Þjóðviljinn - 15.11.1956, Page 11
Fimmtudagúr 15. nóvember 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (SS
30. dagur
Hún tók púðurdós og spegil upp úr veski sínu og'
fór að' snyrta sig til. Litla, fíngerða nefið' hennar hafði
leiðinlega tilhneigingu til að glansa eins og nýburstaðir
skór, og þaö þurfti þess vegna oft athugunar við. Hún
var rétt að ljúka við snyrtinguna, þegar Howard ávarp-
aði hana:
„Lydia .... ef þú ert búin að púðra þig væri ekki
úr vegi að við ræddum málin skynsamlega“.
„Við höfum ekki um neitt að tala“. Hún skellti aftur
púðurdósinni og stakk henni reiðilega í véskið sitt. Svo
sneri hún sér að glugganum.
„Jú, þaö er margt sem við þurfum að ræða um ....
það er. að segja, ef þú kærir þig um að líta skynsamlega
á málið“.
„Skynsamlega? Þetta finnst mér nú koma úr hörö-
ustu átt“.
„Ég hef kannski verið of hvassyrtur við þig. En ég
hef þá gamaldags skoðun, aö konan kunni aö verða
hamingjusamari, ef hún fylgir manni sínu-m í hverju
því sem hann tekst á hendur“.
„Jafnvel þegar hann gerir sig aö fífli?“
„Já .... jafnvel þá. En það hefur ekki ennþá komið
fyrir okkur“.
„Sá, sem vill selja auglýsingaskrifstofu í New York
fyrir hálfónýta námu í óbyggöum Kanada, er á góðum
vegi með að verða sér til skammar. Og ég er handviss
um, aö þannig hugsa allir okkar vinir“.
„Mér er nákvæmlega sama, hvað þessir svokölluðu
vinir okkar hugsa. Ég er reyndar efins um, hvort þeir
hugsa nokkurn tíma“.
„Þeir komast áreiðanlega að sömu niðurstöðu um þig,
Howard“.
„Þeir mega þaö .... Lydia, ég held aö þú hafir ekki
kunnaö vel við þig í þess konar andrúmslofti. Þaö er
spilltasti félagsskapur sem sézt hefur frá því á dögum
Rómverja. Þú sérö sömu andlitin dag eftir dag og
kvöld eftir kvöld .... nema hvaö þaö eru meiri drykkju-
skaparandlit á kvöldin. Þeir gera ekki annað en segja
kjaftasögur og dansa mjaömadans. Flestir þeirra eru
meira að segja hræddir viö aö eignast börn. Þeir eta
morgunverð, þegar komiö er fram undir hádegi, eyða
tveim tímum í hádegisverð á einhverjum stað, sem
þeir detta niöur á af einskærri tilviljun, fá sér risastóra
kokkteila, kryddaða reykjarsvælu úr dísilvögnum, tala
um kynferðismál og annað álíka heimskulegt. Ég vil
losna við það“.
„Þú ert laus við það og ég vona, aö þú sért ánægður“.
„Alls ekki. Þaö er ótal margt, sem ég þarf aö gera.
Ég samþykkti að taka aö mér þetta auglýsingafyrirtæki
þitt, bara af því aö þetta var rétt eftir stríðiö og ég
var ekki alveg búinn að ná mér. En þetta er ekkert
starf fyrir mig, Lydia, og verður það aldrei. Ég vil vakna
á morgnana meö þá tilfinningu, að þaö sem ég fram-
kvæmi þann daginn verði til fyrir mína eigin vinnu,
en ekki vegna þess aö konan mín erfði eitthvert fyrir-
tæki-------“
„Sú staöreynd, að konan þín--átti þetta fyrirtæki,
virtist ekki valda þér neinum heilabrotum, þegar jyú
ákvaöst aö selja þaö .... án þess að spyrja mig ráða“.
„ÞaÖ var enginn tími til þess. Ég er búinn að út-
skýra þaö fyrir þér. Ég skal endurgreiða þér peningana
strax og náman —-----“
„Já, en------“
„Eftir þrjú ár verö ég búinn aö borga þér hvern eyri“.
„Hm.
„Lydia, ég spyr þig í síöasta sinn .... ætlaröu að
koma meö mér?“
„Ég er fegin, að þú ætlar ekki aö spyrja mig þessarar
heimskulegu spurningar oftar, svo að ég þarf ekki aö
neita þér nema einu sinni enn. Ég ætla aö fá skilnaö
eins fljótt og ég get“.
„Þér getur ekki verið alvara".
„Mér hefur aldrei verið meiri alvara. Nú liggur þetta
allt ljóst fyrir mér. Ég hef fengiö drengsnáða til að
■vsama karlmannsverk11.
„Það hefur nú aldrei verið talið karlmannsverk að
stjóma auglýsingafyrirtæki í New York“,
„Það hélt faöir minn“.
„Faðir þinn var brautryðjandi. Þaö var engin aug-
lýsingastarfsemi til, þegar hann byrjaöi“.
Hún sneri sér aö honum og leit beint framan í hann
í fyrsta skipti frá því aö þau komu um borö í flugvél-
ina. Lítill munnur henriar varö eins og mjótt strik, og
hún kreppti hnefana svo að hnúarnir hvítnuöu.
„Jæja þá, frumskógamaöur. Faröu til heimkynna
þinna. Talaðu við dúfurnar, eða hvaö þeir nú heita
þessir fuglar, sem þar eru. Vertu bara heimskur strák-
ur meö skít undr nöglunum og sigggrónar hendur.
Uppboö verður haldiö í G.T.-húsinu í
Hafnarfiröi föstudaginn 16. þ.m. og hefst
kl. 4 e.h.
Boöinn veröur upp ýmiskonar upptækur
varningur. — Greiðsla við hamarshögg.
Bæjarfógelinn í Mafitarfirði
Sai nkvæi msk jólaef m
Bezta úrvaiið í bænum
MARKAÐURINN
Hafnarstræti 11
Skortur á olíu
Framhald af 5. síðu.
skortur verði á olíu, liún mun
einnig hækka í verði. Sænska
verðlagseftirlitið gerir ráð fyr-
ir að verð á olíu sem flutt er
suður fyrir Afríku verði 11'ó
hærra en þegar hægt var að
flytja hana um Súezskurð.
Auk þessarar hækkunar, seni
stafar af því að siglingaleiðin
iengist, er búizt við að farm-
gjöld hækki vegna þess að
skortur er á olíuskipum,
Farmgjaldahækkunin mun
einnig ná til annarra flutninga-
skipa, því að nú verður að
fþdja hráefni frá löndum aust-
an Súezskurðar suður fyrir
Afríku.
Gúmmí og tin
Helztu hráefnin sem svo er
ástatt um eru hrágúmmí og
tin. Óttast er að skortur kunni
að verða á báðum vörutegund-
unum i V-Evrópu vegna þess
hversu flutningaleiðin lengist
meðan Súezskurður er lokaður.
Svipuðu máli gegnir að dómi
sænska verðlagseftirlitsins um
ýmsar olíur sem notaðar eru í
málningu og lökk og margs-
koríar kryddvörur.
Búizt er við að hækkuð
farmgjöld og vöruskortur muni
hafa í för með sér verulega
hækkun á verði ýrnissa vöru-
tegunda á næstunni.
NORS
Blaðaturmiin.
Laugavegi 30 B.
Þegar börn hafa hægðatregðu
Hægðatregða er mjög al-
gengur kvilli bæði hjá börnum
og fullorðnum, og mikið hef-
ur verið reynt til að finna or-
sakirnar til hans.
Einkum hefur verið reynt að
fá úr því skorið, hvort það
geti valdið langvinnri hægða-
tregðu síðar á ævinni, að barni
sé gefið mikið af hægðalyfjum.
Enn hefur ekki fengizt úr
þessu skorið- til fulls, en rann-
sóknir, sem hafa verið gerðar
i Englandi, hafa leitt í ljós
furðulega hluti.
Af allstórum hóp skólabarna
voru ekki færri en 80% sem
fengu hægðalyf 'einn sinni i
viku, og það þó að allt. væri
í lagi. Marg-ar mæður gáfu
börnum sínum fikjusafa eða
önnur væg hægðalyf til þess
að tryggja það að ekki kæmist
ólag á og af því að þær héldu
að þörf væri á rækilegri tæm-
ingu vikulega. Mörg börn fengu
laxerolíu eða parafínolíu, en
parafínolian er álitin skaðleg-
ust sé hún notuð að staðaldri.
Hún hefur þann ókost, að
gleypa í sig vítamínin, svo að
mikil hætta er á víta.mínskorti
sé hún tekin inn til lengdar, en
þó er armað sem er miklu
verra, en það er hættan á
magakrabba af völdum hennar.
Samkvæmt rannsóknum, sem
voru gerðar árið 1954 hafa
furðu margir menn sem vanir
voru að taka parafínolíu, feng-
ið krabbamein í maga.
Þessar rannsóknir, sem
nefndar voru, hafa leitt í Ijós,
að mörg börn fá hægðalyf að
óþörfu, og að mikil þörf sé á
að veita almenningi hollari
fræðslu um þetta, ef vera mætti
að þessi ósiður legðist niður.
Er þörf á að hafa hægðir
á hverjum degi?
Það hefur líka komið í ljós,
að margir halda, að nauðsyn-
legt sé að hafa hægðir á hverj-
um degi. í skýrslunni stendur,
að búast megi við að 5% af
börnunum hafi ekki hægðir
nema annan eða þriðja hvem
dag, og að engin ástæða sé til
að hafa áhyggjur af því, ef
barnið þrífst vel og kvartar
ekki undan óþœgindum af
þessu. Börn, sem þjást af treg-
um hægðum, læknast ekki með
hægðarlyfjum. Það er miklu
betra að breyta um mataræði.
Niðurstaða rannsóknanna er-sú,
að ekki skuli gefa börnum
hægðalyf nema brýn þörf sé á,
og að sjálfsagt sé að tala við
lækni, ef hægðatregðan verður
langvinn, og- leitast við að
fylgja. rá.ðum hans, ef hann
ræður til skynsamlegra breyt-
inga á mataræði.
PJO®lfBlrfl'NN Útgefandl: Samelnlngarflokkur alÞfBu — 8óslallstaf]okkurlnn. - Rltstjórar: Magnús Kiartanssoa
(4b.), SlgurSur OuSmundsson. - Préttarltstlórl: Jón Bjarnason. - BlaSamenn: Ásmunrtur Slsrur-
. . .... ,, . . Wnsson. B.iaml Benedlktsson, OuSmundur Vigfússon, fvar H. Jónsson, Magnús Torfl Ólafsson -
SuKlýslngastiórl: Jónstelnn Haraldsson. — Rltstjórn. afgrelðsla. auglýslngar. prentsmlðja: SkólavorSustlg 19. — Siml 7500 <a
-- Áskrlftarverö kr. 25 4 múnuBi i Reýkjavik og nágrennl; kr. 22 annarsstaSar. - Lausasöluverö kr. 1. - Prentsm'Bja
ojóQvU|anf n.t.