Þjóðviljinn - 20.11.1956, Síða 7

Þjóðviljinn - 20.11.1956, Síða 7
- Þrlðjudagur 20. nóvember 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (7 Það var snemma dags 23. júlí, að ég fékk tilkynninguna um að koma á spítalann og svo sem áður er sagt, varð mér engan veginn við, en sá í hendi mér, að ég þurfti að hafa hraðan á, ef mér ætti að takast að tína saman pjönkur mínar (sem nærri engar voru) og ná í peninga fyrir klukkan eitt, en þá átti ég að vera komin á spítalann. Og tókst mér þetta. Fyrir löngu síðan var ég svo á spítala einum í þrjú misseri, að varla gat heitið að nokk- ur maður kæmi til mín (að einum manni undanteknum), nema, ein kona sem kom í vondu veðri og var ekki fyrr komin en henni fannst hún verða. að komast í burtu, og ætlaði að ærast af tilhugsun- inni um að komast ef til vildi ekki fyrr en um kvöldið. Og blpm sá ég ekki þá, og ekki skil ég enn hvernig unnt er að lifa af svo leiðinlegan tíma, sem þessi var. Hér var ég stödd í útlendri borg, og þessi stóri frænd- garður, sem ég held að fáir eigi siíkan, allur staddur á Islandi eða í Ameríku, að einni konu undantekinni, en samt kom til mín maður á hverjum degi, og blómvönd fékk ég flesta daga, og hrærðist ég í huganum af slíkri alúð. Og sum af þess- um blómum skinu í dagsins ljósi af þvílíkri prýði, að fátt nema sjálfur meskalínrúsinn megnar að sýna slíkt, en þó hafði mér raunar dofnað sú sjón síðan um árið, að lista- maðurinn gaf mér hana. En önnur hníptu heldur dauða- leg, og það kom af því, að það hafði láðst að sjóða á þeim stilkana. Af fólkinu, sem kom, voru fjögur skáld, en hið fimmta sendi mér konuna sína, og taldi ég mig eiga fimm skáld í allt, en hitt var flestallt sifjalið skálda, og út yfir tók einn sunnudag, því þó kom eitt skáld, móðir þess og eig- inkona, dóttir skálds og ekkja skálds. öll í einu. Og það þori ég að ábyrgjast, að enginn maður á öllum spítalanum hefur verið svo umsetinn af skáldfólki, sem ég var þenna dag. En aí öðru fólki vil ég geta einnar konu, sem ég vil raun- ar ek'ki geta, því þó að hún eigi sér mikið ríki, þá er það ekki af þessum heimi. Blóm færði hún mér og galdur gerði hún mér, og veri hún blessuð ævinlega. 'Ým.sir af þessum góðvinum mínum sem komu með hýr- legt augnaráð og blóm í hönd- um, reyndu að hræða mig og sögðu yfrið vont að láta skera sig á skurðarborði og taka burtu meinsemdir. Auk þess héldu sumir, að staður- inn væri ekki hinn rétti, og mundi vera til betri staður einhversstaðar annars, og vildu láta mig lofa því að fara til þess staðar. En sá staður var raunar enginn til, og hlaut ég að dúsa þarna, eins og sá sem fallinn er í gildru, vai’ mér þetta vel Ijóst. Veikindi mín voru komin á það stig, að bráður dauði blasti við, ef þau yrðu ekki læknuð, enginn frestur mátti gefast, enginn staður hefði tekið: við mér ef ég hefði hafnalð þessum. Ríkisspítalinn heitir Frið- riksspítali og var stofnaður á átjándu öld. Hann var til húsa í Breiðgötu þá er Jónas Hallgrímsson dó þar, það hús er nú listmunasafn. En árið 1908, ef ég man rétt, hófst starf hans í þessum húsum, þar sem hann hefur verið síðan. Á þessum áratugum hafa orðið meiri framfarir í læíufttigum en á öllum öldum áður, og spítali þessi, sem álitinn var fullkominn, þá er hann var nýr, er nú álitinn svo úreltur, að ákveðið hefur verið að rífa hann og byggja í staðinn skýskafa, sem taki þessum miklu meira fram en þessi hinum fyrri. Og þá er sá spítali er tekinn til starfa, að svo sem tíu árum liðnum, verður einnig hann úreltur, því þá verður kominn sá sið- ur á, að senda alla eða marga sjúklinga á spítala 1000 km e------------------------n 2. hluti v________________________J utar jörðu, en þar eru sögð ágæt skilyrði til skurðlækn- inga, og munu sár gróa þar langtum betur og fyrr en á jörðu niðri. Það fór svo fjarri því að mér þætti vont að gangast undir þá stóru ópera- tíón, sem sögð var með þeim allrastærstu, að mér þótti það gaman, meira að segja. Þá er ég vaknaði, eftir þriggja tíma svæfingu, gnísti ég raunar tönnum milli vita, en þá er ég aðgætti, hvort mér væri nokkuð illt í höfði, nei ekki, eða þreytt í handleggjunum, ekki heldur, óþol í fótum, ekki neitt. Flökurleiki, ekki parið, hann kom nú samt, en var vægur. Var þá ekki verkur í sárum, ég gætti að því. Það gat ekki heitið. Var sálin angruð af vondri meðferð á líkamanum? Það var nú síður en svo. Víst er notalegt að vakna og hafa misst sjúkleikann sinn, en fengið í staðinn vel umbú- in sár og hrein, til að græða á einni viku, en mundi ekki enn betra að vera laus við þetta allt, líkama og sjúk- leik, heyra ekki, nema himn- eskan tón, sjá ekki, nema himneskt ljós og það. í draumi? Frændkonu minni einni gafst þetta í dauðanum. Eitt af skáldum mínum bað ég að gefa mér gott orð í hjartað til að deyja við, ef þess þyrfti að lokinni aðgerð, en það harðafsagði hann, sagði ég mætti teljast sæl og hólpin að vera innan ópera- tíónar, því fyrir þann sem svo væri ástatt um, gæti ekk- ert komið, hinn, sem utan væri, væri miklu siður óhult- ur. Þetta þótti mér gott að heyra, og það styrkti mig miklu meira en nokkurt orð hefði gert. Öll skáldin mín gerðu eitthvað fyrir mig. Einn snarsnerist fyrir mig, og talaði við mig mikið og fallegt á málinu sínu, annar lánaði mér þrjú þykk bindi að lesa, og þóttist ég ekki áður hafa lesið jafn- þykk bindi, hið þriðja kom með blómin, sem aldrei ætluðu að visna, og veit ég ekki enn hvað þau heita, þeim blóm- um gleymi ég ekki. Fjórða skáldið kom sjálfur eins og hin og það var nóg. Skáldið, sem kom með bæk- urnar, tafði stutt, því hann þurfti að finna þrjár faliegar stúlkur, sem áttu heima í litl- um kofa svo órammgerum, að fyrirhafnarlítið mátti virðast að drepa fólkið í honum, og það var rigning og myrkur. Stúlkurnar voru allar lifandi þegar hann kom, en. búið að stela frá þeim peningum. En fyrir mig gat ekkert illt komið. Eg baðaði út öllum öngum af einskærri hrifningu yfir því hvað svefninn minn var vær og morfínið gott til að sofa af, en ekki voru liðn- ar nema sextíu klukkustundir þegar ég fór að lesa blöðin af þvílíku ofurkappi sem aldrei fyrr og ráða í þeim þessar stóru krossgátur, sem taka yfir heila blaðsíðu í stór- blöðunum. í sjö tíma sam- fleytt las ég og réði ég gát- ur, og er þetta satt. Ef blað datt á gólfið, reigði ég mig eins og slöngu og teygði og tók það upp. Þú sem ætlar að láta óperera þig, vertu ekki hræddur við það, hlakkaðu heldur til. En við þig, sem ætlar að fara að deyja, veit ég ekki hvað segja skal, en mér hefur verið sagt, að andlegar verur segi það mikið tilhlökkunarefni. Betur að satt væri. Það var rósatími, og ofboðs- lega mikið af rósum, og ilm- uðu hver í kapp við aðra, gular, rauðar og hvítar, og jasmínan, fræg úr bókmennt- um, ilmaði útsprungin í garð- inum. Hengibjörkin spratt við pollinn, og begóníurnar glóðu þar skærar, og ekki vottaði fyrir hausti. JJn það var liðinn þessi tími, sem gömlum manni finnst of- stuttur á hverju vori: tíminn þegar allir runnarnir, magnól- ían og rhodondendroninn og tamariskan og hin öll, nema yllirinn, blómgast öll í einu, allavega lit, pg er þá vor í Danmörku. Akrarnir máttu heita fullsprottnir, og þá var farið að vanta regn, en þá kom það, því allt kemur á réttum tíma í Danmörku, þar sem flest kemur ofsnemma eða ofseint hér. Og sumum þótti koma fullmikið regn. Og tíma rósanna tók að halla er ég rölti um garðinn í aftur- batanum, og var að mæta síð- skegg einum, en hinar dönsku trúlofuðu okkur óðara í and- anum er þær fréttu þetta. 1 því var engin hæfa. Það er skelfing fallegt út- sýnið af svölunum þarna, þessi ofsalegi jurtagróður, sem við sjáum enga líkingu af hér á landi, breiddi úr sér hærri húsunum, og engin lús neinsstaðar í tré eða jurt eða blómi. Það man ég hvað mér leiddist lúsamergðin i kollun- um á rósunum árið 1925, og ég óskaði þess að einhver góð- ur maður fyndi bragð til að losa þær við þessa óværu, og svo sem mér verður ætíð að óskum mínum, þá fannst DDT ekki löngu seinna. Nú á ég margar óskir órættar, og skal ég segja þér frá þeim seinna. Drottningin mín fór og sú semídrottning sem með henni var, og nú skína þær á því firmamenti þar sem þær geta bjartastar orðið, en það er undir stjörnum norðurhjar- ans. Af öðru fólki en skáldum komu til mín: Fósturforeldrar mínir, 20 ár- um eldri en ég, vinir Islend- inga, 2 göldróttir englar í mannsmynd, og ^kbarn, 2 hálf- gildisdrottningar, tandur- hreinar, og 1 unglingur. Allt þetta fólk yar mér ein- lægt og góðviljað, hýrt í við- móti og viðræðugott og gladdi í mér sálina, enda veitti ekki af. Þar er semsé ekki neitt afar- gaman að dveljast á spítala, og kemur rpargt til þess, flestum er illa við mann, sem von er, útlending, og það Is- lending, sjúkan og einmana stundum og haldinn fátækan illa talandi mál landsins, leið- inlegan. Enginn kann það sem vér kunnum, enginn Höfuð- lausn, enginn Ferðalok, eng- inn veit það sem vér vitum, heldur eitthvað annað, miklu merkilegra að þeirra dómi, en ómerkilegra að vorum. Og enginn hefur heyrt nefnda Kapítólu og enginn Manna- mun. En svo kom ég þar sem verið var að lesa Mannamun á kvöldin, og allir stórhrifnir, og ég ekki sízt af að frétta af þessari þrá og þessuum draumi barnæskunnar, sem aldrei rættist. Þá sá ég bezt muninn á okkur, hinni göfugu bókmenntaþjóð, og hinni, lítt- læsu, sem ég hlaut að dvelj- ast með. Eitt af stórfljótum heimsins beizlað Zambezifljótið í Afríku er eitt stœrsta og straumharðasta vatnsfall Afríku en nu er veriö að beizla orku pess með virkjun í Suður-Rhodesíu. Virkjunin á að' gefa 1.200. 000 kílóvatta orku, sem kemur í góðar parfir í koparnámum o.q vaxandi botgum Rhodesíu. , ‘ Málfríöur Einursdóttir Bréf lil •• Onnu m Æ kj

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.