Þjóðviljinn - 21.03.1957, Qupperneq 1
INNI I BLAÐINU
Erlend tíðindi 6. síðgt"
Verkfallið í Bretlandi 5. —«|
Veðlán Sparisjóðsins 7. —
íþróttir 9. —■■ J
Fimmtudagur 21. marz 1957 — 22. árgangur — 67. töiublað
Mill|óxi brezkrcs vélsmtða fer
x verkfall á laugardaginn
SkœruhernaSur á 10 þungaiSnaðarsvæcSum
Ein milljón manna í vélsmiöaiönaði Bretlands leggur
nið'ur vinnu á laugardaginn, ef atvinnurekendur halda
áfram að neita að ræða kauphækkunarkröfu verka-
:manna.
Stjórn sambands verkamanna
. í vélsmíðaiðnaðinum ákvað í
gær, hvernig heyja skyldi
skæruhernaðinn gegn atvinnu-
rekendum.
Ákveðið var að láta verkfallið
koma til framkvæmda á laugar-
daginn á tíu svæðum, þar sem
mest allur þungaiðnaður og flug-
vélaiðnaður Bretlands er niður
ikominn.
Helztu svæðin eru: Bristol,
Belfast, Liverpool og' aðrar borg-
ir við Merseyósa, Manchester,
Sheffield, Glasgow og aðrar
borgir við ósa Clyde, Southampt-
on og Newcastle og aðrar borgir
við ósa Tyne.
Þrjár milljónir eftir
liálfan mánuð
Á föstudaginn verður ákveðið,
hversu mikið verkfallið verður
fært út um aðra helgi ef ekki
hefur þá samizt. Standi deilan
enn 6. apríl verður verkfallið
5. sinvígisskákin:
Skókin í bið
Hvítt:
H. Pilnik
1. e4
2. Rf3
3. d4
4. Rxd4
5. Rc3
C. Be2
7. Be3
8. Dd:»
9. Hdl
1«. 0—0
11. f4
12. Rb3
13. a3
14. Khl
15. Dxe2
1C. Rd5
17. exd5
18. Rxa5
19. c3
20. f5
21. Hf3
22. g3
23. Dc2
24. BhC
25. De2
2G. Bf4
27. Dxc4
28. h3
29. hxg4
30. Hd2
31. gxf
32. gi
33. Kg2
34. Hfl
35. Kf3
3G. Hgl
37. Hf2
38. Hhl
39. He2
40. Hdl
Svart:
Ólafsson
c5
Rc6
cxd4
RfC
dC
gC
Bg'7
0—0
Bd7
aC
Hc8
b5
Bg4
Bxe2
Dc7
Rxd5
Ra5
Dxa5
Hc4
Be5
Hh4
He4
Hg4
Hb8
Da4
Dc4
• bxc4
Bxf4
Be5
gxf
Kg7
hC
KfC
Hg8
hð
Hg5
lv4
Bg3
Hg8
Be5
Framhald á 12. siðu.
látið ná til alls vélsmíðaiðnað-
arins, en i honurn vinna um
þrjár milljónir manna.
Verkfallið mun hafa mjög al-
varlegar afleiðingar fyrir efnahag
Bretlands, því að yfir 40% af
útflutningi þaðan er framleiðslu-
vörur vélsmíðaiðnaðarins.
Jámbrautarverkfall?
Verkfall 200.000 skipasmiða ér
nú búið að standa í hálfa viku.
Macleod verkalýðsmálaráðherra
sagði á þingi í gær, að hann
myndi ræða við fulltrúa aðila
í dag.
Stjórn sambands járnbrautar-
starfsmanna hafnaði i gær til-
lögu sáttanefndar um 3% kaup-
Myndar stjérn í
fjórða skipti
Nýkjörið þing írlands kom
saman til fundar í gær. De
Valerá, hinn aldurhnigni for-
ingi flokksins Fianna Fail, var
kjörinn til að mynda nýja stjórn
með 78 atkvæðum gegn 53. Þetta
er í fjórða skipti sem De Val-
era myndar stjóm á írlandi.
hækkun til handa 370.000 sam-
bandsmönnum. Þeir höfðu krafist
10% hækkunar. Forseti sambands-
ins sagði að till. væri móðgun
við járnbrautarstarfsmenn, sem
höfðu áður hafnað sama boði
frá stjóm járnbrautanna. Kvað
hann horfurnar í deilunni al-
varlegar.
Maciillan vill fá
að verzla við Kína
Eitt af ágreiningsefnum Bret-
lands og Bandaríkjanna, sem
rædd verða á fundi Eisenhow-
ers og Macmillans á Bermúda-
eyjum, er viðskiptin við Kína.
Utanríkismálafréttaritari brezka
útvarpsins skýrði frá þessu í
gær. Kvað hann Breta sækja
fast að fá dregið úr hömlum á
Viörusölu til Kína, svo að þeir
gætu notað viðskiptamöguleika
sem þar byðust. Bandaríkja-
menn vildu hinsvegar hafa við-
skiptabannið á Kína sem
strangast.
Macmillan og Eisenhower
komu til Bermúdaeyja í gær
ásamt utanríkisráðherrum sín-
um og tugum annarra ráðu-
nauta.
Aftaka að Makarios erkibiskup fái að
hverfa heím
Brezka stjórnin hefur ákveðið að reyna að leysa Kýpur-
deiluna með milligöngu framkvæmdastjórnar A-banda-
lagsins.
Lennox-Boyd nýlendumálaráð-
herra skýrði brezka þinginu frá
því í gær, að rikisstjórnin hefði
ákveðið að taka boði Ismay
lávarðar, framkvæmdastjóra A-
bandalagsins, um að hann reyndi
að miðla málum. Auk Bretlands
eiga A-bandalagsríkin Grikkland
og Tyrkland hlut að deilunni.
Þá skýrði ráðherrann frá þvi,
að ríkisstjórnin hefði ákveðið
að vekja athygli Makaríosar
erkibiskup á Kýpur, sem Bret-
ar fluttu í útlegð til Seychelles-
eyja í Indlandshafi. á boði
EOKA-hreyfingarinnar um að
hún skuii láta af árásum á Breta
á Kýpur ef Makariosi verði
sleppt úr haldi. Lennox-Boyd
kvað brezku stjórnina fáanlega
til að flytja erkibiskup af Seych-
elleseyjum ef hann vildi lýsa
andstöðu við valdbeitjngu
EOKA. Ekki kæmi þó til mála
*ð leyfa honum að liverfa heim
til Kýpur að svo stöddu.
Fréttaritari brezka útvarpsins
á Kýpur sagðí í gær, að forusíu-
mönnum grískumælandi eyjar-
skeggja þætti lítið til boðs Breta
koma. Þeim þætti g'engið fram-
hjá sér með því að varpa deil-
unni í kjöltu A-bandalagsins.
Þannig var Alþýðuhúsið á Siglufirði á sig komið þegart
búið var að moka af þakinu eftir fannfergið mikla.
Lijósm. Hannes Baldvinsso®
Auðveldaður aðgangur að skip-f-
stjórnarrétdndum á hátum
BráðabirgSaráðstöfun vegna vöntunar
á réttmdamönnum |
Frumvarp um breytingu á lögum um atvinnu við sigl-
ingar kom til 1. umr. í efri deild Alþingis í gær, en sjávar-
útvegsnefnd þeirrar deildar flytur frumvarpið að beiöni
sj ávarútvegsmálaráðherra. j
Bjöm Jónsson skýrði málið í
framsöguræðu og lagði áherzlu
á að tilgangur frumvarpsins
væri sá, að auðvelda mönnum
aðgang að námi, sem veiti rétt
til skipstjórnar á hinum stærri
vélbátum, en skortur á skip-
stjórnarmönnum með lögmæt
réttindi liefur verið vaxandi
vandamál vélbátaútvegsins hin
síðari ár. Efni frumvarpsins
lýsti framsögumaður á þessa
leið:
„1 frumvarpi því sem hér
er til umræðu er gert ráð
fyrir að um tiltekið árabil
verði nokkuð slakað á kröf-
um um skólagöngu jæirra
sem skipstjórn hafa með
liöiidum á vélbátum allt að
100 rúmlestir, þannig að í
stað gildandi lagakröfu um
tveggja vetra nám komi á-
kvæði um fjögurra mánaða
námskeið til undirbúnings
svonefndu minna fiskimanna-
prófi ér þessi réttindi veiti í
Lýsa óánægju yfir aðgerðarleysi
Aiþingis í herstöðvamálimum
Á fjölmennum félagsfundi MFÍK var gerö eftir-
farandi samþykkt:
,,Fundur í Menningar- og friðarsamtökum ís-
lenzkra kvenna, haldinn 11. marz 1957, lýsir óá-
nœgju sinni yfir aðgerðaleysi Alþingis í herstöðva-
málunum og telur stjórnarflokkana hafa brugðizt
loforðum sínum við kjósendur fyrif síðustu kosn-
ingar, um brottflutning varnarliðsins, og vœntir,
þess að hafizt verði handa seni allra fyrst um
uppsögn herstöðvasamningsins."
.1
innanlandssiglingum.
1 annan stað er gert ráðl
fyrir að bráðabirgðaákvæði
núgildandi laga um skips-
stjórnarréttindi á skipum
allt að 75 rúmlestum verði
rýmkuð frá 85 lestum í 100
lestir án undangengins náms.
I þriðja lagi er gert ráð
fyrir að nám þetta sé ekki
bundið við stýrimannaskól-
ann heldur verði liorfið að
því ráði að halda auk ár-
legra námskeiða við hann,
tvö námskeið utan Reykja-
víkur og verði þau til sldptisr
á ísafirði, Akureyri, Nes-
kaupstað og lrestmannaeyj-
um, annað hvort ár á livcrj-
um stað. Þessi námskcið öll
verðí þó á vegum Stýrí-
man naskólans".
Fnimvarpið sjálft og greinar-
gerð þess er birt á öðrum stað
í blaðinu.
Björn lauk máli sínu með
því að undirstrika, að ákvæði
frumvarpsins væru aðeins hugs-
uð til bráðabirgða um næsta
fimm ára skeið, til þess að
ráða bót á vanda, sem von-
andi yrði einungis tímabundinn.
„Hefur ekki þótt hæfa að
ákveða til frambúðar að slaka
á knöfum til þekkingar skip-
stjómarmanna, en hins vegar
talið að sú millileið, sem hér er
lögð til að farin verði, tryggi
eins og á stendur meira öryggi
mannslífa, verðmæta og at-
vinnu en sú skipan, sem nú hef-
ur um skeið viðgengizt", sagði
framsögumaður.
Umræðu lauk og var málimA
vísað til 2. umræðu með sam*
hljóða atkvæðum. w