Þjóðviljinn - 30.03.1958, Side 4
4) —• ÞJÓÐVTLJINN — Sunnudagur 30. marz 1958
V.
V
■v.v
lV.V
skAeþáttur
Ritstjóri:
Sveinn Kristinsson
Frá skákþingi Sovétríkjanna
Mér hafa nú borizt fyrstu
skákirnar frá Skákþingi Sovét-
ríkjanna, en það þykir hverju
sinni meðal merkustu skákvið-
burða ársins, er þeir hinir
gersku meistarar þinga.
Sem kunnugt er lauk þing-
inu með sigri Miehaels Tal;
hlaut liann 121/, vinning.
Petrosjan varð annar með 12
vinninga og tapaði engri skák.
Þriðji varð Bronstein með 11 Vi
vinning og fjórði Averbach með
11. Þessir fjórir komast á
svæðakeppnina í Júgóslavíu.
Spassky var lengi í toppinum
en tapaði fyrir Tal í síðustu
umferð og hrökklaðist við það
niður í fimmta sæti með IOV2
vinning.
Það ber slyrkleika Tals gott
vitni, að honum skyldi heppn-
ast að verja titil 'sinn í þeirri
ofsafengnu samkeppni sem hér
var um að ræða'.
★
Við skulum nú líta á tvær
skákir frá þessu þingi, tefld-
ar af sigurvegaranum.
í þeirri fyrri sigrar hann
með mjög glæsilegum hætti
hinn gamalkunna stórmeistara
Tolusch, en gegn honum vann
hann einnig fræga skák á þing-
inu í fyrra. í síðari skákinni
tapar Tal hins vegar fyrir
Boleslavsky, en það gerði hann
einnig í fyrra!
Fyigjum nú Tal í blíðu og
stríðu.
Hvítt: Tal Svart Toluscli.
Niemzo-indversk vörn
1. d4 RfG
2. c4 e6
3. Rc3 Bb4
4. e3 c5
5. Bd3 d5
6. Rf3 0—0
O 1 O Rb—d7
Hér er oft leikið 7. - Rc6
a3 Bxc3 9. bxc3 dxc4 10. Bxc4
Dc7 11. Bd3 o.s.frv. með nokk-
uð jöfnum möguleikum. Hinn
gerði leikur er að sjálfsögðu
einnig vel nothæfur.
8. a3 cxd4
Þessi leikur hefur oft gef-
izt vel, þegar svar'ti riddarinn
stendur á c6. Hugmyndin er
að gefa hvítum einangrað peð á
d-línunni eftir 9. exd4 dxc4 10,
Bxc4 Be7 o.s.frv. En eins og
Tal sýnir ljóslega í þessari
skák er leið þessi óhagstæðari
svörtum þegar riddarinn stend-
ur á d7, Tolusch hefði þvl
bétur leikið 8. - Bxc3 9. bxc3
dxc4 10. Bxc4 Dc7 o.s.frv.
9. Rxd5!
Óvænt svar.
g exd5
10. axb4 öxc4
Ef riddarinn stæði á c6 gæti
hér komið 10. - Rxb4.
11. Bxc4
12. Bb3 ðxe3
13. Bxe3
Hinir öflugu biskupar Tals
gera meira en vega upp peða-
veikleikann á drottningarvæng.
Hann hótar nú að vinna mann
með 14. Dxd8 og síðan Bxb6.
Rb—d5
14. Bc5 He8
15. Hel Hxelý
16. Dxel bG
17. Bd4 Bb7
18. Hdl De8
19. Be5 Db5?
Hyggst þrýsta á veika peð-
ið á b4, en eftir þennan leik
magnast erfiðleikar svarts þó
fyrst fyrir alvöru. 19. - Hd8
var eðlilegasti og sennilega
bezti leikurinn.
20. Bxf6 gxf6
Gallinn var nefnilega sá, að
20. - Rxf6 gekk ekki vegna
21. De7 Bd5 22. Bxd5 Rxd5
Michael Tal
23. De4 Hd8 24. Rg5 g6 25.
Dh4 h5 26. Rxf7 o.s.frv. Það
er lærdómsríkt að sjá hversu
fljótur Tal er að notfæra sér
veikingu kóngsstöðunnar. Hann
mátar nú í 8 leikjum!
21. De4
Hótar Bc2
21. Dxb4
22. Rd4 f5
23. De5!
Tal lætur ekki eftir sér
neina ónákvæmni. Eftir 23.
Dxf5 næði svartur nokkru mót-
spili með He8.
23. Re7
24. Df6 Bd5
Svart Tolusch
abcdefgh
Hvítt Tal
25. Rc6!
Skemmtilegur riddaraleikur,
sem brýtur alla mótspymu á
bak aftur í skjótri svipan.
Drepi biskupinn riddarann
mátar hvítur í öðrum leik og
25. - Rxc6 26. Bxd5 leiðir til
mannstaps fyrir svartan. Hann
reynir því þriðju leiðina:
25. Dxb3
26. Rxe7t Kf8
27. Hel!
Fljótvirkara en 27. Hxd5,
27. Be6
28. Rxfó
og Tolusch gafst upp, þar sem
hann fær ekki varið mát í
næsta leik á annan hátt en að
fórna drottningunni.
Glæsilegur vinningur fyrir
Tal.
En í næstu skák er róður-
inn þyngri.
Hvítt: Svart:
Tal Boleslavsky
Kóngs-indversk vörn
1. d4 Rf6
2. c4 &6
3. Rc3 Bg7
4. e4 d6
5. f3
Þetta er hið umdeilda og tví-
eggjaða Sámischafbrigði. Yfir-
leitt hefur það reynzt hvítum
heldur vel upp á síðkastið.
Meðal annars vann Botvnnik,
sem hvítur, aðra og sjöttu
skákina í yfirstandandi einvígi
við Smisloff með þessu af-
brigði. ... ■
5. 0—0
6. BeS e5
í ofannefndum skákum
heimsmeistaranna, lék Smisl-
off ekki þessum leik, heldur
a6 til undirbúnings mótspili á
drottningarvæng, sem þó mis-
heppnaðist,
7. d5
Ef til vill er sterkara að
halda miðborðsspennunni enn
um stund með 7. Rg-e2. Þá leið
valdi Friðrik Ólafsson í hinni
kunnu vinningsskák sinni gegn
Najdorf á Olympiuskákmótinu
í Moskva 1956.
7. c5
Algengara er 7. - Rh5 og síð-
an f5.
8. g4 Re8
9. h4 f5
10. gxf5 gxf5
11. exf5 Bxf5
12. Bd3
Með undanförnum peðaskipt-
um sem og þessum biskups-
leik hyggst Tal ná öruggu
v.aldi yfir reitnum e4 sem
stökkpalii til fi'ekari hemaðar-
aðgerða. En Boleslavsky láðist
að taka tillit til hinna frómu
óska andstæðings síns!
Svart: Boleslavsky
ABCDEFGH
ABCDEFGH
Hvitt Tal
12. e4!
Þessi peðsfórn gerir ekki
einungis reitinn e4 að „dauð-
um punkti“ fyrir hvítan, held-
Ur opnar hún einnig hornalín-
una fyrir svarta kóngsbiskup-
inn, sem verður nú mjög á-
hrifaríkur maður.
13. fxe4 De7
Þessi di’ottningai'leikur er
liður í peðsfórnaráætlun Bol-
eslavskys. Leiki hvítur nú
Dc2 til völdunar e-peðinu
kæmi - Bg4 og livítur fær ekki
hrókað og á í erfiðleikum með
eðlilega liðskipan.
14. exf5 Dxe3ý
15. De2 Dg3ý
16. Kd2 Rc7
17. Dh2 Dxh2
18. Hxh2 Rd7
Tal á peð yfir og þar sem
drottningamar eru farnar
mætti virðast svo sem staða
hans væri ekki sem vei'st. At-
hugun leiðir þó í ljós, að svart-
ur á ýmis sterk tromp á hendi,
biskupinn á g7 er t.d. mun
stei'kari en collega hans á d3
og riddarinn á d7 á eignarlóð
á e5, en þar verður harm geisi-
öflugur. Bezt væri sennilega
fyrir hvítan að leika riddara
til f3 strax og freista þess að
koma honum til e6 jrfir g5.
19. Re4 KI18
Valdar d6 óbeint.
20. Hg2 b5!
Boleslavsky teflir rnjög kröft-
uglega og opnar nú einnig b-
línuna til sóknar.
21. Rf3 bxc4
22. Bxc4 Ha—b8
23. Hbl Hxf5
Vinnur peðið aftur og hótar
nú einum manni og tveimur
peðum. Tal er gi’einilega kom-
inn í yfirvofandi taphættu.
24. Rf—g'5 Re5
25. Bb3 c4
26. Bc2 Rxd5
Siöðugt harðnar á dalnum
fyrir Tal.
27. Rxd6 Hf6
28. Rf5 Hd8!
Launsterkur leikur, sem leið-
ir til skiptamuns vinnings og
þar með til sigui-s.
29. Kel Rf4
30. Hg3 Re—d3ý
31. Bxd3 RxdSý
32. Hxd3
Ekki var um annað að ræða,
því ella félli riddai'inn á f5
óbættur.
32. Hxd3
33. Rxg7 Kxg7
34. Ke2 h6
35. Re4 He6
36. Hglý Hg6
37. Hcl Hg2ý
38. Rf2 Hd4
39. Kf3
Tal þæfist fyrir, en barátt-
an er þó löngu vonlaus orðin.
39. Hg6
40. Re4 He6
41. Hglý Kf8
42. Hg4 HaG
43. h5 Ha5
44. Hf4ý Ke7
Tal gafst upp.
Vel tefld skák' af Bole-
siavsky.
Þýzkar kvenblássur
Fjölbreytt úrval.
GLUCCINN, Laugaveg 30.
íslenzku dægurlögin — Water efriver og water
sængurver — Textar eftir íslenzka höfunda.
,,Einn af átján“ hefur sent
Póstinum eftirfarandi bréf:
„Kæri Bæjarpóstur, I nóv.
s.l. var ráðizt allillilega á ísl.
dægurlögin í póstinum lijá þér
og þar eð ég. er „einn af
átján“, sem fást við slíkt get
ég ekki látið hjá líða að sendá
þér þessar línur, þótt seint
sé. Mér finnst sem sé þessi
lunmælj vera óanngjörn, þar-
eð ísl. dægurlögin að flestra
dómi hafa batnað til muna
síðustu árin, bæðí livað mús-
ik og texta viðvíkur. Lang-
ar mig í þessu sambandi að
benda á útvarpsþátt Félags
ísl. dægurlagahöfunda en þar
hefur komið fjöldinn allur af
nýjum dægurlögum og hafa
þættir þessir fengið ágætar
undirtektir, ekki sízt úti á
landi, þar sem Keflavíkurút-
varpið hefur ékki alveg náð
tökum á hlustendum. Vildi ég
nota tækifærið og biðja þig
að birta alveg sérstaklega
einn texta, eftir Jenna Jóns,
við lag eftir sama höfund,
sem leikið var nýlega í ofan-
nefndum þáttum og lieitir
„Til æskunnar'1; en hann er
á þessa leið:
Æskunni cr ljúft að láta,
Ijúfara að hlæja en gráta.
Bjart með sigurbros á vör,
hún byrjar lífsins för.
Alvaran á eftir kemur,
eiun og sérhvern lífið temur. _
Gæfa er mest og gleði manns
að gott sé lijarta hans.
Öll við þráum frið og frelsi
fyrirlítum stríð og helsi.
Eflum andans meiuiingu og
mátt.
Það merki berum hátt.
Heitum því að vera öll vinir,
vinir heimsins, dætur, sjnir.
Gæfa er mest og gleði manns
að ,gott sé hjarta lians.
Og spyrja svo þennan góð-
viljaða nöldursegg, hvort ekki
sé skemmtilegra að heyra
æskuna syng.ja þennan texta
heldur en lagið um hana
Rokka-Binu með efri og neðri
bót á rassi, sem hljómar all-
staðar hvar sem maður kem-
ur eða „Water“ efriver og’
„Water“ sængurver. Annars
væri ekki úr vegi að hréfrit-
arinn benti á, hvaða lög hon-
um finnst vera eintómur upp-
soðningur og yfirleitt held ég
að dægurlagahöfundar myndu
taka því með þökkum, að lög
þeirra væru gagnrýnd meir
en gert er á opinberum vett-
vangi, því það er álit mitt að
sanngjörn gagnrýni sé ávallt
til góðs. Með fyrirfram þakk-
laíti og í von um að bæði þú
og bréfritarinn geri ykkur
ferð til að hlusta á dægur-
lagakeppnina, sem nú fer
fram á Þórskaffi, svo að þið
getið hlustað og dæmt svo.
Þinn einlægur,
„Einn af átján“.