Þjóðviljinn - 24.11.1959, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 24.11.1959, Blaðsíða 1
 I‘riðjudagur 24. nóvember 1959 — 24. árgangur — 258. tbl. Fyrsta nutl hins nýhjörna Alþingis: Bœta þarf tafarlaust úr hinni brýnu fjórþörf til íbúðabygginga Hannibal Valdimarsson flyfur /DÍngsálykfunartillögu um fjáröflun handa ByggingarsjóSi rikisins Hannibal Valdimarsson Fyrsta málið, sem lagt hefur verið fyrir hið ný- kjörna Alþingi er þingsálvktunartillaga um ráð- stafanir til að bæta úr fjárbörf Byggingarsjóðs rík- isins. Flutningsmaður tillögunnar er Hannibal Valdimarsson. í tillögu Hannibals er lagt til að gerðar verði þrennsr ráðstafanir til fjáröflunar: 'jlr Að Seðlabankanum verði falið að tryggja sölu á A- og B-flokks bankavaxtabréfum fyrir 40 milljónir króna sam- tals. Að ríkisstjórnin beiti sér fyrir því að atvinnu- leysistryggingasjóður kaupi A-flokks bréf fyr- ir allt að 10 milljónir króna eða Byggingasjóð- ur fái 10 milljóna króna lán hjá sjóðnum tii skemmri tíma. ^ Að tekið verði erlent lán að upphæð 50 millj- ónir króna til húsnæðis- málanna. Yrði megin- hluta lánsins varið til byggingarstarfsemi á vegum Húsnæðismála- stofnunarinnar sjálfrar, á félagsgrundvelli, og við Ungverjaland á dagskró Ungverski fultrúinn telur það íhlutun um innri mál landsins Dagskrárnefnd. allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær með 15 atkvæðum gegn 3 (2 sátu hjá) að leggj'a til að á- standið í Ungverjalandi verði rætt á allsherjarþinginu. Þingið sjálft þarf að samþykkja tillögu nefndarinnar ef taka á málið fyrir. Fulltrúi Ungverjalands sat fund dagskrárnefndarinnar sem á- heyrnarfulltrúi með ræðurétti. Hann sagði í ræðu sinni, að alls- herjarþingið hqfði engan rétt til íhlutunar um innanríkismál Ung- verja. Tillaga þessi væri aðeins fram komin til þess að auka kalda stríðið og blása að glóðum úlfúðar milli þjóða. það miðað að lækka í- búðaverð, og bæta úr þeirra^ settir í húsnæðisvanda sem verst eru þeim efnum. Tillaga Hannibals er eins og áður segir 1. mál hins ný- 'kjörna þings. Öðrum þingskjöl- um hefur enn ekki verið út- býtt. Magnús Torfi Ólafsson Ivar H. Jónsson Engin vopnaviðskipti við Kína meðan samningar standa yfir Ummæli Nehrus varðandi landamæradeil- urnar. — Pakistan virðir ekki landa- mærasamninga í Ladak Nehru, forsætisráðherra Indlands, sagöi á fundi efri deildar indverska þingsins í gær, að Indverjar myndu ekki beita vopnavaldi i Ladak-héraöi meöan aö samn- ingaumleitanir stæöu yfir milli kínversku og indversku stjórnanna um landamæradeiluna. Breytingar gerðar á rit- stjóm Þjóðviljans Magnús Torfi Ólafsson hefur verið ráðinn ritstjóri við Þjóð- viljann. Mun hann annast rit- stjórn á almennu efni blaðsins og daglegu útliti, en Magnús Kjartansson og Sigurður Guð- mundsson verða stjórnmálarit- stjórar. Þá hefur ívar H. Jónsson ver- ið ráðinn til þess að annast dag- lega ritstjórn innlendra frétta, en Jón Bjarnason verður rit- stjóri fréttaþátta, annast viðtöl qg annað hliðstætt efni. Magnús Torfi Ólafsson hefur starfað við Þjóðviljann sem ritstjóri eriendra írétta síðan Franska stjórnin biðst afsökunar Franska rikisstjórnin hefur sent vesturþýzku stjórninni af- sökunarbeiðni, vegna þess at- burðar í byrjun mánaðarins, er frönsk herskip neyddu flutn- ingas'kipið Bilbao að fara til hafnar í Frakklandi. Skipið var á leið til Marokkó. Fullyrtu Frakkar fyrst að Framhald á 3. síðu. 1945, og fvar H. Jónsson sem fréttamaður við innlendar frétt- ir síðanl 1953. Jafnhliða þessum skipulags- breytingum eru fyrirhugaðar ýmsar aðrar breytingar á rit- stjórn blaðsins og efni til þess að auka fjölbreytni þess. Nehru var að því spurður, hvað indversk yfirvöld hygð- ust gera til að hindra það að Kínverjar leggðu fleiri vegi í hinum umdeildu héruðum. Nehru svaraði því til, að Ind- verjar myndu ekki grípa til vopna til að hindra slíkt. Ind- verska stjórnin myndi fyrst reyna samningaleiðina. Ef hún mistækist myndu yfirvöld hers- ins verða að segja álit eitt á vænlegum aðgerðum. Forsætis- ráðherrann bætti því við, að indverska stjórnin hefði ekk- ert á móti þvi, að Kínverjar notuðu vegi þá, sem þeir þeg- ar hafa lagt í friðsamlegum tilgangi, en hún myndi mót- mæla notkun þeirra í hernað- arþágu. Pakistan borðar andstöðu Ajub Kahn, forseti Pakistan, lýsti yfir þvi í gær, að Pak- istan myndi ekki viðurkenna neina samninga milli Indverja og Kínverja um hlutlaust svæði á landamærunum í Ladak-héraði. Sagði forsetinn að Ladak væri í Kasmír, sem Indland og Pakistan deildu um, og væri ekki hægt að gera neina samninga um þessi svæði án samráðs við ríkisstjórn Pakistans. r Deilt liarkalega á Menon Þingflo'kkur Kongressflokks- ins á Indlandi hélt fund í gær. Urðu þar harðar deilur út af Krishna Menon, land- varnaráðherra. Deildu sumir þingmenn harkalega á Menon, og sögðu að hann hefði algjör- lega látið undir höfuð leggj- ast að skipuleggja varnir lands- ins. Kröfðust sumir þess að Menon yrði látinn víkja úr rmbætti og Nehru forsætisráð- herra látinn taka við embætti 'hans. Nehru tók ekki til máls •á fundinum, en sjálfur er Men- on í New York. Nýir iorsetar í sameinuðu þingi og báðum þingdeildum Mikil mannaskipti i efri deild Alþingis Alþingi kaus í gær embættismenn sameinaös þings cg beggja þingdeilda. Uröu þar miklar breytingar á og eins á skipan efri deildar. Forseti sameinaðs þings var kjörinn Friðjón Skarphéðinsson. Forseti efri deildar Sigurður Ó. Ólason og forseti neöri deildar Jóhann Hafstein. Sameinað þing Þingsetningarfundi sameinaðs þings var ekki lokið á föstudag, og stjórnaði aldursforseti þings- ins, Gísli Jónsson, honum þar til forseti hafði verið kosinn. Voru fyrst athuguð kjörbréf fjögurra þingmanna, sem ekki höfðu verið komin á föstudag- inn. Voru það kjörbréf Gunnars Gíslasonar, 2. þm. Norðurlands- kjördæmis vestra, Benedikts Gröndal, 5. þm. Vesturlandskjör- dæmis, Jónasar Rafnar, 2. þm. Norðurlandskjördæmis eystra og Jóhanns Hafsteins, 5. þm. Reyk- víkinga. Lögðu framsögumenn' kjördeilda til að kosning þing- manna yrði’ tekin gild og kjör- bréfin samþykkt. Voru þau öll samþykkt með 53 samhljóða at- kvæðum. Hófst þá kosning á embættis- mönnum þingsins. Fór hún sem hér segir: Forseti sameinaðs þings: Kjör- inn var Friðjón Skarphéðinsson með 33 atkvæðum, Karl Kristf- ánsson hlaut 17 atkvæði, Hanni- Framhald á 3. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.