Þjóðviljinn - 29.11.1959, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 29.11.1959, Blaðsíða 4
4)*— ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 29. nóvember 1959 Friðrik - Keres Þing Alþjóðaskáksambands- ins F.Í.Ð.E. var haldið í Luxemburg 13.—24. sept. sl. Hér verður stiklað á stóru • um helztu ákvarðanir þings- ins: Þrír nýir stórmeistarar voru tilnefndir Það voru: Lotar Schmid (Vestur- Þýzkalandi) J. Donner (Hollandi) og W. Uhlmann (Austur- Þýzkalandi). Eftirtaldir skákmenn voru ■útnefndir alþjóðlegir meist- arar: Bielicki (Argentina) Wexler (Argentína) Farré (Spánn) • Perez (Spánn) Fichtl (Ték'kóslóvak'ía) Þá voru og útnefndir nokk- ir alþjóðlegir skákdómarar. Svæðakeppnir fara fram á árinu 1960, og er heiminum skipt í 9 svæði. Þau eru eft- irtalin: 1. svaeðí (Vesturevrópa): Suður-Afríka (!), England, Belgía, Spánn, Frakkland, Ir- land, Italía, Luxemburg, Mon- ako, Holland, Portugal, Sviss, Túnis. 2. svæði (Miðevrópa): Vestur-Þýzkaland, Austur- Þýzkaland, Austurríki, Dan- mörk, Finnland, Island, Noreg ur, Svíþjóð, 3. svæði (Austurevrópa): Albanía, Búlgaria, Ung- verjaland, Líbanon, Malta, Pólland. Rúmenía, Tékkósló- vakía, Júgóslavía. 4. svæði: Sovétríkin. henni taka þátt 22 skákmenn og útveljast þeir á eftirtalinn hátt frá hinum einstöku svæðakeppnum Frá svæðum 1—3 veljast 3 efstu menn úr hverju móti (9 alls). Frá svæði nr. 4 koma 4 efstu menn. Frá 5. svæði !koma 3 menn, frá 6. aðeins efsti maður, sömuleiðis frá 7. svæði. Frá 8. svæði koma hinsvegar 3 þeir efstu, en frá 9 svæði aðeins efsti maður, eða samtals 22 menn. Næsta kandidatamót fer Iíeres svo fram 1962. 1 því hafa þátttökurétt 6 efstu menn frá Alþjóðasvæðakeppninni og til viðbótar 2 efstu menn á ný- afstöðnu kandídatamóti. Missi iheimsmeistarinn titil sinn á tímabilinu milli tveggja kandídatamóta, þá hreppir hann þó þennan rétt í stað hins nýja heimsmeistara. Næsta kandídatamót verður því skipað 8 mönnum og teflt fjórföld umferð með sama sniði og á kandídatamótinu, sem nú er nýlokið. Hvítt Keres — Svart: Friðrik SIKILEYJAKVÖRN 1. e4 c5 2. Rf3 a6 (Svartur bryddar upp á þessu ævagamla afbrigði í þeirri von að hvítur rati ekki á bezta mótleikinn. Honum verður að þessari von sinni). 3. d4 (?) (Farsælast er 3. c3(!). 3. c4 eða jafnvel 3. Rc3). 3. cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 (5. e5 strandar að sjálfsögðu á 5. — Da 5f). 5. e5 6. Rf3 Bb4 (Lykilleikurinn að uppbygg- ingu svarts). 7. Rxe5 (Djarflega leikið! Hvítur hyggst nú svara 7. — De7 með 8. Rc4, Rxe4. 9. Be2!, Rxc3. 10. bxc3, Bxc3f. 11. Kfl, Bxa'l 12. BaS. en svart- ur hefur betri leik á taktein- um). 7. 0-0! 8. Bd3 (8.Bg5 strandar á — Dc7). 8. d5 (Nú hlýtur hvltur að missa peðið sitt aftur og hljóta að auki lélega stöðu). 9. 0-0 (9. exd5 gengur ekki vegna 9. — He8). 9. Bxc3 10. bxc3 dxe4 11. Be2 Dc7 12. Rc4 Hd8 13. Bf4! De7 (Eftir 13. — Hxdl 14. Bxc7 Framhald á 10. síðu BÆJARPOSTURINN 9 Jafnrétti karls oa konu Bæjarpóstinum hefur bor- izt alllangt bréf frá'Þ.M. þar sem rætt er um jafnrétti karls og konu. Verður það birt hér á eftir ofurlítið stytt. Þ.M. segir: ,,Eg býst við, að bókmenntafræðingar telji ritn inguna elzta ritsafn veraldar. En þar er konunni ekki gert hátt undir höfði. Fræðimenn þeirra tíma töldu. að skapar- inn hefði á skömmum tíma skapað fyrsta föður og fyrstu móður allra dýra þessa heims, nema móður mannsins, kon- una. Hún var fyrsti iðnaður í mannheimi, búin til úr parti af manninum, sem aldrei skyldi þó verið hafa, því að hún varð honum til ills eins. Án hennar hefði hann verið heilagur enn I dag. En þar skortir nú allmikið á eins og dæmin sanna. Á þessum grundvelli hefur svo sambúð karls og konu verið byggð allt til vorra daga.“ • Halla dómarar á konur? Þ.M. víkur síðan máli sínu að dómurum bæði fyrr og síð- ar og þykir honum, sem þeir hafi í dómum sínum lengi skammtað konunni minni rétt en karlmanninum og vitnar máli sínu til sönnunar í forn dómskjöl. Síðan víkur hann máli sínu að nútimanum og segir: „Nú fyrir nokkrum ár- um tók Ríkisútvarpið upp þáttinn ..hæstaréttarmáT' Hann skýrir tildrög mála, for- sendur og dómsniðurstöður og virðist manni, að nú sé rétt- lætið mjög í hávegum haft, Má þó vera, að þau ein mál séu valin tii flutnings, send ekki «rka tv’ímælis eða að framsetningin geti einhverjn ráðið, en þátturinn er með afbrigðum vel fluttur. En nál kom heldur babb í bátinn, Tvö dómsmál voru um svip-* að leyti gerð að blaðamáli. Og þá 'kveður heldur betur við annan tón: Maður dettur um planka í húsasundi og slas- ast ekki þó hættulega. Hon- um eru dæmdar 18 þús. kr, I skaðabætur auk málskostnx aðar, alls 24 þús. kr. frá þeim, sem lagði plankann I sundið. En kona í leigubíl slasast lífshættulega. Hún fær ekki einn eyri I skaðabætur, Bæði málin gengu frá undir- rétti til hæstaréttar og for* sendur fyrir báðum dómun- um álíka furðulegar: Maður leggur staur í húsasund og hirðir ekki um að mála hann. Fyrir það skeytingarleysi fær hann 18 þús. kr. sekt. Það að karlmaður sem slasast. Bíl- stjóri tekur að sér að flytjá fólk ásamt eldfimum varningi. Fólkið reykir og bílstjórinn skeytir ekki um að banna það, Svo kviknar í bílnum og bíl- stjórinn. stekkur út en hirðir ekki um að bjarga- fólkinu. Fyrir það þarf hann engu að svara. Þar var það kvenmað- ur, sem var næstum þvl 'brunnin inni og lengi vel ekki hugað líf.“ «M* l A misskilninal bvaat Af þessum tveim málum dregur Þ,M. þá ályktun, að Framhald á 11. síðu. MÁL og menning 5. svæði: Bandaríkin. 6. svæði: Kanada. 7. svæði (Mið-Ameríka): Kuba, Mexikó, Puerto Ríco, Venesuela. 8. svæði (Suður-Ameríka): Argentína, Bolivía, Brasil'ía, Paraguay, Peru, Uruguay. 9. svæði (Asía): Ástralía(!), Indland, Iran, Israel, Malakka, Mongolla, Nýja Sjáland, Philipseyjar. Hin ýmsu lönd senda mis- munandi marga menn til svæðamótanna. Sum aðeins 1, þar á meðal Island. Alþjóðasvæðakeppnin (sam- svarandi Portoroz-mótinu), fer síðan fram árið 1961. I Sú breyting var gerð á réttindum heimsmeistarans, að hann missir réttinn til að skora á andstæðing sinn til endurkeppni um titilinn, ef hann tapar honum (sbr. er Botvinnik vann titilinn aftur af Smisloff). Þessi nýja regla gildir þó ekki um næsta heimsmeistaraeinvígi, sem ■fram fer í vetur, þannig að Botvinnik mundi hafa rétt til að skora á Tal, ef hann tap- aði fyrir honum titlinum. Fleiri samþykktir voru gerðar svo sem um keppnis- fyrirkomulag á Olympíuskák- mótinu sem fram fer á næsta ári. Það verður breytilegt eft- ir þvi hve margar þjóðir mæta til leiks. Þá var hámarksaldur stúd- enta á hinum alþjóðlegu stúdentaskákmótum ákveðinn 27 ár. Forseti Alþjóðaskáksam- bandsins er Svíinn Folke Ro- gard, og nýtur hann mikils á- lits og vinsælda i þvl starfi. Bókmenntakynning af tilefni sextugsafmælis 1ÓHANNESAR SKÁLDS ÚR KÖTLUM í Gamla Bíói í dag klufckan 14.30 , Ávarp: Kristinn E. Andrésson Ræða: Guðmundur Böðvarsson skáld Upplestur: Baldvin Halldórsson leikari Upplestur: Þorsteinn Ö. Stephensen leikari Upplestur: Helgi Hjörvar rithöíundur Upplestur: Bryndís Pétursdóttir leikkona Upplestur: Lárus Pálsson leikari Einsöngur: Kristinn Hallsson óperusöngvari — undirleikari Fr; Weisshappel Upplestur: JÓHANNES ÚR KÖTLUM Kynnir: Jón Múli Árnason Aðgöngumiðar í bókabúðum Máls og Menningar, Skóla- vörðustíg og KRON, Bankastræti. I dag skoðum við vinnings- skák Friðriks gegn Keresi úr síðustu umferð kandídata- mótsins. Skýringar við skák- ina eru eftir Freystein Þor- bergsson.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.