Þjóðviljinn - 30.03.1958, Page 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 30. marz 1958
Marzheftið er komið út
Hvernig er sement
framleitt?
Á slóðum væringja
— ferðasaga —
Spennandi fram-
haldssaga, þýdd af
Gunnari Gunnarssyni
Smámyndasaga og
fleira efni.
Munið að skila smá-
sögum í keppnina
fyrir 15. apríl.
TIL SÖLU
í Kópavogskaupstað
Einbýlisliús. Útb. frá kr. 80 iþús.
Nýlegt steinliús með 2ja iherb. íbúð og 3ja herb. íbúð.
Nýlega|# 4ra lierb. íbúðarhæðir á vægu verði.
2ja og 3ja herb. íbúðir með vægum útborgunum.
Hús í smíðum og grunnur með allmiklu timbri.
Ný fiskbúð o.m.fl.
NÝJA FASTEIGNASALAN.
Bankastræti 7. Sími 24-300 og kl. 7,30—8,30 e.h.
18546.
Plötusmiðir, járnsmiðir og rafsuðumenn
óskast.
Stálsmiðjan lii.
Sími 24 4 00.
Skrifstofnstúlka
óskast. — Helzi búsett í Kópavogi.
MÁLNING h.f.
..StaSSð við yfirlýsingar"
Pramhald af 7. síðu
hent, að baráttan fjrrir brott-
flutningi setuliðsins verður
ekki raunhæf fyrr en úrsögn
Islands úr Atlanzhafsbanda-
laginu verður sett á dagskrá.
Að öðrum kosti er verið að
bjóða þjóðinni einskærar
blekkingar.
Hersetumálið er alvarleg-
asta og afdrifaríkasta vanda-
mál, sem íslenZku þjóðinni
hefur borið að liöndum um
áratugi. En það hefur verið
gert að aðhlátursefni. Það lít-
ur ekki út fyrir, að hér sé
ung þjóð að reyna að leysa
höfuðviðfangsefni fullveldis
síns, heldur er því líkast sem
einhver háðfuglinn hafi gert
sér það til gamans að breyta
djúpum harmleik þjóðar í
spott og skrípaleik. Eisen-
hower Bandaríkjaforseti segir
okkur, að friður ríki nú á
jörð og mikil sæld með mönn-
um og mammoni. Þá hlaupa
fram tveir íslenzikir stjóm-
málaflokkar með kosninga-
kvíðann í haldinu og sam-
þykkja yfirlýsingu um brott-
för erlends hers af íslandi.
No'kkrum mánuðum síðar
lenda tvö af bandalagsríkj-
um íslands, England og
Prakkland, í stríði fyrir botni
Miðjarðarhafs, flækt í sínu
eigin neti og reyna nú að
höggva þann hnút, sem þau
fá ekki leyst. Og Eisenhower
segir að ófriðlega líti út í
heiminum, kennir hinum al-
þjóðlega kommúnisma um
glæpi og glappaskot banda-
manna sinna, og er mjög
svartsýnn á friðarhorfumar.
Og eim hlaupa fram tveir
íslenzkir stjórnmálaflokkar —
og hlaupa frá kosningaloforð-
um sínum. Og þeir geta án
efa haldið áfram lengi enn
að hlaupa frá þeim — hinir
friðsælu vinir vorir, sem
strendur eiga við Atlanzhaf,
Tilboð óskast
x nokkrar fólksbifreiðir, jeppa, strætisvagn, yfir-
Ibyggða vömbifreið og litla kranabifreið, er verða
til sýnis að Skúlatúni 4 mánudaginn 31. marz
kl. 1—3 síðdegis. — Tilboðin verða opnuð í skrif-
stofu vorri kl. 5 sama dag.
Nauðsynlegt er að taka franx símanúmer í tilboði.
Sölunefnd vamarliðseigna,
AUSTURSTRÆTI
PASKAEGG
Fjölbreytt
úrval
Veið við allra hæíi
SÍWAR: ISOAH -
Nú snaraðist Karl inn og beindi skammbys3U að
Þórði. „Þú siglir með okkur“, sagði hann hvasst,
„við förum okkar leið undir seglum“ Karl var far-
inn út affcur, er Þórður áfctaði sig á þessum orðum.
Á meðan var áhöfnin önnum kafin við að binda
4 stor akkeri í endann á lmunni og koma þeim í sjo-
inn. „Eg geri ekki ráð fyrir að þeir átfci sig á þessu
strax“, sagði einn glottandi. „Og þegar beir vakna,
blessaðir, þá verðum við horfnir veg allrar verald-
ar“, sagði annar.
munu án efa sjá um það.
En það er kominn tími til,
að þessi pólitísku hlaupa-
gikkir okkar fari nú að lina
á sprettinum, gefi sér tóm
til að kasta mæðinni og hugsa
ráð sitt. Þessir menn vitna
sýknt og heilagt um „hið al-
varlega ástand í alþjóðamál-
um“ og nota öll áflog í heim-
inum, stór og smá, að yfir-
varpi, til að halda Islandi
hersetnu, þessir menn ættu að
íhuga ofurlítið nánar þær
grundvallarbreytingar, sem
orðið liafa í heiminum síðustu
mánuði. Þeir ættu að hugleiða
þá staðreynd, að með eld-
flaugatækni nútímans er hægt
að eyða, ekki aðeins hvert
mannslíf á íslandi, heldur allt
lífrænt efni, úr 8000 km fjar-
lægð. Sá sem heldur því fram
að hægt sé að ,,verja“ Island
í stórstyrjöld, ætti ekki að
eiga lögheimili annars staðar
en á fávitahæli. Island á sér að-
eins eina vörn, og hún heitir
hlutleysi. Hlutlaust ísland
getur átt kost á að lifa af
stórstyrjöld. ísland í hernað-
arbandalagi á sér enga lifs-
von. Þetta eru staðreyndir,
sem ekki verður um þokað.
Því er það, að hlutleysis-
stefnan er tekin að ryðja sér
til rúnis á meginlandi Evrópu,
og menn mega vera þess full-
vísir, að hlutleysishreyfingin
er ekki dægurfluga, heldur
munu æ fleiri þjóðir skipa
sér undir merki hennar og
bera hana fram til sigurs, því
að hún er þeirra eina von.
Island lét verða það sitt
fyrsta verk að lýsa yfir ævar-
andi hlutleysi, er það var
viðurkennt sjálfstætt ríki. Þá
var þörf, en nú er nauðsyn.
Því fyrr sem íslenzkir vald-
hafar skilja þessa na.uðsyn
því meiri Hkur eru á, að
þjóðinni verði bjargað frá
fjörtjóni. Og því meiri líkur
eru á, að ekki komi til styrj-
aldar. Ef svo heldur áfram
sem til þessa, að þjóðir jarð-
arinnar skipi sér í fylkingar,
hver í sínu herfélagi, þá hlýt-
ur að þvi að draga fyrr eða
síðar, að þessar fylkingar sigi
saman til orustu. Gegn slík-
um örlögum verður engu
öðru teflt en hlutlausum
þjóðum svo mörgum, að þeim
stórveldum, er þykjast ekki
geta leyst vandamál sía
nema með styrjöld, fallist
hendur og læri að sætta sig
við friðinn. Hlutlaust Island
á ekki aðeins kost á að
bjarga sjálfu sér frá tortím-
ingu. Það á einnig kost á að
leggja heiminum öllum lið-
sinni sitt.
Skáldaþáttur
Pramhald af 6. síðu
lega fjórara hendingar; fyrsta
og þriðja hending heita frum-
hendingar en önnur og fjórða
hending síðhendingar. Stuðla-
skipun ræður þeirri skiptingu
en ekki rímið.
Áður en lengra er haldið
vil ég biðja lesendur þáttar-
ins að senda mér athugasemd-
ir við þann fi’óðleik sem þátt*
urinn flytur, leiðrétta ef rangt
er og krefjast nánari skýr-
inga ef eitthvað er óljóst.
Eins og ég gat um áður
er til lítils að kenna mönn-
um að.géra vísú ef þeir.skynja
ekki- hljóm og samræmi þéirr-
ar vísu sem ort er að regl*
um þessum.