Þjóðviljinn - 04.05.1957, Page 1

Þjóðviljinn - 04.05.1957, Page 1
 Laugardagur 4. maí 1957 — 22. árgangur — 99. tölublað Stðraukin fjárframlög til landnáms og þeirra jarSa sem hafa litla ræktun Um 60% /arða i obú3 með minna tún en 10 hekfara ■ Með hinni nýju löggjöf er nú liggur fyrir Alþingi um landnám, ræktun og byggingar í sveitum, er hækkað um helming framlag ætlað að skila nýbýli.ngum í byggöar- hverfum fullræktuðu 10 ha. túni, í stað 5 ha. til þessa. Sömu réttindi eiga þeir að njóta, sem reisa einstaklings- nýbýli utan byggðahverfanna. Leggja rkal fram minnst IV2 milljón kr. árlega til þess aö veita nýbýlingum allt að 25.000 kr. framlag til íbúðarhúsabygginga. Auk þess er fyrirhuguð öflug opinber hjálp til að auka ræktun þeirra bvla er minnsta ræktun hafa. . Stjórnarfrumvarpið um land- nám og nýbyggingar í sveitum kom til 2. umræðu í neðrideild 1 gær, og urðu um það allmiklar umræður. Ásgeir Bjarnason háfði framsögu af hálfu landbún- aðarnefndar. Mælti nefndin öll m'eð frumvarpinu en þingmenn Sjálfstæðisflokksins Jón Pálma- son og Gunnar Gíslason báru íram yfirboðstillögu um fjár- framlög Voru þær felldar með 16 atkvæðum gegn 10, en all- margar sameiginiegar breytingar- tillögur nefndarinnar samþykkt- ar. Stjórnarflokkamenn í nefnd- inni eru Ásgeir Bjarnason, Gunnar Jóhannsson og Ágúst Þorvaldsson. f nefndaráliti er allýtarlega skýrt frá nýjungum þeim sem í frumvarpinu felast, og fer hér á eftir aðalefni þess: Frumvarp það, sem hér um ræðir, felur í sér mörg nýmæli, ásamt stórauknu fjárframlagi þess opinbera til nýbýla og þeirra býla, sem hafa litla rækt- un. Er það fagnaðarefni fyrir alla, sem hlut eiga að máli, að áfram skuli miða á þeirri braut, sem þegar er mörkuð, þ.e. auk- in nýting á gróðurmoldinni, sem áður fyrr skapaði þau verðmæti, sem heita mátti, að aliur lands- lýður lifði á. Þótt með sanni megi segja nú, að hafið umhverf- ís landið færi okkur aðalgjald- eyristekjurnar, þá rýrir það á engan hátt gildi landbúnaðarins fyrir þjóðarbúskapinn, þar sem fækkandi fólki til sveita hefur tekizt að stórauka landbúnaðar- framleiðsluna, svo að nú er flutt út bæði kjöt, gærur, osta o.fl Auk þess er ekki annað sýnilegt en að landbúnaðurinn geti séð íslenzku þjóðinni fyrir því, er Framhald á 3. síðu. Fyrsta maí-hátíðahöld á Siglufirði og fsafirði Fyrsti maí var hátíðlegur haldinn á nokkrum stöðum uti á landi, eins og venja hefur veriff undanfarin ár. Lúther Jónsson Siglufirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Fyrsta maí-hátiðahöldin hér hófust 30. apríl með dansleik í Alþýðuhúsinu. Fyrsta maí, kl. 1.30 var safn- azt við Verkalýðshúsið og hófst kröfuganga kl. 2. Éljaveður var ......1 °g t>ví horfið að því ráði að *WS I halda fund i bióhúsinu i stað útifundar á torginu. Fundinn í bíóinu setti Jóhann G Möller með ávarpi. Ræður fluttu Sig- Lúther Jónsson iðnnemi kosinn formaður Æ.F.R. Affalfundur Æskulýösfylkingarinnar, félags ungra sós- íalista í Reykjavík, var haldinn í fyrrakvöld í Tjarnar- götu 20. í fundarbyrjun gaf Einar Gunnar Einarsson, fráfarandi formaður ÆFR, skýrslu um störf félagsins og Einar Ás- geirsson gjaldkeri las upp roikninga þess. Ber skýrsla for- manns með sér að allmikið líf hefur verið í félagsstarfinu á liðnum vetri, en væntanlega verður skýrt nánar frá því síð- ar á æskulýðssíðu blaðsins. Því næst fór fram stjómar- kjör. Fonnaður var kjörinn Lúther Jónsson prentnemi, varaformaður Gunnai Gutt- ormsson járnsmíðanemi, ritari Hulda Hallsdóttir tannsmiður, gjaldkeri Ingi Hilmar Ingi- mundarson menntaskólanemi og meðstjórnendur Erla Jóns- dóttir skrifstofumær, Hrafn- kell Ársælsson verkamaður og Sigurjón Pétursson verkamað- ur. I varastjórn vom kjömir Jóhannes Bjarni Jónsson raf- virkjanemi, Sigurður Oddgeirs- son menntaskólanemi og Úlfar Hjörvar monntskólanemi. Að stjórnarkjöri loknu flutti Einar Olgeirsson alþingismaður stórmerkt erindi um hernáms- málin og stjórnmálaviðhorfið og ræddi jafnframt um hin al- þjóðlegu viðhorf. Loks sagði Sigurjón Einarsson íréttir af undirbúningi heimsmóts æsk- unnar í Moskvu. ríður Þorleifsdóttir, formaður Brjmju og Óskar Garibaldason, varaformaður Þróttar. í fundar- byrjun og milli ræðnanna lék Lúðrasveit Siglufjarðar undir stjóm Björgvins D. Jónssonar. Kl. 5 var kvikmyndasýning fyrir börn, en kl. 8.30 hófst skemmti- fundur í Alþýðuhúsinu. ísafirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Skemmtifundur var haldinn í Alþýðuhúsinu 1. maí og hófst hann kl. 4 síðdegis. Lúðrasveit ísafjarðar iék undir stjórn Harry Herluvsen. Jón Guðmundsson, formaður Sjómannafélags ís- firðinga hélt ræðu. Tveir menn léku á mandolin og nokkrar stúlkur sungu og léku undir á gítara. Sigurður Kristjánsson sjómaður flutti frumort kvæði. Að lokum var sýnd kvikmynd. Reykvísk alþýða fylkir sér f Vonarstraeti til kröfugöng- unnar 1. niaí. Innl í blaðinn % „Snjókarlínii viðurstyggi- | Iegi“ mannæta, segir olíu- milíjónari. 5. síða, íbúðabyggingar í Noregi, Srfþjóð og Danniörku. 7. slðá« Álþýðubiaðið hamast gegn verkl ýðssamtökunum Bergmálar áratugagamalt ráð úr málgagni atvinnurekenda Það er auðséð á blöðunum í gær að afturhaldinu svíður sárt hirtirg sú sem alþýða. Rey’ajavíkur veiiti því 1. maí. Afturhaldsblöðin þc|ra ekki að áætla neinar tölur um mannfjöldann 1. maí — eins og löngum hefur þó verið háttur þeirrra — og ekki birta þau neinar myndir til að ,,sanna“ mál sitt um að fámennt hafi verið! Fyrir- sögnin á frétt Morgunblaðsins hljóðar svo: „Aðeins þrír féalgsfánar blöktu í kröfugöngu konmiúnista fyrsta maí“. Og fyrirsögn Alþýðublaðsins var þessi: „Aðeins þrír félagsfánar bornir i kröfugöngu kommúnista.“. Fyrirsagnimar voru þannig smíðaðar sameiginlcga. og þær gefa raunar rétta. mynd af deginum: Það \ar hægt að læsa nokkra félagsfána inni, en fóikið kom. Annars vakti það sérstaka athygli rranna í gær að Al- þýðublaðið réðst á kröfugöngu og hátvðahöld verkalýðs- ins af langtum íiieiri heift og ofstæki en nokkurntíma Moi'gunblaðið, og málflutningur þess var nákvæmlega sniðinn eftir munnsöfnuði atvinnurekendablaðsins i upp- hafi verkalýðsbai áttu á íslandi. Berum t.d. saman þessar tvær tilvitnanir: Morgunblaðið, 2. maí 1923, um fyrstu kröfugöngu verkalýðsíns í Reykjavík: „Verkalýðsfélögin hér höföu efnt til kröfugöngu í gær, 1. maí, og fóru hana. En furðulega pótti mönnum hún fáliðuð, svo mikið sem á hafði geng- ið í Alþýðublaðinu um hana dagana áður. Voru par á að giska 40—50 fullorðnir menn og konur, en hitt smábörn, sem lofað hafði verið með til skemmtunax og uppfyllingar. Rauðir fánar blöktu yfir þessum famenna flokki., og allmörg spjöld voru borin í honum með ýmsum upphrópunum á. Er pað til sóma verkamönnum, að þeir létu ekki pvæla sér út í pennan leikaraskap“. Alþýðublaðið, 3. maí 1957, um krofugöngu verkalýðsfélaganna 34 árum siðar: „Kommúnistar hömuðust með öllum aðferðum til að fá fólk til að koma í göngu sína, og fór bíll um bæinn með hátalara til að minna fólic á að koma. Auk þess voru neyðarköll send í tilkynn- ingapátt útvarpsins. Árangurinn mun pó lcngi í minnum hafðvr, pví að svo aumkunarverðan skrípaleik hafa Reykvíkingar ekki séð og pessi ganga var. Börn og unglingar voru fengnir til að bera rauöa fána og borða, en mestur hluti verkalýðs höfuöstaðarins lét ekki hafa sig til að marséra um stræti i sa{nfylgd kommúnista“. Þarna ber öllu saman: Það gekk ntikið á í Alþýðu- blaðinu þá; kommúnistar hömuðust nú. Þátttakendur voru aðallega börn þá; börn og unglingar nú. Kröfu- gangan var leikaraskapur þá; skrípaleikur nú. Verka- menn létu ekki þvæla sér út í gönguna þá; létu ekki hafa sig til að marséra í henni nú! Eftir er svo aðeins að óska Alþýðablaðinu til ham- ingju með hið nýja hlutskipti.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.