Þjóðviljinn - 14.02.1958, Blaðsíða 11
im»w
»Vi
Föstudagui' 14. febrúar 1958
Wrríl tRwsfel. ,#i:
ÞJÖÐVILJINN
' ■ í': ulWfííáLtl
(11
íoj:
ERNEST GANN:
Sýður á keipum
38. dagur.
liefur gerzt, gæti þaö lijálpað' yður tii að' mtma þa'ð', ef
yður dettur það í hug.“
„Hafið þér nokkurn tíma rekið nýlenduvörubúð?"
Kelsey hristi höfuðið. „Ekkert óvenjulegt kemur fyiii.
Þetta eru frumstæð viðskipti. Fólkiö vantar vöruna og
ég hef hana til. Annars sveltum við öll.“ ^ ^
„Þér eruð viss um aö klukkan hafi veriö níu?
,,Á ég að sverja við biblíuna eða eitthvað svoleiöis?
„Nei.^Það skiptir engu. En viljið þér lofa mér einu?
Ef þér sjáiö þennan mann aftur, takið þá upp símtói-
ið og htingið í þetta númer.“
Kaupmaðurinn yppti öxlum og það komu gremju-
viprur um munn hans.
„Eina ánægjan mín í lífinu nú orðið er að skipta
mér af málum ráungans,“ sagði hann niðurdreginn.
„Þökk fyrir. Eg kem aftur á morgun þegar ekki
er svona mikiö að gera. En á meðan skuluð þér reyna
aö rifja upp, hvort þetta var á mánudaginn eða þriðju-
daginn.“ Kelsey gekk til dyra.
„Er yður sama hvort þér segið mér, hvað maöurinn
hefur gert af sér?“
„Viö þurfum bara. aö tala við hann. Kannski hefur
hann ekki gert neitt.“
„Þaö var eitthvað að honum í nefinu, það veit ég.
Hann var með undarlegar blóðnasir . . . við töluöum
einmitt um það hérna við dyrnar."
„Hvað sagði hann?“
„Hann sagði að læknirinn hefði sagt honum aö fara
frá San Francisco.“
Kelsey leit út á götuna. Kannski hafði Sam slegið
Brúnó Felkin í átökunum og nefbrotið hann? Nei, þá
hefði Brúnó ekki gengið inn í nýlenduvörubúð með blátt
og marið andlit. Hann var skynsamari m svo. En
kannski væri reynandi að líta í læknaskýrslur hans
úr fangelsunum og aögæta hvort nokkuð hefði verið
að honum 1 nefinu áður. Það var ekki stórt atriði, en
það gæti leitt til einhvers, — þótt það væri ekki nema
eina grasstráiö í eyðimörkinni.
„Það lítur út fyrir að kunningi okkar hafi fariö að
ráöum læknisins.“
Kelsey ók heimleiðis í ljósaskiptunum. Hann var
þreyttur, einkum af leiðindum, sagði hann við sjálfan
sig, og einnig vegna þess að hann háfði leyft þessu
Felkin máli að fara í taugarnar á sér.
Þega,r hann kom inn í setustofuna í íbúð sinni við
Þrettándu götu, hengdi hann upp hattinn og fleygði
jakkanum og axlarólinni á legubekk. Konan hann kom
út úr svefnherberginu, léttstíg í inniskónum, og tyllti
sér á tá til að kyssa hann. Hann laut niður og kyssti
hana annars hugar.
„Þetta var ekki merkilegur koss,“ sagði hún brosandi.
Kelsey settist á bekkimi og fór að reima frá sér skóna. ®
„Eg veit það. Fyrirgefðu. Eg; var ekki með hugann
við hann. Eg átta mig eftir anúartak."
Hún kraup fyrir framan hann og sem snöggvast
hugsaði Kelsey um þaö, að fáar konur á hennar aldri
gætu kropið með svo miklum yndisþokk?. Hún var
fjörutíu og í'imm ára, snyrtileg, feitlagin kona, sem
gerði enga tílraun til að fela gráu hárin. f mjúkri
birtu stofi hnar sýndist hún miklu vngri.
„Var þetta erfiöur dagur?“ sagði hún og teygöi
sig eftir skónum hans.
„Nei, alls ekki." Eg sat bara .... það var allt og
sumt.“ Hún dró skóna af honum og þau hlógu saman.
„Þetta er í fyrsta skipti sem þú hefur dregið skóna
af fótum mér í tuttugu ár,“ sagði hann. „Þjónustan
er í framför."
„Þú leizt út eins og þú þyrftir á því að halda. Hvað
hefur komið fyrir?“
„Ekki neitt. Eg er enn að vinna að Addleheim mál-
inu.“
„Miðar ekkert í áttina?“
„Sem sagt ekki. Eg er viss um að vínur þessarar
stúlku er' svarið eöa veröur það. En hún vill ekkert
segja. Stundum held ég jafnvel aö hún haV ekkert
að segja.“
„Ef þú ætlar aö sitja 1 íbúðinni hjá henni alla daga
og allar nætur, þá hef ég rétt til þess að yita hvernig
hún er.“
Kelsey lagöi sig útaf á bekkinn og lagöi hendurnar
undir hnakkann. Hann starði upp í loftiö.
„Hefurðu áhuga á fallegu útliti hennar eöa persónu-
leika?“
„Hefur hún hvort tveggja?11
„Já, þaö hefur hún, þótt hún gæti aldrei sigraö í
fegurðarsamkeppni. Hún er ljóshærö, frá náttúrunnar-
hendi, held ég, og hún brosir ekki mjög oft. Eins og
stendur hefur hún auðvitaö ekki mikla ástæðu til að
brosa. En hún er ekki hrædd við mig .... eða neinn
annan, að því er mér virðist. Eg mundi segja að hún
væri góð dóttir fyrír fólk eins og okkur. Ef . . . hún
væri ekki götudrós.“
Kona Kelseys þagði góða stund. „Eg hef aldrei heyrt,
þig tala svona áöur . . . um neitt af þessu fólki.“
„Mér geðjast vel aö henni, ég get ekki að því gert.
Hún er ólík þeim öllum. En allt þetta mál er svo undar-
legt. Eg fæ hvorki upphaf né endi á þaö.“
„Fáöu þér blund og reyndu aö gleyma því. Kvöld-
maturinn veröur ekki til fyrr en eftir klukkutíma.“
„Jæja þá. Eg skal reyna að gleyma því, aö einhvers
staöar hlýtur að vera smuga. Og þaö vantar bara herzlu-
muninn . . . ég er svo nærri lausninni að ég get næst-
um teygt mig og snert hana.“
Gróðurkort
Framhald af 1. síðu
ið á hestum og gróðurlendiu
teiknuð inn á loftmyndir. Ætl-
unin er ao taka fyrir ákveðið af-
i-éttarsvæði annað hvort ár, og
settí því kort og ritgerð, líkt og
út er komið um Gnúpverjaaf-
rétt, að koma út annað hvort ár.
Nauðsyn
g róð u r ra n nsókn a
í viðræðunum við blaðamenn,
eins og í ritinu sjálfu, lagði
Björn einnig áherzlu á hið al-
menna og sögulega gildi gróður-
rannsókna, því ekki er hægt að
gera sér ljós,a grein fyrir gróð-
urfarsbreytingum, sem eiga sér
stað á allöngu tímabili, t. d. á
áratugum eða öldum, nema fyr-
ir hendi sé greinileg lýsing á
landinu í byrjun og lok um-
rædds tímabils. Gróðurkort eins
og þessi verða því, er tima líða
merkileg söguleg gögn. Árið 2055
t. d. verðw; á .gcundvelli þessa
korts unnt að gera sér tiltölu-
lega Ijósa grein fyrir gróðurfars-
Símon Lee lagöi bátnum sínum, Verði, tuttugu og
fjórum mílum vestur af Gullna hliðinu, þar sem Farall-
one eyjarnar risu úr sæ. Það var ekki um annan stað
aö ræöa, þótt hann væri ekki æskilegur. Símoni Lee var
lítiö um eyjarnar gefið. Þegar þoka lá yfir voru sprung-
umar og klettarnir ems og grátandi. Ög í góðu veðri
eins og núna, þegar rökkrið var rautt, var eins og
blæddi úr eyjunum. Símon Lee veiddi einkum löngu.
Það var nógu einmanalegt starf, þótt ekki þyrfti að
hafa þessar ljótu, draugalegu klettaeyjar fyrir augunum.
Þegar sólin flattist út í ílanga köku viö sjóndeildar-
hringinn stóö Símon á framþiljum litla en haglega
bátsins síns, tottaöi pípu sína og virti fyrir sér akker-
isfestina. Hvað snerti veðrið yfirleitt og aflann, þá haföi
hann ekki yfir miklu að kvarta. Tvær kartöflur voru
að sjóða á litlu eldavélimii á Veröi, sem myndu bragðast
vel með einni af litlu löngunum til kvöldverðar. Það ból-
aöi ekki á þoku, svo aö engin hætta var á að þokulúðr-
arnir á eyjunum héldu fyrir manni vöku. Ef hann hefði
aöeins einhvern aö tala við auk Tunie og Turnbuckle,
þá væri þetta ekki svo afleitt kvold. Símon virti nú
fyrir sér áhöín sína meö ódulinni lítilsviröingu.
Turnbuckle var hani. Það tók hann meira en ár að
sigrast á sjóveikinni, en loks varö hann ómetanlegur.
Hann sparaði ekki einungis nýja vekjaraklukku, heldur
hafði hann einnig þjálfað með sér ævintýralegan hæfi-
leika til að koma auga á dufl í þokunni. Löngu áöur
en Símon heyrði lágvært hringlið í þeim, var öldungis
víst aö Tumbuckle teygði fram álkuna í áttina sem
duflið var. Þannig sparaði hann einnig áttavita.
Tunie var lítill, svartur hundur, sem var oröinn
Símoni eins ómissandi og pípan hans. Hann var alltaf
við fætur hans, á hnjám hans og á næturnar hnipraði
hann sig saman við öxl Símonar. Hann haföi þann
hvimleiða ávana að falla fyrir borö þegar verst gegndi.
Um leiö og Símon varpsð'i akkeri, "tók Tunie sér sér
breytingum á Gnúpverjaafrétti
síðustu 100 órin.
Rætt er nú um möguieika á a3
bera áburð á afrétti. Áður en í
slíkt yrði ráðizt er nauðsynlegt
að hafa mynd af stærð hinna
ýmsu gróðurlenda og landteg-
unda og víta einnig hvemig hiti
ýmsu gróðurlendi tr.ha áburðar-
gjöf.
Höfundar áðurnefnds rits um
gróður á Gnúpverjaafrétti eru
dr. Björn Jóhannesson og Ingvi
Þorteinsson, en kaflann jarð-
myndaðir á Gnúpverjaafrétti
skrifaði Guðmundur Kjartans-
son jarðfræðingur. Gróðurkort-
íð, sem er litprentað var prentað
í Litbrá.
Síðar mun Þjóðviljinn segja
nánar frá starfinu að gerð jarð-
vegskorta og efnagremingar-
þjónustu Landbúnaðardeildar
Háskólans.
Svíar ha.fa kotaið með á
markaðinn dcs cða kassa til
að koma regiu á ístungurnar
á heimilinu. Þetta ér mjög
hentugt tæki og hægt að k-oma
því fyrir á gólfi,
borði, eftir
fyrir það.
&’anmg ma sfiera
A teikmngunni
er sýndur skemmti
legur sparkbúning-
ur handa svo sem
hálfs árs kríli.
Hánn er sniðinn
út í eitt með
teygju í mitti og
skálmum. Fram-
stykkið er svo
hátt að það er
smekkur um leið
og það er hneppt
með hnöppum á
buxurnar og axla-
böndin. Hentugt væri að sauma að strjúka.
flíkina úr þunnu frotté sem Af 70 sm breiðu efni þarf
auðvelt er að þvo og ekki þarf að gizka 0.65 m.
Það getur verið érfitt að fá
línóleumbút til að falla í út-
skot og króka í eldhúsi. En þó
er hægt að gera það án mik-
illar fyrirhafnar.
Tekinn er sveigjanlegur ,cn
ekki fjaðrandi stálvír' og hann
mótaður með fingrunum eftir
misjöfnunum á veggnum. Síðan
er stálvírinn settur á línóleum-
dúkinn og teiknað eftir honum
með blýanti. Þegar búið er ; að
skera af dúknum fellur hgnn
að veggnum eins og hann véeri
gróinn við hann.
■ -■ --«Tv«r• -:..vs..3s:;2