Þjóðviljinn - 14.02.1958, Side 7
Franski elilflauga- og raf-
einda.fræðingurinn Albert
Ducrocq ritar grein i viku-
blaðið L’EXPRESS uni
bandaríska gervitunglið.
Þjóðviljinn hefur áður birt
útdrætti ur greinum hans
unr sovézku spútnikana, og
hér kemur útdráttur úr
þessari síðustu grein hans.
Ffcucrocq byrjar grein sína á
að tilfæra nokkur ummæli
sem bera vitni skiijanlegum
fögnuði Randaríkjamanna yfir
þessu afreki vísindamanna
þeirra. Knowland, leiðtogi
repúblikana á Bandaríkjaþingi,
sagði að hér fengju þeir verð-
ugt svar sem hefðu gefið upp
alla von um Bandaríkin. Eisen-
hower forseti átti ekki önnur
orð en: Þetta er dásamlegt.
Og almenningur sagði: „Við
þurftum ekki nema fjóra mán-
uði til að ná Rússum“. „Við
eram aftur orðnir fyrstir“. „Við
getum unnið kapplilaupið til
tunglsins“. Og í einu blaðinu
mátti lesa: „Gervitungl okkar
fer þúsund kílómetrum hærra
en spútnikinn.“
Aðalhöfundur bandariska
gervitunglsins, sem skírt var
Könnuður, hinn þýzkættaði vís-
indamaður Wernher von
Braun, varaði þó við of mikilli
bjartsýni: „Enda þótt við gæt-
um sótt fram með fimmtungi
meiri hraða en Rússar, mynd-
um við þurfa enn fimm ár til
að ná þeim“.
A sama hátt,
með sama hraða
Og' síðan segir Ducrocq:
„Könnuði var komið fyrir á
braut sinni á sama hátt og hin-
um sovézku fyrirrennurum
hans frá síðasta hausti. Og
hann fer umhverfis jörðina
í nokkurn veginn sömu fjar-
lægðum frá jörðu og hraði
hans er einnig sá sami: 29.250
km á klukkustund þegar hann
er í 300 km hæð, en aðeins
23.500 km á klukkustund þegar
hann kemst lengst frá jörðu,
i 2.800 km hæð. Þessar tölur
eru óumflýjanlegar, þar sem
hraði gervitungls verður að
vera í ákveðnu hlutfalli við
hæð þess“.
Hringlaga braut
eftirsóknar-
verðust
Ðucrocq segir í þessu sam-
bandi í neðanmálsgrein: „Þeg-
ar um er að ræða gervitungl
sem far,a umhverfis jörðina í
lítilli hæð, eins og þau sem
hingað til hafa verið send á
loft, þá er hringiaga braut eftir-
sóknarverðust hvernig sem á
er litið. Og þegar gervitungli
er skotið á loft þá er fyrir-
fram gert ráð fyrir að koma
því á hringlaga braut i ákveð-
inní hæð. Könnuður átti þann-
ig að fara á slíka braut í 480
km hæð. En vegna þess að
hraði Júpiter C-skeytisins
reyndist meiri en gert hafði
verið ráð fyrir, varð brautin
ekki hringlaga, heldur spor-
baugslöguð".
Af þessu verður ljóst að það
er misskilningur að halda því
fram að bandariska gervitungl-
ið hafi það fram yfir spútn-
ikana að það fari lengra frá
jörðu. Það 'ber þvert á móti
—. Fösutdágur 14. fébrúár 1958 1— ÞJÓÐVILJÍNN —1. (7
Hafa Bandaríkjameim jafnað metin í
eldflaugakeppninni með Könnnði ?
|2- þrep
11 Scrgeant
lcldnaueai
Franskur eldflaugafræðiugur
gerir grein fyrir Könnuði og
svarar þeirri spurningu
því vitni að útreikningar
bandarisku vísindamannanna
hafi ekki staðizt eins vel og
hinna sovézku starfsfélaga
þeirra.
Rafeinda-
undur
Síðan segir Ducrocq:
„Fyrsta gervitungl Banda-
ríkjanna er athyglisvert tækni-
afrek, vegna þess að höfund-
um þess hefur tekizt að koma
fyrir flóknum og afar nákvæm-
um útbúnaði, sem er mjög
léttur (4,5 kg). Könnuður er
hreinasta rafeinda-undur. í
honum eru tvær örsmáar út-
varpsstöðvar. Önnur stöðin sem
hefur 60 millivatta styrkleika
gengur fyrir tveim litlum
kvikasilfursrafhlöðum sem end-
ast munu um tvær vikur. Hún
sendir út á 108 megariða tíðni.
Hin stöðin, sem sendir á 108,03
megariðum, fær orku sína frá
fótósellum sem komið er fyrir
utan á gervitunglinu. Þessi út-
búnaður var gerður af starfs-
mönnum í rannsóknarstöð hers-
ins í Fort Monmouth og sell-
umar ættu að geta séð stöð-
inni fyrir rafmagni á meðan
Könnuður er á lofti“.
Ducrocq gerir síðan grein
fyrir því með hvaða hætti hægt
er að láta sendistöðvamar gefa
ýmiss konar upplýsingar um
fyrirbæri í geimnum. Þannig
hafa hitamælar Könnuðar á-
hrif á tíðnina, sem breytist
um 100 rið fyrír hvert eitt hita-
stig. Á sama hátt má fá vitn-
eskju um breýtingar á þrýst-
ingi og um geimgeislunina. Það
hefur að vísu síðar frétzt að
tæki þau sem mæla áttu geim-
geislana hafa skaddazt þegar
' gervitunglinu var skotið á loft.
Nú hefur einnig frétzt að
þagnað sé í i-afhlöðustöðinni,
en hin gefur enn frá sér merki.
Hverfandi lítil
orka
„Enda þótt rafeindatækni nú-
tímans geti búið til mælitæki
sem mjög litið fer fyrir“, held-
ur Ducrocq áfram, ,,þá er því
miður ekki hægt enn þá að
hlaða miklu rafmagni í lítið
efnísmagn og þess vegna hafa
sendistöðvar gervitunglsins
hverfandi litla orku til ráð-
stöfunar (minni en. o,l vatt)
— eða minni en notuð er til
að fjarstýra leikföngum.
Til að fá betri not af þess-
ari litlu orku hafa Bandaríkja-
menn notfært sér tækni þá
sem felst í að hægt er að beina
ákveðnum bylgjum í ákveðna
sitt. Ástæðan til þess að
þeir völdu hina háu tíðni
108 megarið, sem svarar til
2,79 metra bylgjulengdar, var
sú að á þessu bylgjusvæði
lúta bylgjurnar lögmálum ljóss-
ins og fara því „eftir beinni
iínu“ til jarðar. Einn' galli er
samt á þessari lausn: Á sama
hátt og bylgjur sjónvarpsins
— sem einnig fara eftir beinni
línu — koma ekki fram á
öðrum viðtækjum en þeim sem
eru innan „sjónarsviðs“
sendistöðvarinnar, verður ekki
hægt að taka við bylgjum
Könnuðar nema á þeim svæð-
um jarðar sem hann þeysist
yfir, þ.e. aðeins í örfá'ar mín-
útur í einu.
Erfið viðtaka
Viðtakan verður enn erfið-
ari vegna þess hve sendistöðv-
arnar eru veikar. Radíó-
amatörar um allan heim
reyndu árangurslaust að fylgj-
ast með ferðum Könnuðar:
Það eru aðeins sérstaklega út-
búnar stöðvar sem geta tekið
við hinum stöðuga sóni hans.
Bandarikjamenn hafa því
komið upp heilli keðju slíkra
viðtökustöðva, sem kölluð hef-
ur verið minitrack og byggð
var af rannsóknarstöð flotans,
Naval Research Laboratory.
Helztu stöðvarnar eru í Bloss-
om Point (Maryland), Havana,
Quito (Ekvator), Lima (Perú)
og í Santiago de Chile, en aðr-
ar stöðvar voru reistar á Ant-
illaeyjum, í Suður-Afríku og í
Ástralíu. Upplýsingar þær sem
þessum stöðvum berast eru
sendar með fjarritum til aðal-
stöðvarinnar í San Diego
(Kaliforníu), þar sem unnið er
úr þeirn með rafeindaheila.
Spútnik fyrsti sem hafði 32
kíióa þungar rafhlöður gat
hins vegar sent út á 15 metra
bylgjulengd kraftmikið bip-bip
-bip sem heyrðist í hvers kon-
ar viðtækjum um alla jörð-
ina“.
Ducrocq nefnir síðan fyrir-
ætlanir Bandaríkjamanna um
að senda marga fleiri litla
spútnika út í geiminn það sem
eftir er ársins. Hver um sig á
að afla vitneskju um sérstakt
eða sérstök fyrirbæri. „Frá
vísindalegu sjónarmiði, seg-
ir hann, „er ekkert við það að
athuga að afla slíkrar vitn-
eskju í smámolum. En slíkt
tekur lengri tíma en þegar not-
aðir eru stórir spútnikar, sem
hafa að þvi er virðist fært
Rússum á nokkrum vikum
geysimikla vitneskju sem enn
hefur varla verið lokið við
að vinna úr.
Hvers vegna?
Ástæðan fyrir því að Banda-
ríkjamenn kusu að koma upp
mörgum litlum gervitunglum.
Á þessari skýringarmyntl sést burðareldflaug banilaríska .gervi-
tunglsins Könnuðar tii vinstri, borin saman við 12 hæða hús.
Til hægri sést cldflaug af sönni gerð og með sama efnis-
magnshlutfalli sem smíða yrði ef Bandaríkjamenn ætluðu
að koma gervitungli, jafnþungu og Spútnik aimar var (500
kíló) út á braut umhverfis jörðina. Efsfc til vinstri er skýringa-
mynd af einstökum hlutum burðareldfiangar Könnuðar. (Teikn-
ingin er úr L’Express).
er sú að þeir geta ekki komið
miklum þunga fyrir á braut
umhverfis jörðina. Hvers
vegna?
Hér er komið að einni veikri
hlið á tækni þeirra. Bandarísk-
ur iðnaður hefur unnið tví-
mælalaus afrek á mörgum svið-
um og þá einkum i rafeinda-
tækni, eins og Könnuður er til
vitnis um. En hann hefur að
vissu leyti orðið aftur úr í eld-
flaugatækni.
Bandaríkjamenn skutu gervi-
túngli sinu upp á braut sem
haltar 35 gráður frá miðbaugi
jarðar. Svo virðist sem þeir
hafi viljað færa sér í nyt
snúningshraða jarðar, og bæta
þannig 1000 km á klukkustund
við hraða eldflaugarinnar. Það
er einnig eftirtektarvert að
þeir notuðu fjögurra þrepa
eldflaug til að koma Könnuði
á braut sína. Rússum nægðu
þrjú þrep og Vanguard-eld-
flaugin sem átti að koma fyrsta
gervitungli Bandarikjanna á
loft hafði heldur ekki , fleiri
En Vanguard — sem jafnvel
von Braun telur fuUkomnari
en Júpiter C — er ekki tilbúin
og þess vegna kusu Banda-
ríkjamenn fjögurra þrepa- eld-
flaug, ‘en það er lausn sem
sparaði þeim að nota mjög
mikla þrýstiorku.
Þegar Könnuður var senci-
ur á loft var „hlutfall efnis-
Framhald á 10. siðu.
könnuðub
og
1. Sergeant-
cldflaug
4. þrep
3. þrep
3 Sergeant
eldflaugar
1 Hedstonc
eldfta-ue