Þjóðviljinn - 02.04.1958, Side 9
p— t \ ÍÞRÖTTIR IHTSTJORl: FRtMANH HELCASOH
Handknatileiksmóiið:
KR vami Yal 31:15 og IR
sigraði Fram 22:17
Víkmgur sigugvegad I 3. ílokki I
Fyrsti leikur kvöldsins milli
þriðja flokks liða Ármanns og
Víkings var jafnframt sá fjör-
ugasti og tvísýnasti og mest
spennandi. Það leit lengi vel svo
út að Víkingar væru alveg ör-
uggir með sigur, því að í hálf-
leik stóðu leikar 3:1 fyrir þá,
og þeir bættu við eftir leikhlé
fjórða markinu. Ármenningar
voru ekki af baki dottnir og
jöfnuðu 4:4 og svo kom síð-
asta markið fáum sek. fyrir
leiklok, svo að framlengja varð.
Víkingur tekur enn forustuna og
Armann jafnar, en þá er það
Víkingur sem skorar 3 mörk í
röð og fá Ármenningar ekki að
gert. Skora þeir þó eitt mark
rétt fyrir lok framlengingar-
innar, svo að leikurinn endaði
8:6 fyrir Víkinga sem þar með
unnu þetta mót. Er ánægjulegt
að sjá, að hin nýju heimkynni
Víkings eru þegar farin að gefa
ánægjulegan árangur.
Þróttur vaiui Ármann í 1. fl.
í tilþrifalawsiun leik
Leikur þessi var frá upphafi
til enda fremur tilþrifalítll og
höfðu Þróttarar algjöra yfirhönd
.ailan fyrri hálfleik og stóðu leik-
ar 9:2 í hálfleik. En Þróttarar
virtust ekki taka síðari hálfleik-
inn sérlega alvarlega og töp-
uðu honum, en unnu samt leik-
inn 15:9.
KR vann Val
með yfirburðimi
Frá upphafi var leikur þessi
mjög ójafn og höfðú KR-ingar
öll ráð Vals í hendi sér. Lið
Vals var of veikt og sundurlaust
til þess að hægt sé að mynda sér
skoðanir um styrk KR-liðsins.
Þeir náðu oft liröðum og léttum
leik, sem vörn Vals hafði ekki
*■-----------*---------------
1 kvöld keppa
Þróttur — Fram
og IR - FH
I kvöld heldur móiið áfram
og fára þó fram úrslit í öðrum
flokki kvenna.
Ef dæma skal eftir leikjum
Þi'óttar og Fram undanfarið mun
•Fram varla lenda í miklurn erf-
iðleikum með Þrót-t. Þó hefur
það sýnt sig að Þróttarar geta
orðið erfiðir og náð leik sem
má vara sig á fyrir hin sterkari
lið. Það er líka heldur til hins
verra fyrir Framliðið að það
getur ekki haft. markmenn sína
með, eins og á móti ÍR.
Seinni leikurinn milli FH og
ÍR getur orðið skemmtlegur og
fjörlega leikinn, og vafalaust
munu ÍR-ingar ekkert til spara
að gera Hafnfirðingum erfitt
fyrir. Sennilegt er þó að þeir
standist ekki hraða þeirra og
kraft.
bohnagn og hugkvæmni til að
stöðva. Vörnin virtist því vera
mjög opin og auðveld fyrir KR
að komast í gegnum, enda skor-
uðu þeir 31 mark í leiknum sem
stendur þó ekki nema í 50 mín.
Árni Njálsson var . .ekki með
Val að þessu sinni og vantaði
þar mjög sóknai'kraft sem
hefur sýnt sig að gei'a margt
vel. Leikur Vals fyrir framan
mark KR var oft mjög lítið
hugsaður og furðulegar sending-
ar inn á línu sem engan til-
gang höfðu nema að 'tapa knett-
inúin, enda var vörn KR nokk-
uð sterk, a. m. k. fyrir sókn
Vals.
Lið KR var jafnt, og eins og
það lék í þessum leik þá var
það heilsteypt og féll vel sam-
an. Þeir sem skoruðu fyrir KR
voru Karl 11, Þórir 7, Reynir 5,
Heins 4, Hörður 2 og Pétur 1.
Fyrir Val skoruðu: Geir 7,
Marteinn 4, Bogi, Valur, Stefán
Íþróttasíðunni hefur borizt
nýtt félagsblað sem félag eitt
hér í bæ hefur gefið út. Blaðið
er ekki stórt í sniðum, en það er
smekklega frá þvi gengið og
bjart yf'ir því,, og vissufega
stendur á bak við það mikil
bjartsýni og vorhugur. Ef betur
er að gætt eru það einmitt vor-
menn sem að því standa, að
kalla má kornungir drengir, sem
þó vita hvað þeir vilja.
Þeir hafa sem sagt stofnað
með sér félag sem þeir kalla
„Knattspymufélagið Reynir"
Það hefur ekki farið mikið fyr-
ir því í frásögnum, en þrátt
fyrir það hefur áhugasamur hóp-
ur sameinazt um knattspyrnu-
leikinn og efnt til ,,Bikarkeppni“
og harðir bardagar verið háðir
um bikarinn. Það merkilega við
þetta er að félagið er stofnað
1951 og lifir góðu lífi. Sam-
kvæm’t þessu fyrsta blaði fara
fram skemmtifundir á vegum fé-
lagsins og þeir velja líka „í-
þróttamann ársins“. Á skemmti-
fundi sem félagið hélt 15. febr.
var Jónas Bergmann kjörinn „í-
þróttamaður félagsins“. Á eftir
honum kornu, éftir atkvæða-
magni: Ragnar Geirdal, Guðjón
E. Ólafsson, Ragnar Kristjáns-
son og Tómas Bergmann.
Þegar þeir í blaði sínu ræða
um æfíngarnar 'eru þeir ekki
myrkir í máli. Þar segir m. a.:
„— — Margii* hugsa einungis
um að keppa, en hvað þýðir að
vera að keppa þegar aldrei er
æft?
Þegar búið er að æfa vel, er
hægt lað fara að Lugsa til
keppni. En Reynismenn hafa
ekki æft enda sýndi það sig síð-
astl. sumar. Leikmenn gátu yfir-
| og Ingi 1 hver. Dómari var
; Hannes * Sigurðsson og dæmdi
i vel.
ÍR vaim Fram
sem var svolítið óheppið
Fyrirfram var gert ráð fyrir
nokkuð jöfnum leik, en það
verður ekki annað sagt en að
Framarar hafi verið fremur ó-
heppnir í leik þessum, svo mun-
ur hefði getað orðið minni en
raun varð. Koma þar til bæði
stangarskot og eins að misnota
tvö vítaköst þegar leikar stóðu
16:13, og það í röð.
Eigi að síður verður ekki ann-
að sagt en að sigurinn hafi lent
réttu megin því að ÍR-ingar léku
skemmtilegri handknattleik og
voru rneir leikandi og hugkvæm-
ari í leik sínum, og eins og þeir
ættu hægara með að finna leið-
ina að marki Fram. Þeir voru
hreyfanlegri og heldur öruggari.
Það var líka áfall fyrir Fram að
hafa hvorugan markmann sinn
með, þá sem vanir eru að leika,
svo að grípa varð'tit SteiWs Guð-
mundssonar sem ekki er í æf-
ingu en gerði stöðunni þó furðu
góð skil.
Leikurinn var oft nokkuð
skemmtilegur og vel leikinn.
Þeir sem skoruðu fyrir ÍR
voru: Gunnlaugur 11, Hermann
5, Valur 4, Ólafur og Þorgeir 1
hvor.
Fyrir Fram skoruðu: Karl 4,
Rúnar og Ágúst 3 hvor, Jón
Friðst. og Reynir 2 hvor og Jón
Þorláksson 1.
Dömari var Magnús Pétursson
og dæmdi yfirleitt vel, en var of
strangur á vítaköstum.
leitt ekki neitt. Reynir keppti
eina þrjá leiki við Örninn og
tapaði öllum. En hvers vegna
„rótburstaði" Örninn Reyni
svona? Af þeirri einföldu á-
stæðu að méginþorri Reynis-
manna æfði ekkert. Eg vona nú
að félagsmenn hugsi una þetta
og taki sig á í sumar.-------“
Unnið er að því að gera sér-
stakt merki fyrir félagið.
S.l. laugard. efndu Reynis-
menn til árshátíðar fyrir félagið.
Samkvæmt blaðinu virðist á-
hrifasyæðið vera Ljósvallagatan
og nágrenni. Er þar og getið
samyinnu við nokkur félög á
Sólvöllunum og þar í grennd.
Eru tilgreind Knattspyrnufél.
Fálkinn fyrir sunnan Hring-
þraut, og svo félög á Sólvöllun-
um: Kf. Örninn og Kf. Þröstur,
og sendu sum félaganna a og b
lið til keppni. Og svo segjum
við hinir eldri að unga fólkið
aðhafist ekki neitt í fristund-
um sínum. En þarna hrærist
heill heimur sem við fylgjums't
lítið með, þar sem byggðar eru
borgir, háðir bardagar, keppt í
öllum mögulegum íþróttagrein-
um, og það af fullu kappi og
alvöru.
Það væri í rauninni fróðlegt
að vita hvað mörg drengjafélög
væru starfandi að jafnaði hér í
Reykjavík. Það væri líka svo-
lítið verkefni fyrir Knattspyrhu-
ráð Reykjavíkur að athuga hvort
það gæti á einhvem hátt að-
stoðað þessa ungu knattspymu-
menn. Þeir eru um allan bæ,
þótt þeir gefi yfirleitt ekki út fé-
lagsblöð.
Þetta er góð byrjun Reynis-
menn! Haldið áfram!
..Reynir", 1. érg. 1. tbl.
Miðvikudagur 2. aprö 1958 — ÞJÓÐVILJINN — fl
Nýtt dilkakjöt, ! * I
Hangikjöt,
Nautakjöt í buff og gúllash,
Niðurskorið álegg. j
Kjöibúðir
Skólavörðustíg 12, — Sími 1-12-45,
Barmahlíð 4, — Sími 1-57-50,
Langholtsvegi 136, — Sími 3-27-15,
Borgarholtsbraut, — Sími 1-92-12,
Vesturgötu 15, — Sími 1-47-69,
Þverveg 2, — Sími 1-12-46,
Vegamótum, — Sími 1-56-64,
Fálkaoötu, — Sími 1-48-61.
KOÖkBUÞ
Hlíðarvegi 19, Kópavogi.
TRIPPAKJÖT,
reykt — saltað og nýtt
Svið — Bjúgu
Létt saltað kjöt
Verzlunin
Hamraborg
Hafnarfirði
Sími 5-07-10.
Hamflettur svartfugl.
Láfur, hjörtu, svið.
Kjöt & Fiskur
KJÖRBÚÐ
Baldui'sgötu, Þórsgötu.
Sími 1-3828.
Allt það bezta
í hátíðamatiim fæst í
verzluninni BALDRI.
Framnesvegi 29. Sími
1-4454.
Lipur afgreiðsla.
HÚSMÆÐUR
gerið matarinnkaupin
hjá okkur
Kaupfélag Kópavogs
Álfhólsvegi 32
Sími 1-96-45
Páskaegg
og allt til bökunar,
Kjöt & Fiskur
Kjörbúð,
(Baldursgötu, Þói'sgötu.
Sími 1-3828.
I hátíðarmatinn
Úrvals hangikjöt. Dilkasvið. Svínasteikur.
Nautagullach. Parísarsteikur.
tCjötborg
við Háaleitisveg, sími 3-28-92.
I hátíðamatinn
Nýreykt hangikjöt.
Alikálfasteikur og snittur.
Nautakjöt í filet, buff, gullach og hakk.
Kfötvsrzlunin Búrfell
Skjaldborg við Skúlagötu. — Sími 1-97-50.
Híismæður
Sendum heim fyrir páskana nautakjöt, svinakjöt,
hangikjöt, dilkakjöt og tryppakjöt. i
Pantið í tima í síma 3-29-47. í
Kföt og fllegg
Grensásvegi, ! ^ J