Þjóðviljinn - 21.03.1957, Side 7
Fimmtudagur 21. marz 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (T t
Misnotkun á veilánum
sjálfsögð að dómi Bjarna
Segir það í „samræmi við reglur þær, sem settar
voru að tilhlutan fvrrverandi ríkisstjórnar66 að af-
henda Helga Eyjólfssyni helming veðlánanna!
Frásögn Þjóðviljans í fyrra-
dag um að Sparisjóður
Reyivjavíkur hafi veitt Helga
Eyjólfssyni einum 24 lán af
49 sem sjóðurinn hefur út-
hlutað' s.h tvö ár í samrasmi
við samning sinn við fyrx*-
verandi ríkisstjói’n hefur vak-
ið mikla athygli og umtal.
Hafa þessir starfshættir spari-
sjóðsins mælzt mjög illa fyrir
og eru almennt fordæmdir,
• einnig af þeim fylgismönnum
Sjálfstæðisfloksins sem ekki
telja að opinherar lánastofn-
anir eigi að veita fjármála-
mönnum sérstaka og um-
fangsmikla fyrirgreiðslu á
sama tíma og þúsundir efna-
lítilla einstaklinga fá engin
lán til byggingar eigin íbúð-
ar.
Mönnum er eðlilega spum:
Hvað veldur því að athafna-
samur fjármálamaður á slíkan
aðgang að lánsfé hjá Spari-
sjóði Reykjavikur að hann
fær umyrðalaust lán út á 24
íbúðir sem ekki eru byggðar
til eigin afnota heldur í því
skyni að leigja þær, en tugir
ef eklti hundruð einstaklinga
sem eru að basla við að
hyggja yfir sjálfa sig fá að
bíða, og óvíst með öllu hvort
þeir fá umsóknir sínar nokk-
urntima afgreiddar ?
T*r í samræmi við
ílokksstefnuna
Svarið við þessu liggur í
augum uppi. Meginstefna
Sjálfstæðisflokksins er að
hlaða undir braskarana og
spekúlantana en ekki að að-
stoða efnalítinn almenning
við að byggja yfir sig. Þess
vegna taldi íhaldið. sem stjóm-
ar Sparisjóði Reykjavíkur sér
rétt og skylt að greiða fyrir
byggingastarfsemi Helga Eyj-
ólfssonar með því að veita
honum 24 lán af þeim 49' lán-
um sem alls hafa verið látin
af hendi á tveimur árum sam-
kvæmt lögunum um húsnæðis-
málastjóra og veðlán til íbúða-
bygginga.
Og þegar stjóm sparisjóðs-
ins ráðstafaði þannig þessu
lánsfé lágu fyrir fjölda marg-
ar umsóknir frá félitlum ein-
staklingum sem vom að
byggja yfir sig og höfðu
hvergi annars staðar aðgang
. að nauðsynlegu lánsfé.
Aðalráðamaður íhaldsklík-
tuuiar í stjóm sparisjóðsins
er Bjarni Benediktsson, rit-
stjóri Morgunblaðsins. Hann
ber því ekki sízt ábyrgðina á
þessari furðulegu misnotkun á
fé sparisjóðsins.
'★ Rann bióðið til
skyldimnar
Morgunblaðinu, undir rit-
stjóm Bjama Benediktssonar
rann því að sjálfsögðu blóðið
til skyldunnnar þegar Þjóð-
viljinn afhjúpaði þetta
hneyksli í fyrradag.
1 gær reynir Bjami að klóra
yfir atferli sparisjóðsstjómar-
innar í rammagrein á annarri
útsíðu Morgunblaðsins.
Og auðvitað verða útúr-
snúningar og blekkingar
helzta haldreipið þegar mál-
staðurinn er slíkur sem hér
hefur verið lýst.
Bjami reynir að bjarga sér
með þeiri fullyrðingu að 24
lánin til Helga Eyjólfssonar
séu ekki nema lítið brot af
því sem lánað hafi verið, og
því ekki umtalsverð.
Til þess að gera þetta senni-
legra lætur Bjarni Morgun-
blaðið skýra frá því að spari-
sjóðurinn veiti árlega hundmð
lána til nýbygginga.
„S.I. ár voru t.d. veitt. um
250 fasteignaveðlán, að lang-
mestu leyti til nýbygginga",
segir Morgunblaðið.
★ Skýrsla sparisjóðsíns
sjálfs
Og síðan slær blaðið því
föstu að upplýsingar Þjóðvilj-
ans um 49 lánin, af hverjum
Helgi Eyjólfsson fékk 24,
„hvíli því á algerum misskiln-
ingi“ .
Þjóðviljinn hefur ekki sagt
aukatekið orð um það, að
Sparisjóður Reykjavikur liafi
ekki veitt önnur fasteignaveð-
lán en þau sem gerð vom
að umtalsefni í tilefni lán-
veitinganna til Helga Eyjólfs-
sonar. Frásögn blaðsins
byggðist á þvi einu að Spari-
sjóður Reykjavíkur var aðili
að iánveitingiun. þess veðlána-
kerfís sem varð gjalaþrota í
höndum íhaldsstjórnar Ólafs
Thors og veitti samkvæmt því
samkomulagi 49 veðlán til í-
búðabygginga árin 1955 og
1956, samkvæmt skýrslu sem
framkvæmdastjóri sparisjóðs-
ins hefur afhent húsnæðis-
málastjórn.
Og það var helmingur þessa
lánsfjár, sem tilheyrði sjálfú
veðlánakerfinu, sem stjóm
Sparisjóðs Reykjavíkur taldi
sér sæmandi að ráðstafa til
eins manns, til þess að auð-
velda honum stórfellt bygg-
ingabrask, á sama tíma og
þeir sem minna máttu sin
fengu enga úrlausn.
Svo langt gengur Bjarni
Benediktsson í ósvífninni að
hann hælir sér beinlínis af
því að hafa fengið þessu
framgengt og fullyrðir að lán-
in til Helga Eyjólfssonar séu
i aigjöru „samræmi við reglur
þær, sem settar voru að til-
Mutun fyrnerandi rífeis-
stjómar“ um lánveitingar.
★ Vildi haida möguleik-
anum opnum
Að vísu mun það rétt að
íhaldið fékk því ráðið á sín-
um tíma að ekki væri 'fyrir
það girt við setningu laganna
að slik misbeiting gæti átt
sér stað. Það mundi eftir sín-
um. Og enginn efast um að
íhaldið hafði einmitt þessu
Hlca misnotkun í huga þegar
það krafðist þess að spari-
sjóðir og tryggingafélög réðu
sjálf úthlutun þess fjár er
þau létu af hendi til veðlána-
kerfisins. Með þvi skyldi haid-
ið opnum möguleika til að
hlynna á sérstakan hátt að
vildarmönnum og gæðingum
sem nota vildu veðlánakerfið
til að auðvelda. braskstarfsemi
sína.
Fyrsta tilfellið af þessu tagi
hefur nú verið afhjúpað. Og
vitanlega gerðist Morgunblað-
ið verjandi þess, úr þyí að
sjálfur aðalritstjóri blaðsins
stóð að „fyrirgreiðslunni“ og
atferli hans studdi að fram-
gangi flokksstefnunnar um að
hlynna að athafnasömum
fjármálamanni og flokksgasð-
ingi.
★ Er von írekari
upplýsinga
En þar sem Bjami Bene-
diktsson kýs að fara út í þá
Framhald á 10. síðu.
•' ’t. % - ú? . •
• . • M‘***.v- . - '.'-•s'.xV"’ ••
í nœstu viku eru liöin 10 ár frá
síðasta Heklugosi. Mörg hafa eld-
gosin oröið á landi hér frá pví
ísland byggöist. Þetta gos haföi pá
sérstöðu að í fyrsta sinn voru til
staðar íslenzkir vísindamenn til
aö fylgjast með gosinu og rann-
saká pað frá pví strax er pað
hófst og par til pví lauk. Hefur
ekkert gos á landi hér verið rann-
sakað jafn rækilega. Vísindafélag
íslendinga hóf fyrir nokkrum ár-
um útgáfu á niðurstöðum peirra
rannsókna í ritinu Heklugosið
1947■—1948 (The Eruption of
Hekla 1947—1948), undir ritstjórn
þeirra Trausta Einarssonar, Guð-
mundar Kjartanssonar og Sigurðar
Þórarinssonw, á petta aö verða
mikið rit, pegar því er íokið.
Heklugosið 1947 var kvikmynd-
að og voru ýmsir par að verki, en
beztu kvikmyndina tóku pó peir
Steinpór Sigurðsson magister og
Árni Stefánsson bifvélavirki, en
Steinpór fórst við kvikmyndatök-
una haustið 1947. Kvikmynd pessi
liefur verið sýnd víða um heim og
hvarvetna hlotið verðskuldaða at-
hygli. ^
Ferðafélag íslands minnist, á
skemmtifundi sínum í Sjálfstæð-
ishúsinu í kvöld, 10 ára afmœlis
Heklugossins. Verður sýnd Heklu-
kvikmynd peirra Steinpórs Sig-
urðssonar og Árna Stefánssonar
og mun dr. Sigurður Þórarinsson
útskýra hana. — Ef aðgöngumiðar
hafa ekki aUir selzt í gœr fást
þeir í Bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssönar.
Visur
ortar tll minningar um ð’ínu
Jónasdóttur frá Fremri Kotunx i
Skagafirði.
Fyrtr norðan fjöllin bredð
frétti ég af brögum,
þar sem ba45i heil og heið
hugs.uu réði lögum. j
I»egar lýður lék sér að
Ijóðsins guilabrotum
æðri heildir úr þeim kvað
Ólína frá Kotum
Spekilítil spáin mín 1
spyr því fram á veginn
livort hún ltfi listin þín
líka hinumegin. — — —
Allri þögn ég una hlýt,
engar leiðlr þekki;
t.úngai-ð minn ég lágan lít,
lengra sé ég ekki.
— Gegnum þykkan þagnarntfe
þessa nætur vöku
sólarheimi sunimn úr
sendu mér eina stöku.
Sveinbjörn Benteinsson.
Var vatnið
lótið renna
óhindrað af
róðnum hug?
Mönnum hefur orðið nokk-
uð tíðrætt um vatnsleysið I
rafstöðinni við Andakílsá nú
undanfarið. Stjórn virkjunar*
innar auglýsir rafmagns-
skömmtun kvöld eftir kvöld
og menn sitja í myrkri og
kulda í Mýra- og Borgar-
f jarðarsýslum og á Akraneai.
1 haust og fram eftir vetri
var mjög mikið vatn í Skorra-
dalsvatni, en þar á að vera
einskonar vatnsmiðlun fyrir
þetta orkuver. Sú miðlun hef-
ur reynzt ónóg um skeið, og
stjórn virkjunarinnar heftur
sótt það af kappi að ’fá að
hækka vatnsborð Skorradals-
vatns svo mjög, að slík hækk-
un mundi stórskemma margar
jarðir og eyða nokkrum að
mestu.
Slík hækkun hefur mætt
mjög mikilli mótstöðu bænda
í Skorradal og margra ann-
arra, er sjá eftir 250 hektör-
um lands undir vatnið. Stjórn
virkjunarinnar hefur hinsveg-
ar sótt sitt mál af kappi, og
virðist ekki mega á milli sjá
hvomm aðilanum veiti nú bet-
ur.
Bóndi í Skorradal kom til
bæjarins fyrir nokkru, og
sagðist honum svo frá, að.
ekkert hafi verið gert til þess
að halda í vatnið meðan nægt
vatn var fram eftir öllum
vetri, heldur hafi það verið
látið renna tálmunarlítið til
sjávar.
Af þeim sökum hlýtur sfi
spurning að vakna hjá ýms*
um, hvort stjórn rafstöðvar-
innar við Andakílsá hafi
hleypt vatninu fram af ráðil-
um hug til þess að fá raf-
magnsnotendur til þess að
lieimta hækkun vatnsins.
Virðist full ástæða til að ’iið
rétta verði upplýst í xnáli
þessu. 1
Fjölbreytt úrval af
TRÚLOFUNARHRINGIR
STEINHRINGUM
18 og 14 karata.
— Póstsendum —