dalaskálds fóru á 900 kr.
íslenzk þjóðlög Bjarna Þor-
steinssonar fóru á 900 kr.,
orðabók Cleasby’s og Guðbrand-
ar Vigfússonar á 700, Land-
Fóru út í gær
Síldarbátarnir hér við Faxa-
flóa fengu allsæmilega aflahrotu
um daginn, en þá hófust ógæftir
sem staðið hafa í 4—5 daga. í
gær fóru bátarnir aftur út á
veiðar eftir landleguna.
fræðisaga Þorvaldar Thorodd-
sen á 825,00, Lýsing íslands á
800,00 og Landfræðisaga hans
á 600,00. Kvæðabók Eggerts
Ólafssonar fór á 300,00 kr.
Nokkrar smásögur, eftir Kiljan
á 500,00 og Vefarinn mikli á
550,00. Draupnir seldist á 700
kr. og Mynstershugleiðingar á
350,00 kr.! Frá Grænlandi, eft-
ir Sigurð Breiðfjörð fór á 325
kr. — Allmargt bóka var þó
selt á skaplegu verði og sumar
tiltöluþíga lágu.
sem sitja aðalfund L.Í.Ú., sjó-
mönnum og nemendum Sjó-
mannaskólans. Voru áhorfend-
ur alls 200—300.
Hjálmar R. Bárðarson skipa-
skoðunarstjóri gerði í upphafi
sýningarinnar grein fyrir gerð
gúmbjörgunarbátanna og lýsti
helztu kostum þeirra. Síðan
voru sýndir þrír mismunandi
stórir bátar, 6, 10 og 12 manna
för. Var hverjum bátnum um
sig kastað samanbrotnum og í
umbúðunum í laugina, en
grönn lína látin liggja frá hon-
um upp á laugarbarminn. Þeg-
ar kippt var í línuna, hrökk
öryggisloka frá kolsýrlings-
hylki á bátnum og hann fyllt-
ist lofttegundinni á nokkrum
sekúndum. Eysteinn Jónsson
fjármálaráðherra var meðal
gesta á sýningunni og ,,opnaði“
hann bátana, ef svo má að orði
komast.
Þá var einnig sýnt hvernig
menn geta kastað sér ofan í
bátana úr talsverðri hæð og
hve einum manni veitist auð-
velt að rétta við 12 manna
bát, sem hvolft hefur. Aðstoð-
uðu nokkrir Sjómannaskóla-
nemendur við þennan þátt sýn-
ingarinnar.
Sýning þessi tókst ágætlega
og var gerður góður rómur að
henni.
Um miðjan dag í gær sýndu
svo ensku sérfræðingarnir,
hvernig gúmbjörgunarbátarnir
eru brotnir saman en það er
mikið vandaverk og vart á færi
annarra en kunnáttumanna.
Fór sú sýning fram í geymslu-
húsi Landssambands ísl. út-
vegsmanna við höfnina.
Afhendir trúnað-
arbréf
Hinn 8. nóvember 1956 afh.nti
dr. Kristinn Guðmundsson Breta-
drottningu trúnaðarbréf sitt sem
sendiherra íslands og ráð! : rra
með umboði í Stóra-Bretlandi.